Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Page 3
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
J-
Fimmtudagur 28. apríl 1994
3
PÖNNUKÖKUGANGA
í HNÍFSDALNUM
Síðastliðinn sunnudag fór
fram svokölluð Pönnuköku-
ganga í Hnífsdal. Þar er um að
ræða eins konar skíðaskokk
fyrir almenning sem nokkrar
konur sem tilheyra óformlegu
Vetrarvinafélagi í Hnífsdal
áttu frumkvæði að fyrir
nokkrum árum, svona til að
hressa upp á sálarlífið. Ganga
þessi virðist heldur betur vera
að festast í sessi sem árlegur
viðburður. Valinn er tími síðla
vetrar með tilliti til veðurs og
baka konur í Dalnum kynstrin
öll af pönnukökum af þessu
tilefni. A sunnudaginn var
gengið bæði á skfðum og á
tveim jafnfljótum og meira að
segja hjólað frá Bakkavegi og
inn að stórum steini innst í
dalnum sem kallaður er Aðal-
steinn. Sumir fóru þó ekki alla
leið heldur áðu í bæjartóftum
gamla Hnífsdalsbæjarins í
Fremri-Hnífsdal. Þar var sleg-
ið upp pönnukökuveislu mikilli
fyrir göngufólkið. Ríflega
hundrað manns tóku þátt í
göngunni á sunnudaginn og var
kátt á hjalla í Hnífsdalnum í
glampandi sól og hita. Meira að
segja var dregið fram dragspil
og haldið uppi fjöldasöng við
harmoníkuundirleik og teknar
léttar æfingar í leiðinni undir
stjórn Rannýar Páls.
Ekki er laust við að þátt-
takendur í göngunni á sunnu-
daginn séu strax farnir að bíða
eftir Pönnukökugöngunni á
næsta ári. -hk.
Frændsystkinin Auðunn og Auður fóru í gönguna á sleða og snjóþotu og eru þarna við
endastöð göngufólks þar sem stór borði bauð fólk velkomið á Aðalstein.
Hjálmar bóndi á Hrauni með tvo þátttakendur af yngstu kynslóðinni í eftirdragi á vélsleða.
•Vk.
■> V ' ' s": . ,,
•'X-.V '■ >J
'•V N v -V - V \
-
Ranný Páls og Bjössi Helga fengu fólk til að gera hinar ýmsu kúnstir við harmóniku-
undirleik.
Það var Ijúft að njóta kyrrðar og útiveru í glampandi sól og góðu veðri í Hnífsdalnum á
sunnudaginn.
Það var ekki amalegt að tylla sér niður á Aðalstein í sólskininu.
Spilað var á nikku fyrir göngufólkið við góðar undirtektir.
Þarna voru pönnukökur, kaffi og djús eins og hver gat í sig
látið.
Köttur
sóttur upp
í rafmagns-
staur
I hádeginu á laugardag
barst lögreglu á ísafirði til-
kynning um kött í sjálf-
heldu uppi í staur við
Hjallaveg. Þegar lögregla
kom á vettvang korn í Ijós
að raflínur voru undir
straum í staurnum og ekki
reyndist unnt að fara upp í
hann eftir kettinum. Haft
var samband við Orkubú
Vesttjarða og komu starfs-
menn þess á vettvang, tóku
rafmagnið af og sóttu kött-
inn upp í staurinn.
-GHj.