Vestfirska fréttablaðið - 18.01.1980, Qupperneq 1
1. tbl. 6. árg.
vestfirska
18. janúar 1980.
FRETTABLASIÐ
Farþega- og vöruafgreiösla á ísafjaröarflugvelli
Símar: 3000 - 3400 - 3410
FLUGLEIDIR
NÝTT!
9J t / •. ’ U S.
Úrval hljómtækja og
sjónvarpstækja.
PIONEER - SHARP - LUXOR
Verslunin V^tíUo ísafirði sími 3103
Stopult flug á Isafjörð
— Níu flugdagar í nóvember
Á undanförnum mánuðum
hefur verið miklum erfiðleikum
bundið að halda uppi reglu-
bundnu áætlunarflugi tit og frá
ísafirði. í síðustu viku var t.d.
flogið einn dag á ísafjörð og í
nóvember s.l. var aðeins flogið í
níu daga allan mánuðinn. I við-
tali Vestfirska fréttablaðsins við
Guðbjörn Charlesson, flugvail-
arstjóra, kom fram að stundum
hefur flugi hingað til ísafjarðar
verið sleppt, þótt fært hafi verið
strax eftir hádegi.
EKKI ÓFÆRT ALLAN DAGINN
Vegna ummæla Jónasar Ólafs-
sonar, sveitarstjóra á Þingeyri. hér
í blaðinu um lendingarskilyrði og
aðstöðu á flugvellinum þar. spurð-
um við Guðbjörn hvort nokkur
tilmæli hefði komið frá flugvallar-
stjórninni hér, að flugi verði beint
ti! Þingeyrar, þegar ófært er á
flugvellinum her.
—Við blöndum okkur ekkert í
það mál. sagði Guðbjörn. Það er
alfarið ákvörðun Flugleiða hvert
þeir fljúga eða hvert þeir stefna
fluginu. hvort það er til ísafjarðar.
Þingeyrar eða eitthvað annað. Við
reynum að halda völlunum öpn-
um eins lengi og mögulegt er. en
við ráðum náttúrulega ekki við
veórið. En þegar flug hefur fallið
niður hér á ísafirði. er það ekki
eingöngu vegna þess að það hafi
verið ófært hérna allan daginn.
Það hefur kannske verið ófært
fram að hádegi. en þá er annað-
hvort búið að sleppa flugi eða
stefna flugvélum á Þingeyri. I
þeirri viku, sem var að líða. var
orðið fært eftir kl. 2 í tvo daga, en
Flugleiðir verða að hætta flugi
strax á hádegi. Til þess geta legið
ýmsar ástæður, bæði að þeir hafa
ekki vélar til að bíða og eins geta
verið aðrar ástæður fyrir þessu,
sem við þekkjum ekki. Það hefur
tvisvar verið flogið á Þingeyri héð-
an nýlega. I síðustu viku fóru þrjár
vélar til Þingeyrar en þá var orðiö
fært hér kl. 2. þannig að erfitt var
að snúa því flugi við. enda bílar
lagðir af stað til Þingeyrar o.s.frv.
Það er því ekki öll sagan sögð.
þegar sagt er að ófært sé á ísafirði.
Það sést lika af flugi flugfélagsins
Ernir h.f. að flug hjá þeim er
geysimikið einmitt þessa daga.
HEIÐIN HÆTTULEGA
—Nú finnst mönnum súrt I
brotið. þegar vélar snúa héðan
fullar af farþegum en gætu lent á
Þingeyri og bílfært hingað til ísa-
fjarðar. Hvað er þá því til fyrir-
stöðu að lent sé á Þingeyri?
—Menn tala oft um að opið sé
hér á milli og vissulega er oft hægt
að fara yfir heiðina, en hafa verð-
ur í huga að það getur verið stór-
hættulegt vegna hálku. snjóflóða
og þessháttar. Það felst I því á-
kveðin hætta að stefna hópum af
fólki upp á fjallvegi.
Framhatd á hls. 3.
Burðarmeiri Fokkervélar
í innanlandsflug
Á stjórnarfundi Flugleiða í des-
ember var endanlega samþykktur
samningur félagsins við Kar-Air í
Finnlandi um sölu tveggja Friend-
ship flugvéla félagsins af F-27-100
gerð. Þessar flugvélar, sem bera
einkennisstafina TF-FLJ og TF-
FLK verða afhentar Kar-Air I
mars og apríl 1980. Með þessum
flugvélum selja Flugleiðir vara-
hreyfla og aðra varahluti. Sölu-
verð flugvéla og varahluta til Kar-
Air er 1.785.000 bandaríkjadollar-
ar. '
Þá er flugvélin TF-FIP til sölu
og hafa að minnsta kosti fjórir
aðilar látið í ljós áhuga á kaupum.
Þessi flugvél er með samskonar
hreyfla og þær vélar sem seldar
voru til Kar-Air.
BURÐARMEIRI FLUGVÉLAR í
INNANLANDSFLUGIÐ
Flugleiðir gerðu nýlega samn-
ing við Korean Airlines um kaup á
fjórum Friendship flugvélum.
þrem af gerðinni F-27-200 og
einni af F-27-500. Tvær þessara
flugvéla hafa þegar verið seldar til
Finnair. Flugvélarnar verða sóttar
til Seoul og flogið til íslands í
janúar. Tækjakosti tveggja þeirra.
sem Flugleiðir eiga verður breytt
til samræmis við það sem er I
Friendship vélum félagsins og
hefja þær síðan flug á innanlands-
leiðum. Þá hefir einnig komið til
greina að Flugleiðir taki að sér
breytingar á tækjakosti flugvél-
anna sem Finnair keyptu. Samn-
ingar um það eru á lokastigi.
Sem fyrr segir eru þessar breyt-
ingar á flotanum gerðar í því
augnamiði að samræma flugkost-
inn. en jafnframt verður hér um
burðarmeiri flugvélar að ræða.
Þannig verður unnt að fljúga með
fullfermi frá flugvöllum, sem i dag
verða að sæta takmörkunum á
farmi. Þá kemur einnig til einföld-
un á varahlutalager félagsins. þar
sem allar flugvélarnar verða búnar
samskonar hreyflum og flestum
varahlulum.
Frá Kynningardeild Flugleiða.
Reykjavikurflugvelli.
„Fljúgum eins
og birta leyfir”
— segir Sverrir Jónsson,
stöðvarstjóri
í Reykjavík.
Vestfirska fréttablaðið hafði
samband við Sverri Jónsson,
stöðvarstjóra á Reykjavíkurflug-
velli, og innti hann eftir því
hvort ekki væri mögulegt að
halda flugi lengur opnu en fram
að hádegi, þar sem iðulega
gæfi að fljúga hingað á ísafjörð
strax eftir hádegi, þótt ófært
hefði verið fram að þeim tíma.
—Við fljúgum eins og birta leyf-
ir. sagði Sverrir. Samkvæmt reglu-
gerð flugmálastjórnar um loftferð-
ir megum við ekki lenda síðar en
45 mínútum fvrir sólarlag. I des-
ember er sólarlag um k. 16.30. sem
þýðir að vélin verður að vera lent
á ísafirði kl. 15.45. Hún þarf þá að
leggja af stað frá Reykjavík ki.
15.00. en þegar athuga þarf flug kl.
14.00. þá er alveg á mörkunum að
við náum fluginu út bara vegna
fóksins. sem þarf að komast með
vélinni og annars.
—Það er rétt hjá Guðbirni, hélt
Sverrir áfram, að það er iðulega
ófært fram til hádegis. þegar við
fáum veðurspána. en þá neyðumst
við kannske til að sleppa flugi.
þótt fært sé eftir hádegi. til þess að
Flugleiða
setja ekki allt úr skorðum. Al-
mennt talað sleppum við þó ekki
flugi fyrr en í lengstu lög. Um-
dæmisstjórarnir voru einmitt að
ræða þessi mál fyrir skömmu og
það er stefna okkar. að halda
fluginu opnu eins lengi og við
mögulega getum. Jafnvel þótt við
eigum t.d. fjórar ferðir fyrirliggj-
andi og komunt kannske ekki
nema einni. þá reynum við að
komast þessa einu ferð og þá verð-
um við einhvernveginn að ..sort-
era“ út þá, sem ættu að vera
fyrstir.
—Hversvegna er ekki lent á
Þingeyri, þegar vélum er snúið
fullum héðan frá ísafirði?
•>
—Það er rétt. að þetta hefur
komið fyrir. Þessi mál verða á
dagsskrá hjá umdæmisstjórum
innanlandsflugs á fundi í þessari
viku. Það er meðal annars I okkar
tillögu, að þegar við fáum fréttir af
því að flugstjóri sé snúinn við. þá
munum við fara fram á það við
hann, að hann hafi samband við
okkar stöð á ísafirði gegnurn flug-
turninn um hvort athugandi sé að
lenda á Þingeyri. Við erum að
reyna að gera ráðstafanir til þess
Framliald á hls. 3.