Vestfirska fréttablaðið - 19.11.1992, Page 4
Fimmtudagur 19. nóvember 1992
VESTFIRSKA
J FRÉTTAB LAÐIÐ
UPPSKRIFT I VESTFIRSKA
frá Rögnu Arnaldsdóttur
Hér koma tvær uppskriftir aö
smáréttum eöa forréttum, sem
gott er að eiga i ísskápnum á
hátíðar- og tyllidögum.
Ragna Arnaldsdóttir.
Laxapaté
500 g lax, soðinn og beinlaus
(u.þ.b. 700-800 g ósoðinn)
200 g sýrður rjómi
1 dl rjómi
V4 tsk svartur pipar. malaður
1 '/2 tsk basil
1 pk Toro fiskhlaup
3 dl heitt fisksoð
Sósa:
200 g sýrður rjómi
*/4 tsk pipar, malaður
1 tsk sítrónusafi
ca. 2 tsk Sweet Relish
Sjóðið laxinn í léttsöltu vatni. Leysið fiskhlaupið upp í
sjóðandi soðinu, kryddið. Látið kólna. Hreinsið fiskinn og
hrærið í sundur með sleif. Blandið sýrða rjómanum og
rjómanum saman við hlaupið og síðan laxinum. Hellið
blöndunni í mót (u.þ.b. 1 lítri), ílangt, kringlótt eða
fisklaga, og kælið í 6-8 klst. Berið réttinn fram með græn-
meti, ristuðu brauði og sósu.
Skinkukramarhús
1 dós sýrður tjómi
2 msk majónes
2 dl rjómi, þeyttur
1-2 box rjómaostur með
appelsínubragði (eða koníaksbragði)
6 tsk koníak
4 bl matarlím
kokkteilávextir
skinkusneiðar
Öllu hrært vel saman. Ávextimir brytjaðir smátt og bætt í,
síðan rjómi og matarlím. Skinkusneiðamar skomar í tvennt
(hom í horn) og búin til kramarhús. Blandan sett í og raðað
á fat með samskeytin niður. Látið bíða í ísskáp í nokkra tíma.
Einnig má setja blönduna á heilar skinkusneiðar og rúlla upp.
Þetta er stór uppskrift, ca. 80-90 kramarhús eða ca. 30-40
rúllur, en þá er bara að minnka hana.
Verði ykkur að góðu!
Ég skora á Emmu Rafnsdóttur, Urðarvegi 35 á ísafirði.
Broddaneshreppur:
Félagsmálaráðuneytið ógildir
ráðningu skólabílstjóra
- verða að taka málið upp aftur og jafnvel fleiri ráðningarmál
-----\
JR
VIDE0
NÝJAR MYNDIR
í HVERRI VIKU
ÞÚSUNDIR
TITLA í
RÚMGÓÐU OG
VISTLEGU
HÚSNÆÐI
SPENNU-
MYNDIR
FJÖLSKYLDU-
MYNDIR
BARNA-MYNDIR
MYNDA-
FLOKKAR
ÁSTAR-
SÖGUR
GLÆPA-MYNDIR
FRAMTÍÐAR-
MYNDIR
NÝJAR MYNDIR
OG GAMLAR
MYNDIR
Félagsmálaráðuneytið úr-
skurðaði í gær (miðvikudag) í
kærumáli Sigurkarls Ásmunds-
sonar, skólabílstjóra Brodda-
nesskóla, á hendur hreppsnefnd
Broddaneshrepps á Ströndum,
vegna meints vanhæfis Einars
Magnússonar í Hvítarhlíð til
þess að sitja hreppsnefndarfund
þar sem tengdasonur Einars,
Jón Hákonarson, var ráðinn
skólabílstjóri með atkvæði
Einars í hreppsnefndinni.
Hreppsnefndin hafði auglýst
stöðuna lausa til umsóknar.
Sigurkarl, sem ekið hafði með
skólabörnin farsællega í 20 ár,
hafði sótt um starfið. Ennfrem-
ur voru tveir aðrir umsækjend-
ur, þeir Jón Hákonarson og
Bjami Eysteinsson.
Urskurðarorð ráðuneytisins:
„Ákvörðun hreppsnefndar
Broddaneshrepps um ráðningu
skólabílstjóra Broddanesskóla,
sem tekin var á fundi hrepps-
nefndar, hinn 20. ágúst 1992, er
ógild. Hreppsnefnd Brodda-
neshrepps ber að ákvarða að
nýju hvern skuli ráða skólabíl-
stjóra Broddanesskóla til að sú
ákvörðun öðlist gildi lögum
samkvæmt."
Þá er í kæru Sigurkarls jafn-
framt fundið að því að hrepps-
nefnd Broddaneshrepps auglýsi
ekki fundi hreppsnefndar á
þann hátt sem ákvæði sveitar-
stjómarlaga mæla fyrir um.
Niðurstaða ráðuneytisins um
þann hluta kærunnar er
svohljóðandi: „Þá mun ráðu-
neytið vekja sérstaka athygli
hreppsnefndar Broddanes-
hrepps á ákvæðum 2. mgr. 50.
gr. sveitarstjórnarlaga, þar sem
segir að kunngera skuli íbúum
sveitarfélags með auglýsingu
hvar og hvenær fundir sveitar-
stjómar eru haldnir.“
Nú er ljóst að hreppsnefnd
Broddaneshrepps verður að
taka upp aftur ráðningarmál
skólabílstjórans og jafnvel
fleiri mannaráðningar að
Broddanesskóla, sem af-
greiðslu hlutu á sama fundi
hrepppnefndar 20. ágúst.
-GHj.
Átak á ísafirði á morgun
Endurskins-
merki geta
komið í veg
fyrir slys!
MYNDIR FYRIR
ALLA
JR
VIDE0
MÁNAGÖTUB
ÍSAFIRÐI
SÍMI4299
________2
Föstudaginn 20. nóv. verður
umferðamefnd SVFI á ísafirði
með átak í notkun endurskins-
merkja. Fólk verður á göngu á
Skutulsfjarðarbraut og Eyrar-
hlíð eftir kl. 5 og mun sýna
merkin og nauðsyn þeirra.
Endurskinsmerki verða seld á
sama tíma í anddyri Ljónsins.
Endurskinsmerki eru nauð-
synleg, jafnvel þar sem götu-
lýsing er góð.
Munið: Allir með endur-
skinsmerki!
Umferðamefnd SVFÍ,
Isafirði.
ísfirskir strákar i
körfuboltaveislu í
Víkinni
Um helgina verður sannkölluð körfuboltaveisla í í-
þróttahúsi Bolvíkinga, því þá mun hið unga og spræka
lið Körfuboltafélags isafjarðar (KFÍ) gera sitt besta fyrir
ísafjarðarkaupstað í 2. deild karla, eftir margra ára bið.
Dagskráin verður þannig:
Laugardagur 21. nóvember:
Hörður - Víkingur kl. 15.30.
KFÍ - UMF Stafholtstungna kl. 17.00.
KFÍ - Hörður kl. 18.30.
Sunnudagur 22. nóvember:
UMF Stafholtstungna - Víkingur kl. 12.30.
Víkingur - KFÍ kl. 14.00.
Hörður - UMF Stafholtstungna kl. 15.30.
Allir eru hvattir til að koma og styðja við bakið á ungu
drengjunum.
Vestfirska
hefur
heyrt...
...að Verslunarmanna-
félag ísafjarðar hafi keypt
sér íbúð við Laugaveg í
Reykjavík. Á íbúðin að
vera til afnota fyrir ísfirska
verslunarmenn þegar
þeir dvelja syðra. Mörg
félög launafólks hér
vestra hafa keypt sér í-
búðir til slíkra nota í
Reykjavík og jafnvel á
Akureyri. Allt er gott um
þetta að segja nema að
þegar keypt voru hús-
gögn og innbú í hús
Verslunarmannfélags
ísafjarðar var verslað í
Reykjavík. Einhverntíma
hefur Vestfirska heyrt frá
félögum launafólks og
annarra orðin „Verslið í
heimabyggð", eða
þannig...
...að ekkert hafi orðið
af fundi í sameiningar-
nefnd sveitarfélaga á
norðanverðum Vestfjörð-
um (nefndinni hans Sig-
fúsar Jónssonar), sem
boðað var til á ísafirði í
síðustu viku. Ástæðan
var sú, að hinir hugdjörfu
sameiningarmenn áttuðu
sig ekki á því að fjallvegir
á Vestfjörðum geta orðið
ófærir á vetrum og höfðu
ekki vit á því að boða til
fundarins á mokstursdegi
eða hafa samráð við
Vegagerðina, heldur ætl-
uðu þeir að hafa hann á
milli mokstursdaga. Það
mun úr lausu lofti gripið
að Sigfús ætli að hinkra
með fundinn þar búið er
að opna jarðgöngin, en
hann mun engu að síður
nokkru fróðari um að-
stæður hér vestra en
áður...
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIB
Áskrilt
ag auglýsingar
ísíma 4011
VESTFIRSKA
ERBLABIB
SEMAÐRIR
FJÖLMIÐLAR
VITNA í
VESTFIRSKA
FRÉTTABLABIÐ
STÆRRA OB
BETRA BLAB