Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 12. JÚN(2008
Ættfræöi DV
BIRGIRARMANNSSON
ALÞINGISMAÐUR í REYKJAVÍK
Birgir fæddist í Reykjavík og ólst þar upp.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1988, lauk
embættisprófi í lögfræði við HÍ1996, öðlaðist
hdl.-réttindi 1999 og stundaði framhaldsnám
við King's College í London 1999-2000.
Birgir var blaðamaður við Morgunblaðið
1988- 94, starfsmaður Verslunarráðs íslands
ffá 1995, lögfræðingur þess 1996-98, skrif-
stofustjóri þess 1998-99 og aðstoðarfram-
kvæmdastjóri 2000-2003. Hann hefur verið
alþingismaður í Reykjavík suður fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn frá 2003.
Birgir var forseti Framtíðarinnar í MR
1985-86, inspector scholae í MR 1987-88, sat
f stjórn Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúd-
enta 1989-90, sat í Stúdentaráði HÍ fyrir Vöku
1989, var ritstjóri Vökublaðsins, formaður
Heimdallar 1989-91, sat í Umhverfismála-
ráði Reykjavíkur og skólanefnd MR 1990-
94, í stjórn SUS 1991-93 og 1995-97, í stjórn
fulltrúaráðs sjálfsæðisfélaganna í Reykjavík
1989- 91 og Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félganna í Reykjavík 1998-2000, í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins 1993-2003, í skólanefnd
Fjölbrautaskólans við Ármúla 1994-99, í
stjórn Varðbergs, félags ungra áhugamanna
um vestræna samvinnu 1993-2000 og for-
maður 1998-2000, í stjórn ICEPRO, nefndar
um raffæn viðskipti 1998-1999 og frá 2002, í
stjóm EAN á íslandi 2003-2004, í stjórn Fjár-
festingarstofu 2003-2005 og í stjórnarskrár-
nefnd frá 2005.
Birgir hefur setið í allsherjamefnd frá 2003
og verið formaður hennar frá 2007, í efna-
hags- og viðskiptanefnd 2003-2007, í við-
skiptanefnd frá 2007, í kjörbréfanefnd frá
2005, sérnefnd um stjórnarskrármál frá 2005
og verið formaður hennar frá 2006, var for-
maður íslandsdeildar Vestnorræna þing-
mannaráðsins 2003-2005, formaður íslands-
deildar Evrópuráðsþingsins 2005-2007 og
situr í Islandsdeild VES-þingsins frá 2007.
FJÖLSKYLDA
Eiginkona Birgis er Ragnhildur Hjördís
Lövdahl, f. 1.5. 1971, starfsmaður alþjóða-
deildar ríkislögreglustjóra. Hún er dóttir Ein-
ars Lövdahl og Ingu Dóm Gústafsdóttur.
Dætur Birgis og Ragnhildar eru Erna Birg-
isdóttir, f. 29.3. 2003; Helga Kjaran, f. 24.8.
2005.
Birgir á tvær hálfsystur, sammæðra. Þær
em Björg Ólafsdóttir, f. 18.10. 1976, læknir í
Reykjavík; og Ólöf Ólafsdóttir, f. 29.10. 1980,
lífrræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Birgis: Ármann Sveinsson, f.
14.4. 1946, d. 10.11. 1968, lögfræðinemi og
forystumaður í röðum ungra sjálfstæðis-
manna, og Helga Kjaran, f. 20.5.1947, gmnn-
skólakennari. Stjúpfaðir Birgis er Ólafur Sig-
urðsson, f. 18.7.1946, verkfræðingur.
ÆTT
Ármann var sonur Sveins, múrarameist-
ara í Reykjavík Sveinssonar, b. í Garðshorni á
Höfðaströnd, bróður Guðna, föður Rósbergs
G. Snædals skálds. Móðir Sveins múrara-
meistara var Gunnhildur, dóttir Sigurðar, b.
í Hólakoti á Höfðaströnd Jónssonar og Guð-
laugar Rósu Þorsteinsdóttur.
Móðir Ármanns var Margrét Lilja Eggerts-
dóttir, oddvita á Efri-Brunná, bróður Jóns,
föður Jóns Kornelíusar úrsmiðs. Eggert var
sonur Theódórs, úrsmiðs á Efri-Bmnná Jóns-
sonar. Móðir Theódórs var Margrét Magn-
úsdóttir, pr. í Steinnesi Árnasonar, biskups á
Hólum Þórarinssonar. Móðir Árna var Ástríð-
ur Magnúsdóttir, prófasts í Hvammi, bróður
Árna Magnússonar handritasafnara. Móðir
Ástríðar var Sigríður, systir Páls Vídalín lög-
manns. Móðir Margrétar Magnúsdóttur var
Anna Þorsteinsdóttir, systír Hallgríms, föð-
ur Jónasar skálds. Móðir Eggerts var Margrét
Eggertsdóttír, b. á Kleifum Jónssonar, hrepp-
stjóra þar, bróður Brands, langafa Rögnvald-
ar, afa Mörtu Guðjónsdóttur, formanns Varð-
ar. Jón var sonur Orms, ættföður Ormsættar
Sigurðssonar.
Helga Kjaran er dóttir Birgis Kjaran, alþm.
og hagfræðings. Birgir var sonur Magnús-
ar Kjaran, stórkaupmanns Tómassonar, b. í
Vælugerði Eyvindssonar. Móðir Magnúsar var
Sigríður Pálsdóttir, hreppstjóra á Þingskálum,
bróður Júlíönu, móður Helga, yfirlæknis á
Vífilsstöðum, föður Ingvars stórkaupmanns,
föður Júlíusar Vífils borgarfulltrúa. Bróðir
Páls var Jón, afi Jóns Helgasonar, skálds og
prófessors. Systir Páls var Ingiríður, amma
Lýðs, langafa Þórðar Friðjónssonar, forstjóra
Kauphallarinnar. Páll var sonur Guðmund-
ar, ríka á Keldum, bróður Stefáns, langafa
Ólafs fsleifssonar hagffæðings. Guðmund-
ur var sonur Brynjólfs, b. á Vestra-Kirkju-
bæ Stefánssonar, b. í Árbæ, bróður Ólafs á
Fossi, langafa Odds á Sámsstöðum, afa Dav-
íðs Oddssonar seðlabankastjóra. Stefán var
sonur Bjarna, ættföður Víkingslækjarættar
Halldórssonar. Móðir Birgis Kjaran var Soff-
ía, dóttír Franz Siemsen, sýslumanns í Hafn-
arfirði. Móðir Soffi'u var Þómnn, dóttir Árna
Thorsteinsson landfógeta, bróður Steingríms
skálds. Árni var sonur Bjarna, amtmanns á
Arnarstapa Þorsteinssonar, b. í Kerlingadal,
bróður Jóns Steingrímssonar eldklerks. Móð-
ir Árna var Þómnn, systir Ólafs landsyfir-
dómara, afa Vilhjálms Finsen, ritstjóra Morg-
unblaðsins. Þómnn var dóttir Hannesar,
biskups í Skálholti Finnssonar, biskups í Skál-
holtí Jónssonar. Móðir Þómnnar Árnadóttur
var Soffía Hannesdóttir Johnsen, kaupmanns
í Reykjavík Steingrímssonar, biskups í Laug-
arnesi Jónssonar.
Móðir Helgu Kjaran var Sveinbjörg Kjaran,
dóttír Sophusar Auðuns Blöndal, kaupmanns
á Siglufirði, bróður Gunnlaugs Blöndal list-
málara. Sophus var sonur Björns Blöndal,
læknis á Hvammstanga Gunnlaugssonar
Blöndal sýslumanns, bróður Magnúsar Blön-
dal sýslumanns, Jóns Auðuns alþm. og Lárus-
ar, sýslumanns og alþm., langafa Matthíasar
Johannesen, fyrrv. ritstjóra Morgunblaðsins,
og Halldórs Blöndal, fýrrv. ráðherra. Móð-
ir Björns Blöndal var Sigríður, systir Bene-
dikts Gröndal skálds yngri. Sigríður var dótt-
ir Sveinbjarnar Egilssonar, skálds og rektors,
og Helgu Benediktsdóttur Gröndal, skálds
og yfirdómara. Móðir Sveinbjargar var Ólöf
Þorbjörg, handavinnukennari Hafliðadótt-
ir, hreppstjóra og oddvita á Siglufirði Guð-
mundssonar, og Sigríðar Pálsdóttur, í Pálsbæ
á Seltjamamesi Mangússonar.
Birgir er í úlöndum á afmælisdaginn.
Sigríður Ásta Hauksdóttir fagnar þrítugsafmæli sínu í dag:
Á allt það besta eftir
„Ég verð heima eins og gamla fólkið," seg-
ir Sigríður Ásta Hauksdóttir sem heldur upp á
þrítugsafmæli sitt í dag. Hún viðurkennir þó að
það sé inni í planinu að halda einhvers konar
veislu.
Aðspurð hvernig tilfinningin sé á þessum
tímamótum svarar Sigríður: „Þetta er stökkpall-
ur inn í framtíðina. Mér finnst ég eiga allt það
besta eftir." Hún segir jafriframt að með aldrin-
um komi þroski og er hún óhrædd við að eld-
ast.
Eitthvað á óskalistinum?
„Ég er búin að fá það nú þegar," segir Sigríð-
ur. „Ef ég ættí að óska mér einhvers væri það
ekki veraldlegir hlutír heldur tilfinningalegir."
Sigríður Ásta vinnur sem ráðgjafi hjá Vinnu-
málastofnun Norðurlands og líkar það vel. „Það
er mikil aksjón í vinnunni og enginn dagur er
eins," útskýrir Sigríður sem er uppalin í Skaga-
firðinum en býr nú á Akureyri. Hún ætlar þó
að taka sér frí frá vinnu í dag. „Ég ætla að eiga
persónulegan og sérstakan dag," svarar Sigríð-
ur. Aðspurð hvort að hún ætli að sofa út svarar
brosandi. „Það fer eftír sólstöðunni."
Frí á afmælisdeginum Sigríður Ásta ætlar að
taka sér frí frá vinnu og eiga sérstakan dag á
þessum merku tímamótum.
30 ARA
■ Urszula Jezierska Sólvallagötu27, Reykjanesbær
■ Samsidanith Chan Stórateigi20, Mosfellsbær
■ Kaemjan Jaemsai Silfurbergi, Akranes
■ Frímann Freyr Kjerúlf Björnsson Vogalandi 1, Reykjavlk
■ Tinna Björk Halldórsdóttir Lækjarkinn 24, Hafnarfjörður
m Áslaug Hrönn Reynisdóttir Fannborg 1, Kópavogur
■ Sigríður Ásta Hauksdóttir Drekagili21, Akureyri
■ Hlín Hlöðversdóttir Fálkahöfða 8, Mosfellsbær
■ Gunnar Bjarnason Laufengi27, Reykjavlk
■ Rúnar Guðjón Peters Laugavegi 60, Reykjavik
■ Jenný Aradóttir Kapellustlg 5, Reykjavik
■ Heiðar örn Sigurfinnsson Kaplaskjólsvegi 29, Reykjavik
m Rut Árnadóttir Stóragerði 18, Reykjavlk
m Jóhannes Holm Bergþórugötu 57, Reykjavfk
40 ÁRA
■ Sigrún Þórðardóttir Oddabraut 13, Þorlákshöfn
■ Ágústa K Guðmundsdóttir Austurvegi 14, Crindavik
■ fvar Páll Bjartmarsson Mýrarbraut 13, Vlk
■ Kristinn ValgeirTveiten Snæfellsási 1, Hellissandur
■ Jóhanna Sigríður Halldórsdóttir Gvendargeisla 19,
Reykjavlk
■ Valgerður Helga Einarsdóttir Langholtsvegi56, Reykjavik
■ Helgi Stefán Ingibergsson Seljalandi 1, Reykjavik
■ Laufey Brynja Sverrisdóttir Seilugranda 1, Reykjavik
■ Víglundur Pétursson Sólarsölum 3, Kópavogur
m Ágúst Þór Gestsson Jakaseli 42, Reykjavlk
• Björn Stefánsson Bergöldu3, Hella
m Piotr Pawel Ziólkowski Háaleitisbraut 20, Reykjavik
■ Einar Valur Oddsson Bankavegi 6, Selfoss
■ Hallgrímur Már Jónasson Múlasíðu 5a, Akureyri
50 ÁRA
■ Noel Jose Ortigoso Duarte Birkilundi, Stokkseyri
■ Zdzislaw Stypulkowski Skólabraut 2, Akranes
m Hjördís SteinaTraustadóttir Hrauntúni 19, Vestmanna-
eyjar
m Sigurbjörg Guðmundsdóttir Heimavöllum 15,
Reykjanesbær
m Ingibjörg Sigurðardóttir Kirkjuvöllum 5, Hafnarfjörður
m Margrét Rósa Pétursdóttir Garðastræti34, Reykjavik
m Erna María Böðvarsdóttir Reynibergi9, Hafnarfjörður
m Ásgerður Ágústa Andreasen Buðlungu, Grindavik
■ Friðbjörn Helgi Jónsson Freyjugötu 23, Sauðárkrókur
m Ásgeir Blöndal Hliðarbraut 18, Blönduós
m Margrét Brynjólfsdóttir Breiðuvík 17, Reykjavlk
m Olav Heimir Davíðsson Útey 2, Selfoss
m Sigurður Magnús Bjarnason Fannafold251, Reykjavik
m Kristjana Björnsdóttir Bakkavegi 1, Borgarfjörður
60 ÁRA
■ Svanhildur Sigtryggsdóttir Engi, Fosshóll
m Svala Karlsdóttir Hlíðarhjalla 76, Kópavogur
■ Bjöm S Jónsson Þingási33, Reykjavík
m Sesselja Hauksdóttir Baugakór 10, Kópavogur
m Óli Þór Ragnarsson Hlyngerði 11, Reykjavlk
m Elísabet Sigurðardóttir Arahólum 2, Reykjavik
70 Ara
■ Hlöðver Kristinsson Borg, Vogar
■ Jón Erlingur Jónsson Hellisbraut 16,Króksfjarðarnes
m Fjóla Tyrfingsdóttir Vallholti25, Selfoss
m Vilborg Árnadóttir Bogahllö 4, Reykjavlk
m Borghildur Emilsdóttir Sjávargrund lOa, Garðabær
75 Ara
■ Hrafn Sæmundsson Gullsmára 9, Kópavogur
m Eyrún Gísladóttir Tjarnarbraut27, Hafnarfjörður
■ Sigurður Kristinn Eyjólfsson Grimshaga 7, Reykjavik
m Bragi Helgason Hliðarvegi23, Bolungarvik
m Erla Gísladóttir Stillholti 19, Akranes
80 ÁRA
■ Sveinn Jensson Flfuvöllum 2, Hafnarfjörður
■ Margrét Árnason Sjávarborg 2, Sauðárkrókur
m Hörður Steinbergsson Grænugötu 12, Akureyri
m Guðrún F Magnúsdóttir Valhúsabraut 27, Seltjarnarnes
m Jón Finnsson Gunnlaugsgötu 3, Borgarnes
m Kjartan Jónsson Kríuhólum 4, Reykjavik
m örn Hólmar Sigfússon Lindargötu 57, Reykjavik
85 ÁRA
■ Kristín Guðmundsdóttir Birkimel lOa, Reykjavik
■ Hulda Baldursdóttir Byggðarenda 7, Reykjavlk
90 ÁRA
■ Anna Sigfúsdóttir Arskógum 6, Reykjavik
TIL
HAMINGJU
IVIEÐ
AFMÆLIÐ
40ARAIDAG