Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 9

Vestfirska fréttablaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 9
Viðbyggingagleði á Patreksfirði Þrjú slík hús í smiðum Kjöt og fiskur Pá er fokheld tæplega sextíu fer- metra viðbygging við verslunina Kjöt og fisk við Strandgötu. Að sögn Hallgríms Matthíassonar kaupmanns þar er ætlunin að hafa þar til húsa kjötvinnslu og fleira, en stækka verslunarhúsnæði um þann gólfflöt sem nú er nýttur til vinnslunnar, og mun verslunar- rými því aukast um þriðjung. Ætl- Sr. Sigurður Jónsson, Patreksfirði. Patreksfirðingar hafa farið sér fremur hægt í húsbyggingum undanfarin ár, enda almennt gætn- ir menn og grandvarir. Pó er verið að byggja við þrjú hús á staðnum: Sýsluskrifstofuna, sem áður hefur verið greint frá hér í blaðinu; versl- unina Kjöt og fisk; og Orkubú Vestfjarða. Sýsluskrifstofan Sýsluskrifstofan við Aðalstræti flyst upp um eina hæð frá því sem nú er, og verður lögreglustöð á jarðhæð þar sem sýsluskrifstofan er nú að hluta. Er húsið nú sem næst fokhelt, og stefnt að því að taka það í notkun síðla næsta árs. Viðbygging hjá Versluninni Kjöti og Fiski. unin er að taka húsnæðið í notkun nú á útmánuðum. Orkubú Vestfjarða Loks er að geta 240 fermetra viðbyggingar við rafstöð Orkubús Vestfjarða við Eyrargötu. Húsið, sem verður á tveimur hæðum að hluta, mun hýsa skrifstofu Ork- ubúsins og verkstæði og kaffistofu starfsmanna. Ingimundur Andr- ésson svæðisstjóri kvað byggingu þessa löngu tímabæra, því hingað til hefur skrifstofan verið til húsa í 30 fermetra risi, sem Orkubúið hefur á leigu í Aðalstræti 13 og er fyrir löngu orðið allt of þröngt. Fyrirhugað er að húsið verði tilbú- ið í desember 1989. Verktaki við allar þessar við- byggingar er Byggir h.f. á Patreks- firði. Sýsluskrifstofan á Patreksfirði. Fjórðungssamband Vestfirðinga: Kynning á nýjustu tækni við jarðganga- gerð í Noregi Göng undir Breiðadalsheiði og Botns- heiði ekki lengur fjarlægur draumur Nú má telja raunhæft að búast við því, að jarðgöng undir Breiöa- dalsheiði og Botnsheiði komist í notkun um miðjan næsta áratug, eða eftir aðeins sex til sjö ár. Vænt- anlega verður hægt að Ijúka rann- sóknum og hönnun eftir tvö til þrjú ár, og þá getur sjálf ganga- gerðin hafist. Ekki er um það deilt, að gerð þessara ganga skuli vera næst á dagskrá á eftir göngunum gegnum Olafsfjarðarmúla, sem nú þegar er byrjað á. Hér verður um að ræða byltingarkennda sam- göngubót á norðanverðum Vest- fjörðum. Tækninni í gerð jarðganga fleyg- ir ört fram. í fyrradag efndi Fjórð- ungssamband Vestfirðinga til kynningarfundar á Isafirði um jarðgangagerð, þar sem saman voru komnir sveitarstjórnarmenn úr mörgum byggðarlögum á norðanverðum Vestfjörðum, allt sunnan úr Dýrafirði. Á fundinum var sýnd myndbandsupptaka þar sem fylgjast mátti með jarðganga- gerð í Noregi, og jafnframt fengu fundarmenn í hendur ýmsar upp- lýsingar þar að lútandi. í myndinni var lýst gerð jarð- ganga undir sjávarbotni frá Ála- sundi og út í eyjar. Áætlun um að tengja Ellingsöy, Valderöy, Vigra og Giske við Álasund með jarð- göngum var gerð fyrir nokkrum árum. Áður hafði verið ráðgert að tengja þessa staði með brúm, en í endurskoðaðri áætlun í janúar 1984 var ákveðin svokölluð blönduð lausn, þ.e. tvenn jarð- göng og ein brú (milli Valderöy og Giske). Síðar komu inn í áætlun- ina þriðju göngin, Giske-Godöy. Útreikningar sýndu að jarðganga- gerðin yrði miklum mun ódýrari. Framkvæmdir við jarðgöngin hófust í janúar 1986. Unnið var samtímis við fyrrnefnd tvenn ERNIR P Bílaleiga jarðgöng, og var sameiginleg opn- unarhátíð í október 1987. Verkið tók því aðeins rúmlega hálft annað ár, eða mun skemmri tíma en áætl- að hafði verið. Neðansjávargöngin milli Giska og Godöy hafa nú einn- ig verið tekin í notkun, og gekk það verk einnig á undan áætlun. Jarðgöng þessi eru ýmist með tveimur eða þremur akbrautum, þ.e. ýmist 8 eða 11 metra breið. Lofthæð er 4,60 m. Á 250 metra millibili í göngunum er neyðar- sími, slökkvibúnaður og bruna- boði, sem kveikir á viðvörunar- töflu við gangaopin. Myndbandið um þessar fram- kvæmdir og aðrar upplýsingar þar að lútandi fengust fyrir tilstuðlan Sverris Hestnes, norska konsúlsins á ísafirði. Fjórðungssambandið hyggst láta fjölfalda bandið og nota það til frekari kynningar. Skipað að flytja! Flutningi skal vera lokið 21. janúar þótt bráð- nauðsynleg tæki vanti Sjá frétt um nýja Fjórðungssjúkra- húsið á ísafirði á næstu síðu Starfsfóik FSÍ mótmælir harð- lega ótímabær- um flutningi sjá bls. 19 Vestfirska fréttablaðið óskar lesendum sínum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. f vestfirska FRÉTTABLASID Grafíktækni hf. PHILIPS — SIEMENS Heimilistæki - Hljómtæki - Raftæki Viðurkennd merki frá traustum innflytjendum PÓLLINN VERSLUN RAFÞJÓNUSTA SÍMI 3092 Hjá okkur fáið þið allt timbur, spónaplötur og aðrar byggingarvörur. STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR Við tökum að okkur allskonar verkefni á trésmíðaverkstæðinu. $ KAUPÍÉLAGfSflRÐINGA Byggingavörudeild

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.