Vestfirska fréttablaðið - 25.01.1978, Qupperneq 8
8
hvert gistiherbergi er skreytt
með málverki gerðu af eigin-
hendi listamanns. (Original).
Þá er Þingholt, veislusalur
hótelsins, svo veglega
skreyttur listaverkum og inn-
réttingar þar slíkar, að hann
á vart sinn líka.
Þá er Hótel Borg, virðu-
legt hótel, byggt um 1930,
með í þessu skipulagi. Hótel-
ið er staðsett við Pósthús-
stræti. Hótel Borg er þekkt
fyrir vistlega veitingasali og
síðdegiskaffi á Borginni er
fastur liður í lífi margra
þekktra íslendinga.
Helgargestir geta einnig
valið gistingu á Hótel Sögu.
Hótel Saga er þekkt sem eitt
glæsilegasta hótel landsins.
Gistirými er fyrir 181 gest í
106 herbergjum á Sögu.
Hótel Saga ásamt Hótel Loft-
leiðunr. verður að teljast veita
gestum sínum hvað full-
komnasta þjónustu íslenskra
hótela. Þar er að finna igufu-
baðstofu, nuddstofu, hár-
greiðslustofu, bókaverslun,
banka og fleira, auk veit-
ingasala. Á neðstu hæð Hót-
el Sögu er Mímisbar, Súlna-
salurinn er á annarri hæð og
Stjörnusalur, eða „Grillið;;
er á efstu hæð hótelsins.
Á.S.
Úr Stjörnusalnum
á efstu hæð Hótel Sögu
Þaðan er glæsilegt
útsýnl yfir Reykjavik.
Auglýsing um
PRÓFKJÖR
á vegum Alþýðuflokksfélags ísafjarðar
vegna bæjarstjórnarkosninga í ísafjarðar-
kaupstað 1978.
1) Prófkjör fyrir væntanlegar bæjarstjórnar-
kosningar fer fram sunnudaginn 26.
febrúar n.k.
2) Framboðsfrestur rennur út þriðjudaginn
14. febrúar.
3) Kosið verður um 1.2. og 3. sæti fram-
boðslistans.
4) Kjörgengi til framboðs í prófkjörið hefur
hver sá sem fullnægir kjörgengisákvæð-
um laga um kosningar til sveitarstjórnar
og hefur auk þess meðmæli minnst 10
flokksfélaga.
5) Framboðum ber að skila til formanns
félagsins eða annarra stjórnarmanna,
6) Niðurstöður prófkjörs eru bindandi hljóti
sá frambjóðandi sem kjörinn er minnst
20 af hundraði af kjörfylgi Alþýðuflokks-
ins við síðustu sambærilegar kosningar
eða hafi aðeins eitt framboð borist.
7) öllum, sem orðnir eru 18 ára á kjördegi,
eiga lögheimili í sveitarfélaginu og ekki
eru flokksbundnir í öðrum stjórnmála-
flokkum er heimil þátttaka í prófkjörinu.
8) Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla fer fram
dagana 19.—25. febr. að báðum dögum
meðtöldum. Þeir, sem taka vilja þátt í
utankjörstaðaratkvæðagreiðslu hafi
samband við Karitas Pálsdóttur, Hjalla-
vegi 5.
í stjórn Alþýðuflokksfélags ísafjarðar
Gestur Halldórsson.formaður
Jens Hjörleifsson
Sigurður J. Jóhannsson
Karitas Pálsdóttir
Snorri Hermannsson
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og útför
ÚLAFS ÁSGEIRSSONAR
fyrrverandi tollvarðar, Isafirði.
Guð launi ykkur öllum.
Freyja Rósántsdóttir, Ásthildur Ólafsdóttir,
Hilmar Ólafsson, Sigurður Olafsson
og aðrir vandamenn.
ijj/ ísafjarðarkanpstaður
Fasteignagjöld 1978
Fasteignagjöld til Bæjarsjóðs ísafjarðar verða
eftirfarandi.
A: Fasteignaskattur skv. lögum (án álags)
B: Lóðarleiga 3% af fasteignarmati lóðar
C: Vatnsskattur skv. gjaldskrá (55% af-
sláttur)
D: Holræsagjald skv. gjaldskrá (55% af-
sláttur)
E: Sorphreinsunargjald kr, 2.500 á ári pr.
poka
Gjalddagar ofangreindra 5 fasteignagjalda
eru:
15. janúar 1978
15. mars 1978
og ber að greiða fasteignagjöldin að hálfu á
hvorum gjalddaga.
Dráttarvextir eru 3% fyrir hvern byrjaðan
vanskilamánuð.
12. janúar 1978
Bæjarstjórinn á ísafirði
Skóla
hald í
Hnífs-
Við ákvörðun fjárveitinga
úr ríkissjóði til skólastofnana
er tekið mið af þeim fjölda
nemenda, sem viðkomandi
skólastofnanir sækja.
Á ísafirði og í Hnífsdal eru
tveir barnaskólar, sinn á
hvorum staðnum. Til grunn-
skólans á ísafirði teljast
barnaskólarnir tveir og svo
Gagnfræðaskólinn.
Til þessara þriggja skóla1 2 3 4 5 6 7 8
er veitt ákveðinni fjárupp-,
hæð, sem síðan er skipt á
milli þeirra miðað við nem-1
endafjölda hvers skóla fyrir (
sig.
í Barnaskólanum í Hnífs-,
dal eru 37 nemendur. (
Barnaskóla ísafjarðar eru
377 með forskóladeildinni
og 700 í Gagnfræðaskólan-
um.
Það gefur því auga leið,
að minnst hlýtur fjárveitingin
að vera til Barnaskólans í'
Hnífsdal.
Nú undanfarið hafa heyrst |
raddir sem segja, að þau
börn sem sæki skólann í |
Hnífsdal fái ekki viðhlítandi
kennslu. Kennarar séu þar I
fáir, margir árgangar í sama
bekk, færri kennslustundir,
i og börnunum sé því ekki
sinnt sem skyldi.
Þá hafa aðrir látið aö því1
liggja, að vegna óhag-
kvæmni beri að leggja allt'
skólahald niður í Hnífsdal.