Vestfirska fréttablaðið - 12.04.1985, Síða 6
6
vestlirska
rHETTABLASIS
FÍB mótmælir 68% hækkun iðgjalda
reiðatryggingar milli félaga
með eðliiegu móti.
g) Einnig er eðlilegt að trygg-
ingataki geti valið sjálfsábyrgð
milli tiltekinna marka, svipað
og er með húftryggingu (há-
mark og lágmark).
I. INNGANGUR
Undanfarna daga hefur skrif-
stofu F.I.B. borist fjöldi fyrir-
spurna og kvartana vegna 68%
hækkunar á iðgjöldum lögboð-
inna ábyrgðartrygginga öku-
tækja, sem tilkynntar voru 8.
mars s.l. Telja menn hækkanir
þessar ekki í samræmi við aðrar
verðhækkarnir og með öllu ó-
eðlilegar miðað við þær skýr-
ingar sem fyrir liggja.
II. ÖRT HÆKKANDI IÐ-
GJÖLD
Fram til ársins 1983 höfðu
iðgjöld lögbundinna ábyrgðar-
trygginga ökutækja endanlega
verið ákveðin af trygginga-
málaráðuneyti, með hliðsjón af
umsögn Tryggingaeftirlits ríkis-
ins. Frá 1983 hefur ákvörðun
þessi verið í höndum vátrygg-
ingafélaganna, að því tilskyldu
að leitað sé álits Tryggingaeft-
irlits ríkisins. Eftir að ákvörðun
iðgjalda lögboðinna ábyrgðar-
trygginga ökutækja var þannig
gefin frjáls árið 1983, hafa ið-
gjöld hækkað sem hér segir.
— 1983 varð 95,2% hækkun
— 1984 varð 10,0% hækkun
— 1985 varð 68,0% hækkun
eða alls rúm 260% á þremur ár-
um. Engin þjónusta í landinu
mun hafa hækkað svo mikið á
þessum tíma.
Að vísu hafa komið fram-
nokkrar breytingar á vátrygg-
ingaskilmálum og gjaldskrám
vátryggingafé'laga, til dæmis
aukinn afsláttur fyrir góða öku-
menn, en jafnframt aukin
sjálfsábyrgð úr kr. 3500 í kr.
4500. Vátryggingafjárhæðin
hefur hækkað úr 10 millj. króna
í 12,7 millj. króna fyrir einka-
bifreiðir. Þessi atriði hafa ýmist
áhrif til lækkunar eða hækkun-
ar iðgjalda.
III. FRJÁLS SAMKEPPNI
Til þess er ætlast að frjáls
samkeppni haldi ábyrgðar-
tryggingagjöldum í lágmarki,
en slíkt virðist ekki raunin með
hliðsjón af iðgjaldahækkunum
undanfarinna ára. Hér er um
lögboðnar skyldutryggingar að
ræða, þannig að bifreiðaeig-
endur geta ekki valið um hvort
þeir taka þær eða ekki. Vá-
tryggingafélögin eru ekki í
frjálsri samkeppni, heldur
mynda þétta samstöðu og á-
kveða sameiginlega iðgjöldin.
Slík samstaða er bönnuð með
lögum í þjóðlöndum, þar sem
Við skipulagsbreytingar þær
sem gerðar voru innan Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga
á síðastliðnu ári, var stofnuð ný
aðaldeild, búnaðardeild og er
hún til húsa í Ármúla 3.
Meginmarkmið stjórnenda
Sambandsins með stofnun
„frjálsri samkeppni“ er ætlað
heilbrigt hagstjórnarhlutverk.
Eini munurinn á þeim kjör-
um, sem félögin bjóða bifreiða-
eigendum felast í viðskiptaskil-
málum, en þó eru þar ýmis
veigamikil atriði sameiginleg
hjá vátryggingafélögunum, sem
hagstæð — en önnur neikvæð
fyrir tryggjendur. Til dæmis
er óeðlilegt að vátryggingatakar
falli hratt (hrapi) úr áralöngum
bónus vegna einstaks tjóns.
Þetta er dæmi um atriði, sem
hægt er að breyta nú þegar.
IV. BRÝN ÞÖRF BREYT-
INGA
Enda þótt ákvörðun um 68%
hækkun iðgjalda sé lögformlega
rétt, þá eru ýmis atriði sem hún
byggist á ekki nægilega hald-
góð, að mati F.Í.B.
Því vaknar sú spurning hvort
vátryggingafélögin hafi ekki
brugðist því trausti, sem í við-
skiptafrelsi er fólgið og þá hvort
Búnaðardeildarinnar er að
sameina í einni rekstrareiningu
allar meginrekstrarvörur land-
búnaðarins, aðlaga þau við-
skipti að breyttum verslunar-
háttum og um leið að veita sem
allra besta þjónustu á þessu
sviði.
Búnaðardeildin tók við þeim
rekstri sem áður var á vegum
búvéladeildar Véladeildar
Sambandsins og Dráttarvéla
h.f., fóðurvörusölunni frá Inn-
flutningsdeild Sambandsins á-
samt girðingarefni, sáðvörum
og ýmsu fleiru.
Tekist hefur að gera sam-
komulag við alla þá vélafram-
leiðendur sem verslað hefur
verið við með búvélar og annan
búnað um áframhaldandi sam-
starf og verða því allar þær vél-
ar sem Búvéladeildin og Drátt-
arvélar h.f. versluðu áður með,
áfram á boðstólum hjá Búnað-
ardeildinni.
Þar sem deildinni er ætlað að
sjá landbúnaðinum fyrir fjöl-
breyttu úrvali af hvers konar
vélum og rekstrarvörum er nú
unnið að því að endurskoða
vöruval deildarinnar og leita
eftir nýjum viðskiptasambönd-
um á ýmsum sviðum.
Jón Þór Jóhannsson er fram-
kvæmdastjóri fyrir Búnaðar-
deildinni, Sæmundur Guð-
laugsson skrifstofustjóri,
Gunnar Gunnarsson er for-
stöðumaður fyrir vélaverslun-
inni og jafnframt staðgengill
framkvæmdastjóra. Arnór Val-
geirsson er deildarstjóri í fóður-
vörudeild og Agnar Þór Hjartar
deildarstjóri fyrir deild sem sér
um varahlutaverslunina og
ýmsar aðrar rekstrarvörur.
Búnaðardeildin er til húsa í
nýju viðbyggingunni við Ár-
múla 3. Skrifstofurnar eru á
annarri hæð en varahlutaversl-
unin, sýningaraðstaða fyrir vél-
ar, vöruafgreiðsla og vélastand-
setning á fyrstu hæðinni.
STRONDIN
EIMSKIP
Eimskip annast reglubundnar siglingar á átta hafnir innanlands auk afgreiðslu á vörum með
Herjólfi til og frá Vestmannaeyjum.
Aætlun
Siglingaleið skipanna:
Aðra hvorja viku:
Mánafoss: Roykjavík - (saljöröur - Akureyri - Húsavík -
ísafjöröur - Patreksfjðrður - Reykjavík.
Mánafoss: Reykjavik - Isafjörður - Akureyri - Siglufjðrður
- Sauðárkrókur - Isafjðrður - Reykjavík.
Skandlnavfusklp: Reykjavík - Reyðarfjörður (á leið til
Norðurlandanna).
Daglega:
Herjólfur: Vestmannaeyjar - Þorlákshöfn - Vestmannaeyjar
Tíðni áætlunarslglinga:
Daglega f viku Vikulega Aðra hverja viku
Þorlákshðfn Vestmannaeyjar Reykjavík Isafjðrður Akureyri Siglufjðrður Sauðárkrókur Húsavik Pafreksfjörður Reyðarfjðrður
Vöruafgreiðslur
Reykjavfk:
Tekið er á móti smærri sendingum í Klettsskála við Köllunarklettsveg
frá klukkan 8:00 til 17:00 alla virka daga. Stærri sendingum og heilum
gámum er veitt móttaka í strandflutningaskála í Sundahöfn frá klukkan
8:00 til 17:00 alla virka daga. Á mánudögum, til klukkan 12:00 á
morgnana, er tekið á móti sendingum sem fara eiga með skipi
samdægurs.
Símar:
(91) 686464 - Klettsskáli, eða (91) 27100
(91) 27100 - Strandflutningaskáli I Sundahöfn.
Isafjörður:
Vöruafgreiðsla I Vöruhúsinu við Ásgeirsgötu frá klukkan 9:00 til klukkan
17:00 alla virka daga.
Umboðsmaður: Tryggvi Tryggvason.
Slmar:
(94) 4556 - Vöruhús, (3055 - heimasími verkstjóra),
(94) 3126/4555 - Skrifstofa, (3962)
Akureyri:
Vöruafgreiðsla er í Oddeyrarskála við Strandgötu frá klukkan 8:00 til
17:00 alla virka daga.
Umboðsaðili: EIMSKIP (Kristinn Jón Jónsson).
Símar: (96) 24131 - skrifst., 21725 - Oddeyrarskáli, (24171).
Húsavfk:
Vöruafgreiðsla er hjá Skipaafgreiðslu Húsavíkur hf. við Húsavíkurhöfn
alla virka daga frá kl. 8:30 til 17:00.
Umboðsaðili: Skipaafgreiðsla Húsavíkur hf. (Árni G. Gunnarsson,
Hannes Höskuldsson).
Símar: (96) 41020, (41730 - ÁG, 41633 - HH)
Vestmannaeyjar:
Vöruafgreiðsla EIMSKIPS, Tangagötu 7, alla virka daga frá klukkan 8:00
til 17:00.
Umboðsaðili: Gunnar Ólafsson & Co. hf. (Gísli Guðlaugsson).
Símar: (98) 1051, (1894).
Vöruafgreiðsla Herjólfs, Básaskersbryggju 10, alla virka daga frá klukkan
08:00 til 12:00 og 13:00 til 17:00.
Símar: (98) 1838 - vöruafgr., 1792 og 1433 - skrifst.
Siglufjörður:
Vöruafgreiðsla við Hafnarbryggju.
Umboðsaðili: Þormóður Eyjólfsson hf. (Hermann Jónasson).
Símar: (96) 71129, (71248).
Patreksfjörður:
Vöruafgreiðsla er í vöruskemmu kaupfélagsins við höfnina á milli klukkan
8:00 og 19:00 alla virka daga.
Umboðsaðili: Kaupfélag Vestur-Barðstrendinga (Bjarni Sigurjónsson,
Kristinn Fjeldsted).
Símar: (94) 1201 - skrifst., 1203 - skemma, (1130 - BS, 1328 - KF).
Sauðárkrókur:
Vöruafgreiðsla er I Eyrarskála alla virka daga frá klukkan 9:00 til 18:00.
Umboðsaðili:
Kaupfélag Skagfirðinga (Friðrik Guðmundsson).
Símar: (95) 5200, (5352).
Reyðarfjörður:
Vöruafgreiðsla er á Búðareyri 25 alla virka daga frá klukkan 8:00 til 17:00.
Umboðsaðili: Lykill hf. (Sigurður Aðalsteinsson).
Símar: (97) 4199, (4350)
Skipulagsbreytingar
hjá Sambandinu
núgildandi fyrirkomulag á ið-
gjaldaákvörðunum fyrir lög-
boðnar ábyrgðartryggingar
ökutækja sé nothæft í okkar
þjóðfélagi þar sem engu raun-
verulegu verðlagseftirliti er til
að dreifa á þessu sviði.
a) Hér þarf starfsreglur. Án
eftirlits getur „frjáls samkeppni
breyst í einokun.
b) Brýn þörf er á nýrri löggjöf
um framkvæmd og eftirlit með
lögboðnum ábyrgðartrygging-
um ökutækja.
c) í því sambandi þarf að gera
strangari kröfur um bókhald og
annan rekstur vátryggingafé-
laganna.
d) Tryggingaeftirlit ríkisins
þarf að hafa bolmagn til að
annast þetta eftirlit.
e) Vátryggingafélögunum á
að vera óheimilt að hafa sam-
stöðu um iðgjaldaákvarðanir.
f) Nauðsynlegt er að iðgjöld
séu ákveðin á þeim tíma, sem
tryggingatakar geta flutt bif-
V. MÓTMÆLI F.I.B.
A. Félag íslenskra bifreiða-
eigenda mótmælir eindregið
handahófskenndum hækkun-
um iðgjalda bifreiðatrygginga
og bendir á að slíkt geti leitt til
ófarnaðar fyrir vátryggingataka
og jafnvel vátryggingafélögin.
B. Við ákvörðun iðgjalda lög-
boðinna vátrygginga, þarf
meira aðhald, en hvað varðar
frjálsar vátryggingar.
C. Brýnt er að setja ný lög,
sem banna hringamyndun og
einokunarsamstöðu. Slíkar ráð-
stafanir geta hindrað að óeðli-
legar hækkanir á iðgjöldum
lögboðinna vátrygginga endur-
taki sig.
Bregðist þetta er óhjákvæmi-
legt að iðgjaldaákvarðanir
þessara trygginga verði settar
undir strangt verðlagseftirlit,
sem starfi í nánu sambandi við
Tryggingaeftirlit ríkisins.
Stjórn F.Í.B.
Bragi Björgmundsson, formaður Storms:
Hestamannamót Storms
12. —13. júlí í sumar
Bragi Björgmundsson formað-
ur Hestamannafélagsins Storms
á Vestfjörðum hafði samband við
blaðið og vildi taka undir ummæli
Úlfars Ágústssonar sem hann lét
falla í viðtali í Vestfirska frétta-
blaðinu (11. tbl. 1985) um að
reyna ætti að samræma sam-
komuhald í fjórðungnum svo
ekki þyrfti að koma til árekstra að
nauðsynjalausu. Hann gat þess
ennfremur að hestamannamót
Storms yrði 12. — 13. júlí í sum-
ar. Það verður haldiö að Söndum
í Dýrafirði eins og undanfarin ár.
Helgin^?
12. — 14.
apríl
Matur frá kl. 19:00 — 21:00
MatseðiU
Forréttir
I
Súpa Prinsesse
☆
Beikonvafinn skötuselur í orlydegi
með krydduðum hrísgrjónum
Aðalréttir
Rjómasoðnir lambavöðvar
með rósenkali og rjómasósu
☆
Pekingönd „orange“
með ristaðri peru og ávaxtasultu
☆
Roast beef mlbernaisesósu
og bakaðri kartöflu
Desert
ís
með ferskjum
☆
Munið kabarettborðið í hádeginu á sunnudögum
HÓTEL ÍSAFJÖRÐUR
Sími4111