Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 12. JÚNf 2008 BlLAR DV HIN NYJA GERÐ AUDI A4 Er stærri en áður og mjög líkA6-geröinni í útliti. Ljósarööin undir aðalljósunum eru dagljósin -14 Ijósadíóður ísveig. Helmingur allra Audi-bfla sem framleiddir eru er Audi A4. Það er því dagljóst að þessi bfll hefur hitt rækilega í mark. Audi A4 er millistærðarfólksbfll og samkeppnin í þessum stærðarflokki er hörð. Af beinum keppinautum A4 má nefna BMW 3 línuna og C-línu Mer- cedes Benz. Audi er eins og þessir tveir íyrrnefndu, einskonar lúxusflokkur innan millistærðarflokksins. Af öðrum bílum af svipaðri stærð má svo nefna Ford Mondeo, Volkswagen Passat og Skoda Octavia þannig að neytendur hafa úr mörgum góðum kostum að velja í þessum stærðarflokki. Hin nýja uppfærsla á Audi A4 sem við reynsluókum í síðustu viku er af- skaplega þægilegur og vandaður bfll. Reynsluakstursbíllinn var með 1,8 lítra túrbínubensínvél sem er bæði sparneytin og öflug. Eftirtektarvert er hversu vinnsla hennar er jöfn og góð og aflið er tiltækt hvenær sem er án nokkurs minnsta hiks. Þá er hann gír- aður þannig að á 90 km þjóðvegahraða er vélin nánast á hægagangi (cal200 sn./ mín.) og eldsneytiseyðslan mjög hófleg. Undirvagn bflsins er vel stinn- ur þannig að í akstri virkar bfllinn mjög trausdegur og með pottþétta og við- ráðanlega aksturseiginleika. Hljóðein- angrun er með því besta sem gerist í boði. Öflugasta dísilvélin er líka V6. Hún er 237 hö. En ef menn þurfa ekki öll þessi 237 dísilhestöfl er í boði 187 ha. 3,0 V6 dísilvél og loks nýjasta gerð 2,0 1 TDI dísilvélarinnar frá VW. Hún fæst bæði í 141 og 170 hestafla útgáf- um. Væntanleg er svo á næsta ári ný dísilvél sem er 120 hö. sem gefur frá sér allt að 120 grömm af kolefni á hvem kflómetra - semsé það umhverfismild að Audi A4 með þeirri vél ættí að fá ftítt í stöðumæla í miðborg Reykjavíkur. Reynsluakstursbfllinnvarmeð stíg- lausri CVT-sjálfskiptingu en fáanleg- ir em einnig sex gíra handskiptur gír- kassi og sjö gíra DSG-sjálfskiptígírkassi. Við öflugustu dísilvélina fæst einungis handskipting. Gott pláss Hinn nýi A4 er rúmgóður og sagður með rúmbestu bílum í sínum stærðar- flokki en geta verður þess að hann er líka einn sá stærsti um sig í flokknum og hátt í 12 cm lengri en sá A4 sem hann leysir af hólmi. Það em sérstak- lega afítursætisfarþegarnir sem njóta góðs af stækkuninni því þar er fótarými ágætt og sömuleiðis rými fýrir höfuð og herðar. Farangursrýmið er mjög gott. Rúmtak þess er 480 lítrar. Um tvær meginútfærslur í innrétt- ingum og búnaði er að velja í milli. Bfll- inn sjálfur hefur hlotíð fimm stjömur í EuroNCAP-árekstursprófi og er með ágætum öryggisbúnaði fýrir fullorðna og börn. Fimm loftpúðar og hinn lífs- nauðsynlegi ESC-skrikvarnarbúnaður er staðalbúnaður. Reynslubfllinn var því til viðbótar með skynjurum í fram- og afturstuðurum sem gefa frá sér hljóð þegar smtt er í að keyra utan í eða á hluti í næsta umhverfi. Loks var í hon- um leðurinnrétting, B&O-hljóðkerfi og sjálfvirk hita/kælikerfi með sérstilling- um fýrir hvort framsætí um sig. Mikið úrval ýmiss annars þægindabúnaðar er síðan fáanlegt, m.a. upphimð og/ eða kæld framsætí. SÁ. EKKERT VANTAR - ENGU ER OFAUKIÐ Allt yflrbragð bllsins er meö einkennum látlauss virðuleika. SKOTTIÐ ER MJÖG STÓRT Rúmtak þess er 480 lltrar. DV-myndirStefán Ásgrtmsson þannig að sáralítíð vélarhljóð heyrist inn í bflinn. I akstri heyrist aðeins smá hjólahvinur en ekkert vindgnauð, hvað þá skrölt. 10 vélargerðir Hægt er að fá Audi A4 nánast klæð- skerasaumaðan eftir sínu höfði hvað varðar búnað hverskonar. Þannig er úr hvorki meira né minna en 10 gerðum véla að velja og er sú minnsta þó 120 hestöfl og sú öflugasta 261 ha. Reyslu- akstursbfllinn var með þeirri næst- minnsm. Hún er bensínvél, 1,8 1 að rúmtaki, með túrbínu og aflið er 160 hö. og fínni vinnslu sem fýrr er sagt. Þeir sem vilja meira en það (sem er óþarfi) geta fengið 2,01 Golf GTi vélina sem er 208 hö. eða þá 3,2 1V6 261 ha. vél sem er sú öflugasta af bensínvélum INNRÉTTING Á skjánum fyrir miðju mælaborði sést hversu langt er I að keyia á hluti (umhverfinu. Hljóömerki heyrist þega r styttist í þaö. Mæla borðiö er a nna rs, eins og innréttingin öll, vandaðog með y yfirbragði látleysis og virðuleika. '4 NIÐURSTAÐA + Rúmgóður og sparneytinn iúxusbíll i millistærðarflokki. -Talsvert dýr. Audi A4 1,8T Verð kr.: 4.560.000,- Lengd/breidd/hæð í cm: 470,3/182,6/142,7’ Þyngd tilb. til aksturs: 1.450 kg Vél: 4 strokka túrbínubensínvél, 1.798 rúmcm Afl: 160 hö./ 4500-6200 sn. mín. Vinnsla: 250 Nm / 1.500-4500 sn. mín. Gírkassi: Stiglausitölvustýrð CVT skipting með sportstillingu. Viðbragð 0-100:8,6 sek. Hámarkshraði: 218 km/klst. Eldsneytiseyðsla: Þéttbýli 9,71/100 km Langkeyrsla 5,81/100 km Bl, akstur 7,21/100 km C02 útblástur: 172 g / km Farangursrými: 480 lítrar Hámarksþyngd vagns: 1500 kg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.