Vestfirska fréttablaðið - 25.06.1992, Blaðsíða 1
IFIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1992
19. TÖLUBLAÐ • 18. ÁRGANGUR
IRITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR:
SÍMI 944011 • FAX 94-4423
Fiskurinn hefur fögur hljóð/
finnst hann oft á heiðum:
/
Fundur á Isafírði um
/
Á sunnudag veröur á Hótel (safiröi efnt til fundar þar
sem fjallaö veröur um tillögur Hafrannsóknastofnunar
varðandi botnfiskveiöar á næstu árum. Til fundarins boöa
Skipstjóra- og stýrimannafélagiö Bylgjan, Útvegsmanna-
félag Vestfjarða og Vinnuveitendafélag Vestfjarða. Þar
mun tölfræöingur Hafrannsóknastofnunar mæta, en um
þessar mundir ber meira á tölfræði en fiskifræði hjá stofn-
uninni.
„Sérfræöingar" Hafrannsóknastofnunar eru voldugustu
menn á íslandi. Þeir hafa meiri völd og áhrif en ríkisstjórn-
in, Sverrir Hermannsson og kolkrabbinn samanlagt. Þeir
ráöa framtíð heilla byggðarlaga, heilla landshluta og þjóð-
arinnar allrar. Nu hefur þeim dottið í hug að leggja allt í
rúst. Vissir stjórnmálamenn og ráðherrar í lykilstöðum lúta
þeim og gleypa við öllu sem fram gengur af munni þeirra.
Samt sýnir reynslan aftur og aftur, ár eftir ár, að ekki
stendur steinn yfir steini í „vísindum“ Hafrannsóknastofn-
unar, hvort sem um er að ræða loðnu, þorsk eða eitthvað
annað.
Undirritaður leggur til að eftirfarandi vísa, sem hann
lærði í æsku og fjallar um sjávarútveg og landbúnaðarmál,
verði tekin upp sem þjóðsöngur íslendinga í stað mærðar-
innar í Matta frænda og seinni partur hennar verði auk
þess gerður að einkunnarorðum Hafrannsóknastofnunar:
Fiskurinn hefur fögur hljóð,
finnst hann oft á heiðum,
ærnar renna eina slóð,
eftir sjónum breiðum.
-h.
Nýr fréttamaður
í Svæðisútvarpinu
Hlustendur Svæðisútvarps Vestfjarða hafa heyrt rödd
nýs fréttamanns á öldum Ijósvakans siðan 1. júni. Frétta-
maðurinn heitir Álfheiður Eymarsdóttir og er 23ja ára.
Vestfirska leit inn hjá Svæðisútvarpinu til þess að grennsl-
ast fyrir um hinn nýja fréttamann.
„Ég kem úr Reykjavík og er Austfirðingur. Ég bjó á Höfn
i Hornafirði í tíu ár. Ég er hálfur Hornfirðíngur og hálfur
Eskfirðingur. Ég sá starfið auglýst og hafði mikinn áhuga'
á því. Ég sótti um og fékk það. Þetta er skemmtilegt og
fjörlegt", sagði Álfheiður í samtali við Vf.
Aðspurð hvernig henni líkaði við Vestfirðinga sagði hún,
að sér litist vel á þá, og hefði hún fengið hér fína íbúð.
Sagði Álfheiður Vestfirðinga ekkert skera sig úr öðrum
íslendingum.
Til upplýsingar má geta þess að Álfheiður er lofuð og
kemur betri helmingurinn vestur í haust. Vestfirska óskar
henni góðs gengis í nýju starfi. rHi
Álfheiður Eymarsdóttir í beinni útsendingu Svæðisút-
varpsins.
Þórarinn Sveinsson er mikill Þórarinn stendur á gólfi efstu hæðar og þakið farið.
rifriidiskarl og þama er hann
albúinn til átaka.
75 ára
Asgeirsverslun á
Arngerðareyri rifin
Þórarinn Sveinsson, búnað-
arráðunautur og bóndi í Hól-
uin í Reykhólasveit, stendur í
ströngu þessa dagana. Blaða-
maður rakst á hann þar sem
hann var í óða önn að rífa hús
Asgeirsverslunar á Arngerð-
areyri nú um síðustu helgi.
Hafði hann fengið húsið gegn
því að rífa það og slétta yfir
grunn þess og gera hann
snyrtilegan.
„Ég ætla að nota efnið sem
úr húsinu kemur í það sem til
fellur við búskapinn í Hólum.
Viðurinn er að mestu leyti
óskemmdur. Ég býst við að
húsið hafi verið byggt rétt fyrir
síðustu aldamót af Ásgeirs-
verslun á ísafirði. Þetta er
stórt hús og gríðarlega vel
byggt. Ég ætla að Ijúka niður-
rifinu sem allra fyrst og reikna
með að það taki fjóra daga til
viðbótar að jafna það við
jörðu“, sagði Þórarinn bóndi
í viðtali við blaðið.
-GHj.
Guðmundur M. Jónsson.
Guðmundur M.
Jónsson, verkstjóri í Hrað-
frystihúsinu Norðurtanga
hf. á ísafirði, verður 75 ára
þann 30. júní nk. Hann
tekur á móti gestum á
Hótel ísafirði laugardaginn
4. júlí milli kl. 5 og 7 síð-
degis.
Slys í Bolungarvík
— Hinn slasaöi lá meira en 20 mínútur á slysstað í kulda og roki
þótt sjúkrabíllinn stæði í innan við 50 metra fjarlægð
Alvarlegt slys varð í Bol-
ungarvík eftir hádegi á
þriðjudaginn. Maður sem
kom á hjóli niður Traðar-
stígsbrekkuna lenti á bíl
sem kom akandi Miðstræt-
ið og meiddist svo mjög að
hann var fluttur með
sjúkraflugi á Borgarspítal-
ann í Reykjavík að lokinni
læknisrannsókn á Isaflrði.
Mjög lengi þurfti að bíða
eftir sjúkrabfl, en hvass-
viðri var og hiti nálægt
frostmarki.
Maðurinn sem hér um
ræðir er Jón Friðgeir Ein-
arsson byggingameistari.
Hann var á leið til vinnu
sinnar eftir hádegi, þegar
slysið varð. Hann fékk
mikið höfuðhögg og
vankaðist við áreksturinn.
Þegar í stað var hlúð að
honum á staðnum og kallað
á sjúkrabíl og lækni. Bíða
þurfti meira en tuttugu
mínútur eftir sjúkrabíln-
um, og litlu styttri tíma eft-
ir lækninum. Sjúkrabíllinn
var til reiðu í innan við
fimmtíu metra fjarlægð frá
slysstaðnum, en samkvæmt
heimildum blaðsins virtist
enginn vita hver ætti að aka
bílnum eða yfirleitt hver
ætti að gera hvað, þrátt
fyrir boðunarkerfi sem sagt
er bæði nýtt og fullkomið.
Jón Friðgeir var síðan
fluttur til rannsóknar á
Fjórðungssjúkrahúsinu á
ísafirði. Hann reyndist
vera með heilahristing og
glóðarauga, andlitsbein
voru brotin, bæði var brot
við gagnauga og kinnbein
gengið inn, og einnig var
hann fingurbrotinn. Hörð-
ur Guðmundsson flugmað-
ur var ræstur út og flutti
sjúklinginn til Reykjavíkur
síðdegis, þar sem hann var
lagður inn á Borgarspítal-
ann.
Líðan hans mun vera
góð eftir atvikum.
-h.
Rafþjónusfa
Raftækjasala Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki
SALA & ÞJÓNUSTA
PÓLLINN HF.
Verslun S 3092