Vestfirska fréttablaðið - 19.07.1978, Page 5

Vestfirska fréttablaðið - 19.07.1978, Page 5
5 tJtéuaMació Í.B.Í. — Völsungur: Draumasigur ísfirðinga 4:1 Það var sannakllaður draumasigur sem lið fsafjarðar vann á Völsung frá Húsavik í 2. deild fslandsmótsins í kanttspyrnu á Torfnesvelli á föstu- daginn var. fsfirðingar sigruðu með fjórum mörkum gegn einu en staðan í leikhléi var 1:0 fBf í vil. Voru það nokkuð sanngjörn úrslit því fBf hafði vægast sagt undirtökin í leiknum. Að vísu hófst leikurinn ekki fyrr en 45 mín. eftir settan leik- tíma vegna seinkunar á flugi, en hinir rúmlega 200 áhorfendur létu það ekki á sig fá og fylgdust með liðu sínu „hita upp“ fyrir leikinn. Völsungar byrjuðu á móti vestan vindi og áttu skot framhjá strax á 1. mín. Eftir smá þóf tók lið ísafjarðar leikinn í sínar hendur og átti á annan tug skota að marki Húsvíkinga, sem annað hvort geiguðu eða lentu í höndum markmannsins, en hann varði oft af mikilli leikni. Á 23. mín. áttu ísfirðingar innkast og eftir smáþvögu fyrir framan mark Völsunga skoraði Gunnar Pétursson af stuttu færi. Á 40. mín. skoraði Jón Oddsson mark af 20 metra færi, sem var dæmt af vegna rangstöðu félaga hans. Að öðru leyti var fátt um fína drætti í fyrri hálfleik, leikurinn þófkenndur hjá báðum aðilum og mikið um langar, háar og ónákvæmar sendingar. I seinni hálfleik léku heima- menn á móti vindi. Á tímabili leit út fyrir að þeir réðu ekki við þann mótherja að auki, því að á 12. mín. s.h. skoraði leikmaður Völsungs nr. 7, Kristján Olgeirs- son, eftir slæm varnarmistök fs- firðinga. Kristján hafði rétt áður einleikið upp allan völlinn og átt skot framhjá. ísfirðingar létu Hjónln Sigríður Króknes og Torfi Björnsson gáfu fyrr á þessu ári veglega gripi til verðlauna fyrir knattspyrnukeppni yngri flokkanna og svo fyrir knattspyrnumann ársinshjá ÍBÍ. Keppt var um verðlaun yngri flokkanna 17. júní sl. Myndin er af gefendunum við gripina Ljós. Leo Ljósmyndastofa markið ekki á sig fá og sóttu nú stíft eftir sem áður og á 26. mín. skoraði Gunnar Pétursson annað mark sitt og ÍBÍ. Skaut hann af 20 metra færi yfir hinn smáa en knáa markmann Völsungs. Stuttu seinna bjargaði mark- amðurinn tvisvar naumlega í horn. Á 32 mín. fékk Jón Odds- son sendingu inn á miðjan völl utan af kanti, lagði boltann lag- lega fyrir sig, lék á einnmótherja og skoraði örugglega af stuttu færi. Litlu seinna áttu ísfirðingar aftur dauðafæri sem ekki nýttist. Á 42. mín. var dæmt víti á Völs- ung eftir þunga sókn ÍBÍ. Or vítinu skoraði Jón Oddsson, tvisvar reyndar, því endurtaka varð vítið þar sem einn úr ÍBÍ var fyrir innan vítateig og fyrra skotið reið af. í liði Völsunga var Kristján Olgeirsson skástur, en hjá ísfirð- ingum komst Jón Oddsson einna best frá leiknum, að öðrum ólöst- uðum. Vörnin, að markamnnin- um meðtöldum, átti góðan leik ef frá eru talin mistök, sem ksotuðu markið. Byggðu varnarleikmenn- irnir oft upp gott spil, sem miðju- mennirnir klúðruðu ósjaldan með löngum og ónákvæmum sendingum. Var oft eins og hlekk , vantaði í keðjuna milli varnar- og framlínumanna, en þegar send- ingar miðjumanna heppnuðust á annað borð var vá fyrir dyrum Húsvíkinga. Dómari í leiknum var Róbert Jónsson en línuverðir þeir Jens Krismannsson og Páll Árnason og komust þeir ekki ver frá leiknum en hver annar. Næsti leikur ísfirðinga er gegn Reyni frá Sandgerði hér heima þ. 19. júlí. SS Úrslit leikja hjá ÍBÍ. Meistaraflokkur, 2 deild: Haukar—fBÍ 1:2 Austri—ÍBÍ 1:0 Ármann—ÍBÍ 2:0 Fylkir—ÍBÍ 0:2 Völsungur—ÍBÍ 2:2 Þór—ÍBÍ 2:1 ÍBÍ:KR 1:1 ÍBÍ—Reynir 1:0 ÍBl—Völsungur 4:1 Að loknum 9 leikjum ÍBÍ fengið 10. stig. hefur Bikarkeppni, meistaraflokkur: ÍBl—UMFB 5:1 Fylkir—ÍBÍ 2:1 1. flokkur, bikarkeppni: KA—ÍBÍ 2:3 3. flokkur fslandsmót: ÍBÍ—UMFB 1:1 Þór, þoræaksh.—ÍBÍ 5:4 ÍK—ÍBÍ 2:1 ÍR—ÍBÍ 1:0 ÍBÍ—Grótta 10:1 3. deild, B rlðlll. Laugardagur 15. júlí: Háskólavöllur, Léttir—UMFB 1:1 Heiðarvöllur, ÍK—Stefnir—1:1 Sunnudagur 16. júlí: Stjörnuvöllur, Stjarn- an—Stefnir 8:1 Bolungarvík hefur nú fengið 5 stig eftir 5 leiki eri Stefnir 3 stig eftir 5 leiki. Efsta liðið í riðlinum er Njarðvík með 12 stig eftir 6 leiki. Leikir 4. flokks Haröar Hörður—Reynir 0:4 Hörður—Hverag. 4:2 Leikir hjá 5. flokkir. UMBF—Hörður 1:2 Hörður—ÍK 1:4 Leikir 4. flokks Vestra. Vestri—Hörður 7:1 Víðir—Vestri 1:1 Njarvík—Vestri 3:0 Vestri—Reynir 3:0 Vestri—Hverag. 4:0 Tapi Njarðvík leik á Vestri möguleika á því að vinna sinn riðil og komast í úrslit Islandsmótsins. Leikir 5. flokks Vestra til dags- ins í dag. Vestri—Hörður 0:4 UMFB—Vestri 9:0 Hörður—Vestri 7:0 Vestri—Grótta 4:0 UMFB—Vestri 3:1 Selfoss—Vestri 8:0 Reynir—Vestri 2:0 Vestri—ík 1:0 ss Verö fjarverandi vegna sumarleyfis frá 19. júlí til 21. ágúst. TEK VIÐ BÍLUM Á SÖLUSKRÁ FRÁ 20. ÁGÚST. Upplýsingar í síma 3806, íAðalstrætl13 ísafirði frá kl. 18:00 á daginn og um helgar. Daði Hinriksson

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.