Vestfirska fréttablaðið - 22.12.1988, Síða 19
19
Starfsfólk FSÍ mótmælir harðlega
ótímabærum flutningi í nýja sjúkrahúsið:
Furðar sig á jákvæðum undir-
tektum bæjarstjórnar ísafjarðar
„Ekki með öryggi sjúklinga í huga“
Dökkleit skýrsla verkfræðings um „fölsku loftin“ komin
Almennur fundur starfsfólks á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Isafirði
var haldinn í fyrrakvöld, og var þar
fjallað um væntanlegan flutning úr
gamla sjúkrahúsinu í hið nýja eftir
áramótin, en heilbrigðisráðuneyt-
ið hefur ákveðið að gamla húsinu
skuli lokað eigi síðaren 21. janúar.
Hér á eftir er birt í heild ályktun
starfsfólksins, ásamt greinargerð
eða forsögu. Jafnframt skal minnt
á umfjöllun um þetta mál á bls. 10
hér í blaðinu.
Ályktun starfsfólks
á FSÍ
Almennur fundur starfsfólks á
FSÍ, haldinn 20. desember 1988,
fagnar því að heilbrigðisráðherra
ætli að tryggja fjármagn til kaupa
á öllum tækjum og búnaði fyrir 4.
byggingaráfanga nýja sjúkrahúss-
ins á ísafirði, sem ekki eru á bið-
lista. Jafnframt styður fundurinn
þá afstöðu yfirlæknis og hjúkrun-
arforstjóra, að ekki sé verjandi að
hefja starfsemi í nýja húsinu fyrr
en allur þessi búnaður er kominn í
húsið, enda mæla öll rök gegn því.
Fundurinn mótmælir því ein-
hliða ákvörðun ráðherra um flutn-
ing í nýja húsið, og lokun þess
gamla, fyrir 21. janúar 1989, og
telur hana byggða á röngum upp-
lýsingum. Fundurinn furðar sig á
jákvæðum undirtektum bæjar-
stjórnar ísafjarðar við ákvörðun
ráðherra og bendir á að þær eru
ekki teknar með öryggi sjúklinga
og starfsemi spítalans í huga.
Fundurinn lýsir yfir hneykslun
sinni á frágangi falskra lofta í nýja
sjúkrahúsinu, og vísar til nýút-
kominnar skýrslu dr. Guðna Á.
Jóhannessonar þar að lútandi.
Krefst fundurinn þess, að úrbætur
þær, er hann gerir tillögur um,
komi til framkvæmda áður en flutt
verður í húsið.
Fundurinn skorar á stjórn FSI
og stjórnir allra bæjar- og sveitar-
félaga á upptökusvæði sjúkrahúss-
ins, að styðja þessar réttmætu
kröfur. Jafnframt óskar fundurinn
eftir viðræðum við ráðherra og
þingmenn kjördæmisins um efni
þessarar ályktunar.
Forsaga eða greinargerð
með ályktuninni
Húsnæði 4. áfanga nýja sjúkra-
hússins á ísafirði er tilbúið til not-
kunar og allur grunntækjabúnaður
til staðar. Þó vantar enn talsverðan
fjölda af búnaði, samkvæmt tækja-
listum, sem nauðsynlegur er til að
lágmarks starfsemi geti farið þar
fram. Segja má, að „bifreiðin“ sé
komin, en „hjólin" vanti undir
hana.
Við gerð tækjalista var tekið til-
lit til alls þess búnaðar, sem til er
í gamla húsinu, og hægt er að nýta
í því nýja. í listanum er því ein-
göngu það sem vantar. Vegna
dreifingar starfseminnar í nýja
húsinu á fleiri herbergi eða hæðir.
og vegna þess að margan naglfast-
an innréttingabúnað er ekki hægt
að flytja úr því gamla, standa nú
mörg starfssvæði í nýja húsinu tóm
og/eða ónothæf, vegna skorts á
lágmarks búnaði og lausum inn-
réttingum.
Umræddur búnaður hefur enn
ekki verið pantaður. Þar sem al-
gengur afgreiðslufrestur er 1-3
mánuðir, er ljóst að fátt mun hafa
borist af honum fyrir ráðgerðan
flutningsdag.
Öryggi í meðferð og umönnun
sjúklinga fer að stórum hluta eftir
góðri starfsaðstöðu þeirra sem
hana annast. Mikil ábyrgð hvílir
því á stjórnendum FSÍ, ef flytja
á starfsemina í ókunnugt og van-
búið húsnæði.
m r m m r
jolm i
Hnífsdal
Á síðastliðið mánudagskvöld
var mikið um að vera í barnaskól-
anum í Hnífsdal. Þá var einmitt
verið að halda litlu jól þar sem
margt var til gamans gert. Að sjálf-
sögðu voru skemmtiatriðin heima-
tilbúin, en þar var sungið, sagðar
sögur, flutt leikrit og farið í ýmsa
leiki. Þarna áttu bæði börn og for-
eldrar saman notalega kvöldstund.
Það var eins og að nafn þessarar
hátíðar, LITLU JÓL, ætti hvergi
betur heima en í þessum litla
skóla. Jólasveinar létu sig heldur
ekki vanta við þetta tækifæri.
Greip um sig mikil kátína og gleði
í barnahópnum þegar til jólasvein-
anna sást hlaupandi um skólalóð-
ina með blys í hendi.
ÓKEYPIS
smá-
auglýsingar
Á SJÓMANNASTOFUNNI:
Salatbar og plankasteikur
alla daga.
Sjómannastofan, sími 3812.
TÖLVUÁHUGAMENN A.T.H.
Þeir sem hafa áhuga á að
kynna sér nýju B.B.C. Arc-
himedes tölvuna, hafið sam-
band við Hólmgeir í síma
3776.
SVEFNSÓFI
Óska eftir að kaupa eins
manns svefnsófa.
Upplýsingar í síma 4057.
Á SJÓMANNASTOFUNNI:
Kaffihlaðborð á kaffitímum
Sjómannastofan, sími 3812.
TIPPARAR
munið að félagsnúmer Golf-
klúbbs ísafjarðar hjá íslensk-
um getraunum er 402.
Margt var til gamans gert. Meðal annars söng barnakór jólalög við undir- Og að sjálfsögðu mættu jólasveinará svæðið og færðu börnunum gjafir.
leik Skarphéðins tónmenntakennara.
HJA OKKUR FAIÐ ÞIÐ ALLTIJOLAMATINN
uerslunin
BÚÐ
Hnífsddl #
\4.
Úrvals kæst skata
á aðeins KR. 225-- pr. kg.
Bæði lóskata 09 stórskata
Við viljum. minna á opnunartíma
verslunarinnar dagana 19. - 23. des.
en þá er opið til kl. 21:00 á kvöldin.
Áaðfangadag eropiðfrá 10:00 til 12:00