Vestfirska fréttablaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 7

Vestfirska fréttablaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 7
('TT’ 'lnliiu/ni fFnitfaUaAUi- K.R.Í. óskar eftir Boöganga framkvæmdum Á fundi bæjarstjórnar þ. 3. febrúar s.l., kom til umræðu m.a. fundargerð stjórnar íþróttavallar. Hafði Ólafur Þórðarson, for- maður KR(, lagt fyrir stjórnina skýrslu frá KSt um ástand íþrótta- valla 1. og 2. deildar liða (sbr. grein um sama efni ítbl. glaðsins á þessu ári). f skýrslu þessari kemur fram, að aðstaða á fþrótta- vellinum á Torfnesi er mjög slæm og völlurinn e.t.v. ónothæfur fyrir leiki á n.k. sumri. Til að bæta úr þessu óskaði knattspyrnuráð eftir fram- kvæmdum af hálfu bæjarins í þremur liðum og auk þess vill það fá túnblett til afnota fyrir knattspyrnuæfingar. Er það ósk knatt- spyrnumanna í fyrsta lagi, að slitlag á vellinum verði bætt. í öðru lagi vilja þeir að komið verði upp búnings- og baðaðstöðu við völlinn, sem þeir bjóðast til að vinna við ef bæjarsjóður leggur til efni og hús. f þriðja lagi telja knattspyrnumenn nauðsyniegt að Á s.l. sunnudag fór fram á Seljalandsdal boðganga sem Skíðafélagið sá um framkvæmd á. Gangan hófst klukkan 14°°. Keppt var í flokki 15-17 ára og vegalengdin sem gangin var, var 3x5 km.Sigraði A-sveit Ármanns, í öðru sæti var sveit Vestra og í þriðja sæti B-sveit Ármanns. Bestum brautartíma náði Halldór Ólafsson Vestra, 27 mín. og 2 sek. Nr. 1. A-sveit Ármanns: Sigurjón Sigurjónsson.......................32 mín. 00 sek. Hjörtur Hjartarson..........................28 mín. 00 sek. Kjartan Hauksson............................29 mín. 05 sek. Samtals.....................................89 mín. o5 sek. Nr. 2. Sveit Vestra: Halldór S. Hauksson ........................35 mín 16 sek. Ingvar Ágústsson............................29 mi'n 19 sek. Halldór Ólafsson ...........................27 mín 02 sek. Samanlagt ..................................91 mín 37 sek. Nr. 3. B-sveit Ármanns: Jón H.Hreinsson.............................32 mín 33 sek haldið verði áfram við uppfyllingu fyrir innan núverandi völl, og að á þeirri uppppfyllingu verði tilbúinn völlur fyrir sumarið 1978 og yrði þá mögulegt að grasvöllurinn yrði að veruleika árið 1979. Meðal þeirra sem tjáðu sig um þetta mál, var Jens Kristmanns- son. Upplýsti hann að byrjað hefði verið á núverandi velli árið 1956 og hann tekin í notkun árið 1964 og þá sem bráðabirgða- völlur. Átti hann í framtíðinni að vera grasvöllur, en malarvöllur að koma fyrir innan. Fyrir hverjar kosningar hafa stjórnmálamenn lofað öllu fögru og bætta aðstöðu til íþróttaiðkunar en þau loforð hafa jafnharðan verið svikin. Lagði Jens til að óskum knatt- spyrnumanna, þ.e.a.s. um bætt slitlag og áframhaldandi uppfyll- Ingu, yrði vísað til bæjarráðs til fjárhagsáætlunargerðar. Var það Steingrímur Jónsson ...........................36 mín 37 sek Kristján Fr. Kristjánsson....................32 mín 30 sek. Samanlagt ...................................101 mín 00 sek. Keppni í eldri flokki var frestað vegna þess að sveitir voru ekki fullskipaðar. SJS. Góður árangur á Afmælismóti JSÍ. Jón Lyngmó númer 4 f sínum, Einar Olafsson númer 3 í sínum og Finnbogi Jóhannes- son númer 4. Einar og Finn- bogi kepptu í sama þyngdar- flokki. N.k. sunnudag fer fram Meistara- og punktamót Reynis og verður það haldið í Félags- heimilinu í Hnífsdal, en þar hafa júdómenn haft æfingaað- stöðu. SJS. samþykkt. Á fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 1976 var upphaflega samþykkt að veita 2,5 milljónum króna í íþróttavöllinn. Þar sem þeir peningar voru ekkert notaðir s.l. sumar var í nóvember samþykkt við endurskoðun fjárhagsáætlunar að veita þessum 2,5, milljónum króna f annað. Verður það sama uppi á teningnum á þessu ári? SJS. Á fyrri hluta afmælismóts Júdósambands fslands þ. 30. janúar s.l., kepptu m.a. 8 fél- agar úr júdódeild Reynis. Náðu fjórir þeirra góðum árangri, í þremur mismunandi þyngdar- flokkum. Finnur M. Finnsson varð númer 3 f sfnum flokki, Knattspyrnu þjálfari Ný sundlaug í Bolungarvík Um miðjan s.l. mánuð réði KRf til sín þjálfara fyrir næsta keppnistímabil. Er það Gunnar Gunnarsson úr KR, en hann hefur áður þjálfað m.a. Víking frá Ólafsvík. Er hann væntan- legur hingað um miðjan mars, en þangað til mun Guðmundur Ólafsson, fþróttakennari, hafa umsjón með þrekæfingum knattspyrnumanna. SJS. Um mánaðamótin síðustu var ný sundlaug í Bolungarvík vígð við hátíðlega athöfn að viðstöddu miklu fjölmenni. Sundlaugin er átta metrar að breidd og sextán og tveir þriðju metrar að lengd. Áhorfenda- pallar eru fyrir 110 manns, þar af 50 í stæði. Búningsklefar eru fyrir 60 manns. Framkvæmdir við sund- laugina hófust árið 1971 og var þá áætlaður kostnaður um 40 milljónir króna, en er nú orðinn 120 milljónir króna. Aðalverk- taki var Jón Fr. Einarsson. SJS. Mullersmótið Hið árlega Mullersmót, sem er sveitakeppni í sviai (fjögurra manna sveitir) fyrir felög innan Skíðaráðs Reykjavíkur, for fram í Skálafelli um síðustu helgi. Keppt var í tveim brautum, sem hvor um sig var 50 hlið. Brautarstjóri var Haraldur Páls- son. Úrslit urðu þau að sveit Ár- manns bar sigur úr býtum með samanlagðan tíma 417,0 sek. I öðru sæti varð sveit KR á 434,2 sek., en þriðja varð sveit ÍR á 457,0 sek. Bestu tíma einstaklinga fengu: Ólafur Gröndal KR 100,4 sek., Guöjón Ingi Sigurösson, Ármanni, 102,1 sek. og Valur Jónatansson, Ármanni, 103,7 sek. Verðlaunaafhending fór fram í Skálafelli að lokinni keppni. Veður var mjög hagstætt til skíðakeppni, 3ja stiga frost og gola. Skíðafélag Reykjavíkur sá um mótið, mótmótsstjóri var Leifuri Muller. ac Mun áreiðanlega ræða mál Sigurðar Vegna fréttar í útvarpi og dagblöðum um viðræður milli stjórnar íþróttasambands íslands og Matthíasar Á. Matthiesen, fjármálaráðherra og Vilhjálms Hjálmarssonar, menntamálaráðherra, um aukafjárveitingu til Í.S.f. vegna sérstakra verkefna íslenskra íþróttamanna á þessu ári.sneri Fréttablaðið sér til Gísla Halldórssonar, forseta Í.S.Í. og spurði hann, hvort Sigurður H. Jónsson, hans kostnaðar- sama úthald og ágæta frammistaða myndi koma til umræðu á fundum þeirra. Svar Gísla var á þá lund, að hann hefði talsvert íhugað mál Sigurðar, og myndi áreiðanlega á það minnst á um- ræddum fundum. ÁS. Fasteignir? TIL SÖLU Silfurgata 9; á efri hæð er: 3ja herb. i'búð, á neðri hæð : er þurrhreinsun í fullum; rekstri. Stór eignarlóð og; geymsluskúr fylgir. Silfurgatal 1 ;tvær 4ra herb.ff íbúðir á 2. og 3. hæð. Gottff pláss í kjallara fylgir svoJ)'* og lítill bílskúr. & Fjarðarstræti 38; snoturj4 4ra herb. íbúð á efstu hæð. vL , V. Sundahöfn; veiðarfæra-íf X geymsla í húsi Smábátafé-r£ X lagsins. % bil. Hrannargata 10, tvær 3ja jJ, X herb. íbúðir ásamt góðu yf Jr plássi í kjallara. Seljast jf saman, eða sín í hvoru lagi. "T Hnffsdalur; um 90 fmyC iw gólfhæð i' steinhúsi. Hent-yt. X ug fyrir lager og smáiðnað úí X Bolungarvík; nýlegt einbýl-' ishús við Traðarstíg. Flateyri; tvi'lyft einbýlishús : að Ránargötu 7. Stór leigu-; lóð og bílskúr fylgir.; Hagstætt verð og greiðslu- skilmálar ef samið verður - fljótt. Arnar G. Hin- riksson hdl. Aðalstræti 13, sírrn 3214 Körfubolti: ÍBÍ með 2 stig eftir 6 leiki Það sem af er þessu ári hefur lið (Bf i' körfubolta leikið fjóra leiki í 2. deild íslandsmót- sins í körfuknattleik. Þ. 15.1. lék ÍBl við UMFL og tapaði með 58 stigum gegn 69. Daginn eftir lék liðið við UMFG og tapaði 74:78. 22. janúar lék liðið svo við Hauka og unnu Isfirðingar þá sinn fyrsta leik í vetur með 81 stigi gegn 54. Daginn eftir lék (Bl við Snæfell og tapaði ÍBÍ með 67 stigum gegn 76. Á skrifstofu KKl var ekki hægt að fá heildarstöðuna í deildinni vegna vanskila á leikskýrslum. Verður staðan væntanlega birt í næsta blaði. SJS. Auglýsinga- verö verður frá og meö þessu tölublaði kr. 500 á dálksentimetra. Útsöluverð blaðsins er kr. 60

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.