Feykir - 23.10.1981, Qupperneq 3
GLERJABREIÐA Á GÖTUM
Nýr og betri Volvo á markað
Miklar breytingar hafa verið gerðar
á 1982 árgerðinni af Volvo 340
miðað við fyrri árgerðir. Allar miða
þessar endurbætur að því að gera
bílinn fallegri, auka á þægindi
Fjöldi Skagfirðinga heima og
heiman hafa á undanförnum árum
minnzt átthaganna með því að færa
Héraðsskjalasafni Skagfirðinga
handrit og bækur að gjöf eða styrkt
það með fjárframlögum. Meðal
beztu stuðningsmanna héraðs-
skjalasafnsins fyrr og síðar eru
hjónin Ottó A. Michelsen, forstjóri
í Reykjavík, og Gyða Jónsdóttir. f
fyrra gáfu þau hjón 11 bindi
nauðatorgætra bóka, Hólaprent, og
eitt handrit, en áður höfðu þau
keypt til safnsins og einnig látið fé
af hendi rakna til styrktar því.
Nú í sumar komu þau Ottó og
Gyða enn færandi hendi: afhentu
ökumanna og farþega, og ekki síst
að gera hann enn sparneytnari.
Helsu breytingarnar eru þær, að
bíllinn er nú með nýju framstykki
og er lægri að framan en áður, auk
safninu að gjöf hina miklu gersemi,
Skarðsbók, ljósprentuðu útgáfuna,
sem það hefði ella orðið af, því að
fé skorti til kaupa; ennfremur gáfu
þau hjón í sama skipti ágft eintak af
Andlegum sálmum og kvæðum
eftir Hallgrím Pétursson, Hólaút-
gáfuna frá 1770.
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
hefur nánast engar beinar tekjur
fremur en önnur söfn með svipað
starfssvið, færi því margs á mis, nyti
það ekki velvildar og þess skilnings,
sem fram kemur í verkunum.
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
færir þeim hjónum alþuðar þakkir
fyrir gjafirnar.
(Fréttalilkynning frá
Héraðsskjalasafni Skagfirðinga).
þess sem í honum er innbyggður
vindkljúfur. Þetta, ásamt með
hærra drifi, gera 1982 árgerðina af
Volvo 340 enn sparneytnari en
verið hefur.
Af öðrum breytingum sem gerð-
ar hafa verið á 1982 árgerðinni af
Volvo 340 má nefna að bíllinn er
nú með nýrri og breyttri vatns-
kassahlíf, framljósin eru með stærri
speglum sem auka lýsinguna, á
blínum eru ný stefnuljós sem sjást
betur frá hlið og 1982 árgerðin er
einnig með svartri rimlahlíf fyrir
neðan framrúðuna fyrir loftræst-
ingar- og miðstöðvarinntak. Akst-
ursþægindi hafa verið aukin og
sætin, sem eru löguð eftir líkaman-
um, gefa enn betri stuðning í akstri
en áður, þau eru nú dýpri. Þá er
boðið upp á nýtt áklæði. Það er eins
og áður, brunahelt, en meira er í
það lagt en áður. Á GL og GLS
gerðunum eru eihnig vásar aftan á
stólunum.
Þegar á heildina er litið má segja
að 340 gerðin af Volvo líkist nú
meira stóru Volvo-bílunum en áð-
ur.
Góður borgari á Sauðárkróki,
Ingimar Bogason, kom að máli við
Feykismenn á dögunum og taldi
ástæðu til að vekja athygli á hættu
þeirri og óþrifnaði er stafaði af
glerjabreiðum sem oft sæjust á
götum og gangstígum bæjgrins.
Ingimar sagði að klúbburinn
Öruggur akstur hefði á sínum tíma
komið því til leiðar að bæjarstjórn
réði mann sem sópaði glerbrotum
og öðrum óþrifnaði saman og fjar-
lægði slíkt. Atvikin höguðu því
síðan þannig að dýrðin stóð ekki
lengi. Ingimar kvaðst hafa talað við
bæjaryfirvöld og lögreglu um að
koma á ný lagi á mál þessi og bent á
að ekki ætti að vera óyfirstíganleg-
ur kostnaður því samhliða að fá
fullorðinn mann til að hreinsa
ósómann eftir flöskubrjóta meðan
þeir héldu uppi iðju sinni. Slysa-
hætta af glerbrotunum væri augljós
og skaði vegna sundurskorinna
hjólbarða umtalsverður. Bæjar-
stjórn ætti að sjá sóma sinn í því að
Hr. ritstjóri.
í 5. tölublaði yðar sá ég klausu
frá Tófuvinafélaginu. Það eru Ijótu
karlarnir þessir svokölluðu tófu-
vinir. Það er ekki alvara í neinu,
sem þeir láta frá sér fara. Það er
alveg greinilegt, að þeir hafa enga
samúð með refnum og hans
grimmilegu örlögum. Þeir gera
málstað hans illt en ekkert gott með
þessum mislukkuðu bröndurum
sínum.
Nær væri þeim að reyna að skýra
þjóðinni frá þeim þokkalegu
vinnubrögðum, sem viðhöfð eru
við refaveiðar, yrðlingar klipnir til
að fá þá til að væla og draga for-
eldrana í skotfæri. Eða þegar báðir
foreldrar eru dauðir, að þá eru
veiðimenn ekki að leggja á sig allt
of miklar vökur og erfiði til að ná
litlum yrðlingum. Hungrið sér um
þeirra endalok.
útvega mann sem færi á stjá fyrir
fótaferðartíma og eyddi óþrifnað-
inum eftir brotglaða vegfarendur
helgarinnar.
Þá benti Ingimar á að taka þyrfti
fyrir straum grjótflutningabíla um
Aðalgötu. Sú þrönga gata þyldi
ekki slíka umferð, auk þess sem
grjóthrun af bílunum gæti valdið
skaða. Reyndar veitti ekki af að
gera Aðalgötu að einstefnuaksturs-
götu, svo þröng sem hún væri og
umferðin mikil. Það hefði þó verið
spor í rétta átt að banna bifreiða-
stöður á efri kanti allt frá Bún-
aðarbanka og út úr. og hefði
klúbburinn Öruggur akstur gengist
fyrir því.
Þá gat Ingimar þess að lokum að
gangstéttir væru löngum gagns-
lausar yfir veturinn. „Þær verða
ávalar af klaka og snjó, og hefur
margur mátt kenna á því og brotið
handlegg eða fót og jafnvel hvort-
tveggja. Þarna hefur bærinn verk
að vinna".
Ellegar hvernig refir eru eltir
uppi á vélsleðum á vetrum og
skotnir eða bara keyrðir niður. Og
fyrir allt þetta greiðir ríkið lagleg
verðlaun.
Ef einhversstaðar finnast
ósviknir velunnarar íslenska fjalla-
refsins, þá ættu þeir að reyna að
vinna að slökun á þeim miskunn-
arlausu ofsóknum, sem haldið er
uppi gegn honum. með þeim ár-
angri, að hann er nánast útdauðurá
stórum landsvæðum. Byrjunin gæti
t.d. verið sú. að vinna að því, að
lögum um refaveiðar verði breytt
þannig, að hætt verði að greiða
verðlaun fyrir unnin hlaupadýr.
Það eitt tyrir sig mundi örugg-
lega bjarga nokkrum refum árlega
frá gráðugum byssukjöftum veiði-
manna.
XX.
Sýningarskápur með gjöfum Ottós A. Michelsen og Gyðu Jónsdóttur til Héraðs-
skjalasafns Skagfirðinga.
Þess skal getið,
sem gert er
Húsbyggjendur
athugið!
Við framleiðum eldhúsinnréttingar
eftir yðar eigin ósk.
Einnig inni- og útihurðir.
Hverskonar innréttingar.
Til allra tófuvina
Bólstrun Pálma auglýsir!
Eru húsgögnin komin í
jólafötin?
Bólstrum upp gömul
húsgögn.
Úrval af áklæðaprufum
s.s. ull, pluss o.fl.
Bólstrun Pálma Sighvatssonar
Sæmundargötu (Rafsjárhúsinu)
Sími 5813 - Sauðárkróki.
Tökum að okkur húsbyggingar
og aðra mannvirkjagerð.
Leitið tilboða hjá okkur.
Borgarmýri 1,
Sauðárkróki.
TRÉSMIÐJAN
sími 95-5570
95-5170
Feykir . 3