Vestfirska fréttablaðið - 19.07.1978, Blaðsíða 8
8
Örn Ingólfsson sigraði
í svifdrekaflugi
Um síðustu mánaðamót,
nánar tiltekið 2. júlí, gekkst
Svifdrekaklúbbur Fsafjarðar
fyrir svifdrekamóti Vestfjarða.
Fór mótið fram á Þingeyri og
svifu keppendur úr um 300
metra hæð fram af Sandafeli-
inu og lentu áknattspyrnuvell-
inum á Þingeyri.
Var keppnin í því fólgin
að svífa á sem stystum
tíma frá Sandafellinu á á-
kveðnum punkti yfir bæn-
um og síðan á sem lengst-
um tíma þaðan að vell-
inum. Voru keppendur
allt frá 3 upp í 8 mínútur á
leiðinni. Bestum árangri
náði Örn Ingólfsson, nr. 2
varð Ragnar Ingólfsson og
nr. 3 varð Kolmar Gunn-
arsson. Keppendur voru
10.
SKÍ var stofnaður 3.
mars s.l. óg eru félagar nú
26 hvaðanæva að af Vest-
fjörðum. Formaður er
Hálfdán Ingólfsson. Félag-
ar úr klúbbnum munu
taka þátt í íslandsmóti sem
haldið verður á Rauð-
hettumótinu á Úlfljóts-
vatni, en ef veður leyfir
munu nokkrir sviffélagar
leika listir sínar á sumar-
skemmtun með BG og
fleirum í Dalbæ á kom-
andi helgi.
SS.
Isafjörður —
íbúð til sölu
Til sölu er íbúð mín að Fjarðarstræti
13, neðri hæð.
I'búðin er 3ja herb. + eldhús, hálfur
kjallari og þar 1 herbergi, auk þess
fylgir stór bílskúr (2ja bíla).
I'búðin verður laus til afhendingar 1.
okt. 1978.
Tilboðum sé skilað til undirritaðs fyrir
25. ágúst, nk. Allur réttur áskiiinn.
FylkirÁgústsson,
Fjarðarstræti 13
ísafirði
símar: 94-3745 eða 3290
^ 0rkubú
\y Vestfjarða
Tilkynning til
viðskiptamanna
Vegna takmarkaðs raforkuframboðs
á Vestfjörðum, miðað við eftirspurn,
fyrst og fremst til rafhitunar húsa, telur
stjórn Orkubús Vestfjarða sig knúða til
að takmarka um sinn veitingu leyfa til
rafhitunar þar til:
1. Flutningur raforku hefst um Vestur-
línu.
2. Séð verður með hvaða hætti efnd
verða fyrirheit stjórnvalda um:
a) Að fullnægt verði orkuþörf Vese-
firðinga með innlendum orkugjöfum.
b) Að Vestfirðingar búi við sambæri-
legt orkuverð og aðrir landsmenn.
c) Að Orkubú Vestfjarða njóti sömu
fyrirgreiðslu og önnur orkufyrirtæki
vegna hliðstæðra framkvæmda, svo
sem varðandi framkvæmdir, rann-
sóknir og sveitarafvæðingu.
Skilyrði fyrir rafhitun er, að í húsunum
sé vatnshitakerfi og raforka notuð á
rafhitunartúpu.
ORKUBÚ VESTFJARÐA
Héraðsmót Héraðssam-
bands Vestur-ísfirðinga
að Núpi í Dýrafirði
Héraðsmót HVÍ 1978
var haldið að Núpi dagana
8. og 9. júlí. Veður var
með ákjósanlegasta móti
og fjöldi áhorfenda tölu-
verður. Athyglisverðasti
árangur náðist í 100 metra
hlaupi kvenna en þar varð
fyrst 11 ára stúlka frá Suð-
ureyri, Kristín Einarsdótt-
ir. Hljóp hún vegalengd-
ina á 13.3 sekundum. Er
greinilegt að þarna er mik-
ið efni á ferðinni. f stiga-
keppni á milli félaga innan
Héraðssambandsins sigraði
Stefnir frá Suðureyri með
144 stig, nr. 2 var Höf-
rungur frá Þingeyri með
89 stig, 3. var Grettir frá
Flateyri með 82 stig, 4. var
Önundur frá Önundarfirði
með 31 stig og 5. varð
Ungmennafélag Mýrar-
hrepps með 5 stig. Af ein-
stökum úrslitum voru þessi
merkust:
N.K. laugardag fer
flokkur frá HVf á Lands-
mót Ungmennafélaganna
sem haldið verður á Sel-
fossi. Má vænta þess að
Jón Oddsson verði ofar-
lega á blaði í stökkunum
og eins þau Angantýr
Jónasson og Kristín Ein-
arsdóttir í hlaupunum.
Þá má geta þess að á
vegum HVÍ hafa verið
haldin fjölmörg mót fyrir
börn og unglinga, og
margir krakkar sóttu sum-
arbúðir sem voru á Núpi í
s.l. mánuði.
SS
Helstu úrslit:
100 metra halup karla:
1. Angantýr Jónasson, Höfrungi 11.1 sek.
2. Jens Hólm, Stefni 11.8 sek.
Magnús Jónasson keppti sem gestur og hljóp á 10.9 sek.
Hástökk karla:
1. Jón Oddsson, Gretti 1.90 m.
2. Jens Hólm, Stefni 1.70 m.
3. Guðmundur Friðriksson, Stefni 1,65 m.
Langstökk karla:’
1. Jón Oddsson, Gretti 6.74 m.
2. Hilmar Pálsson, Höfrungi 6.06 m.
Jón náði mun betri árangri í vor er tann stökk 7.08 m.
100 m. hlaup kvenna:
1. Kristín Einarsdóttir, Stefni 13,3 sek.
2. Svala Vignisdóttir, Höfrungi 14,4 sek.
3. Brynja Margeirsd., Höfrungi 14,9 sek.
Hástökk kvenna:
1. Anna Bjarnadóttir, Stefni 1,50 m.
2. Dagbjört Leifsdóttir, Gretti 1.40 m.
3. Svala Vignsidóttir, Höfrungi 1,40 m.
Kúluvarp kvenna:
1. Hjördís Hjartadóttir, Stefni 8.80 m.
2. Katrín Guðmundsdóttir, Gretti 8,26 m.
til söMi
einfasa rafmótor
0,37 kW 0,5 hestöfl
1430 snúninga
220 volt 4,3 amper.
Upplýsingar hjá
hjá Árna í síma 3100.