Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Blaðsíða 5
VESTFIRSKA
Fimmtudagur 28. apríl 1994
FRÉTTABLAÐIÐ |______________________________1___________
5
Við sjávarsíðuna
Mok í karfanum á
Reykjaneshrygg
/ síðustu viku var hér í Vestfirska fréttablaðinu mynd af 40
tonna hali sem Júlíus Geirmundsson fékk á dögunum á
Reykjaneshrygg. Nú fyrir helgina kom Jón Oddsson stýri-
maður með myndir til blaðsins sem Steingrímur Einarsson
hafði tekið í þessum sama túr. Á þeim getur að líta mun
stærra hal, eða hvorki meira né minna en 50 tonn af karfa
sem köllunum á Júlíusi tókst að innbyrða. Á neðri myndinni
sést hvar pokinn er opnaður og karfinn látinn gossa ofan í
fiskmóttöku.
Fjöldi togara hefur verið á þessum slóðum að undanförnu
og hafa þeir verið í nær látlausri mokveiði.
Rúm 60 tonn
af Djúprækju í
vikunni á land
á ísafirði
Þrettán rækjubátar sem
stunda veiðar í Isafjarðardjúpi
lönduðu 60,2 tonnum úr 48
sjóferðum á Isafirði í síðustu
viku. Hæst var Kolbrún með
7,9 tonn í fimm sjóferðum,
næstur var Halidór Sigurðsson
með 7,3 tonn í fjórum sjóferð-
um og þriðja var Bára með 7,0
tonn í fimm sjóferðum. Þessar
upplýsingar fengust á Hafnar-
voginni á Isafirði á mánudag.
Guðbjartur með
40 tonn
Togarinn Guðbjartur kom
inn til ísafjarðar á sunnudaginn
og landaði 40 tonnum af karfa
á mánudaginn. Skipið var átta
daga á veiðurn og byrjaði á
grálúðuslóð á Torginu og end-
aði í karfanum á Eldeyjar-
banka. Skipstjóri á Guðbjarti í
þessari veiðiferð var Hörður
Guðbjartsson.
Dapurt hjá Orra
Það var dapurt hjá línuskip-
inu Orra í síðustu viku og fékk
skipið 22 tonn í fjórum sjó-
ferðum. Oni missti úr einn
róður vegna smávægilegrar
vélarbilunar og var 17 tima á
reki á landleiðinni á föstudag-
inn. Skipstjóri á Orra er Sveinn
Pálsson.
Stefnir landaði
50 tonnum
Togarinn Stefnir kom inn til
Isafjarðar á iaugardaginn og
landaði 50 tonnum af grálúðu
á mánudag eftir fjögurra daga
veiðiferð á Torginu. Skipstjóri
í þessari veiðiferð var Grétar
Kristjánsson.
Gyllir með 4,2
tonn og rifið troll
Rækjuskipið Gyllir kom inn
til ísafjarðar á föstudaginn
með rifið rækjutroilið og land-
aði 4,2 tonnum af úthafsrækju
í leiðinni. Gert var við trollið
á hafnarkantinum og fór skipið
strax út aftur og viðgerð var
lokið. Skipið hafði einungis
verið að veiðum í einn dag í
Kantinum norður af Horni
þegar troilið rifnaði.
Bergur VE landaði 28 tonn-
um af úthafsrækju hjá Bása-
felli á Isafirði á mánudag. Al-
bert GK var að útbúa á
úthafsrækjuna í Isafjarðarhöfn
á mánudaginn og mun hann
landa hjá Bakka í Hnífsdal.
Rækju- og bolfisk-
afli í Víkinni
Fjórtán línubátar lönduðu
93,5 tonnum úr 52 róðrum í
síðustu viku í Bolungarvík.
Flosi var hæstur með 18,7 í
fimm róðrum og næstur var
Jakob Valgeir með 17,6 tonn í
fimm róðrum.
Einn dragnótarbátur, Páll
Helgi, landaði 4,8 tonnum úr
fjórum róðrum.
Níu rækjubátar sem stunda
veiðar í Djúpinu lönduðu 43,2
tonnum úr 36 sjóferðum. Hæst
var Hafrún II með 8,7 í fimm
sjóferðum og næstur var Arni
Ola með 6,2 í íjórum róðrum.
Einn bátur, Ásdfs, er byrjaður
á handfærunt og fékk eitt tonn í
fjórum sjóferðum.
Þessar uppiýsingar fengust
hjá Hafnarvoginni í Bolungar-
vík á mánudaginn.
Afspyrnuléleg
línuvertíð
Línubáturinn Flosi í Bolung-
arvík hafði í lok síðustu viku
fengið alls 228,9 tonn í 58
róðrum síðan á áramótum. Af
þessu má sjá hve léleg línuver-
tíðin við Vestfirði hefur verið í
vetur því þetta er álfka magn og
þótti gott í marsmánuði einum
hér áður fyrr. Ekki var óalgengt
að bátar færu yfir 200 tonn af
steinbft í mars.
Dagrún með 60
tonn
Togarinn Dagrún landaði 60
tonnum í Bolungarvík á mánu-
dag. Aflinn var grálúða sem
fékkst í fimm daga veiðiferð á
Torginu vestur af Látrabjargi.
Skipstjóri á Dagrúnu í þessurn
túr var Víðir Jónsson.
„Einn lélegasti
túrsemégheffar-
iðogfiskaégþó
aldrei neitt", segir
skipstjérinn á
Heiðrúnu
„Við erunr að koma að Barð-
anum á heimleið af miðunum
fyrir sunnan land og það er al-
veg renniblíða hér fyrir Vest-
firðina", sagði Jón Eggert Sig-
urgeirsson skipstjóri á
togskipinu Heiðrúnu frá Bol-
ungarvík í samtali við blaðið
laust fyrir hádegi á þriðjudag-
inn. „Þetta er einn lélegasti túr
sem ég hef farið og fiska ég þó
aldrei neitt. Við erum nieð 25
tonn og vorum fyrir sunnan
land. Þar er enginn fiskur. Þetta
er karfi, 14 stórlúður, ýsa og 3-
4 tonn af þorski. Þetta er bara
bland. Það er vika síðan við
fórum frá Reykjavík á veiðar.
Við höfum ekki komið heim til
Boiungarvíkur í þrjár vikur. Við
erunr búnir að landa tvisvar í
Reykjavík og við hlökkum til
að koma heim“, sagði Jón
Eggert.
Páll Pálsson iand-
aði 50 tonnum
Páll Pálsson kom inn til ísa-
fjarðar á mánudag og landaði
50 tonnum af gráiúðu eftir sex
daga veiðiferð á Torginu.
Skipstjóri á Páli í þessari
veiðiferð var Kristján
Jóakimsson.
Bessi landaði
100 tonnum
Togarinn Bessi kont inn til
Súðavíkur á sumardaginn
fyrsta með 100 tonn, uppistað-
an grálúða og slatti af karfa,
sem skipið fékk í átta daga
veiðferð á Torginu. Skipstjóri
var Jói Sím.
75 tonn af rækju á
land í Súðavík
- og nóg aö gera
Þrír rækjubátar sem stunda
veiðar f Djúpinu lönduðu 22,6
tonnum af innfjarðarrækju f
Súðavík úr 14 sjóferðum í síð-
ustu viku. Hæstur var Valur
með 9 tonn í fimm sjóferðum.
Kofri landaði 22 tonnum af
úthafsrækju í Súðavík á mánu-
daginn eftir vikuna norður í
Kanti og Haffari landaði 30
tonnum af úthafsrækju á
þriðjudag eftir vikuna á sama
stað.
Að sögn Steins Inga Kjart-
anssonar hjá Frosta hf. hefur
verið nóg að gera í rækju-
vinnslunni í Súðavík í vetur og
hefur verið unnið á vöktum.
Gegnumgangandi er unnið 18
tíma á sólarhring við rækjuna.
Góður línuafli á
Norðurfirði
Góður afli var í síðustu viku
hjá línubátunum tveimur,
Stekkjarnesi og Sigurósk, sem
róa frá Norðurfirði á Ströndum.
Fengu bátarnir allt upp í tvö
hundruð kíló á balann og þar
yfir, að sögn Guðnrundar á
Munaðarnesi. Róa bátarnir
með 16 til 20 bala og hæsti
róðurinn var 3,3 tonn hjá Sig-
urósk. Algengur afli er um 100
kg á balann. Aflinn er aðallega
stór og fallegur þorskur.
Guðmundur Pét-
urs fékk 17 tonn í
basltúr
Rækjuskipið Guðmundur
Péturs landaði 17 tonnum af
úthafsrækju á ísafirði á þriðju-
dag eftir sex daga útiveru.
Skipið var einungis fjóra daga
við veiðar og að sögn Pálma
Stefánssonar skipstjóra var
þetta basltúr vegna þess að
trollið rifnaði illa. Voru menn
við viðgerðir á trollinu á
þriðjudag. Sagði Pálmi besta
veður hafa verið allan túrinn
en þeir hefðu verið að veiðum
á svokölluðum Ostahrygg um
100 sjóm. norður af Skaga.
Rækjan, sem er falleg og um
140 stykki í kílóið, fór til
vinnslu í Básafelli hf.
Hálfdán kominn
úr fyrsta frystitúr
vorsins
Togarinn Hálfdán í Búð
kom inn til Isafjarðar í fyrr-
inótt úr fyrsta frystitúrnum á
vorinu ineð 66 tonn af frystri
grálúðu að aflaverðmæti 14,8
milljónir króna eftir 12 daga
útivist. Skipið var að veiðum
fyrir austan land og aflinn var
87 tonn upp úr sjó. Skipstjóri
á Hálfdáni er Skarphéðinn
Gíslason.
Framnesið með
rækju af Dohrn-
banka
Framnesið kom inn til Isa-
fjarðar á þriðjudagsmorgun
eftir liðlega viku útivist. Aflinn
var 32,5 tonn af rækju sem
fékkst á Dohrnbanka, þar af
voru 7,5 tonn fryst um borð.
Skipstjóri í túrnum var Sigþór
Valdimar Elíasson.
UMSJON MEÐ
SJÁVARSÍÐU:
GHj.
VIDEO
So I married
an axe
murderer
Hvað er eiginlega að
Charlie Mackenzie?
Hvers vegna er hann
svona hrapallega óhepp-
inn í ástum? Charlie
(Mike Myers) hefur átt í
gífurlegum erfiðleikum
með að finna hina full-
komnu ástkonu, en svo
ætlar hann að giftast
Harriet (Nancy Travis).
Hvað ætli sé skelfileg-
asta leyndarmál hennar?
Gæti hún til dæmis verið
axarmorðingi. I stað
þess að óttast að lenda í
hnappheldunni ævilangt,
óttast Charlie nú að
verða hakkaður í spað.
Benny &
Joon
Ef þú hefur kunnað að
meta Edda klippikrumlu,
þá eru Benny og Joon að
þínu skapi...
Þrír af hæfileikaríkustu
og vinsælustu leikurunum
af yngri kynslóðinni leika
aðalhlutverkin, Johnny
Depp („Eddi klippi-
krumla)", Mary Stuart
Masterson („Steiktir
grænir tómatar") og Aidan
Quinn („Desperately
Seeking Susan“).
Kúnstug og „rörende“
rómantísk kómedía. „Sui-
table only for persons of
15 years and over...“
IR
VÍDEÓ
S
4299
Opið alla daga
frá 16 til 19
og 20 tll 23:30. )