Vestfirska fréttablaðið - 22.12.1982, Page 8
Sendum viðskiptavinum og öðru
samstarfsfóli bestu óskir um
gleðilegjól og
farsœld á komandi árí
og þökkum samskiptin á því sem er að líða
Bókav. Jónasar Tómassonar
SPORTHLAÐAN
vestíirska
FRÉTTABLASIS
0 t ERNIR r Símar 3698 og 3898 J ISAFIROI 3 BÍLALEIGA
Börnin leggja
góðum málum lið
Unga fólkið er iðió við að safna fé, til styrktar góðum málum. Þrír hópar komu til
okkar í haust og vetur og sögðu okkur frá söfnun sinni. Allir hóparnir héldu tombólur
og gáfu allt sem inn kom til styrktar húsbyggingarsjóði vistheimilis þroskaheftra.
Strákarnir á efri myndinni til vinstri héldu sína hlutaveltu snemma í september og
öfluðu 920 króna. Þeir eru frá vinstri talið: Salomon Á. Ágústsson, Einar Á.
Hrafnsson, Njáll Flóki Gíslason, Gunnar K. Ásgeirsson og Trausti S. Hrafnsson.
Krakkarnir á neðri myndinni t.v. héldu sína tombólu 30. október og söfnuðu 535
krónum. Þau heita: Erla Einarsdóttir, Sigurbjörg Benediktsdóttir, Stefán Sigurðsson
og Ólafur Björn Benónýsson.
Og á myndinni hér fyrir neðan eru: Hafsteinn Sverrisson, Örn Árnason, Magnea
Fylling, Óttar Gunnarsson og Álfhildur Guðbjartsdóttir. Með þeim í söfnuninni var
Margrét Guðbjartsdóttir, en hún gat ekki komið með til myndatökunnar. Þessi hópur
safnaði 305 krónum á hlutaveltu í Fjarðarstræti 4, þann 26. október.
Tilbúnir til
flugreksturs
að selja." sagði Vaidimar. Komi
hins vegar til þess að nauðsynlegt
reynist að hefja flugrekstur með
stuttum eða engum fyrirvara. hef-
ur verið talað við aðila í flug-
rekstri um að grípa inn í meðan
félagið hefur ekki enn keypt sínar
eigin flugvélar.
— Viljum vera tilbúnir, ef Ernir þarf að
hætta, segir Valdimar L. Gíslason, í Bolung-
arvík.
,,Við getum ekki verið flug-
félagslausir hér á Vestfjörðum
og nýtt flugfélag er tilbúiö að
taka til starfa fyrirvaralaust, ef
á þarf að halda," sagði Valdi-
mar Lúðvík Gíslason í Bolung-
arvík í viðtali við Vestfirska
fréttablaðið. „Megin atriðið er
að sjúkraflug og flugsamgöng-
ur innbyrðis á Vestfjörðum
verði starfrækt áfram fyrir Vest-
firðinga og af Vestfirðingum,
a.m.k. í meiri hluta“ bætti hann
við.
Valdimar hefur haft forgöngu
um að stofnað verði nýtt flug-
félag á Vestfjörðum og með
honum í stofnun þess félags
eru að hans sögn, einstakling-
ar og aðilar, sem sinna ferða-
og samgöngumálum á Vest-
fjörðum. Hann vildi þó ekki
nafngreina þá á þessu stigi
málsins.
í viötalinu kom fram að leitað
hefur verið eftir flugvélakaupum
og að ekki eru nein vandkvæði á
að fá góðar vélar keyptar. ..Það er
gott að kaupa vélar núna en vont
Aðspurður um hverjar þær að
stæður væru. sem skapað gætu
nauðsyn þess að hefja starfsemi
fyrirvaralaust. svaraði Valdimar:
Flugfélagið Ernir. sem nú hefur
þessa þjónustu á hendi, á við
mjög mikla rekstrarerfiðleika að
stríða og hefur raunar hætt hluta
þessarar þjónustu. sem er póst-
flugið. Ljóst er að ekki er hægt að
rétta við rekstur félagsins. nema
með miklu ríkisframlagi. sem
mikið vafamál er að fáist. Við
viljum vera tilbúnir að taka við.
ef til þess kernur að Ernir verði að
hætta rekstri sínum.
Gerist hin.wegar kraftaverk og
Ernir fái rekstrargrundvöll drög-
um við okkur í hlé. því að það er
©
PÓLLINN HF
ísafirði
Sími3792
Gleðileg jól með gæðagrípum sem gleðja augað.
PHILIPS — SIEMENS
— LITA SJÓNVÖRP —
# 20“—22“—26“—27“ myndlampi
# Frábær mynd og tóngæði
# Með og án fjarstýringar
# Árs ábyrgð
# Viðurkennd viðgerðarþjónusta
— Nýjar BETA myndir komnarfyrir jólahelgina —
Ijóst að ekki er pláss fyrir tvö
flugfélög á þessum markaði. Við
erum ekki að stofna til neinnar
samkeppni. við viljum aðeins
vera tilbúnir til að taka við, svo
að þessi rekstur fari ekki úr fjórð-
ungnum. ef Ernir verður að
hætta."
Valdimar var þá spurður hvort
Hörður Guðmundsson aðaleig-
andi Ernis væri einn þeirra, sem
að þessu nýja félagi standa.
„Hann er það ekki enn, en
hann er velkomin til samstarfs
eins og aðrir Vestfirðingar," svar-
aði Valdimar.
Blaðið hafði samband við
Reyni Adolfsson framkvæmda-
stjóra Ferðaskrifstofu Vestfjarða
og spurði hann hvort ferðaskrif-
stofan væri aðili að stofnun þessa
nýja félags.
„Engin formleg beiðni hefur
borist okkur um þátttöku í því og
þar af leiðandi hefur það ekki
verið rætt í stjórninni og engar
ákvarðanir verið teknar. En það
hefur verið rætt við mig óform-
lega um málið og ég veit af því.
Við erum auðvitað jákvæðir
fyrir allri uppbyggingu ferðamála
og það gildir jafnt gagnvart hvaða
fyrirtæki sem hér verður starfandi
í þeirri grein," sagði Reynir.
Einar Helgason hjá Flugleiðum
tók í sama streng. þegar við
spurðum hann hvort Flugleiöir
verði meðeigandi i fyrirtækinu.
Hann sagði að ekkert formlegt
hefði borist Flugleiðum um málið
og því hafi það ekki komið til
álita þar.
Síðan bætti hann við: „Innan
Flugleiða hefur verið sú stefna að
þessi landshlutafélög þurfi að
starfa og þar þurfi að vera öflug
starfsemi með réttan rekstur og
Flugleiðir hafa tekið þátt I svip-
uðum rekstri, bæði á Norðurlandi
og á Austfjörðum."
„Það er mjög ánægjulegt að svo
margir áhugamenn um flugrekst-
ur eru á Vestfjörðum og framtak
Valdimars er gott. Hinsvegar
hefði þessi áhugi mátt koma fram
Framhalcl cí h!s. 7
(
Vísan
]
Megi alla faðma friður.
Fagnar lífið, hækkar sól.
Best er að leggja lastið nið-
ur,
lifið heil um þessi jól.
C
■>
BÍLALEIGA
Nesvegi 5 — Súðavík — 94-6972 — 6932
Grensásvegi 77 — Reykjavík — 91-37688
Sendum bílinn
Opið allan sólarhringinn