Vestfirska fréttablaðið - 19.02.1987, Qupperneq 1
------------------------------------«
VORUM AÐ FÁ LITLA SENDINGU
AF MATENBLEU
ÍÞRÓTTAGÖLLUNUM AFTUR
Sinarffuðfiiiwsson k^.
gimi 7200 -Ifis Rol uncja’iOíb
Nýtt framboð:
„Þetta er
skylda okkar“
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins hélt almennan fund á Hótel ísa-
firði á laugardag. Fundurinn var vel sóttur og hafa verið nálægt 130 manns þegar flest
var.
Þorsteinn hélt framsögu og síðan var orðið gefíð Iaust til fyrirspurna og frjálsra
umræðna. AHmargir tóku til máls og beindu fyrirspurnum til formannsins sem hann
síðan svaraði í fundarlok. Fundarstjóri var ÓIi M. Lúðvíksson. Myndin er tekin yfír
salinn af fundargestum og má þar sjá mörg kunnugleg andlit.
Hver Vestflrðingur
aflaði jafnt og 19
Reykvíkingar árið 1985
— Tölur um aflaverðmæti á mann eftir lands-
hlutum
sem orðið hefur á íbúafjölda í byggðarinnar í gjaldeyrisöflun fari
landinu á undanförnum árum, en vaxandi samhliða viðvarandi
svo virðist sem framlag lands- fólksfækkun.
ísafjarðarhöfn:
Tíð
skemmdarverk
Allt bendir til þess að áhuga-
menn um jafnrétti milli lands-
hluta bjóði fram sjálfstæðan
lista í Vestfjarðakjördæmi við
komandi Alþingiskosningar.
Stofnfundur slíkra samtaka
sem stefna að því að bjóða fram í
öllum kjördæmum landsins
verður haldinn á Selfossi nú um
helgina.
Sveinbjörn Jónsson á Súganda-
firði sem er einn þeirra sem hafa
unnið að undirbúningi þessa fram-
boðs hér fyrir vestan sagði í viðtali
við Vestfirska fréttablaðið að svo
virtist sem ekkert gæti komið í veg
fyrir að þetta yrði að veruleika.
„Við teljum þetta skyldu okkar,“
sagði Sveinbjörn. „Mjög margir
sem hafa starfað innan Samtaka
um jafnrétti milli landshluta hafa
gert sér ljóst að það hlaut að koma
að þeim punkti að slíka ákvörðun
yrði að taka.“
Um síðustu helgi var haldinn
undirbúningsfundur á Hótel ísa-
firði. Þar komu saman 15 þeirra
sem mest hafa unnið að framgangi
þessa máls.
Vf spurði Sveinbjöm hvort hann
vildi nefna einhverja sem taka
myndu sæti á væntanlegum lista
samtaka þessara. Sveinbjörn sagði
það alls ekki tímabært.
„Við höfum farið þess á leit við
nokkurn fjölda fólks að það styddi
okkar málstað. Þegar það hefur
lekið út þá hefur það í nokkram
tilfellum valdið því að fólk hefur
Arnar-
nesið
kemur
heim
Arnarnes (S sem verið hefur í
meðferð hjá Vélsmiðjunni Herðl
í Njarðvík í nímt ár, er senn
væntanlegt til heimahafnar á ný.
Gagngerar breytingar hafa
verlð gerðar á skipinu og tals-
vert meiri en ráðgert var í fyrstu.
Skipt hefur verið um vél í því og
sett á það ný brú. Skuttogsút-
búnaðl komið fyrlr og settur um
borð frystibúnaður til lausfryst-
ingar á rækju. Heildarkostnaður
við breytingamar er talinn verða
rúmar 45 milljónir.
Skipið kemur heim til fsa-
fjarðar í endaðan febrúar.
Svein-
bjöm
Jóns-
son.
orðið fyrir veralegum þrýstingi frá
öðram flokkum. Því það er ljóst að
gömlu flokkunum stendur nokkur
stuggur af þessu afli. Því tel ég rétt
að nefna engin nöfn.“
Sveinbjöm sagði að hugmynda-
grundvöllur framboðsins byggðist
á verulegu leyti á stefnuskrá Sam-
taka um jafnrétti milli landshluta
og þeim stjómarskrárbreytingum
sem þau samtök hefðu lagt til að
kæmu til framkvæmda.
„Við höfum fundið að okkar
málstaður fær góðan hljómgrunn.
Við ætlum að reyna að stilla upp
lista sem verður þess virði að fólk
sjái ástæðu til þess að ljá honum
sinn stuðning.“
Sveinbjöm sagði að stuðnings-
menn þessa nýja framboðs kæmi úr
öllum flokkum. Hann hefur sjálfur
sagt sig formlega úr Alþýðubanda-
laginu sem hann starfaði áður með
og kvaðst vona að fleiri stuðnings-
menn framboðsins gerðu slíkt hið
sama.
Konudagurinn er á sunnu
daginn. Almannarómur segir
að þann dag eigi aiiir sómakærir
eiginmenn að færa konum sín-
um blóm, færa þeim morgun-
mat í rúmið og vera eins góðir
við sína heittelskuðu eins og
kostur er.
Konudagurinn markar upp-
haf góu sem er fimmti mánuður
vetrar að fomísiensku tímatali
og hefst sunnudaginn í 18. viku
vetrar, eða 18. - 24. febrúar.
í Sögu daganna eftir Áma
Bjömsson segir að heimildir um
eitthvert tilhald á heimilum á
fyrsta degi góu séu jafngamlar
og varðandi þorra eða frá því
snemma á 18. öld. Og nafnið
konudagur er jafngamalt
bóndadeginum. Kemur fyrst
fyrir bókfest í Þjóðsögum Jóns
Ámasonar.
Því heyrist stundum haldið
fram að það séu tiltölulega fá-
mennir hópar þjóðarinnar sem
afla verðmætanna sem þó öll
þjóðin lifir á.
Séu skoðaðar tölur um afla og
aflaverðmæti skipt eftir lands-
hlutum kemur ýmislegt í Ijós
sem rennir stoðum undir full-
yrðingar af þessu tagi.
Á árinu 1985 var aflaverðmæti á
hvem mann í Austfirðingafjórð-
ungi 154.960 kr. Næstir í röðinni
komu svo Vestfirðingar en þetta
sama ár var aflaverðmæti á hvem
íbúa á Vestfjörðum 124.675 kr.
Þessir tveir landsfjórðungar
skera sig óneitanlega dálítið úr því
á þessu ári var meðaltalið á hvern
íbúa á landinu öllu 52.855 kr.
Aflaverðmæti á hvern íbúa í
Reykjavík árið 1985 var 6.669 kr.
Samkvæmt framanskráðu hefur
því hver Austfirðingur fært í þjóð-
arbúið 23 sinnum meira verðmæti
en hver Reykvíkingur. Hver Vest-
firðingur aflaði á við 19 Reykvík-
inga.
Þessar tölur eru óneitanlega í
talsverðri mótsögn við þá þróun
Á þeim tveimur árum sem liðin
eru frá því að neyðarsími var settur
upp við höfnina á Isafirði hefur
hann verið skemmdur alls sjö sinn-
um. Það hefur verið brotið allt sem
hægt er að brjóta og eitt sinn höfðu
síkátir sjóarar tólið með sér sem
minjagrip, heim til Akureyrar.
Almenningsklósett sem staðsett
eru á sama stað hafa mátt þola
sömu meðferð. Þau hafa verið
brotin, og skemmd, eldur borinn að
þeim og yfirleitt allra hugsanlegra
bragða neytt til þess að eyðileggja
þau.
„Þetta á að vera opið allan
sólarhringinn" sagði Sturla Hall-
dórsson hafnarvörður í samtali við
Vf, „þetta er náttúrulega lág-
marksaðstaða, en við höfum orðið
að loka þessu um helgar til þess að
komast hjá skemmdarverkum."
Það hefur oft verið kvartað und-
an því að á ísafirði skorti á slíka
lágmarksþjónustu. Þessar frásagnir
sýna svart á hvítu að umgengni
sýnir innri mann..