Vestfirska fréttablaðið - 12.09.1985, Qupperneq 1
36. tbl. 11. árg.
vestfirska
12. sept. 1985.
FRETTABLASIS
EIMSKIP
STRANDFLUTNINGAR
Símar:
Skrifstofa 4555
Vöruhús 4556
MS MANAFOSS
Á ÍSAFIRÐI
AÐ SUNNAN, ALLA ÞRIÐJUDAGA
AÐ NORÐAN, ALLA FÖSTUDAGA
Vekjum athygli á
miklu úrvali af
hjónarúmum á
hagstæðu verði.
Sinarffuðfjhwsson h.
(yími 1200 - ///5 Soluncja’iOíb
Póllinn enn með nýjungar!
Kynnir ýmsan tæknibúnað fyrir fiskeldi á sýningu
18. september næstkomandi
verður opnuð í Laugardalshöllinni
í Reykjavík alþjóðleg fiskeldis-
sýning, og stendur hún til 22.
september. Á sýningu þessari mun
Póllinn h.f. kynna ýmsar nýjungar
í sambandi við fiskeldi. Einnig
munu þeir sýna vogir þær og
vogakerfi sem þeir hafa þróað og
kynnt á undanfömum áram. Ein
nýjungin sem Póllinn mun kynna
er sjálfvirkur tölvustýrður fóðrari
fyrir fiskeldisstöðvar, fóðrarinn
gerir mönnum kleift að vita ná-
kvæmlega hvað fiskinum er gefið
upp á gramm. Fóðrarínn hefur
veríð reyndur hjá Islax h.f. f fisk-
eldisstöð þeirra i Reykjanesi.
Hefur hann reynst mjög vel.
Þá verður á sýningunni nýtt
tæki, laxaflokkari sem byggist á
vigtun. Hugmyndin er sú að hægt
verði að nota hann bæði við
flokkun á lifandi fiski og eins við
flokkun þegar verið er að slátra
og pakka.
Fer það þannig fram að eftir
slægingu flokkar þetta tæki fisk-
inn og vigtar hann í kassa. Við
hann er svo tengdur prentari sem
prentar út límmiða með upplýs-
ingum um þyngd hvers kassa,
innihald, fiskfjölda og stærðar-
flokk. Er hér um algjörlega nýtt
tæki að ræða. Hefur flokkarinn
verið kynntur lauslega úti í Nor-
egi og vakti hann töluverða at-
hygli meðal þeirra sem fást við
fiskeldi.
Einnig verður kynnt fyrsta gerð
af tölvukerfi fyrir fiskeldisstöð-
var. Er hér um að ræða fjölþætt
aðvörunar og stýrikerfi. Kerfið
mælir og hefur eftirlit með
margskonar ólíkum þáttum í eld-
inu sjálfu, er þá átt við þætti á
borð við hitastig, súrefnisinni-
hald, seltustig, vatnshæð í kerjum
og þess háttar. Allt er þetta tengt
við tölvu sem vakir yfir þessu og
er hægt að nota hana til þess að
stjóma þessum mörgu ólíku þátt-
um, eða til þess að gera viðvart
fari eitthvað úrskeiðis. Er þá hægt
að tengja tölvuna við viðvörun-
arkerfi sem Póllinn flytur inn frá
Þýskalandi. Kerfið getur gefið
tæknibúnað í áföngum. I tengsl-
um við þetta kerfi er hægt að
kaupa ljósstýribúnað fyrir fisk-
viðvaranir bæði með ljós- eða
hljóðmerkjum og einnig í gegn-
um síma.
Kerfið er ekki hugsað til sölu í
einum pakka, það er að segja,
hinar ýmsu einingar kerfisins geta
starfað óháð hinum. Þannig gefst
væntanlegum kaupendum kostur
á að byggja upp fullkominn
Unniö viö
laxaflokkara.
eldisstöðvar sem Póllinn fram-
leiðir. Er þar um að ræða stýringu
á ljósmagni í þeim tilgangi að
líkja eftir náttúrulegum aðstæð-
um.
Þá ætlar Póllinn einnig að
kynna á sýningunni talningarvog
fyrir seiði. Þetta er að grunni til
hefðbundin Póls-vog sem hægt er
að nota til þess að gefa upplýs-
ingar um fjölda eininga í ákveðnu
magni. Hægt er að vigta t.d. 100
seiði og reiknar þá vogin út með-
alþyngd hvers seiðis fyrir sig.
Síðan geta menn vigtað ótilgreint
magna af seiðum og gefur þá
vogin jafnharðan nákvæmar
upplýsingar um fjölda seiða í
gefnu magni.
Nú gætu menn haldið, eftir alla
þessa upptalningu á tækniundr-
um til nota við fiskeldi, að fram-
tíðarsýnin væri mannlaus fisk-
eldisstöð. En svo er ekki, for-
ráðamenn Pólsins lögðu á það
ríka áherslu að mannlegi þáttur-
inn væri sá sem mest væri árið-
andi í velheppnuðu fiskeldi. Það
sem fyrir þeim vakir er að þróa
uppfinningar sínar í takt við þá
öru framþróun sem nú er að
verða í þessum málum hér á
landi. Og þó svo að þessar upp-
finningar séu framleiddar með
útflutning fyrir augum eru þær
fyrst og fremst hannaðar með
sérþarfir íslenskra aðstæðna I
huga.
Stórskofalið í stjórn KRÍ
Ný stjóra Knattspyrauráðs ísa-
fjarðar var kjörín á aukaaðalfundi
sem haldinn var í fundarsal
slökkvistöðvarinnar á þriðjudags-
kvöld. Allir þeir sem fyrir voru í
Á dögunum gekkst Litli Leik-
klúbburinn fyrir námskeiði í leik-
rænni tjáningu. Þetta var tveggja
daga námskeið undir handleiðslu
danskrar konu Merete að nafni en
hún hefur ferðast um landið á veg-
um Bandalags íslenskra leikfélaga
stjóra gengu út úr henni, en í stað
þeirra komu nokkrir þekktir menn
úr bæjarlífinu, sem flestir hafa
komið mikið nálægt störfum
Knattspyrauráðs áður. Þessir menn
og haldið námskeið af þessu tagi.
Námskeiðið sóttu 14 manns sem er
góð þáttiaka. Allir skemmtu sér
konunglega enda menn látnir gera
hina ótrúlegustu hluti eins og með-
fylgjandi mynd ber með sér.
eru, Eirfkur Böðvarsson, Gestur
Halldórsson, Jens Kristmannsson,
Kristján Jónasson, Sturla Hall-
dórsson, Kristján G. Jóhannsson og
Tryggvi Sigtryggsson.
Þessara manna bíður nú mikið
og erfitt mál sem er það að rétta við
fjárhag K.R.Í. sem eins og kunnugt
er hefur verið mjög slæmur.
I.B.I. keppti nú á helginni við lið
K.S. frá Siglufirði, og úrslitin urðu
markalaust jafntefli. Liðið á nú
aðeins einn leik eftir og er í þriðja
neðsta sæti annarrar deildar með
sautján stig, þrátt fyrir þessa stöðu
er félagið ekki í fallhættu.
Frábær
—Nýrveitingastaður
Fyrir bæjarráði liggur nú umsókn
um leyfi til þess að reka skyndi-
bitastað að Mánagötu 1. Að sögn
Jakobs Ólasonar sem er annar
þeirra sem sækja um leyfið, ætla
þeir aðallega að selja hina víðfrægu
Tommaborgara. Jakob sagði að ef
leyfið fengist, yrði staðurinn rekinn
undir nafninu Frábær. Er hér á
ferðinni kærkomin tilbreyting frá
þeirri tísku að apa upp erlend nöfn á
veitinga og skemmtistaði, sem hér
hefur riðið húsum undanfarið.
Mætti margur sjoppueigandi I
Reykjavík taka þá félaga sér til fyr-
irmyndar.
Leikræn tjáning
Lárus Bjarnason, uppboðshaldari að störfum.
Lausafjáruppboð
Á laugardaginn var fór fram
uppboð á vegum bæjarfógetans á
Isafirði við húsnæði bifreiðaeftir-
litsins á Skeiði. Voru boðnir þar
upp ýmsir lausafjármunir að kröfu
innheimtumanns rikissjóðs, ýmissa
lögmanna o.fl.
Var þar fátt um fína drætti og
stóð uppboðið stutt. Greinilegt var
að flestum hafði tekist að ganga frá
sínum málum áður en til uppboðs-
ins kom. Frá Skeiði var síðan
haldið út í bæ og uppboðinu haldið
áfram í bílageymslu lögreglunnar
og boðin þar upp reiðhjól, sem
verið hafa í óskilum hjá lögregl-
unni. Voru það hinar mestu ryð-
beyglur eða eins og einn viðstaddra
orðaði það: „Það bara ekkert varið
í þetta, þau eru vindlaus og allt.”