Vestfirska fréttablaðið - 08.11.1984, Side 2
2
Ívestíirska I
1 vestfirska Vestfirska fréttablaðið kemur út á fimmtudögum kl. 17:30. Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Hafnarstræti 14 er opin virka daga kl. 10:00 til 12:00 og 13: til 17:00. Síminn er4011. Ritstjóri: Árni Sigurðsson. Blaðamaður Yngvi Kjartansson Stórholti 17. Fjármál og dreifing: Guðrún Halldórsdóttir. Útgefandi og ábyrgðarmaður: Árni Sigurðsson, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100. Prentun: Prentstofan Isrún hf. ísafirði. Verð í lausasölu kr. 25,00. Auglýsingaverð kr. 130,00 dcm. Áskriftarverð er lausasöluverð reiknað hálfsárslega eftirá.
Ritstjórn á fimmtudegi
Þeir fiska,
sem róa
Á fiskiþingi takast menn nú á um
fiskveiöistefnuna, og þá um leið lífs-
hagsmuni þjóðarinnar. Hafrann-
sóknarstofnun hefur lagt til að enn
verði dregið úr þorskveiðum og öðr-
um bolfiskveiðum, þrátt fyrir batn-
andi lífsskilyrði í sjónum.
Jón Páll Halldórsson, varafiski-
málastjóri hafði framsögu um fisk-
veiðistefnuna á þriðjudaginn og lagði
hann til að leyft yrði að veiða 315 -
385 þús. lestir af þorski og 270 - 330
þús. lestir af öðrum bolfiski árlega á
næstu fimm árum.
Kvótinn er líka hitamál á Fiskiþingi
og skiptast menn í því máli nokkuð
eftir landshlutum. Vestfirðingar og
Vestlendingar, þar með taldir Reyk-
víkingar vilja kvótann burtu, en
Norðlendingar, Austfirðingar og
Eyjamenn vilja hafa hann áfram.
Skilyrði til lífs í sjónum umhverfis
landið hafa batnað mikið frá því
heildarafli var ákveðinn fyrir árið
1984 og kvótakerfið var sett á. Lífs-
skilyrðin í sjónum og lífsskilyrðin á
landi eru tengd svo þar verður ekki á
milli skilið á meðan 70 hundraðs-
hlutar af útflutningsverðmæti fslend-
inga kemur frá lífkeðju sjávarins.
Nú þegar við búum við batnandi
skilyrði, Þá verðum við að nota það
lag. Vestfirðingar byggja nær alla
sína afkomu á sjávarafla og úrvinnslu
hans. Þessar greinar hafa barist í
bökkum á undanförnum árum bæði
fyrir minnkandi sjávarafla og undar-
lega hagstjórn, sem hefur tyllt undir
ýmsar þjónustugreinar á kostnað
frumgreinanna.
Stjórnendur þessa lands verða að
gera sér grein fyrir því að framtíð
þessarar atvinnugreinar er framtíð
íslensks efnahagslífs. Efnahagslegt
sjálfstæði þjóðarinnar er undir því
komið að fiskveiðar og vinnsla gangi
vel. Þess vegna verður að róa þegar
gefur, því eins og sagt er : ,,Þeir
fiska, sem róa“.
Smá-
auglýsingar
j TILSÖLU
l Saab 900 GLE, árgerð
I 1980, ekinn aðeins 33
j þús. km. Skipti á jeppa
I möguleg.
I Upplýsingar í síma 94-
I 7250.
I______________________
HARÐVERJAR!
Félagsfundur í KRÍ hús-
inu (aðalsal) í kvöld kl.
20:30.
Stjórnin.
TIL SÖLU
Volvo 142, árgerð 1972.
Verð kr. 70 þúsund.
Staðgreiðsluverð kr. 50
þúsund.
Upplýsingar í síma 4094.
-----------------------n
HERBERGI TIL LEIGU
gegn heimilisaðstoð og i
gæslu á einu barni á i
kvöldin.
Upplýsingar í síma 4414
og 4252._______________ |
HÚS Á LEIGU
Óska eftir að taka á leigu l
einbýlishús eða raðhús *
að minnsta kosti í eitt ár.
Upplýsingar í síma 7581
eða 7323.
__________________________I
AÐSTOÐARSTÚLKA
Aðstoðarstúlka óskast hálfan daginn
(eftir hádegi) á tannlæknastofu mína.
Skriílegar umsóknir berist á stofuna fyrir
12. nóvember.
Jón Björn Sigtryggsson.
Við vinnum
okkar brauða-
mat daglega:
• Samlokur
• Hamborgarar
• Brauðbakkar
• Smurbrauð
• Snittur
• Pizzur
Merkið
tryggir gæðin
Við getum að sjálfsögðu ekki boðið sama verð og stór-
markaðirnir á almennum neysluvörum, en við reynum að
eiga það til, sem fólk þarfnast á kvöldin og um helgar
Kaffi — Sykur Shampó — Sápa Dagblöð
Hveiti — Smjörlíki Tannkrem Tímarit
Púðursykur Tannburstar Vasabrots-
Flórsykur Sokkabuxur bækur
Rasp — Djús Filmur Kassettur
Niðursoðnir ávextir Niðursoðið grænmeti Pakkaís Bleyjur Dömubindi Vídeóspólur
í kvöldsamkvæmið: Gestabitar í fjölbreyttu úrvali.
— Allar tegundir öls og gosdrykkja. — ísmolar.