Vestfirska fréttablaðið - 21.06.1984, Side 1
27. tbl. 10. árg.
vestíirska
21. júní 1984
FRETTABLASIS
Kenwood
Panasonic
Silver og
Toshiba
Sinarffuðfjitwsson k f
^yinti ~)2Q0 - Qoluvuja’iúík
Aukin_______
sjálfvirkni í
rækjuvinnslu
„Já, það má segja að þetta sé
nýjung, þetta er hvergi í rækju-
verksmiðju hér á landi,“ sagði
Guðmundur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Rækjuverksmiðj-
unnar í Hnífsdal, um tækin sem
nú er verið að setja upp hjá
þeim. Þau samanstanda af
þvottakerfi fyrir rækjuna áður
en hún fer í vélarnar, síðan er
vigtun inní hverja pillunarvél og
svo aftur vigtað frá böndunum
sem konurnar vinna við, þannig
að það á að vera hægt að fylgjast
nákvæmlega með nýtingu á
hverri vél fyrir sig. Rækjan er nú
losuð á eitt færiband í móttök-
unni og gengur síðan sjálfkrafa
upp í vélarnar eftir því sem þær
kalla á rækju til sín. Þetta er þvi
allt orðið meira og minna sjálf-
virkt. Þess vegna þarf Guð-
mundur ekki að bæta við fólki þó
einnig hafi verið bætt við rækju-
vél og eru þær þar með orðnar
þrjár i verksmiðjunni.
Nýja kerfið sem hér um ræðir
er danskt, framleitt af fyrirtæk-
Nýr ávaxtadrykkur
á markað
— auglýst eftir heiti á hann
Fyrir nokkru setti Mjólkur-
samlag ísfirðinga á markað nýj-
!?*»*>* ««'
Nei, þetta er ekki vitlaus mynd, held-
ur er drykkurinn í bráðabirgða-
umbúðum.
an ávaxtadrykk. Hér var um
kynningu eða könnun að ræða
og að sögn mjólkurbússtjóra þá
virðist sem neytendum hafi líkað
vel. Framleiðsla fyrir almennan
markað mun þó ekki hefjast fyrr
en gengið hefur verið frá samn-
ingum við viðkomandi fram-
leiðslufyrirtæki í Bretlandi.
Viðræður eru í gangi og ef þær
bera árangur er von á að drykk-
urinn komi í verslanir í sumar og
þá fyrst um sinn í bráðabirgða-
umbúðum.
Ávaxtadrykkurinn hefur enn
ekki hlotið íslenskt nafn. Fái
einhver hugmynd um nafn, þá
er þess gjarnan óskað að henni
verði komið á framfæri við
Mjólkursamlagið. Fyrir bestu
hugmyndina verða svo veitt
verðlaun í formi vöruúttektar.
Hér með er þessu komið á
framfæri.
inu Scamac í Glostrup, en það
sérhæfir sig í kerfum fyrir
rækjuvinnslu. Kerfi þeirra í
Hnífsdal kostar um eina
milljón danskra króna uppsett.
Framleiðendurnir sáu sjálfir um
þá hlið mála. Prufukeyrsla fór
síðan fram s.l. þriðjudag og kom
þá í Ijós að einhverjar endur-
bætur þarf að gera.
Guðmundur Sigurðsson
sagðist búast við að þeir hefðu
nóg hráefni á næstunni. Hins
vegar sagði hann illa horfa í
sölumálunum.
Guðmundur Sveins-
son forseti________
bæjarstjórnar
Á bæjarstjórnarfundi fimmtu- mun sitja til fyrsta fundar bæj-
daginn 14. júní var kosið nýtt arstjórnar í júní næsta ár.
bæjarráð. Þeir sem þar sitja nú Þá var Guðmundur Sveinsson
eru Þuríður Pétursdóttir, Kristj- kosinn forseti bæjarstjórnar til
án Jónasson og Geirþrúður eins árs. Hann er fulltrúi fram-
Charlesdóttir. Þetta bæjarráð sóknarmanna.
Fiskimjölsverksmiðjan á Suðureyri:
Kveikt upp í gær
Nú í vikunni hefur verið unnið
að því að hreinsa til í fiskimjöls-
verksmiðjunni á Suðureyri, en
sem kunnugt er urðu þar miklar
skemmdir af eldi á þriðjudaginn
í síðustu viku. Tækjabúnaður
verksmiðjunnar mun þó ekki
hafa skemmst mjög mikið, ein-
ungis nokkrir mótorar skemmst.
Stóð til að reyna að kveikja upp
í verksmiðjunni í gær eða í dag
og átti að mala aftur mjölið sem
var í húsinu við brunann, ef ske
kynni að eitthvað af því væri
heilt.
Þegar við höfðum samband
síðdegis í gær varfyrsti reykurinn
að liðast upp.
Astæðulaustaðkenna keppnisferðum um
að spilla skólastarfinu
„Ef skólastjóri vill leggja
niður keppnisferðir nemenda til
að ná upp meðaltalseinkunn, þá
vil ég ekki vinna að íþróttamál-
um,“ segir Fylkir Ágústsson,
sundþjálfari, í grein f blaðinu í
dag. Hana skrifar hann í tilefni
ummæla Kjartans Sigurjóns-
sonar, skólastjóra Gagnfræða-
skólans á ísafirði, þess efnis að
tíð íþróttaferðalög spilli skóla-
starfinu.
— segir Fylkir Agústsson
Fylkir segist ávallt hafa talið
íþróttastarfið þakklátt starf,
hann hafi fengið mikinn stuðn-
ing. „Hinsvegar hef ég séð vel
skipulagða og agaða nemendur
skara fram úr í námi, jafnhliða
góðri frammistöðu í íþróttum,“
segir Fylkir og vísar rökfærslu
skólastjóra á bug. Jafnframt
skorar hann á Kjartan að leggja
fram meðaltalseinkunn 8.
bekkjar, en í þeim bekk er flest
sundfólkið, með og án
sund/skíðakeppnisnemenda.
Hann segist sannfærður um að
meðaltal bekkjarins mundi
lækka ef íþróttafólkið yrði skilið