Vestfirska fréttablaðið - 20.06.1985, Síða 3
r
Slegið á þráðinn
Var ísafjörður með stærstu
sendinefndina, Guðmundur?
Guðmundur H. Ingólfsson,
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins i
bæjarstjóm ísafjarðar, var einn
þeirra sem fóm fyrir bæjarins
hönd á vinabæjarmótið i Hró-
arskeldu í síðustu viku. Alls fóm
fimm bæjarfulltrúar á mótið á-
samt konum sínum. Við slógum
á til Guðmundar og spurðum
hann hvort það væri rétt sem
fleygt hefði verið að ísfirðingar
hefðu sent stærstu sendinefnd-
ina á mótið.
„Hvað áttu þá við, hæstu og
gerðarlegustu mennina eða..?
— Ég á við fjölda fulltrúa.
„Það er nú mjög erfitt að
meta það hvað er í sendinefnd.
Við vorum fimm, plús konurn-
ar. Það voru þarna þjóðir sem
voru með fleiri og aðrir sem
voru með færri. Ekki bar það
neitt af hjá okkur.“
— Var nauðsynlegt að senda
svona margt fólk?
„Eflaust ekki. Það hefði eng-
inn þurft að fara.“
— Af hverju var þá farið?
„Það er nú einfaldlega til að
vera með í þessu samstarfi. Það
hefði ekkert skeð heima þó
Guðmundur H. Ingólfsson.
enginn hefði farið, þetta er bara
spurning um hvort menn ætla
að vera þátttakendur í þessu
eða ekki.“
— Og er það kostnaðarins
virði að taka þátt í svona móti?
„Já. Þessi mót eru haldin á
þriggja ára fresti. Síðast var hér
mót 1976 og verður aftur eftir 6
ár. Menn verða bara að dæma
um það hvort þeir vilja gera
þetta svona eða ekki. En það
hefur ekki verið ágreiningur um
þetta í bæjarstjórn."
— Veistu hvað ferð ykkar
kostaði bæinn?
„Það hef ég ekki hugmynd
um.“
— Þér f innst ekki rétt að veita
þessu fjármagni í eitthvað
annað nú þegar bærinn er í f jár-
kröggum?
„Ég veit það ekki. Svona
spurningu er ekki hægt að svara
um þetta leyti. Maður kemur
ekki með neinn ágóða í vasan-
um af svona móti. Þetta er
spuming um það hvort maður
ætlar að reka sjálfstætt bæjar-
félag með eðlilegum hætti. Hitt
getum við alltaf rifist um hve
marga menn þarf að senda. En
ef menn ætla ekki að taka þátt í
þessu, þá eiga þeir heldur ekki
að kjósa sér vinabæi og taka
þátt í norrænu samstarfi.“
— Hvað fer fram á vinabæj-
armóti og hver er tilgangur
þess?
„Þetta er fyrst og fremst per-
sónuleg kynning. Þarna er líka
sérstaklega kynnt það bæjarfé-
lag sem heldur mótið í hvert
skipti, sem var Hróasrskelda nú.
Við eigum ýmislegt ólært af
þeim mönnum sem stýra bæj-
armálum þar og ég held að við
höfum haft gott af því að kynn-
ast ýmsu sem þar fer fram.“
— Þátttaka skili sér þá fyrst
og fremst í aukinni víðsýni?
„Já, það held ég. Og svo líka
það að menn kynnast þama
fjölmörgum öðrum en þeim
sem eru að dekra við þá þessa
þrjá daga. Þama eru haldnir
fundir, menn bera saman bæk-
ur sínar og ræða málin. Hvernig
eru hlutimir hjá mér og hvemig
eru þeir hjá þér. Annars hef ég
ekki farið á nema tvö mót þessa
bæjarstjórnartíð mína, hitt var í
Tönsberg. Mér þótti eiginlega
meiri reisn yfir mótinu í Hró-
arskeldu. Það var svo mikið að
sjá og heyra.“
— Þið hafið ekki lent í
neinum tungumálavandræðum?
„Nei, það var ágætis tungu-
málafólk í okkar hópi. Ég held
að þetta hafi allt komist til
skila.“
— Þannig að þú ert ánægður
með þessa ferð?
„Já, þetta var draumaferð.“
Sara Vilbergsdóttir sýnir á ísafirði
— Frá og með laugardegi
Laugardaginn 22. júní opnar
Sara Vilbergsdóttir tvær sýning-
ar á ísafirði. í Slunkaríki verða
nokkur olíumálverk til sýnis og
sölu og í anddyrinu á Hótel ísa-
firði sýnir hún pastelmyndir og
teikningar.
Undanfarin 4 ár hefur Sara
stundað nám við Myndlista- og
handíðaskólann og þaðan út-
skrifaðist hún nú í vor. I haust
tekur við framhaldsnám í
Kúnstakademíunni í Osló.
Þessa stundina hamast Sara
Sara viö eht verka sinna.
við að vaska upp ölkrúsir og
fleira á Gauki á Stöng, en ætlar
að bregða af sér svuntunni og
skreppa vestur um sýningar-
helgina.
Sara er fædd og uppalin á
ísafirði og vonast hún til að sem
flestir bæjarbúar skoði sýningar
hennar.
í samtali við blm. sagði Sara,
að myndir hennar væru fígúra-
tífar sjálfsmyndir, hugleiðingar
um hfið og tilveruna.
„Er ekki erfitt að vera lista-
maður í dag?“
„Nú fer fyrst að reyna á það.
Þetta er fyrsta einkasýningin og
það á eftir að koma í ljós
hvernig fólki líkar. Ég get varla
hugsað mér að starfa við neitt
annað en að mála.“
„Skemmtilegra en að vaska
i FASTEIGNA- i
i VIÐSKIPTI i
j ÍSAFJÖRÐUR:
! Seljalandsvegur 12, (Þórsham- !
! ar), 2x65 ferm. einbýlishús. Laust !
J eftir samkomulagi.
■ Fjarðarstræti 59, 3 herb. ibúð á ■
I 1. hæð.
| Krókur 1, lítið einbýlishús úr j
| timbri. Laust fljótlega. |
I Sundstræti 27, 3ja herb. íbúð á I
I 1. hæð.
[ Engjavegur 30, einbýlishús. J
■ Laust eftir samkomulagi.
■ Sundstræti 25, 3 herb. íbúð á 1. .
. hæð.
| Strandgata 5, 3 — 4 herb. íbúð |
I á neðri hæð í tvíbýlishúsi.
j Urðarvegur 80, 2 herb. íbúð á 1. I
| hæð, tilbúin undir tréverk og I
| málningu 1. sept. n.k. |
I Aðalstræti 20. 3ja og 4ra herb. I
I íbúð á 2. hæð og 3ja herb. íbúð I
I á 4. hæð.
[ Stórholt, 3 og 4 herb. íbúðir.
■ Hliðarvegur 35, 3 herb. íbúðál. ■
■ hæð.
| Túngata 13, 2 herb. íbúð í kjall- |
| ara í þríbýlishúsi. |
I Mjallargata 8, einbýlishús ásamt I
I bílskúr, getur verið laus strax. I
Pólgata 5, 4 herb. íbúð á 1. hæð J
J í þríbýlishúsi ásamt íbúðarher- *
■ bergi í kjallara og bílskúr.
■ Pólgata 5,3 herb. íbúð á efri hæð .
í þríbýlishúsi ásamt risi og kjall- !
! ara. Laus fljótlega.
I Silfurgata 11,4 herb. íbúð á 2. |
■ hæð.
| Lyngholt11,rúmlegafokheltein- |
| býlishúsásamttvöföldumbílskúr. |
I Stekkjargata 4, Iftið einbýlishús. I
J Strandgata 5a, lítið einbýlishús. J
[ Laust. Selst ódýrt á góðum J
■ kjörum.
I BOLUNGARVÍK:
I Holtabrun 2, 2x130 ferm. ófull- •
I gert einbýlishús. Laust fljótlega. I
[ Stigahlíð 2, 3 herb. íbúð á 2. J
J hæð.
■ Skólastígur 20, 5 herb. íbúð á ■
. tveimur hæðum í parhúsi.
| Hlíðarstræti 20, nýlegt einbýlis- |
| hús.
Í Miðstræti 6, eldra einbýlishús í I
| góðu standi. Grunnflötur 70 ferm. |
| Laust fljótlega. |
I Hóll II, einbýlishús ásamt stórri I
I lóð.
[ Holtabrún 2, 130 ferm. ófullgert [
J einbýlishús. Skipti möguleg á [
• eldra húsnæði í Bolungarvik.
• SÚÐAVÍK:
I Njarðarbraut 8, einbýlishús úr I
I timbri, kjallari hæð og ris.
! ARNAR GEIR !
i HINRIKSS0N, hdl. j
I Silfurtorgi 1, I
ísafirði, sími 4144
upp ölkrúsir?“
Nú hlær Sara.
„Er ekki dýrt að sinna þessari
list?“
Það er mjög dýrt. Það eru
lúxustollar á öllum myndlistar-
vörum. Þær eru tollflokkaðar
með ilmvötnum, svo það fer
bara út í þetta fólk sem er hálf-
klikkað í peningamálum“, sagði
Sara að lokum.