Feykir - 24.07.1981, Page 3
Þa£ eru fleirí
en Islendingar
semhafatekio
eftirþvi
hvað Vblvo kostar!
CtNGI 24 3 81
Yolvo244 DL kostar nú 127500-
VOLVO
Sænski bflfinn á japanska verðinu!
Foreldrar leikskólabarna
Stofnuðu
Þann 14. maí s.l. stofnuðu foreldrar
barna i leikskólanum við Víði-
grund á Sauðárkróki með sér félag í
þeim tilgangi. að stuðla að betri
aðstöðu þar til til þroskavænlegrar
dvalar barnanna. í leikskólann
gíinga nú alls 72 börn í tveim 36
barna hópum. öðrum fyrir og hin-
um eftir hádegi og eru allir for-
eldrar þessara barna félagar i for-
eldrafélaginu. Félagið hefur jiegar
tekið upp mörg mál í samvinnu við
starfslið leikskólans. sum ekki stór
en mikilvæg sanit. og hefur mörg
mál á prjónunum. Opið hús var
einn laugardag í vor. þar seni börn
komu með pabba og mömmu. afa
eða ömmu. eftir efnum og ástæð-
um. til skrafs og leiks og niun verða
gert meira af því. Fánnig er ællunin
að foreldrar lagfæri og máli leik-
tæki á leikvellinum. fjársöfnun er í
gangi meðal jieirra til kaupa á nýj-
um tækjum o.s.frv.
Ljóst er. að náið samstarf leik-
skólans bg heimilanna er brýnt
fvrir alla aðila. fóstrur. börn og
foreldra og því þarf að koma í betri
farveg. Of litið samstarf hlýst af of
lillu starfsliði leikskólans og þar af
ol' litlum tíma þess og þessum
ógurlega. allt-drepandi tímaskorti
foreldranna. Sem kunnugt er synj-
uðu hæjaryfirvöld leikskólanum
um leyfi til þess að ráða fleira
starfsfólk. sem annars hefði gefið
fóstrum tóm til nauðsynlegs undir-
búnings og e.t.v. til að gefa sig ögn
að foreldrunum og er þetta eitt
þeirra mála. sem Foreldrafélagið
mun takast á við. Foreldrafélagið
mun vinna að því. að öll börn á
leikskóiaaldri á Sauðárkróki fái
kost á leikskólagöngu. Nú. eins og
jafnan áður. er hiðlistinn langur og
eins og þeir foreldrar vita. seni
notað hafa biðlista. mælist lengd
þeirra í árum. í júlímánuði á því
Herrans ári 1981. er biðlistinn
foreldrafélag
tveggja ára langur. Séu reiknings-
kúnstir notaðar má því ætla. að
þegar nýji leikskólinn í Hlíðar-
hverfi kemst í gagnið verði biðlistar
enn '7-1 árs langir.
í stjórn Foreldrafélagsins voru
kosin á stofnfundinum þau Þórdís
Magnúsdóttir. formaður. Kristín
Benediktsdóttir. Bjarn Sigurðar-
dóttir. Árni Ragnarsson og Sigrún
Skúladóttir.
Bj Frá innheimtu
w Sauðárkróksbæjar
Öll fasteignagjöld 1981 og eldri, svo og fyrirfram-
greiósla útsvara og aðstöðugjalda 1981 eru fallin í
eindaga. Forðist óþarfa innheimtuaögerðir og
greiðið áðurnefnd gjöld nú þegar.
Botulismus á
Sauðárkióki
Matareitrun og matarsýking
Eins og kunnugt er af fréttum. hafa
komið hér upp á Sauðárkróki al-
varleg tilfelli af matareitrun. Var
hér um að ræða svokallaðan botu-
lismus, þ.e. sýkingu, sem stafar af
eiturefnum sem sýkillinn clostridi-
um botulinum veldur. Er þetta í
fyrsta skipti. sem þessi sjúkdómur
er greindur hér á landi. Þetta er al-
varlegasta tegund matareitrunar.
sem þekktist, þar sem eitrið sem
þessi baktería veldur, er eitt hið
sterkasta, sem þekkist í heiminum.
miðað við þyngdareiningu. Hér fór
þó allt vel. sem betur fór og eru
sjúklingarnir á batavegi. Þessi eitr-
un lysirsér m.a. meðsjóntruflunum
vegna lömunar í augnvöðvum.
kyngingarörðugleikum. rnunn-
þurrk. verkjuni í kvið og e.t.v. fleiri
einkenna.
Þar sem tilfelli af þessari tegund
matareitrunar hafa komið upp
annars staðar í heiminum. hefur
stundum verið hægt að rekja sýk-
inguna til ákveðinna matarteg-
unda. sem bakterian clostridium
botulinum hefur vaxið í. Hefur þá
yfirleitt verið um að ræða matvæli.
sem hafa verið lögð niður í heima-
húsun og má þá ætla að fyllsta
hreinlætis hafi ekki verið gætt. Það
nuin sjaldgæft. að liægt sé að rekja
þessa tugund matareitrunar til
matvæla. sem eru unnin eða lögð
niður í verksmiðjum. eða þar sem
hreinlætið og kröfur um vandaða
meðferð matvöru eru víðast hvar
orðnar það strangar.
Þess skal þó getið. að þegar þetta
erskrifað. hefurekki tekist að rekja
upptök matareitrunarinnar hér á
Sauðárkróki og er óvíst. að það
takist nokkurn tíman. Þá er rétt að
geta þess. að ekkert hefur fundist
athugavert við meðferð matvæla á
þeim heimilum. þar sem þessi
matareitrun kom upp.
I tilefni þessarar matareitrunar
erekki úrvegi aðgera lítillega grein
fyrir. Iivað malareitrun er og hvað
hægt er að gera til að forðast hana.
Sjúkdómar. sem orsakast af
sýklum í mat. hafa ekki verið
vandamál hér á íslandi. sennilega
vegna fábrotins matvælaiðnaðar i
svölu loftslagi og er sem viðast hvar
er góð kæliingaraðstaða í heima-
húsum. Talað er um matareitrun og
matarsýkingu og eru þetta tvö að-
skilin fvrirbæri. en hvort tveggja
orsakast af völdum svkla. Matar-
eitrun er sjúkdómsástand, sem or-
sakast af sterkum eiturefnum. sem
sumir sýklar nivnda. þegar þeir ná
að vaxa og fjölga sér í matvæluni.
Matarsýking verður. ef vissir svklar
ná að fjölga sér í matvælum og
berast með matnum ofan i fólk.
Þær bakteriur. sem oftast valda
matareitrun eru sennilega svo-
kallaðir klasasvklar. (staphvloco-
ccus aureus). sem getur við sér-
stakar aðstæður mvndað eiturefni.
sem veldur uppköstum og niður-
gangi. Oftast er um að ræða. að
sýklarnir komist i matinn i rnatar-
tilbúningi frá þeim. sem með-
höndlar matinn og algengast er. að
sýklarnir berist frá fingurmeinum
(igerðuni) og úðasmitun frá önd-
unarfærum. en margir hafa klasa-
sýkla í nösuni. Eiturefnið myndast
ekki við kælingu undir 7°C og er
góð kæling á matvöru því vörn
gegn þessum sjúkdómi. Sé rnatur-
inn geymdur við of hátt hitastig.
getur sýklunum fjölgað og eiturefni
mvndast. Eiturefnið getur þolað
allt að því 30 mín. suðu.
dænii um matarsvkingu er t.d.
salmonella svking. seni hefur kom-
ið upp hér á landi. Ýmsar
salmonellategundir hafa fundist
hérlendis, s.s. í menguðum sjó og
einnig stundum í dýrum. matvæl-
um og fiskimjöli. Mesta hættan á
eitrun stafar sennilega frá ýmsum
fuglategundum. eins og t.d.
kjúklingum og aliöndum.
Til að heilbrigður einstaklingur
smitist. verða að berast ofan í hann
mjög margir lifandi salmonella
sýklar. en þessir sýklar eru eins og
flestar aðrar bakteriur næmir fvrir
hita og séu matvæli vel soðin eða
steikt. er tryggt að salmonella sýkl-
ar drepist. Mesta sýkingarhætta
stafar af matvælum. sem ekki eru
hituð. s.s. réttir úr ósoðnum eggj-
um. t.d. salöt, majonis og þess
háttar vöru.
Óskar Jnnsson.
Ýnisar tegundir af svokölluðum
eoli gerlum (Escherichia coli) geta
valdið niðurgangi. Sumir stofnar
þeirra mynda eiturefni. sem veldur
niðurgangi og eru þessir sýklar
sennilega algengasta orsök niður-
gangs hjá ferðamönnum i sólar-
löndum. F.inkum er þá um kennt
hrámeti alls konar og menguðu
vatni.
Réll er. að ferðamenn gæti
fvllstu varúðar. varðandi niataneði
í suðlægum löndum. Oftast er þó
um tiltölulega væg einkenni að
ræða.
Nokkrar almennar ráðleggingar:
Kjöt skal þiða i kæaliskáp (eða á
kölduni stað). Látið kjötið þiðna i
umhúðum eða skál. þannig að
vökvi úr kjötinu mengi ekki aðrar
matvörur. Þiðnun kjóts tekur ca.
15-20 klst. á hvert kg.
Látið líða sem skemmstan tima
milli suðu matvæla og nevslu.
Kælið afganga sem l'yrst niður i
a.m.k. 4°C áður en sett er í kæli eða
frvsti.
Haldið soðinni niatvöru it.d. ál-
egg) alveg aðgreindri frá hrá\i'ru
og notið aldrei sönni skurðbretti
eða áhöld til meðhöndlunar :i
þessuni tveinnir tegundum mai-
væla. nenia þtiu séu vandlega
þvegin á milli.
Þvoið hendur oft og án undau-
tekninga á eftir salernisnolkim.
Þvoið hendur áður en og eftir að
hrávara er meðhöndluð. Fölk með
ígerðir á höndum ætti aldrei að
vinna berhent við nntlargerð.
O.skar Jöiiwin
Lvknir.
Sjúkrahúsi Skagfirðinga.
Sauðárkróki.
Haft eftlr oddvita:
Summa aukaatriðanna
er aðalatriði.
Feykir . 3