Vestfirska fréttablaðið - 23.07.1992, Qupperneq 3
VESTFIRSKA
________ Fimmtudagur 23. júlí 1992 3
---1 FRÉTTABLAÐIÐ 1_ - - —
Styrkir úr
menningarsjóði
vestfirskrar æsku
Eins og undanfarin ár
verða nú veittir styrkir úr
Menningarsjóði vestfirskar
æsku til framhaldsnáms
sem vestfirsk ungmenni
geta ekki stundað í heima-
byggð sinni. Að öðru jöfnu
njóta eftirtaldir forgangs
um styrk úr sjóðnum:
1. Ungmenni sem misst
hafa fyrirvinnu, föður eða
móður, og einstæðar
mæður.
2. Konur, meðan fullt
launajafnrétti er ekki í
raun.
3. Ef engar umsóknir
berast frá Vestfjörðum,
koma til álita umsóknir
Vestfirðinga búsettra ann-
ars staðar.
Svæðið sem Vestfirð-
ingafélagið í Reykjavík
nær til er ísafjörður, ísa-
fjarðarsýslur, Bolungar-
vík, Strandasýsla og
Barðastrandarsýslur.
Umsóknir skal senda
fyrir lok júlímánaðar til
Menningarsjóðs vest-
firskarar æsku, eo Sigríður
Valdimarsdóttir, Birkimel
8A, 107 Reykjavík. Skulu
meðmæli fylgja frá skóla-
stjóra eða öðrum sem
þekkja viðkomandi nem-
anda, efni hans og aðstæð-
ur.
Síðasta ár voru veittar
kr. 250.000 til fimm ung-
menna, sem öll eru búsett
á Vestfjörðum.
í stjórn sjóðsins eru Sig-
ríður Valdimarsdóttir,
Torfi Guðbrandsson og
Haukur Hannibalsson.
Rær á trillu
og selur soðningu
Gummi Eyjólfur selur fisk.
Eyjólfur Guðmundur
Ólafsson (Gummi Eyjólfur) er
á 76ta aldursári og stundar enn
róðra á trillu sinni Rúnu IS-
174. Guðmundur stundar línu
og rær fram í Djúpið og fiskar
í soðið handa ísfirskum hús-
mæðrum. I blíðunni í gær var
Gummi að selja ýsu af pallbíl
sínum bak við Kaupfélag ís-
firðinga og smelltum við þá
þessari mynd af honum og
tveimur húsmæðrum sem
greinilega ætluðu að bjóða
fjölskyldum sínum upp á
soðningu að vestfirskum
hætti, með hnoðmör og rúg-
brauði.
Gummi á einnig hjall á floti
úti á Prestabugt þar sem hann
Iætur fisk afsíga, og hefur
hann verið óheppinn með
hjallinn í sumar. Hann hefur
tvisvar sinnum slitnað upp í
stormi og rekið í land en karl-
inn hefur ótrauður lagt honum
við stjóra aftur. Gummi er
einn af þeim sem hafa sett svip
á ísafjarðarbæ og selur gjarn-
an siginn fisk, nýja ýsu, Iúðu
og rauðmaga, ýmist úr hjól-
börum eða af pallbílnum í
miðbænum. Megi svo vera
áfram því það er ekki svo
margt sem minnir okkur á
gamla tíð og auðvitað er soðn-
ingin
ómissandi fyrir bæði líkama og
sál Vestfirðinga.
-GHj.
Selapétur
hefur fengið
84 seli
Pétur Guðmundsson í
Ófeigsfirði á Ströndum
hefur fengið 84 seli í lagnir
sínar í sumar. „Þetta er
meira en í fyrra og hitteð-
fyrra og ég get selt þessi
skinn öll. Æðarvarpið hef-
ur verið lélegt, fuglinn
vantar vegna grútarmeng-
unarinnar í fyrra", sagði
Pétur í samtali við VEST-
FIRSKA.
-GHj.
Selapétur og Eggert sonur hans.
Dorgað á
Mávagarði
I góðviðrinú í gær hitti ljós-
myndari blaðsins þessar
hressu stúlkur niðri á Máva-
garði þar sem þær voru að
veiða á fjórar stengur. Aflinn
var utan kvóta, þorskbútung-
ur og ókjör af marhnút. Stúlk-
urnar undu glaðar við sitt og
héldu áfram að draga mar-
hnúta eftir að þær höfðu verið
truflaðar við veiðina þegar
smellt var af þeim mynd.
-GHj.
Stúlkur að veiðum utan kvóta á Mávagarði.
E Y J A L f N
HEIMAMENN
HÉR FYRIR VESTAN!
Þið megið ekki halda að þið séuð fyrir túristunum!
Ferðir Eyjalínar
eru ekkert síður
fyrir Vestfirðinga sjálfa
en aðra
Skoðunarferðir á hverjum degi í Vigur.
Áætlunarferðir í Jökulfirði.
SÉRSTAKUR 50% AFSLÁTTUR FYRIR BÖRN OG ELLILÍFEYRISÞEGA.
Leiguferðir að óskum hvers og eins.
Afhverju ekki að skreppa eitthvert kvöldið eftir vinnu
t. d. í grillferð í Jökulfirði?
Eða á sjóstöng í logninu um lágnœttið úti á Djúpi?
Hafið samband!
Nánari upplýsingar og bókanir
á Ferðaskrifstofu Vestfjarða, Aðalstræti 11, sími 3966.
Djúpferðir - Eyjalín.