Vestfirska fréttablaðið - 22.12.1982, Qupperneq 2
vestfirska
Nýjar bækur
frá Iðunni
vestfirska
FRETTABLAÐIÐ
Vikublað, kemur út á fimmtudögum kl, 18:00 - Skrifstofa
Hafnarstræti 14, sími 4011 - Opin virka daga fra kl 10:00 —
12:00 og 13:00 — 17:00 - Blaðamaóur Sigurjon Valdimars-
son, sími 4212 - Útgefandi og ábyrgðarmadur Arni Sigurðs-
son, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100 - Veró í lausasölu kr
10,00 - Áskriftarverð er lausasöluverð, reiknað hálfsárslega
eftirá - Prentun: Prentstofan ísrún hf., sími 3223,
Gagnkvæmt traust
leiði til friðar
Nú eru liðin tæp 2000 ár, síðan friðarboðskapur jólanna
fyrst hljómaði meðal mannanna: „Verið óhræddir, því sjá, ég
boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum:
Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn.“ —
„Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu, með mönnum,
sem hann hefur velþóknun á.“
Frá örófi alda hefur mannkynið mátt þola bræðravíg og á
þessum tvö þúsund árum, sem liðin eru síðan Jesús Kristur
var í heiminn borinn hefur maðurinn eflt með sér tækni og
getu til þess að nota svo ægileg eyðingartól að hann ræður
nú líklega yfir afli til þess að afmá allt líf á þessari jörð.
Það er sorgleg staðreynd, að einna hæst rís þessi tækni
með hinum svokölluðu siðmenntuðu þjóðum og á meðal
þeirra eru þær flestar, sem játa trúna á Jesúm Krist.
Það seni mannkyni stafar tvímælalaust mest hætta af, er
hið skefjalausa vígbúnaðarkapphlaup risaveldanna tveggja,
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Viðleitni þessara þjóða og
bandamanna þeirra beinist að því að viðhalda svokölluðu
ógnarjafnvægi og gagnkvæm tortryggni, sem á sér því miður
rætur í veraldarsögunni ríkir meðal leiðtoganna í austri og
vestri.
Þegar líður að jólum nú, tæpum tvö þúsund árum eftir að
fagnaðarerindið var fyrst boðað, er því miður engin sérstök
ástæða til bjartsýni. Við höfum þó leyfi til að vona og trúa
því, að með friðarviðræðum bestu manna megi skapast með
þjóðunum gagnkvæmt traust, sem leiði til þess að aðilar sjái
sér fært að draga úr vígbúnaðarkapphlaupinu og beina
kröftunum að því að útrýma hungri og hörmungum í okkar
marghrjáðu veröld.
r-—- Smáauglýsingar------------------■>
I BAHÁ’lTRÚIN
[ Upplýsingar um Bahá’ftrúna
I eru sendar bréflega, ef ósk-
■ að er. Utanáskrift: Pósthólf
I 172, ísafirði. Opið hús að
| Sundstræti 14, sími 4071 öll
I fimmtudagskvöld frá kl. 21
| —23.
TILSÖLU
Nordica skíðaskór nr. 41/2,
nýlegir og seljast á 600 kr.
Einnig Ztlnor slíðaskór nr. 30
á 250 kr.
Upplýsingar í síma 7165.
AL ANON FUNDIR
fyrir aðstandendur fólks,
sem á við áfengisvandamál
að stríða, eru kl. 21:00 á
mánudagskvöldum að Aðal-
stræti 42, Hæstakaupstað-
arhúsinu.
Upplýsingar eru veittar í
síma 3411 á sama tíma.
A.A. FUNDIR
kl. 9 á þriðjudagskvöldum,
að Aðalstræti 42, Hæsta-
kaupstaðarhúsinu. Opið á
sama stað milli 2 og 4 á
sunnudögum, sími 3411.
A.A. deildin.
„LAUSNARORÐ “, BÓK EFTIR
MARIE CARDINAL
Út er kominn hjá IÐUNNI
bókin Lausnarorð eftir fransku
höfundinn Marie Cardinal. Snjó-
laug Sveinsdóttir |;ýddi. Höfund-
ur bókarinnar fæddist í Alsír árið
I929 og ólst þar upp. Hún stund-
aði nám heima og í París og
gerðist síðan háskólakennari í
heimspeki. Á fertugsaldri tók hún
að þjást af sálsýki sem smám
saman magnaðist uns þar kom að
hún gekkst undir sálgreiningu.
Frá henni segir í þessari bók.
Vegna sálgreiningurinnar þarf
hún að gera upp fortíð sína. upp-
runa sinn. uppeldi og mótun.
Þeirri sjálfskrufningu lýsirsagan.
Lausnarorð segir frá bernsku
og æsku Marie Cardinal í Alsír.
Hún elst upp hjá móður sinni.
fráskilinni konu. í siðavöndu ka-
þólsku umhverfi betri borgara.
..Samskiptum þeirra mæðgna sem
hafa gagnger áhrif á líf dótturinn-
ar er hér lýst af fágætri einurð og
vægðarleysi". segir í kynningu
forlags á kápubaki. „Sú frásögn
mun ekki síst gera þessa bók
lesandanum minnisstæða." —
Marie Cardinal býr nú í París og
hefur samið fleiri bækur sem
hlotið hafa viðurkenningu og ver-
ið þýddar á mörg tungumál. Hún
hefur verið formaður franska rit-
höfundasambandsins. Bókin er
2I8 blaðsíður. Prentrún prentaði.
NÝ BÓK: „HÖGGORMUR í
PARADlS“ EFTIR RÓBERT
MAITSLAND
IÐUNN hefur sent frá sér bók-
ina Höggormur í paradís eftir
Róbert Maitsland, en það eru
minningar höfundar. Efni bókar-
innar og höfundur eru kynnt á
þessa leið á kápubaki: „Högg-
ormur í paradís fjallar um ævin-
týralegan feril Róberts Maits-
lands. Hann er ástandsbarn,
móðir hans íslensk en faðirinn
bandarískur hermaður sem hvarf
af landi brott mánuði eftir að
hann fæddist. Róbert fær
snemma orð á sig fyrir að vera
vondur strákur og verður sveitar-
skelfir í Flóanum þegar hann vex
upp. Hann fæst við margskonar
störf: Verður afgreiðslumaður í
kauplelagi. messagutti á fragt-
ara. bílaviðgerðarmaður í Reykja-
vík. Ekkert þessara starfa verður
til að efla hróður hans. Ekki held-
ur svínabúskapur. veiðiskapur og
hestatamningar sem hann fæst
líka við... Höfundur lifir fyrir líð-
andi stund og á i stöðugum úti-
stöðum við umhverfið, bíður oft
lægri hlut en skýtur þó stundum
löggæslunni ref fyrir rass.“
Höggormur í paradís er í
tveim hlutum, nítján köflum.
Bókin er 125 blaðsíður. Prisma
prentaði.
„LJÓÐ VEGA GERГ, NÝ
LJÓÐABÓK EFTIR SIGURÐ
PÁLSSON
Út er komin á vegum IÐUNN-
AR ný Ijóðabók eftir Sigurö
Pálsson Nefnist hún Ljóð vega
gerð og er þriðja Ijóðabók höf-
undar. Hinar fyrri nefndust Ljóð
vega salt og Ljóð vega menn. —
Sigurður Pálsson hefur lagt stund
á nám í bókmenntum og leikhús-
fræðum í Frakklandi. Hann hefur
samið leikrit og þýtt allmörg. Um
þessa nýju ljóðabók hans segir
svo í kynningu forlags á kápu-
baki: Ljóð vega gerð er þriðja
og síðasta bindi Ljóðvegasafns
Sigurðar Pálssonar. Hann vakti
snemma athygli fyrir persónuleg-
an og ferskan ljóðstíl. í þessari
bók eru eins og í hinurn fyrri,
ljóðaflokkur þar sem mismargar
atrennur eru gerðar að einhverju
heildarviðfangsefni enda þótt
hvert ljóð standi sem sjálfstæð
heild. Yrkisefnin eru fjölbreytt og
skírskotanir margvíslegar. Við
sjáum að bernskuslóðir. höfuð-
borg og heimsborg eru enn á
sínum stað og sömuleiðis hugsun
Sigurðar um tíma og rými og
ferðalag í margs konar skilningi.
Tungumálið er krafið sagna um
sjálft sig og okkur hin og vegferð
okkar á ljóðvegum."
Ljóð vega gerð skiptist í eftir-
talda kafla: Ljóðvegagerð, Hótel
vonarinnar. Segðu mér að norð-
austan. Rue Dombasle. Segðu
mér að sunnan, Hafið bláa mið-
jarðar. Um trissur með mjalla og
Talmyndastyttur. — Bókin er 106
blaðsíður. Prentsmiðja Friðriks
Jóelssonar prentaði. Þórður Hall
gerði kápumynd.
„MISSKIPT ER MANNA LÁNI,“
HEIMILDAÞÆTTIR EFTIR
HANNESPÉTURSSON
IÐUNN hefur geíið út bókina
Misskipt er manna láni, fyrsta
bindi heimildaþátta eftir Hannes
Pétursson. f bókinni eru fimm
þættir og fjalla allir um fólk sem
bjó í Skagafirði lengur eða skem-
ur á síðustu öld og fram á þessa.
Tveir varða Bólu-Hjálmar. Segir
Óskum starfsfólki okkar og við-
skiptavinum gleðilegra jóla, árs
og friðar, og þökkum jafnframt
samstarf og viðskipti á líðandi
1
FRETTJ.BLAEID
HANNES PÉTURSSON
MISSKIPT
ER
MANNA
LANI
HEIMILDAÞÆTTIR I
annar frá Marsibil móður hans.
og er þar hulunni svipt af æviferli
þessarar ..förukonu" og ..kemur
þá nokkuróvænt í ljós : Um skeið
var hún í tölu auðugustu kvenna
landsins í þeirri tíð“. segir í kynn-
ingu forlags á kápubaki. Hinn
þátturinn greinir frá síðasta hæli
Hjálmars, beitarhúsunum þar
sem hann tók andvörpin. —
Fyrsti þátturinn fjallar um
..gleymda konu og geldsauði tvo“,
hagorða konu og harðskeytta sem
flæktist inn í brotamál. Þá er sagt
frá Pétri Eyjólfssyni, skipara ein-
um sem „sogaðist inn í róstur
íslandssögunnar" í byrjun
nítjándu aldar. Loks er svo þáttur
af sérkennilegu fólki í Teigakoti í
Tungusveit. smábýli sem nú er
fallið í eyði."
Misskipt er manna láni er
prýdd allmörgum myndum. Bók-
in er 195 blaðsíður. Oddi prent-
aði.
„HALLÆRISPLANIГ SKÁLD-
SAGA EFTIR PÁL PÁLSSON
IÐUNN hefur gefið út Hallær-
isplanið, skáldsögu fyrir börn og
fullorðna eftir Pál Páisson. Þetta
er fyrsta skáldsaga höfundar sem
kunnur er fyrir blaðaskrif um
popptónlist. Sagan gerist í
Reykjavík samtímans og segir frá
lífi unglinga, í skóla og utan. sem
hafa Hallærisplanið að eins konar
miðþyngdarstað. Myndir í bókina
gerði Úlfar Valdimarsson. Hall-
ærisplanið er 102 blaðsíður.
Prentrún prentaði.
„VINUR VORS OG BLÓMA“,
NÝ SKÁLDSAGA EFTIR
ANTON HELGA JÓNSSON
Út er komin hjá IÐUNNl ný
skáldsaga eftir Anton Helga
Jónsson og nefnist Vinur vors
og blóma. Undirtitill: Saga urn