Vestfirska fréttablaðið - 25.06.1992, Side 5
VESTFIRSKA
---1 FRÉTTABLAÐIÐ |-
Fimmtudagur 25. júní 1992
2. útgáfa Grunnvíkingabókar
— síðara bindið leiðrétt og gjörbreytt og fæst
endurgjaldslaust gegn afhendingu fyrri útgáfunnar
Maríuhorn við Grunnavík.
Önnur útgáfa Grunnvík-
ingabókar er komin út á veg-
um Grunnvíkingafélagsins á
ísafirði. Bókin er í tveimur
bindum. Fyrra bindið er skráð
af Guðrúnu Ásu Grímsdóttur
og fjallar það um sögu Grunna-
víkurhrepps, mannlífs og
sveitar. I seinna bindinu,
Grunnvíkingatali, sem Lýður
Björnsson tók saman, er getið
flestra þeirra sem skráðir voru
til heimilis í hreppnum allt frá
elstu heimildum og þar til
byggð lagðist af. Auk þess er
fjöldi mynda í bókunum.
Bókin kom fyrst út 1989, en
fljótlega fóru að berast upplýs-
ingar sem ekki lágu fyrir er
hún var skráð og einnig bárust
ábendingar um ýmislegt sem
betur mátti fara. Pað mikið
barst af leiðréttingum og
nýjum uppiýsingum að við
sáum okkur ekki annað fært
en að gera allmiklar breyting-
ar á seinna bindi bókarinnar,
þar sem þessar nýju upplýsing-
ar kæmu inn ásamt leiðrétting-
um og viðauka við fyrra
bindið. Þessi seinni útgáfa
Grunnvíkingatals er því mun
ítarlegri og áreiðanlegri
heimild en bókin sem kom út
1989 og teljum við þá bók hafa
takmarkað gildi sem heimild-
arrit. Munum við því gefa fyrri
kaupendum kost á að skipta á
seinna bindi bókarinnar án
frekari greiðslu, svo fyrri út-
gáfan sé ekki lengur í umferð.
Grunnvíkingafélagið á ísa-
firði mun sjá um sölu bókar-
innarogkostarhún kr. 12.000.
Til félaga í Grunnvíkingafé-
laginu og áskrifenda verður
bókin seld á kr. 10.000. Þeir
áskrifendur sem ennþá hafa
ekki fengið bókina eru vin-
samlegast beðnir að endur-
nýja áskriftina.
í>ar sem sumarfrí standa nú
yfir getur verið erfitt að ná til
söluaðila en bókin verður til
afgreiðslu hjá neðangreind-
um:
Á ísafirði hjá Hlíf Guð-
mundsdóttur, sími 94-4321;
Inga Jóhannessyni, sími 94-
3646; Kristínu Alexanders-
dóttur, sími 94-3344; Rann-
veigu Pálsdóttur, sími 94-
3696; og Valgerði Jakobsdótt-
ur, sími 94-3583.
I Reykjavík hjá Dagbjarti
Majassyni, sími 91-23315;
Einari Alexanderssyni, sími
91-16072; Margréti Hagalíns-
dóttur, sími 91-678036; og
Steinunni Guðmundsdóttur,
sími 91-812918.
I Keflavík hjá Sigfúsi Kris-
tjánssyni í síma 92-11869.
(Frá Grunnvíkingafélaginu).
Umdæmisstjóri Vinnueftirlitsins skrifar
vestfirskum bændum:
Hlífalaus drifsköft og velti-
EINKAKENNSLA
ig Þýska
A' Enska
ic Danska
it íslenska fyrir útlendinga
— Tekeinnigaðmérþýðingarog vélritun
Upplýsingar í síma 3885
Undirbúningur 70 ára
afmælishátíðar á Flateyri
Nýtt og glæsilegt íþróttahús verður formlega tekið í notkun á
hátíðinni og á þessari mynd eru málarar að leggja lokahönd á
málun þess utanhúss.
Græna byltingin er hafin. Unglingar að leggja þökur við Grunn-
skólann.
grindalausar dráttarvélar
eru dauðagildrur
— sem bændur sjálfír bera fulla ábyrgð á
Á undanförnum árum hef
ég undirritaður m.a. haft þann
starfa að skoða vélar og tæki
hjá bændum á Vestfjörðum.
Á þeim tíma hef ég heyrt og
séð ýmislegt í þeim efnum,
sumt mjög gott og annað
slæmt. Sumir bændur vilja
hafa öryggi í fyrirrúmi og eru
til fyrirmyndar með flest, aðrir
telja að ekki þurfi hlífar á
þetta tækið eða hitt, vegna
þess að aldrei komi neinn ná-
lægt því eða bara þeir sjálfir
vinni við það!
DRÁTTARVÉLAR
TEKNAR ÚR UMFERÐ
Við eftirfarandi þætti eru
oftast gerðar athugasemdir:
Dráttarvélar: Par er helst að
nefna, að allar dráttarvélar,
sem notaðar eru, eiga skilyrð-
islaust að hafa veltigrindur eða
-boga. Sem betur fer er nú
orðið minna um veltigrinda-
lausar vélar í notkun en áður.
Samt þurfti á liðnu ári að inn-
sigla dráttarvélar vegna þess
að þær voru veltigrindalausar
í notkun við heyskap. Önnur
algeng atriði varðandi dráttar-
vélar eru m.a. ójöfn hemlun,
slit í stýri og að hlíf vantar um
aflúttak vélarinnar.
EKKI Á VALDI BÆNDA
AÐ VEITA SJÁLFUM
SÉR UNDANÞÁGUR
Aðrar vélar bænda: Það
sem er oftast athugavert við
aðrar vélar hjá bændum, er að
Jóhann Ólafson.
hlífar um drifsköft vantar, að
hluta eða öllu leyti. Hjá
sumum bændum vantar þó
enga öryggishlíf, hvorki á drif-
skaft eða aðra hættulega hluti,
því vélarnar eru með öllum
þeim öryggishlífum sem þær
komu með þótt þær séu orðnar
nokkuð gamlar. Hjá öðrum
vantar hluta hlífa yfir flest
drifsköft, og aðrar öryggishlíf-
ar hafa einhvern tíma verið
teknar af vegna bilana og
aldrei settar á aftur. Þetta er
glæpsamlegt athæfi sem hefur
kostað mörg mannslíf og gert
marga örkumla, bæði börn og
fullorðna. Stundum hafa
menn jafnvel sagt mér að
aldrei komi neinn nálægt drif-
skafti sem er án hlífar, jafnvel
þó ég hafi frétt að þeir hinir
sömu menn hafi sjálfir bein-
brotnað við það fara í hlífar-
laust drifskaft! Það eiga skil-
yrðislaust að vera heilar og
óskemmdar hlífar yfir öllum
drifsköftum og það er ekki á
valdi bænda að veita sjálfum
sér neinar undanþágur frá
lögum og reglu.
Þegar undirritaður er við
skoðun tækja, er hann ekki
aðeins að skoða fyrir opinbera
stofnun, heldur ekki síður og
reyndar fyrst og fremst fyrir
bóndann sjálfan og aðra sem
nálægt tækjunum koma. Til-
gangurinn er að reyna að
koma í veg fyrir slys af völdum
vanbúinna tækja, því oft sjá
augu betur en auga. Oft virð-
ast menn hugsa sem svo: Það
koma engin slys fyrir mig eða
mína, bara einhverja aðra. Ég
vil segja við þá sem svona
hugsa: Það munu halda áfram
að verða slys, bæði stór og
smá. Við útrýmum aldrei
slysum. Það eina sem við
getum gert er að fœkka
slysum, og því meiri öryggis-
ráðstafanir sem við gerum,
þeim mun færri verða slysin.
Tökum nú höndum saman,
höfum veltigrindur á dráttar-
vélunum og setjum hlífar utan
um drifsköftin. Ekki á eftir
eða á morgun, heldur strax!
Reynum þannig að koma í veg
fyrir að við sjálf, okkar nán-
ustu eða aðrir lendi í slysum
vegna vanrækslu og kæruleysis
eða þvergirðingsháttar gagn-
vart lögum og reglu.
Jóhann Ólafson,
umdæmisstjóri
Vinnueftirlits ríkisins
á Vestfjörðum.
BL0MABUÐ
ÍSAFJARÐAR
HAFNARSTRÆTI 11
94-4134
AFMÆLISTILBOÐ
— Við erum eins árs um helgina —
50%
AFSLÁTTUR
af fikus, shefflerum, drekatrjám,
skýjadísum og Hawaiirós
TILBOÐ Á KÚLUVÖNDUM
Munið brosandi blóm á betra verði
ALLTAF GÓÐ-
ALDREI BETRI!