Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Side 8

Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Side 8
8 Fimmtudagur 28. apríl 1994 w ŒSTFIRSKi U 1 FRÉTTABLAÐIÐ I Listi Sjálfstæðis- flokksins í Bolungarvík Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík til bæjarstjórnarkosninganna 28. maí er þannig skipað- ur: 1. Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri. 2. Ásgeir Þór Jónsson, verslunarstjóri. 3. Örn Jóhannsson, verkstjóri. 4. Ágúst Oddsson, héraðslæknir. 5. Anna G. Edvardsdóttir, kennari. 6. Gunnar Hallsson, kaupmaður. 7. Jón S. Ásgeirsson, verkstjóri. 8. Signý Þorkelsdóttir, verkstjóri. 9. Jósteinn Bachmann, aðalbókari. 10. Magnús Hávarðarson, veitingamaður. 11. Þóra Haljsdóttir, skrifstofumaður. 12. Kristján Ágústsson, bifreiðastjóri. 13. Sigurður B. Hjartarson, útgerðarmaður. 14. Hildur Einarsdóttir, húsmóðir. Framboðslisti al- mennra borgara á Hólmavík Framboðslisti almennra borgara á Hólmavík, H- listinn, er kominn fram, en sveitarstjórnarkosningar fara fram 28. maí. Listann skipar eftirtalið fólk: 1. Jón Ólafsson kennari. 2. María Guðbrandsdóttir leiðbeinandi. 3. Rósmundur Númason sjómaður. 4. Jónína Gunnarsdóttir húsmóðir. 5. Björgvin Gestsson sjómaður. 6. Helgi S. Ólafsson formaður Verkalýðs- og sjó mannafélags Hólmavíkur. 7. Eysteinn Gunnarsson línumaður. 8. Jóhanna B. Ragnarsdóttir húsmóðir. 9. Birgir Hafsteinn Rétursson, sjómaður. 10. Aðalheiður Steinsdóttir verkakona. Fimm fulltrúar sitja í hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps og í sveitarstjórnarkosningunum 1990 komu fram tveir listar, listi almennra borgara og listi sjálfstæðis- og framsóknarmanna. Almennir borgarar hlutu 72 at- kvæði og einn mann kjörinn og listi framsóknar- og sjálfstæðismanna hlaut 160 atkvæði og fjóra fulltrúa. H-listann vantaði þá aðeins 8 atkvæði til að fá tvo menn kjörna og að fella fjórða mann andstæðinganna. -GHj. Frakkur skrifar um sambúðarmál: Var svindlað fyrir Héraðsdómi? Til þess að verða frægur þarf einhvern til að ófrægja mann, og því nteira sem maður er níddurniður, því frægari verður maður. Eitthvað á þessum nót- um voru ummæli sem Frakkur heyrði Guðberg Bergsson við- hafa í sjónvarpsþætti fyrir nokkru. Þessi ummæli komu upp í hugann við lestur á grein í Mogganum 17. apríl sl. þar sem kona ein á ísafirði rekur sambúðarsögu sína og ekki síður sögu sambúðarslitanna. Konan kemur fram undir nafni, og þó hún nefni ekki í greininni nafn sambýlismanns síns, er mjög auðvelt í því upplýsinga- þjóðfélagi sem við lifum í að nálgast slíkar upplýsingar, þó svo að kunnugir menn á svæð- inu viti sjálfsagt strax við hvern er átt. Konan rekur í sögu sinni hvernig fundum þeirra bar fyrst saman, hvernig sambúðin fór af stað og þróaðist upp í jafngildi hjónabands að hennar rnati og svo loks hvernig upp úr sam- búðinni slitnaði eftir 23 ár. Síðan eru raktir erfiðleikar konunnar við að ná fram eignaskiptum og er nokkuð víst að slík mál eru miserfið eins og þau eru mörg. Um það efast enginn. I lok greinarinnar prísar konan sig sæla fyrir að hafa átt því láni að fagna að hafa nokkurn stokk af Kvennalista- konum á Isafirði á bak við sig, ásamt góðum lögmanni í sinni píslarvottsgöngu í sambúðar- slitamálinu. Frakkur velti því fyrir sér eftir lestur greinarinnar hvort markmið konunnar með sögu sinni væri að þjappa þjóðinni saman að baki sér í málinu, gegn þeim manni sem hún bjó með í öll þessi ár og ekki hefur nú verið við eina fjölina felldur ef ykkar einlægum er ekki farið að förlast við að lesa hálf- kveðnar vísur, því ekki verður annað séð en maðurinn hafi sótt sér hjásvæfu austur fyrir járn- tjald strax eftir að það féll. Og til að bæta gráu ofan á svart er látið í veðri vaka að hann hafi stolið undan skiptum einhverj- um ótilgreindum prósentum eignanna. Já, það þarf einhvern til að níða mann niður, sagði skáldið. Það voru hugtök eins og möndl við kerfið og svindl sent eftir stóðu í huga Frakks eftir lestur greinarinnar í Moggan- um. Konan upplýsir nefnilega mjög skýrt að hún hafi átt lög- heimili við Breiðafjörð í meira en áratug eftir að hún segist hafa tekið upp sambúð við manninn sem átti lögheimili langt frá Breiðafirði; skýringin er að hennar sögn sú að þau voru í sameiningu að svindla á kerfinu. Greiðslur barnabóta miðuðust við að konan væri einstæð móðir og auk þess með börn undir 7 ára aldri að hluta til á tímabilinu, sem aftur gáfu hærri greiðslur. Konan segist hafa flutt lögheimili sitt til mannsins og skráð sambúð eftir að hann tók við starfi oddvita í sinni heimabyggð 1982. Hins vegar kemur ekkert fram sem segir óyggjandi hvort svindlinu lauk þar með. Þeirri spurningu er því ó- svarað hvort hið opinbera starf sem maðurinn tók að sér leiddi til þess að ákveðið var að hafa nú heiðarleika í öndvegi, eða hvort þau hafi verið búin að finna aðra leið til að svindla á kerfinu sem gaf meira í aðra hönd í peningalegu tilliti heldur en gamla leiðin að skrá lög- heimili sitt í hvoru Iagi og svindla á barnabótum. I upphafi greinarinnar í Mogganum er þess getið að mál þessa fólks hafð nokkru fyrir jól verið til meðferðar í Hér- aðsdómi Vestfjarða og dómur gengið. Því er sú spurning mjög á- leitin hvort konan hafi sagt sögu sína um svindlið á sama hátt fyrir dómi og í Mogganum. Ef hún hefur gert það, áminnt um sannsögli, væri mikill fróð- leikur í því að vita svarið við eftirfarandi spurningu: Hvernig tók dómari málsins á þessum þætti? Verðum við meðaljónarnir ekki að treysta því, að ef fólk lýsir sig svindlara og að hafa náð fé út úr kerfinu með rang- indum, þá sé því sarna fólki gert skylt að bæta fyrir gerðir sínar? Frakkur sér ekki betur en svindlað hafi verið á sameigin- Iegurn sjóði allra landsmanna. Því stendur upp á konuna og héraðsdómara að segja okkur hinurn hvort þessar upplýsingar lágu inni í málinu og hvað var með þær gert. Væntanlega er dómurinn opinbert skjal. Þá er líka ómaksins vert að velta þvf fyrir sér hvort lög um lögheimili gildi ekki á Vest- fjörðum, og berst þá hugurinn enn að Héraðsdómi. Hvernig tók hann á því máli? Ef dæma má af sögu konunnar fékk hún dóm sér í hag um að hafa búið hjá manninum frá 1969, þó hún færði sjálf ekki lögheimili sitt fyrren 1982 er sambýlingurinn varð oddviti. Þetta þýðir með öðrum orðum, að oddvitinn í þeirri sveit þar sem konan átti lögheimili í við Breiðafjörð, oddviti heimasveitar sambýl- ingsins fyrir 1982, svo og for- eldrar konunnar, en þar segist hún hafa skráð sig til heimilis, hafa því allir lagst á eitt um að hjálpa til við svindlið. Þetta er það sem konan segir í raun. Þurfum við að kyngja því, að Héraðsdómur dæmi afturvirkt um lögheimilisflutning og verðlauni þannig þá sem lýst hafa sig svindlara á kerfinu? Það þarf ekki að taka það fram, að í Mogganum hefur konan sett fram sína hlið á málinu einhliða. Frakkur skorar á manninn að upplýsa okkur hin um sína hlið á málinu og lofar að kaupa Moggann alla sunnudaga, þar sem ekki verður öðru trúað en víðlesnasta blað landsins gefi honum rúm fyrir sögu sína eftir að hafa birt aðra hlið málsins, sem felur í sér þungar ásakanir um að hafa svindlað á leikregl- um samfélagsins. Frakkur hefur af því spurnir, að nú sé sú kona sem rakti sögu sína í Mogganum kornin í framboð til bæjarstjórnar á ísa- firði fyrir Kvennalistann nú í vor. Frakkur telur það móðgun við kjósendur að einstaklingur sem sjálfur hefur lýst sig svindlara á sameiginlegum sjóði landsmanna bjóði sig fram til trúnaðarstarfa fyrir Is- firðinga. Fyrst þarf allt málið að liggja morgunljóst fyrir. Ykkar einlægur Frakkur. Óli ÍS sokkinn í fimmta sinn í Bolungarvíkurhifn Djúp- vegur slæmur yfir- ferðar Vegfarandi um Djúp- veg hafði samband við blaðið og kvað veginn afar slæman yfirferðar um þessar nmndir og þá sérstaklega utan við Gilseyri í Skötufirði og út að Skarði. Einnig sagði vegfarandinn kafl- ann frá Ögri og inn að Látrum mjög slæman og segja mætti að vegleysa væri frá Bjarnastöðum í Isafirði og inn að vega- mótunum við veginn upp á Eyrarfjall ("Hestakleif). Væri vegurinn holóttur með afbrigðum og ailan of- anfburð vantaði í hann. Óhætt væri hjá Vega- gerðinni að fara að huga að því að taka veghefl- ana úr geymslum og reyna að gera Djúpveg akfæran venjulegum fólksbflum. Sagði veg- farandinn ekki leggjandi á bifreiðar að fara um veginn eins og hann væri nú því hann hristi allar bifreiðar í sundur auk þess sem afar þreytandi væri að aka við slíkar aðstæður. -GHj. ísafjörður: 23 at- vinnu- lausir Á þriðjudaginn voru 23 á atvinnuleysisskrá á Isafirði, samkvæmt upp- lýsingum sem blaðið fékk á bæjarskrifstofun- um. Allt eru þetta karl- menn og er sá elsti fæddur 1936 og sá yngsti 1977. -GHj. - blöðrur sprungu og báturinn heldur áfram sjóferðum í lóðréttu plani Vélbátur Dusanna í Bolung- arvík, Óli IS, sem breyta átti í seglskútu og sigla um heimshöf- in sjö, hefur allan seinni hluta vetar legið sokkinn undir flot- bryggjunni í Bolungarvíkurhöfn (bryggjan flaut en báturinn ekki, öfugt við það sem algengast er). Áður hafði báturinn sokkið víðs vegar um höfnina a.m.k. þrisvar og var þetta fjórða skiptið. Und- anfarið hafa staðið yfir miklar björgunaraðgerðir til að lyfta Óla af hafsbotni með því að fylla hann af blöðrum og blása síðan í þær lofti og þá átti báturinn að lyftast. Oftast rifnuðu blöðrunar og Óli lagðist rólega á botninn aftur. I síðustu viku lyftist Óli svo, en ekki nægjanlega til þess að hann flyti vel. Var hann síðan dreginn frá flotbryggjunni áleið- is í naust en svo illa tókst til að enn sprungu blöðrur og hann sökk í fimmta sinn, um 30 metra frá flotbryggjunni. Þar sem Óli vill frekar verða kafbátur en skúta, eins og oft hefur verið bent á hér í blaðinu, ættu Dusarnir að láta það eftir honum. Best væri að þeir sökktu honunt utan hafnarinnar næst. Vestfirska fréttablaðið mun hér eftir sem hingað til greina frá sjóferðum Óla, en ólíkt flestum öðrum skipum eru þær allar í lóðréttu plani en ekki láréttu. -GHj./h.þór Óli ÍS á nýja hvíldarstaðnum í Bolungarvíkurhöfn. P0KI Verkstjórnin ætti að verða í góðu lagi hjó íhaldinu í Víkinni...

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.