Vestfirska fréttablaðið - 10.09.1992, Side 7
VESTFIRSKA
--1 FRÉTTABLAÐIÐ |
Sýningu Grétars
í Slunkaríki að ljúka
ÍSAFJÖRÐUR
Nú líður að lokum mynd-
listarsýningar Grétars
Reynissonar í Slunkaríki.
Hún stendur fram á sunnu-
dag, 13. september.
Grétar útskrifaðist frá
Myndlista- og handíða-
skóla íslands árið 1978, eft-
ir fjögurra ára nám þar, og
dvaldist síðan um tíma í
Hollandi.
Frá því að hann lauk
námi hefur hann tekið þátt
í samsýningum og haldið
tíu einkasýningar auk þess
að vinna á þriðja tug leik-
mynda fyrir leikhús.
Á sýningunni í Slunka-
ríki sýnir hann teikningar.
sumar unnar með blýanti
og kaffi á pappír, en aðrar
gerðar með blásaumi, tré,
límbandi og olíu.
Styrktarpinni
skáta 1992
Nýlega hafa um tíu þúsund
gamalla og eldri skáta verið að
fá Styrktarpinna skáta 1992
sendan í pósti. Þetta er annað
árið í röð sem Styrktarpinni
skáta er sendur út. Á hverju
ári er gefinn út nýr pinni,
þannig að í framtíðinni hafa
safnast upp skemmtilegir safn-
gripir. Viðtökur pinnans í
fyrra voru mjög góðar og
reiknað er með enn betri við-
tökum í ár, á 80 ára afmæli
skátahreyfingarinnar á ís-
landi. Afmælismerkið prýðir
einmitt styrktarpinnann að
þessu sinni.
Styrktarpinnann fá allir 18
ára gamlir skátar og eldri og
myndar þessi hópur Styrktar-
sveit íslensku skátahreyfingar-
innar: Eitt sinn skátar - ávallt
skátar. Ekkert formlegt starf
fer fram á vegum þessa hóps.
Þeir sem fá pinnann sendan
fá hann endurgjaldslaust.
Pinnanum fylgir gíróseðill sem
allir eru hvattir til að greiða,
en þar er um að ræða gjald
styrktarfélaga BÍS.
Skátahöfðingi íslands,
Gunnar Eyjólfsson, skorar á
þá sem fá styrktarpinnann
sendan að bera hann sem tákn
um þann hug sem þeir bera til
skátahreyfingarinnar. Auðvit-
að er fjöldi fólks sem ekki fær
pinnann sendan nú, en ætti að
fá hann og vildi vera í
hópnum. Þá er að hafa sam-
band við skrifstofu Bandalags
íslenskra skáta og láta skrá sig
sem Eitt sinn skáta - ávallt
skáta.
\J912-1992J
c ilMI OKKAR ER 688888
i , MtfÁtii/um' vasUaAr. \ GEYS1R gsa. ÞÚ TEKUR VIO BlLNUM A FLUGVELLINUM ÞEGAR ÞÚ KEMUR OG SKILUR HANN EFTIR A SAMA STAÐ ÞEGAR ÞÚ FERÐ
Litli leikklúbburinn:
Kardimommubærinn í undirbúningi
- í leikstjórn Guðjóns Ólafssonar
ÍSAFJÖRÐUR
Kardimommubærinn eftir
Thorbjörn Egner verður vor-
stykki Litla leikklúbbsins á
þessu starfsári. Leikstjóri
verður hinn margreyndi leik-
ari, leikstjóri, leikritaþýðandi,
lögregluþjónn (og reyndar
framhaldsskólakennari að
aðalstarfi) Guðjón Ólafsson.
Hann er þegar byrjaður á
undirbúningi - þeir sem hafa
áhuga á einhverju sérstöku
hlutverki í Kardimommubæn-
um ættu að hafa samband við
hann. Vinsældir Dýranna í
Hálsaskógi sannfærðu stjórn-
ina um það, að leikrit Egners
ættu erindi við allar kynslóðir
á öllum tímum!
Hvert haustverkefnið verð-
ur er í deiglunni og raunar
nokkurn veginn ákveðið; það
liggur ljóst fyrir eftir helgi.
Nú stendur yfir í Fram-
haldsskóla Vestfjarða náms-
keið, þar sem Vigdís Jak-
obsdóttir kennir ýmis grund-
vallaratriði leiklistarinnar.
Nokkur fjöldi nemenda skól-
ans er á námskeiðinu og hygg-
ur LL gott til þess að fá eitt-
hvað af þeim hópi í starfið.
Á aðalfundi í sumar var
Baldur Hreinsson kosinn
formaður LL, en aðrir í stjórn
eru Guðjón Ólafsson, Mar-
grét Sverrisdóttir, Laufey
Jónsdóttir og Árni Trausta-
son.
Guðjón Ólafsson.
Rúnar Kristjánsson:
Til vinar míns
Axels Thorarensens á Gjögri
Bálkur þessi er e.j'tir Rúnar
Kristjánssön á Skagaströnd;
að hluta beinir höfundur ord-
um sínum að Axel Thorarens-
en persónulega, en að mestum
hluta er hér um að ræða upp-
gjör milli landsbyggðar og
höfuðborgar, hugleiðingar um
ríkisstjórn og byggðastéfnu,
um hrokkinhœrðan hroka-
gikk, um tvœr þjóðir í landinu
- í stuttu máli sagt: Um lands-
ins gagn og nauðsynjar!
I. hluti.
Axel Thorarensen.
Kveðju til þín vil ég vanda,
vísnaglaður!
Heill þér Axel - ystu stranda
öðlingsmaður!
Þú átt íslensk eljuspor
um ótal vegi.
Hvöt til starfa hvessir þor
á hverjum degi!
Stóra vakt þú staðið hefur
starfs á velli.
Góðum faðmi Gjögur vefur
garp í elli!
Ennþá berðu blik í auguni,
bros í sjóði.
Enn er seigla sönn í taugum,
selta í blóði!
Lifðu Heill að hjartarótum,
heiðurskarlinn!
Sterkur lífs á straumamótum,
Strandajarlinn!
II. hluti.
Um landsins gagn og nauð-
synjar.
Illa er komið okkar málum,
efni á þrotum.
Flest á vegi virðist hálum,
von í brotum!
Klækjarefir krónur þéna,
kerfið smjúga.
Borgin fleiri og fleiri spena
fær að sjúga!
Ríkisstjórnin Reykjavíkur
ráðin eflir.
Byggðastefnu siðlaus svíkur,
- svikul teflir!
Út um landið ýmsar byggðir
á að kæfa.
Ræna friði, rjúfa tryggðir,
réttinn svæfa!
Þar er beint á borðín færður
banadrykkur.
Málum stjómar hrokkinhærður
hrokagikkur!
Fólk er víðaá neyðamaddinn
neglt méð lögum.
Suðureyri er sett á gaddinn,
sundrað högum!
Réttlaust fólk í rýru standi
er reyrt í hlekki.
Þjóðir tvær í þessu landi
þrífast ekki!
Sú mun stefnan sálir þvinga
í svaði djúpu,
að heimta alla íslendinga
í eina súpu!
Burt með slíka borgaróra,
braut scm skaðar.
Varla er hægt að hreyfa fingur Út um landið er þó glóra
hér á landi. Frjáls er enginn íslendingur, enn til staðar!
- allt í strandi! Fylgjum ekki forsjá blindra fyrirmanna.
Þeir sem nú á þingi sitja Það mun sókn til sældar hindra,
þyrftu að falla. Það er ekki þjóð til nytja sigur banna!
að þvinga alla! Landsins byggðir líf sitt verji og leiti ráða.
Skattar hækka og vextir vaida Heilar tryggðir saman sverji
víða tjóni. Breiöu spjóti að baki tjalda í sókn til dáða!
er beint að Fróni! Samstaða á sönnum grunni sé þar bundin.
Gripið cr til grófra verka, Allir tali einum munni.
gleymast rökin. Höfuðborgar höndin sterka opni sundin!
herðir tökin! Þá mun byggðir ekktrt oka ef enginn svíkur.
Reykjavfkur valdið spillta Þá má rjúfa ríkishroka
varga fæðir. Dansa í kringum kálfinn gyllta Reykjavíkur!
kauðar skæðir! Göngum fram í einum anda út um landið.
Flýtur allt til falls og sorgar Tengjum milli trúrra handa
fyrir straumi. Þjóðleg viðhorf blikna í borgar tryggðabandið!
biindum glaumi! Þá fá dyggðir veg að vísa viskusnjallar.
Þar sem greifar ganga um stræti Sést þá aftur sólskin lýsa
í gróðaþönkum, þar sem létt er fyrir fæti og fé í bönkum! Þar rís Mammons mikla veldi í magni stóru. Brennir sæmd í óráðs eldi, eyðir glóru! um sveitir allar!