Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 25.06.1992, Blaðsíða 3

Vestfirska fréttablaðið - 25.06.1992, Blaðsíða 3
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ |- Fimmtudagur 25. júní 1992 Ættarmót afkomenda Kristjáns Kristjánssonar og Símoníu Þorbjargar Pálsdóttur í Stapadal ACYClfi Bflaleiga VE I Vl K Car rental Ki DUGGUVOGUR ÍO m >| V ÞÚ TEKUR VIÐ BÍLNUM A FLUGVELLINUM ÞEGAR ÞÚ KEMUR OG SKILUR HANN EFTIR A SAMA STAÐ ÞEGAR ÞÚ FERÐ. verður haldið að Núpi í Dýrafirði helgina 25. og 26. júlí nk. Þátttakend- ur á Vestfjörðum sem ekki hafa tilkynnt þáttöku nú þegar eru beðnir að láta Gísla Hjartarson vita af sér í síma 94-3948 sem fyrst. Asókn í atvinnu og húsnæði á Yestfjördum —lítið um vinnu og ekkert húsnæði nema handa heimafólki Mikil eftirspurn er nú eftir atvinnu og húsnæði á Vest- fjörðum. Að sögn atvinnurek- enda er mikið spurt um vinnu og er eftirspurnin aðallega frá þéttbýlissvæðunum við Faxa- flóa. „Það kemur aðkomufólk hér á bæjarskrifstofuna og spyr eftir húsnæði og það er mikið hringt. Fólk er mikið að leita að húsnæði, helst fólk sem hefur fengið atvinnu hér. Algengt er að annar makinn sé kominn og verið sé að leita að húsnæði til að geta flutt. Þetta er miklu meiri eftirspurn en fyrir ári. Allt húsnæði í eigu bæjarins er fullt og yfirleitt lít- ið laust af leiguhúsnæði hér á ísafirði. Þaö er örugglega meiri vinnu að hafa hér en fyrir sunnan. Þetta er aðallega fólk úr þéttbýlinu á Suð- vesturlandi og af Norðurlandi líka“, sagði Smári Haraldsson bæjarstjóri á Isafirði í samtali við Vestfirska. „Það hefur verið talsvert spurt um vinnu hjá okkur og í einhverjum tilfellum verið kannað með húsnæði. Þetta er meira en undanfarin ár. Okk- ur hefur tekist nokkurn veginn að halda uppi vinnu allar vikur, þó ekki alveg. Við getum ekki bætt við fólki vegna aflabragðanna. Það hef- ur verið það lítið um fisk. Það er frekar að hægt sé að ráða konur en karla því frystiiðnað- urinn er lítið mannaður af karlmönnum miðað við það sem áður var“, sagði Jóhannes G. Jónsson framkvæmdastjóri íshúsfélags Isfirðinga í samtali við blaðið. „Það er miklu meira spurt eftir vinnu en nokkru sinni fyrr. Það er líka spurt eftir húsnæði. Málið strandar alltaf á því að það er ekki atvinnu- framboð hér, þannig að hús- næðismálin koma ekki til frek- ari umræðu. Atvinnuhorfur fyrir heimafólkið eru ekkert allt of bjartar og engin störf eru laus hjá okkur nú. Við þurfum ekki fólk til sumaraf- leysinga því við lokum í þrjár vikur í sumar meðan fríin standa yfir“, sagði Jón Páll Halldórsson framkvæmda- stjóri Hraðfrystihússins Norðurtanga hf. á Isafirði. Viðmælendur annars staðar á Vestfjörðum tóku undir það að ástandið í atvinnu- og hús- næðismálum væri svipað og á Isafirði. FUNDUR veröur haldinn á Hótel Isafirði sunnudaginn 28. júní kl. 16.00. Fundarefni: Tillögur Hafrannsóknastofnunar til veiða á botnfiskum á næstu fiskveiðiárum. Gunnar Stefánsson tölfræðingur á Hafrannsóknastofnun mætir á fundinn. Skipstjóra- og stýrimannafélagið Bylgjan, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Vinnuveitendafélag Vestfjarða. íþróttafélagið ívar: Tvenn gullverðlaun og þrenn silfurverðlaun í Svíþjóð Afreksmennirnir Kjartan Kjartansson og Guðmundur Þórarinsson með verðlaunapeningana um hálsinn. Norrænir vináttuleikar þroskaheftra voru haldnir í Bollnas í Svíþjóð dagana 13. og 14. júní. Keppt var í frjáls- um íþróttum. Á vegum íþróttasambands fatlaðra tók þátt í mótinu íþróttafólk frá íþróttafélögunum Ivari á ísa- firði, Grósku á Sauðárkróki, Örvari á Egilstöðum, Ægi í Vestmannaeyjum og Ösp í Reykjavík. Einnig sendu nokkur aðildarfélög þátttak- endur á mótið. Frá ívari á ísafirði mættu þeir Guðmundur Þórarinsson og Kjartan Kjartansson. Stóðu strákarnir sig framúr- skarandi vel og komu heim með tvö gull og þrjú silfur. Kjartan fékk tvö gull og eitt silfur og Guðmundur tvenn silfurverðlaun. „Við kepptum í frjálsum íþróttum og ég fékk tvenn gullverðlaun, fyrir langstökk og spretthlaup. Silfrið fékk ég fyrir boltakast. Þetta var mjög gaman en að vísu var þetta mjög erfitt. Mótið var mjög sterkt og keppendur um 2(K) frá öllum Norðurlöndunum", sagði Kjartan Kjartansson í samtali við Vf. „Ég fékk tvenn silfurverð- laun, önnur fyrir kúluvarp og hin fyrir boltakast. Þetta var mjög sterkt mót“, sagði Guðmundur Þórarinsson. Fararstjóri var Elín Gunn- arsdóttir frá Bolungarvík. Vestfirska óskar þeim Guð- mundi og Kjartani til ham- ingju með hinn frábæra árang- ur þeirra í Svíþjóð og hvetur fólk til þess að styðja vel við bakið á íþróttafélaginu ívari. sem er íþróttafélag fatlaðra á Isafirði og nágrenni. -GHj. „Furðufískar á Hótel ísafírði“ Kynning á vannýttum tegundum Sjávarréttahlaðborð Sjávarréttahlaðborð með ýmsum tegundum úr ferð Júlíusar Geirmundssonar á föstudagskvöldið og á seðli dagsins alla daga langhali, háfur og stinglax. VERIÐ VELKOMIN Pantið borð túnanlega Gistiheimili með uppbúnum rúmum og svefnpokagistingu. Ódýr gisting í huggulegu umhverfi. ★ Notalegt kaffihús. ★ Söluturn. Helstu vörur fyrir ferðamenn ásamt minjagripum. GESTAHÚSIÐ AÐALSTRÆTI 9 BOLUNGARVÍK SÍMI 7051

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.