Vestfirska fréttablaðið - 02.03.1978, Blaðsíða 5
5
<JL jYeÍf'f![
t j’ieuftvtfuiw .
eitt vandamálið í þessu, þ.e.
að verk eru gjarnan boðin
út hjá því opinbera og þá
gætu þessi fyrirtæki ekki
keppt við slíkt.
„Hafa ekki farið fram
néinar umræður meðal iðn-
aðarmanna sjálfra um
vandamál iðnfræðslunnar
hér vestra?“
,,Það hafa ekki farið fram
neinar umræður meðal iðn-
aðarmanna um þessi mál.
Við sem tengdir erum Iðn-
skólanum höfum verið að
reyna að koma af stað um-
ræðum, en áhugi þeirra hef-
ur ekki verið mikill.
Það má nefna það hér, að
ekki hefur verið kosið í iðn-
ráð í mörg ár, en iðnráð á að
tilnefna menn í prófnenfdir.
Iðnaðarmannafélagið á að
sjá um kosningu manna í
iðnráð.
Eina félagið sem starfandi
er í bænum er málmiðnað-
armannafélagið.
Ég hef fengið undarlegar
undirtektir hjá mörgum
iðnaðarmönnum, þegar ég
hef minnst á endurreisn
Iðnaðarmannafélagsins.
Þeir telja að slíks þurfi ekki
með, þar eð Iðnaðarmanna-
félagið setji ekki fram kaup-
kröfur. Ég tel hins vegar, að
full þörf sé á endurreisn fé-
lagsins, sem myndi þá sinna
málum iðnaðarmanna á
breiðari grundvelli, en stétt-
arfélögin gera.
Þetta félag er með elstu
félögum á Islandi og á sér
merka sögu. Það rak m.a.
kvöldskóla hér frá því um
aldamótin síðustu. Ég tel að
þetta félag geti hreyft veru-
lega við þessum málum.“
„Hvað með kostnaðarþátt-
töku annarra sveitarfélaga í
skólahaldi Iðnskólans? Ekki
koma allir nemendur úr ísa-
fjarðarkaupstað.“
„Kostnaðinum er nú
skipt milli Bæjarsjóðs Isa-
fjarðar og rikissjóðs þannig,
að Bæjarsjóður greiðir
helming kostnaðar vegna
skólahaldsins, en ríkissjóður
greiðir hinn helminginn auk
launa til kennara.
Nemendaskiptingin hefur
hins vegar verið þannig, að
2/3 iðnema á Vestfjörðum
koma frá Isafirði, en 1/3
annars staðar af Vestfjörð-
um. Auk skólans hér á ísa-
firði er iðnskóli á Patreks-
firði, en það er varla hægt
að ætlast til að hann geti
veitt verklega kennslu að
nokkru marki.
í framtíðinni er Iðnskól-
anum hér ætlað að þjóna
öllum Vestfjörðum (að und-
anskilinni Strandasýslu). Þá
tel ég einna brýnast að leysa
vandamál heimavistar fyrir
skólann. Um siðustu áramót
var Iðnskólanemendum
annars staðar af Vestfjörð-
um, sem búið höfðu í Hús-
mæðraskólanum, vísað þar
út, þegar sá skóli hóf starf-
semi nú eftir áramótin.
Ég tel að meiri samvinna
ætti að vera með' skólum
staðarins í kennslu- og hús-
næðismálum. Heimavistir
ættu að vera fyrst og fremst
fyrir fólk úr umdæmi skól-
ans. Hins vegar tel ég fjar-
stæðu, að leggja átthaga-
fjötra á menn og meina
þeim aðgang að þeim
Fullt starf
laust á Apótekinu frá 1. apríl.
Ennfremur er
hlutastarf
laust nú þegar, og kemur þar ýmis vinnu-
tilhögun til greina.
HRAFNKELL STEFÁNSSON • SiMI 3009 ■ PÓSTHÓLF14 • iSAFIRÐI
íbúö óskast
til leigu eöa kaups
Óskum eftir að taka á leigu þriggja herbergja
íbúð á ísafirði fyrir reglusöm hjón með tvö
börn.
KAUP KOMA EINNIG TIL GREINA.
Upplýsingar í síma 3975
menntastofnunum sem þeir
æskja inngöngu í.
Að lokum langar mig til
að koma því að, að ég tel að
gefa eigi iðnaðarmönnum
kost á endurmenntun, hú'n
er engin sem stendur. Það á
að gefa þeim kost á að nema
nýjungar með námsskeiða-
haldi t.d. Tækniþróunin er
það ör, að ef menn ætla ekki
að heltast úr, lestinni þá
verða þeir að fylgjast með
því nýjasta sem er að gerast
í þeirra fagi.
„Það hefur verið
ilimögulegt
að komast
í iðnnám“
Finnur Finnsson, kennari
hefur verið formaður skóla-
nefndar Iðnskólans síðustu
20 ár. Við báðum hann að
greina frá skipan skóla-
nefndar og hvert væri hlut-
verk hennar.
„Nefndin er skipuð tveim
fulltrúum kosnum af bæjar-
stjórn, skólastjóra og auk
þess á fulltrúi iðnnema sæti
í nefndinni. Formaður
hennar er skipaður af
Menntamálaráðuneyti.
Skólanefndin er fyrst og
fremst ráðgefandi, en getur
ekki tekið einhliða ákvarð-
anir. Hún þarf að sækja allt
sitt undir bæjarstjórn og
ráðuneytið.
Nefndin kemur saman eftir
ástæðum og gerir tillögur
um fjárhagsáætlun skólans,
rekstur skólans, ráðningu
kennara og þær breytingar
—
sem hún telur að koma
þurfi til.“
„Hvernig hefur samstarf
nefndarinnar verið við fram-
kvæmdarvaldið?“
„Nefndin hefur alltaf verið
samstillt innbyrðis, en við
sem í nefndinni höfum
starfað höfum gjarnan haft
það á tilfinningunni að skól-
inn væri baggi á bæjaryfir-
völdum. Það er engu líkara
en hlutverk nefndarinnar sé
að sjá um, að sem minnst
verði gert og að kostnaðar-
hlutdeild ríkisins sé sem
mest en bæjarins sem
minnst. Skólanefndin hef-
ur ávallt haft frumkvæði að
því sem gert hefur verið.
Vonandi verður breyting
þar á, því nú liggja stór
verkefni fyrir.
Skólinn hefur alltaf verið
á hrakhólum með húsnæði.
Fyrst var hann í Barnaskól-
anum, þá Gagnfræðaskólan-
um og loks í því húsnæði
sem henn er í nú. Það er
fyrst nú, þegar hann kemur
í s.k. ísfirðingahús, sem
hann fær umráð fyrir
kennsluhúsnæðinu. En
þetta húsnæði er ekki til
neinnar frambúðar, og það
þarf að semja fasta áætlun
um framtíð skólans.
Þetta húsnæði var sam-
þykkt í nóvember 1970 og er
leigutíminn til 15 ára, frá 1.
janúar 1971. Skólinn tók
miklum breytingum þegar
hann fluttist í þetta hús-
næði, hafði t.d. verið síðdeg-
isskóli áður.“
„Skólastjóri Iðnskólans,
Valdimar Jónsson, telur að
ein meginástæðan fyrir því
hve iðnskólar eru framlágir
sé rekstrarformið.“
„Það vill verða þannig,
þegar tveir aðilar sjá um
reksturinn, þá togast þeir á
um að sleppa við að borga.
Hlutverk skólanefndar hefur
því orðið að vera einskonar
..............
Ný þjónusta
frá Víkureldhús:
GERUM TILBOÐ YÐUR AÐ KOSTNAÐARLAUSU
UMBOÐSMAÐUR STAÐSETTUR Á ÍSAFIRÐI
Thoro
harðsteypuefni
í ýmsum litum
á vinnustaði
Thoro
hraunefni
utan húss og
pússningarefni
í ýmsum litum
STÓRLÆKKUN Á
BYGGINGARKOSTNAÐI
Umboösmaöur fyrir Vestfirði
Magnús R. Sigurðsson
sími 3460 og 3001
SÝNISHORN Á STAÐNUM