Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 12.JÚNf2008
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elln Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og ReynirTraustason, rt@dvis
FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Janus Sigurjónsson, janus@dv.ls
FRÉTTASTJÓRI:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.ls
AUGLÝSINGASTJÓRl:
Ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
DREIFINGARSTJÓRI:
Jóhannes Bachmann, joib@birtingur.is
DV A NETÍNU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 70 40.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Drelfing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaösins eru hljóðrituð.
SAJVDKORN
■ Egill Helgason rekur sögu nátt-
úruverndarmótmæla síðustu ára
á bloggsíðu sinni. Hún felst í því
aðþeireruá
mótiöllum V "
þungaiðn-
aði og öllum
virkjunum,
þegar öOu
er á bominn
hvolft. Fyrst
mátti ekki
virkja á Eyja-
bökkum og Kárahnjúkar valdir
í staðinn, enda þótti umverf-
ið þar síst markvert, samkvæmt
grein Hjörleifs Guttormssonar
í Arbók Ferðafélagsins. Síðan
varð líka ómögulegt að virkja við
Kárahnjúka. Nýja töfraorðið varð
jarðvarmavirkjanir. En það er líka
orðið ómögulegt, eins og sést á
mótmælum gegn Bitruvirkjun.
Aðdáun útlendinga á náttúm-
vænum virkjunum hérlendis
linnir þó ekki.
■ Athygli vakti á dögunum að
Björgvin G. Sigurðsson, við-
skiptaráðherra úr Samfylking-
unni, skyldi hafa tekið skóflu-
stungu fyrir álverinu í Helguvík.
Flestum er í fersku minni að Sam-
fylkingin hét stóriðjustoppi fyrir
kosningarnar 2007, eða eins og
það var orðað í opinberri stefnu-
yfirlýsingu: Að slá ákvörðunum
um frekari stóriðjuframkvæmdir
á frest þar til heildaryfirsýn fæst
yfir helstu náttúruperlur fslands
o.sfrv. Björgvini G. verður þó lík-
lega að fyrirgefa að hann skyldi
ekki meta umhverfið í Helguvík
sem helsm náttúmperlu landsins.
■ Dofri Hcrmannsson leikari er
líklega harðasti náttúruverndar-
sinninn í Samfylkingunni. Hann
lýsir opinberlega yfir sárum
vonbrigðum með skóflustungu
Björgvins G. Sigurðssonar, þótt
hannnefni
« hann ekki á
1 nafn í blogg-
' ^ færslusinni.
Dofri er hins
vegar efa-
semdamaður
og ætlar að
láta Björgvin
njóta vafans.
„Kannski var einhverju laumað í
kaffið hans," skrifar hann. Öðrum
þykir sennilegt að Björgvin hafi
drukkið „fair trade" kaffi.
■ Gríðarlegar væntingar voru
gerðar til Kára Stefánssonar
og félaga um framtíðarhagnað
þegar deCODE kom inn í kaup-
höllina í New York, verðlagt á
29 dollara fyrir hvern hlut. Segja
má að nú séum við í framtíðinni
og ekki fór sem á horfðist. De-
CODE fór í
gær undir 90
sent á hlut,
eða 3% af
upphaflegu
virði. Þeir
hljóta nú að
klóra sér í
hausnum,
íslensku
viðskiptasérfræðingarnir sem
sögðu að það væri meiri áhætta
fólgin í því að fjáfesta ekki í de-
CODE en að fjárfesta.
LEIÐARI
Lúðvík á heiður skilinn
REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR.
Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformað-
ur Samfylkingar, er maður sem stendur
við sannfæringu sína. Hann hefur sagt
að nauðsynlegt sé fyrir samfélagið að
rannsaka aðdraganda Baugsmálsins og fram-
vindu þess. Þingflokksformaðurinn talar hreint
út en lætur ekki stjórnast af því að flokkur hans
er í stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn
sem ber stærsta ábyrgð á dómstólum og lög-
reglu á því tímabili sem málið stóð yfir. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylk-
ingar, hefur aftur á móti haft sig lítið í frammi
þótt hún hafi á sínum tíma haldið tvær Borgar-
nesræður um einelti lögreglu og kallað yfir sig
reiði Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráð-
herra. Nú er hún Ingibjörg Sólrún þögnuð og
tekur völdin fram yflr heiðarleikann og lætur
þögnina umlykja spillinguna. Innan Sjálfstæð-
isflokksins ríkir líka ákveðin þögn þótt mörgum
góðum flokksmanninum blöskri framgangan
og hinn pólitíski þáttur Baugsmálsins.
Sjaldgæft er að stjórnmálamaður sýni slíkt
hreinlyndi eins og Lúðvík gerir og ýti til hliðar
„Nú er Itiín lngibjörg Sólrún þögnuð".
þeirri meðvirkni sem gjarnan lit-
ar stjórnmálamenn í samstarfi.
Lúðvík hefur áður stigið á tær
samstarfsflokksins með kröfu
sinni um að embætti ríkislög-
reglustjóra verði skorið nið-
ur. Það bákn er fyrir löngu
komið út yflr allan þjófabálk
og embættinu þar að auki
stýrt með vafasömum hætti.
Baugsmálið er rakið til þess
að ríkislögreglustjóri hafi haft
manískan áhuga á að koma
höggi á einstaklinga. Nærtækt er
að ætla að það sé til þess að koma
sér vel við þá sem stjórna landinu.
Þannig hefur embættið farið fram
af offorsi og hundelt einstaklinga
með þeirri niðurstöðu dómstóla að
sakir séu óverulegar. Lúðvík Bergvins-
son er einn örfárra stjórnmálamanna
sem þora að tala hreint út. Fyrir það á
hann heiður skilinn.
Eins og sönnum framsóknar-
manni sæmir gladdist Svart-
höfði yfir fréttum gærdagsins
um að lögregla hefði gert upptæk um
það bil 200 kíló af hassi í Norrænu.
Svarthöfði er nefnilega fylgjandi öll-
um hugsanlegum innflumingshöft-
um sem slá skjaldborg um íslenskan
landbúnað. Nú veður Svarthöfði ekki í
villu og reyk og ætlaði sér ekki að eyða
sumrinu fyrir framan tölvuna í bláum
skugga að spila-ofbeldistölvuleikmn
Grand Theft Auto 4. Svarthöfði fylg-
ist hins vegar vel með hinum ýmsu
sveiflum tilverunnar og hafði ekki gert
sér grein fyrir því að slíkur þurrkur
væri á íslenkum grasmarkaði að hing-
að þyrfti að flytja með hraði 200 kíló
af stöffi.
Svarthöfði hélt að íslendingar
væru löngu orðnir sjálfbær-
ir í grasframleiðslu og hefur
heyrt því fleygt í skuggafegum hópi
manna að íslensk framleiðsla sé
svo miklu betri en sú innflutta og í
raun ætti því að snúa dæminu við
og flytja hreinlega íslenska grasið
sem sprettur í gróðurhúsum á Suður-
landi til útlanda og lyfta reykmenn-
ingunni þar á æðra plan. í þessum
sama félagsskap var Svarthöfða einu
sinni sögð flökkusaga af sýruhaus,
spíttfíkli og hasshaus sem ráðgerðu
bankarán. Sýruhausinn vildi svífa
inn í bankann á regnbogalitu skýi
og dansa með peningunum út í sól-
skinið. Amfetamíndólgurinn vildi
hins vegar vopnbúast, ryðjast inn í
bankann með ofbeldi og helst koma
nokkrum fyrir kattarnef áður en
stungið yrði af með þýfið. Hasshaus-
inn hafði það helst til málanna að
leggja að þetta væru hinar fínustu til-
lögur en væri samt ekki best að gera
þetta bara á morgun?
Grasið ku nefnilega hafa býsna
róandi áhrif á ærslabelgi og
því finnst vart betri staður fyrir
þessi 200 kíló en einmitt geymslur
lögreglunnar en á þeim bænum hafa
menn verið fullæstir undanfarið og
farið hamförum með hnúum, hnefum
og piparúða. Svarthöfði hefúr ekki trú
á því að nokkur muni gera athuga-
semd við það þótt upptæku heysát-
urnar muni rýrna um nokkur grömm
hjá löggunni ef þeir æstustu róist eitt-
hvað fyrir vikið.
Annars veldur heyskaði á
ólöglegum grasökrum Svart-
höfða engum áhyggjum en
honum svelgdist hins vegar á kam-
illuteinu sínu þegar hann frétti af
því að nafni hans, sem þekktast-
ur er fyrir að sveifla geislasverði,
hafi blandað geði við hátimbr-
aða íslenska presta sem voru að
skunda á fund til þess að ræða sín
innri mál. Svarthöfði hefur lengi
haft þungar áhyggjur af andlegu
ástandi þjóðkirkjunnar og fannst
illt að hinn vondi Svarthöfði skyldi
valda klerkunum ótímabæru hug-
arangri. Um nóg hefur blessað
fólkið að hugsa annað en geim-
glæpona sem fyfla flokk vantrúaðra
sem vilja grafa undan kristilegu
siðgæði í landinu. Slíkar hugmynd-
ir telja Svarthöfði og aðrir fram-
sóknarmenn stórhættulegar og síst
til þess faflnar að efla þjóðarhag.
Eins og haftastefnan í landbúnaði
gerir óumdeilanlega.
Vérst af öllu finnst þó Svart-
höfða að þessi belgingur í
hinum Svarthöfðanum er
fyrst og fremst fallinn til þess að
stuðla á vantrú á hinum eina sanna
Svarthöfða, sem er ég. Svarthöfði
hefur í gegnum árin lagt sig fram
um að vera trúverðugur vinur sem
til vamms segir. Samfélagsrýnir
með hjartað á réttum stað og flytur
heimsósómaræður sínar innblás-
inn af trú á hið góða í lífinu. Þessi
svarti skrattakollur sem hrelldi
prestana er Svarthöfða alls ótengd-
ur. Bara svo það sé á hreinu.
SVARTHÖFÐI
DÓMSTÓLL GÖTU\i\AR
EYLÍilST l»Ú MEI) i:m í FÓTIÍOLTA?
„Nei, ég fylgist ekki með fótbolta."
Karl Stefánsson, 67 ára, vinnur á
bensínstöð
„Nei, ég fylgist ekkert sjálf með en
mamma mín gerir það og því veit ég
að Svíþjóð vann Grikkland. Ég held
ekki með neinu liði en ég vona samt að
Svíar vinni mótið."
Særún Ingimundardóttir, 48 ára,
vinnur á Select
„Ég fylgist með því eins og ég get. Ég
er reyndar að byggja og við reynum
því að horfa á það sem við náum. Ég
veit ekki hvort ég á að þora að
viðurkenna að ég haldi með ftölum, því
flestir eru á því að þeir spili leiðinlegan
fótbolta. Ég held líka með Hollending-
um og vona að þeir vinni."
Sigríður Vigfúsdóttir, 39 ára,
vinnur við umönnunarstörf
„Stundum. En ég held ekki með neinu
sérstöku liði og veit ekki hver á eftir að
vinna."
Anna María Hrafnsdóttir, 14 ára,
vinnur í bakaríi