Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Síða 7
VESTFIRSKA
Fimmtudagur 28. apríl 1994
| FBFTTABLAÐIÐ
KFÍ á raunhæfa möguleika á sigri í úrslitakeppni 2. deildar um helgina:
Keppt í nýja íþróttahúsinu
á ísafirði um veglegan
íslandsbikar
- viöurkenning frá KKÍ fyrir vel unnin störf í körfunni á ísafirði í vetur,
segir Halldór Sveinbjörnsson
- sterkur bandarískur leikmaður kominn til liðs við ísfirðinga
Leikmenn Isfirðinga
4. Magnús Gíslason, 170 cm
5. Egill Fjeldsted, 190 cm
6. Gunnar M. Jónsson, 181 cm
7. Róbert D. Jónsson, 180 cm
8. Unnar Hermannsson, 200 cm
9. Finnur Þórðarson, 185 cm
10. Sæþór Harðarson, 182 cm
11. Jón A. Sigurþórsson, 184 cm
12. Halldór Sveinbjörnsson, 193 cm
13. Jóhannes B. Guðmundsson, 192 cm
14. Sean Gibson, 202 cm
15. Geir Þorsteinsson, 193 cm
16. Shiran Þórisson, 171 cm
17. Ómar Ómarsson, 170 cm
Þjálfari: Geir Þorsteinsson
Liðsstjóri: Guðjón M. Þorsteinsson
Formaður KFÍ: Jón Kristmannsson
„Með þeirri ákvörðun sinni
að halda þessa úrslitakeppni
hér á Isafirði en ekki á Reykja-
víkursvæðinu er Körfuknatt-
leikssamband íslands (KKI) að
veita okkur viðurkenningu fyrir
vel unnin störf í körfunni á Isa-
firði í vetur“, segir Halldór
Sveinbjörnsson, einn af mátt-
arstólpunum í Körfuboltafélagi
ísafjarðar, en úrslitakeppnin í
2. deildinni verður haldin í í-
þróttahúsinu á ísafirði núna um
helgina og hefst annað kvöld,
föstudagskvöld. Að sögn þeirra
sem til þekkja á KFÍ raunhæfa
og mjög góða möguleika á
sigri, en það byggist eins og
alltaf í körfunni mjög mikið á
stuðningi og hvatningu áhorf-
enda. Sigrinum í þessari úr-
slitakeppni fylgir Islandsmeist-
aratitillinn í annarri deild ásamt
stórum og veglegum bikar, sem
mundi sóma sér vel í hinu nýja
og glæsilega íþróttahísi á ísa-
firði.
KFÍ hefur fengið til liðs við
sig tímabundið bandarískan
leikmann, Sean Gibson. „Þetta
er mjög sterkur leikmaður.
Hann er 2,02 á hæð og sá lang-
sterkasti sem hingað hefur
komið“, sagði Halldór. „Við
höfum æft á hverjum einasta
degi að undanförnu og ætlum
að berjast til þrautar. Við vilj-
um hvetja allt áhugafólk um
körfubolta á Isafirði og í nær-
liggjandi byggðarlögum að
fjölmenna í húsið um helgina
og styðja okkur."
Sjö lið taka þátt í úrslita-
keppninni. Atta lið höfðu unnið
sér rétt til þátttöku, en eitt féll
út. Til stóð að nokkrir leikir
yrðu leiknir í Bolungarvík, en
vegna þess að liðin urðu aðeins
sjö og leikjunum fækkaði því
um þrjá gerðist þess ekki þörf.
A laugardaginn (30. apríl)
leikur KFI tvo leiki, gegn Sel-
fyssingum kl. 10.00 og gegn
Laugamönnum í Þingeyjar-
sýslu kl. 13.00. Önnur lið í úr-
slitakeppninni eru frá Þorláks-
höfn, Hafnarfirði, Borgarfirði
og Sauðárkróki.
A sunnudaginn (1. maí)
verður leikið um 5.-6. sæti kl.
10.30, um 3.-4. sæti kl. 12.00
og um Islandsmeistaratitil ann-
arrar deildar og tilheyrandi
bikarkl. 14.00.
Nú er að fjölmenna í nýja í-
þróttahúsið, hvetja sína menn
og koma upp ekta körfubolta-
úrslitastemmningu á Isafirði
um helgina!
7
Hnífsdælingahá-
tíð í Mosfellsbæ
Nú er komið að því að brottfluttir og núverandi Hnífs-
dælingar ætla að hittast. I hvert sinn sem brottfluttir hittast,
er það oftast við jarðarfarir. Þá eru rifjaðir upp gömlu góðu
dagarnir í Hnífsdal og alltaf er talað um það hve gaman væri
að hóa þessu fólki saman.
Nú erum við hætt að tala bara um þetta og ætlum að láta
verkin tala. Harðsnúinn hópur brottfluttra Hnífsdælinga
hefur komið saman og hefur ákveðið að skipuleggja hátíð-
ina. Verður hún haldin föstudaginn 6. mal nk. í Hlégarði í
Mosfellsbæ og hefst með borðhaldi kl. 20.00. Húsið verður
opnað kl. 19.30. Veislustjóri verður Kristján Rálsson. Allar
tegundir veitinga verða í húsinu.
Allir Hnífsdælingr eru hvattir til að mæta með maka sfna
og hvetja jafnframt börnin sín og maka þeirra, eldri en 16
ára, að mæta á þessa einstæðu hátíð í tilefni af ári fjöl-
skyldunnar. Aðgöngumiðar verða seldir laugardaginn 30.
apríl kl. 14.00-18.00 í Húsi og lögnum, Réttarhálsi 2 í
Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar fást hjá eftirtöldum: Ingigerði
Friðriksdóttur í síma 91-667096, Óla Hermannssyni í síma
91- 666500, Maríu Friðriksdóttur í síma 91-667409, Gísla
Hermannssyni I síma 91-75390, Jóhönnu Jóakimsdóttur I
síma 91- 884941 og Hilmari Sölvasyni í símum 92-12341
og 92-15566. Fólk er vinsamlegast beðið að tilkynna þátt-
töku sem fyrst.
Hópurinn.
ISAFJARÐARLEIÐ,
VÖRUFLUTNINGAR
Aðalstræti 7 • ísafirði
S 94-4107
//
© 985-31830
© 985-25342
^5
I
Helgarskákmót á Suðureyri í Súgandafirði um aðra helgi:
Teflir Karpov
Suðureyri?
- viðræður við heimsmeistarann standa yfir
Á 44. helgarskákmóti
Tímaritsins Skákar (Jóhanns
Þóris Jónssonar) sem haldið
verður á Suðureyri um aðra
helgi (6.-8. maí) má vænta
mikillar þátttöku íslenskra
skákmeistara og verða þar á
meðal einhverjir af stór-
meisturunum. í gær var rætt
við Anatoly Kaipov heims-
meistara í skák um möguleika
á því að hann komi til Suður-
eyrar og taki þátt í mótinu.
Karpov er að athuga málið og
niðurstöðu að vænta næstu
daga. Ef af þessu verður
munu enn fleiri af allra sterk-
ustu skákmönnum landsins
(og jafnvel einhverjir fleiri
erlendir skákmeistarar) taka
þátt í mótinu.
Að sögn Jóhanns Þóris
Jónssonar skákfrömuðar hef-
ur lengi staðið til að halda
helgarskákmót á Suðureyri.
Tefldar verða ellefu umferðir,
þar af þrjár á föstudeginum 6.
maí, fimm á laugardeginum og
þrjár á sunnudeginum. Mótinu
lýkur með sameiginlegu borð-
haldi á sunnudagskvöldið. Af
hálfu heimamanna munu þeir
Sigurður Ólafsson skipstjóri og
skákmaður og Halldór K. Her-
mannsson sveitarstjóri hafa
helst unnið að undirbúningi
mótshaldsins, einnig Óðinn
Gestsson, Sveinbjörn Jónsson
og Siggi Dan.
Mótið verður með atskáka-
sniði, þ.e. umhugsunartími er
hálftími á mann. Öllum er vel-
komið að taka þátt í mótinu.
Hvatt er til þess að sem allra
flestir Vestfirðingar komi og
tefli, ungir jafnt sem gamlir,
sterkir og lítið sterkir, enda er
tilgangur helgarmótanna sem
Jóhann Þórir hefur staðið fyrir
um land allt með þátttöku
sterkustu skákmeistara landsins
einmitt að glæða skáklífið
heima fyrir ásamt því að koma
svolitlu skemmtilegu róti á til-
veruna.
Karpov er um þessar mundir
í feiknagóðu formi og betra en
nokkru sinni fyrr. Á stórmeist-
aramótinu í Linares seinnipart-
inn í vetur sigraði hann með
meiri yfirburðum en dæmi eru
um í sögunni á svo sterku móti.
Má segja um Karpov nú líkt og
hausinn á Agli Skallagrímssyni
forðum, að hann muni eigi
auðskaddaður fyrir höggum
smámennis.