Vestfirska fréttablaðið - 22.12.1982, Page 1
42. tbl. 8. árg.
vestfirska
22. des. 1982
FRÉTTABLASIS
Gleðileg jól, farsœlt komandi ár. Þökkum sam-
starf og viðskipti á líðandi ári.
FLUGLEIDIR
HERRA
FLA UELSBUXUR OG VESTl
DÖMUPEYSUR
Síðasta sending fyrir jól!
Verslunin
ísafiröi sími 3507
Tvœr milljónir til f lugsins
-Póstflug hófst aftur í dag
Veitt hefur verið tveggja mill-
jóna króna framlag úr ríkis-
sjóði á fjárlögum til styrktar
sjúkra- og póstflugi á Vest-
fjöröum. Orðrétt er greinin um
þessa fjárveitingu svona: „Rík-
isstjórninni er heimilt að veita í
samráði við fjárveitinganefnd,
fjárhagsaðstoð allt að tvær
milljónir króna, til að tryggja
rekstrargrundvöll sjúkra-,
neyðar- og póstflutninga á
Vestfjörðum, að undangeng-
inni ítarlegri athugun."
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son alþingismaöur, sem þing-
menn kjördæmisins kusu úr
sínum hópi til að taka sæti í
nefnd þeirri, sem sett var á
laggirnar til að kanna mögu-
leika á að leysa fjárhagserfið-
leika Ernis h.f., var spurður
hvort þessar tvær milljónir
mundu fara til að styrkja Ernir.
„Þetta er afgreiðsla á beiðni frá
Flugfélaginu Ernir og Fjórð-
ungssambandi Vestfjaröa um
styrk til flugsamgangna innan
Vestfjarða og til sjúkra- og
neyðarflugs þar,“ svaraði Þor-
valdur Garðar.
í framhaldi af þessari fjárveit-
ingarheimild boðaði Erling Sör-
ensen umdæmissijóri Pósts og
síma á Vestfjörðum Hörð Guð-
m u ndsso n f ra m k væ m d ast j ó ra
Ernis á sinn fund á mánudaginn
var. Þeir urðu ásáttir um að póst-
flug skyldi hefjast aftur á vegum
félagsins í dag. miðvikudag 22.
desember. Hörður sagði blaðinu
að margir póstflutningsaðilar.
bæði í iofti og á landi. hefðu
óskað eftir hærri laxta fvrir póst-
flutninga og væri samgönguráðu-
neytið nú með þær beiðnir í at-
Inigun. Þar til niöurstaða liggur
fyrir nnin Ernir flytja póstinn á
gamla taxtanum og verður ferð-
um háttað á sama veg og var áður
en þær voru stöðvaðar.
,.Þaö hefur verið unnið að
þessu máli hörðum höndum. síð-
an í sumar og árangurinn er að
skila sér núna." sagði Hörður
Guðmundsson um þetta mál. sv
Torgsala fyrir Tónlistarskóla
Torgsala Styrktarsjóðs til
byggingar tónlistarskóla gekk
æfintýralega vel, að því er torg-
sölunefndin tjáði blaðinu.
Allt sem á boðstólum var, seld-
ist upp á einum klukkutíma og
fengu færri en vildu. Tekjurnar
urðu um 25 þúsund krónur.
Meðan á torgsölunni stóð söng
Sunnukórinn undir stjórn jóla-
sveinsins og danshópur frá
Barnaskóla ísafjarðar sýndi
skemmtilega dansa.
Stofnuð hefur verið fjáröflun-
arnefnd hjá sjóðnum og er
Kristján Haraldsson orkubússtjóri
formaður hennar. Hlutverk þeirr-
ar nefndar verður m.a. að gangast
fyrir almennri söfnun sem að lík-
indum verður gerð í mars. Þá
hefur einnig verið sett á laggirnar
..Kabarett"- nefnd og er í ráði að
hún annist uppsetningu fjöl-
skylduskemmtunar eða ..kaba-
retts". væntanlega I febrúar.
Fyrir utan þetta tvennt eru
ýmsar hugmyndir á sveimi meðal
sjóðsstjórnarinnar og sagði Gelr-
þrúður Charlesdóttir blaðinu að
vel gætu komið upp einhverjar
uppákomur með litlum fyrirvara.
jafnvel áður en kabarettinn kem-
ur upp.
SV
Afli
Að undanförnu hefur
bræla að mestu ráðið
löndunardögum togaranna
hér á Vestfjörðum og
komu þeir flestir inn þann
14. og aftur þann 19. Aflinn
hefur yfirleitt verið að lang
mestu leyti þorskur.
SÚÐAVÍK
Bessi landaði 67 tonnum
19. des.
(SAFJÖRÐUR
Guöbjartur landaði 50
tonnum 15. des. og 55
tonnum 20. des. Páll Páls-
son landaði 14. des. 49
tonnum og 19. des. 78
tonnum. Júlíus landaði 14.
des. 58 tonnum og 19. des
90 tonnum. Guðbjörg land-
aði 14. des 46 tonnum og
19. des. 93 tonnum.
BOLUNGARVÍK
Dagrún landaði 14. des. 33
tonnum og 19. des 52
tonnum. Heiðrún landaði
14. des. 23 tonnum og 20.
des. 50 tonnum.
SUÐUREYRI
Elín Þorbjarnardóttir land-
aði 9., 14., og 20., des.
samtals tæplega 160 tonn-
um.
FLATEYRI
Gyllir landaði 14. des.
43 tonnum og 19. des um
40 tonnum.
BILDUDALUR
Sölvi Bjarnason landaði
19. des. 50 tonnum.
TÁLKNAFJÖRÐUR
Tálknfirðingur landaði 14.
des. 35 tonnum og 19. des
60 tonnum.
PATREKSFJÖRDUR
Sigurey landaði 16. des.
um 50 tonnum.
Veður
Guðmundur Hafsteins-
son veðurfræðingur varð
fyrir svörum á Veðurstof-
unni, þegar við spurðumst
fyrir um horfur á veðri um
jólin. Hann spáði að á Þor-
láksmessu muni fara að
hlýna með SA átt og um
nóttina fari svo að hvessa
með snjókomu og síðar
slyddu. Og þegar kemur
fram á aðfangadaginn hef-
ur trúlega hlýnað svo mik-
ið að úrkoman verði orðin
að rigningu. Á jólanóttina
snýst hann svo til S og SV
áttar með éljagangi. Guð-
mundur bjóst ekki við
miklum vindi á jóladag, en
gæti orðið nokkuð hvasst
á annan. En hann tók fram
að töluverð óvissa væri
enn um veðrið jóladagana,
en þetta þykir honum trú-
legast nú.