Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Qupperneq 2

Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Qupperneq 2
Fimmtudagur 28. apríl 1994 VESTFffiSKA J FRÉTTABLAÐIÐ Húsmæðraskólinn Ósk ■ vandræðabarnið eða hvað? Vegna þeirrar umræðu sem á sér stað á Isafirði þessa dag- ana um stöðu Húsmæðraskól- ans og framtíð vill undirrituð koma á framfæri þeim óskum og tilmælum til ráðamanna að athuga vel þá sögu og þá hefð sem liggur að baki Húsmæðra- skólanum. Verður hér rakin í örstuttu máli þróun skólans og þau af- not sem hinir ýmsu skólar og félög hafa haft af húsnæði hans á Austurveginum í gegnum árin. Þróun húsmæðraskólans á ísafirði Húsmæðraskólinn Osk á sér langa og merkilega sögu. Um stofnun húsmæðraskóla á Isafirði var fyrst rætt af alvöru á fundi hjá Kvenfélaginu Ósk þann 15. mars 1911 og sendu þá konur áskomn til Alþingis um stofnun og viðhald hús- mæðraskólans en jafnframt skoraði Kvenfélagið Ósk á bæjarstjórn kaupstaðarins að beita sér fyrir þessu máli. Húsmæðraskólinn var svo settur á stofn 1. okt. 1912 og starfræktur ýmist í 8 til 9 mán- uði fram á áttunda áratuginn. Fyrsta forstöðukonan var frk. Fjóla Stefáns frá Grásíðu í Kelduhverfi. Skólinn eignaðist loks sitt eigið húsnæði við Austurveg sem vígt var þann 5. okt. 1948 en hafði fram að þeim tíma verið starfræktur á ýmsum stöðum. Sama ár tók frú Þor- björg Bjarnadóttir frá Vigur að sér forstöðu skólans og gegndi því starfi í hartnær fjóra áratugi. Vegna nemendafæðar og breyttra þjóðfélagshátta var skólinn á árunum 1975-1983 rekinn í námskeiðaformi fyrir áramót en fimm mánaða hús- stjórnarnám var eftir áramótin. Eftir það var einungis um ýmiss konar námskeið að ræða fyrir fullorðna og voru þau flest vel sótt. En árið 1990 var gert samkomulag um heimilis- fræðinám á Isafirði milli ísa- fjarðarkaupstaðar og mennta- málaráðuneytisins þar sem Húsmæðraskólinn Ösk yrði sameinaður Menntaskólanum á Isafirði sem nú heitir Fram- haldsskóli Vestfjarða. Þannig má sjá að skólinn hefur skipað fastan sess í ís- firsku bæjarlífi um langan ald- ur. Grunnskólinn á ísafirði Með sameiningu Barnaskól- ans og Gagnfræðaskólans í einn grunnskóla árið 1985 var gert ráð fyrir því að Grunn- skólinn á Isafirði fengi umtals- verð afnot af Húsmæðraskól- anum og myndi þá með báðum tengibyggingunum uppfylla nokkurn veginn þau norm sem gerð eru varðandi húsrými miðað við nemendafjölda. Með nýju grunnskólalögun- um 1991 er stefnt að því að grunnskólar verði einsetnir og að nemendur eigi kost á máls- verði á skólatíma en það kallar á meira rými. Tónlistarskólinn Tónlistarskólinn hefur haft afnot af stórum hluta Hús- mæðraskólans frá árinu 1986 sem bráðabirgðahúsnæði. Um svipað leyti hafði bærinn gert samning við Tónlistarfélagið um byggingu Tónlistarhúss á Torfnesi þar sem bærinn ætlaði Jónína Ó. Einarsdóttir. að borga helming á móti Tón- listarfélaginu. Stefnt var að því húsið yrði tekið í notkun haustið 1994 en nú er einungis búið að steypa plötuna. Kvenfélagið Osk Eins og komið hefur fram voru það konurnar í Kvenfé- laginu Ósk sem knúðu á um byggingu Húsmæðraskólans og hafa þær síðan haft veg og vanda af skólahúsnæðinu. Húsið sjálft hefur ákveðið menningargildi og þar sem Kvenfélagið hefur verið ná- tengt rekstri þess og gæslu hafa þær um árabil getað haft þar aðstöðu til fundahalda og ann- arra starfa. Tveir fulltrúar frá Kvenfélaginu Ósk hafa alltaf verið í skólanefnd. Ríkið/Bærinn Eignarhlutfall og rekstur Húsmæðraskólans er 3/4 ríkið en 1/4 bærinn. A fyrstu árum skólans sá Kvenfélagið Ósk um rekstur hans en með lögum um húsmæðrafræðslu 1946 tekur ríkið við rekstri skólans og skiptust þá greiðslur milli ríkis og bæjar samkvæmt lögunum eins og áður var getið. Framhaldsskóli/ fullorðinsfræðsla I nýju framhaldskólalögun- um sem eru enn á borði menntamálaráðherra verður lögð meiri áhersla á list- og verkgreinar en verið hefur. Nauðsynlegt er því fyrir kenn- ara að fá góða aðstöðu og að- búnað til að geta sinnt þeirri kennslu með sóma. Með vaxandi atvinnuleysi þarf að huga að fjölbreyttari námstilboðum með stuttum en hagnýtum námsbrautum þannig að sem flestir geti stundað nám við hæfi. Með sameiningu sveitarfélaganna og Vestfjarðagöngum opnast möguleikar fyrir nágranna- byggðirnar að nýta sér þau námskeið sem yrðu í boði. Hægt væri því að nýta skóla- húsnæðið fyrir fullorðins- fræðslu þannig að bæjarbúar sem og nágrannar fengju afnot af skólanum eftir að skóla/ vinnudegi lýkur. Það ætti því að verða okkur metnaðarmál að halda Húsmæðraskólanum við og nýta hann sem best sem verkmenntahús. Horft til framtíðar Ljóst er af þessari upptaln- ingu að skólinn hefur verið vel nýttur þó að eiginleg hús- mæðrakennsla sé aflögð. Tvö góð kennslueldhús eru í skól- anum, svo góð að þeir sem sinna heimilisfræðikennslu og annarri kennslu sem lýtur að hússtjóm og eldamennsku víða um land hafa öfundast yfir að- stöðunni. Grunnskólinn á ísafirði hefur haft afnot af honum til að sinna lögboðinni skyldunáms- grein, heimilisfræði, og nýtir vel þá aðstöðu. Einnig hefur hluti húsnæðisins verið nýttur sem leirvinnustofa þar sem nemendur Grunnskólans hafa fengið aðstöðu til að nema leirmunagerð. Sömuleiðis hafa grunnskólanemendur nýtt vef- stofuna á undanförnum árum. Þessi sérstaða Grunnskólans að geta boðið upp á aðstöðu fyrir kennslu í vefnaði og vinnu með leir fyrir nemendur er hreint frábær. Nemendur sem ein- hverra hluta vegna hefur ekki gengið vel íbóknámi njóta þess virkilega að vinna með hönd- unum og öll verkleg kennsla fellur þeim betur. Þau skilja betur orsök og afleiðingu, þ.e. með höndunum skapa þau og búa til sín listaverk. Framhaldsskólinn á Vest- fjörðum hefur nýtt hann fyrir nám á hússtjómarbraut auk þess sem ýmis námskeið hafa verið haldin þarna. Nú stendur fyrir dyrum að auka fjölbreytni í Framhaldsskólanum þar sem boðið verður upp á matar- tækninám næsta haust og þá þarf gott kennslueldhús. Niðurstaða Þær sögusagnir eru á kreiki að ríkið vilji afhenda bænum Húsmæðraskólann til afnota fyrir skólahald. Einhverjar raddir eru síðan í þessu fram- haldi að bjóða Tónlistarskólan- um húsnæðið. Mín niðurstaða er sú að Grunnskólanum beri að fá þetta hús undir verk- og listgreinar. Þegar skólarnir voru samein- aðir í grunnskóla var alltaf ver- ið að tala um það að Grunn- skólinn fengi Húsmæðra- skólann sem verkmenntahús. Það eru til teikningar sem bornar voru undir kennara á sínum tíma til að skoða og gagnrýna, þannig að hægt væri að nýta vel húsnæðið þegar til þess kæmi. Það þarf því að huga vel að þessum málum, betur en svo að hægt sé að hafa skiptimyntarbrask með skól- ana. Því skóli er ekki bara hús- næði, innan hans er fjöldinn allur af fólki, fólki sem hefur áhuga og metnað til að gera góða hluti og gerir góða hluti enn betur ef skilningur skóla- og bæjaryfirvalda er fyrir hendi. Áætlað er að grunnskólar fari undir bæjar- og sveitarfé- lög 1. ágúst 1995 og þó svo að það geti hugsanlega dregist þá myndi einn og sami aðilinn þ.e. bærinn sjá um rekstur þessara skóla í framtíðinni. Það er tími til kominn að námsgreinar eins og heimilis- fræði og handmennt fái þann sess og þá virðingu sem þeim ber í skólakerfinu. ísfirðingar ættu að sýna þá framsýni að vilja veg list- og verkmenntun- ar sem bestan. Gerum Hús- mæðraskólann að góðu og vel- búnu verkmenntahúsi. Jónína Ó. Emilsdóttir, kennari Fossavatns- göngunni frestað Fossavatnsgöngunni á skíðum sem vera átti laug- ardaginn 30. apríl hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna erfiðra aðstæðna á gönguleiðinni. Á106 km hraða Námskeið á Isa- firði um slysa- varnir barna um Oshlíð Að kvöldi sumardagsins fyrsta var ökumaður tekinn á 106 km hraða á Óshlíðavegi þar sem leyfður er 70 km hámarkshraði. Sagði lögregla þetta alveg ótækt að haga sér svona og aka hátt í 40 km yfir hámarks- hraðann. Auk þess voru akstursskilyrðin slæm, sól- skin hafði verið um daginn og voru klakablettir hér og þar á veginum. Ökumaðurinn fær veglega sekt. -GHj. Námskeið í slysavömum bama verður haldið í Sigurðar- búð á Isafirði laugardaginn 7. maí ef næg þátttaka verður. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja starfa að slysa- vörnum barna. Efni meðal annars: Þroski bama og geta, hjólreiðar barna. Námskeiðsgjald er kr. 1500. Innifalin er kennslumappa. Nánari upplýsingar og skráning í síma 94-3505 og í síma 91-627000. Dýrt ómerkingsvottorð Undirritaður vill taka fram vegna greinar Indriða á Skjaldfönn í síðasta blaði sem ber yfirskriftina „Blaðamaður í vorverkum", að hann mun ekki svara greininni, enda mun greinarhöfundur hafa, samkvæmt eigin sögn í greininni, „vottorð" upp á vasann frá Héraðsdómi Vestfjarða um að hann sé ómerkur a.m.k. sumra skrifa sinna. Því er ekki orðum eyðandi á hann til svara við umræddri ritsmíð. Fram kom í grein Indriða að „vottorðið“ hafi kostað hann sex hundruð þúsund krónur (án vsk) og þótti honum það ekki dýrt, þótt hins vegar flestum þyki slíkt nokkuð dýru verði keypt. P.S. Á það skal bent, að samkvæmt lögum á að færa ómerkinga, sem koma af Fjalli, til næsta sláturhúss til slátrunar og andvirði þeirra renna í viðkomandi sveitarsjóð. Aður voru ómerkingar boðnir upp á lögskilaréttum og seldir hæstbjóðanda. Fyrr á tíð áttu kirkjur einnig rétt á ómerkingum. Eins og áður sagði er þeim nú slátrað og er það gert vegna smithættu og ekki talið ráðlegt að setja þá á. -GHj. Engar kvartanir útaf dimission á ísafirði Dimission nemenda Framhaldsskóla Vest- fjarða á Isafirði var á föstudaginn og óku þeir um götur bæjarins í hey- vagni Jens í Kaldalóni, bónda á Kirkjubæ í Skutulsfirði. Traktor dró heyvagninn og byrjaði dimission kl. 7.45 sem er nokkuð góður tfmi til þess að rífa fólk upp úr fasta svefni. Að sögn lögreglu ber þess að geta sem vel er gert og vildi hún taka fram að engar kvartanir hefðu borist vegna nemendanna og hefði engin afskipti þurft að hafa af þeim vegna ölvunar eða óláta. Allt fór mjög vel fram og var til fyrirmyndar að sögn lögreglu. -GHj. 1& SÝSLUMAÐURINN liil Á ÍSAFIRÐI ATKVÆÐAGREIÐSLA UTAN KJÖRFUNDAR Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 28. maí 1994 er hafin hjá sýslumanninum á ísafirði og hreppstjórum í umdæminu samkvæmt XI. kafla laga nr. 80/1987 með síðari breytingum, samanber 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986. Fyrst um sinn verður kosið á skrif- stofutíma embættisins, mánudaga til föstudaga kl. 10 til 15. Laugardag 14., sunnudag 15., laugardag 21. og mánu- dag 23. maí (annan hvítasunnudag) verður kosið kl. 10 til 16. Hvítasunnu- dag, 22. maí, verður unnt að kjósa frá kl. 15 til 17 og kjördag 28. maí 1994 frá kl. 10 til 18. Kjósandi, sem vill greiða atkvæði utan kjörfundar, skal gera kjörstjóra grein fyrir sér með því að framvísa nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt. Sýslumaðurinn á ísafirði, 12. apríl 1994. Ólafur Helgi Kjartansson

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.