Feykir - 25.05.1983, Side 8
Miðvikudagur 25. maí 1983
'Feykir
11. tölublað, 3. árgangur.
Fjölbreytt
Húnavaka
komin út
í 23. sinn
Húnavaka, ársrit Ungmenna-
sambands Austur-Húnvetninga er
nýkomið út. M.a. er í ritinu grein
um Svínvetningabrautafélagið, við-
tal við Kristínu Pálmadóttur frá
Hnausum, sem nú er 90 ára og
man tímana tvenna, þáttur um
Kirkjubæjarhjónin Halldóru Ein-
arsdóttur og Jón Jónsson eftir
Magnús Björnsson, Syðra-Hóli,
og fjölmargt fleira mætti telja.
Húnavaka hefur komið út ár-
lega í 23 ár. Þar hefur verið birt
efni eftir 285 höfunda. Mest af
þessu efni (215 þættir)hafa verið
tengdir þjóðlegum fróðleik og
sögu héraðsins á einn eða annan
hátt. Þá hafa birst 57 viðtöl, um
50 smásögur, nær 40 erindi eða
ræður, 35 ferðasögur, 146 Ijóð
og um 450 vísur.
Frá því árið 1965 hafa verið
birt stutt æviágrip allra þeirra er
látist hafa í héraðinu á ári hverju
og eru þetta orðin nær 300
æviágrip og auk þess 45 minn-
ingargreinar með mynd þar sem
æviferill manna hefur verið
rakinn nokkru ítarlegar. Á
hverju ári hefur birst annáll
frétta úr héraðinu í máli og
myndum. Lesmál þessara 23ja
árganga er 4283 blaðsíður.
Af þessu er ljóst að í Húna-
vöku er saman kominn mikill
fróðleikur og heimildir um
héraðið að fornu og nýju og þá
er það byggja. Marga þætti í
sögu héraðsins síðustu tuttugu
árin má rekja í fréttaþætti
ritsins.
Fyrstu árgangar Húnavöku
voru prentaðir í litlu upplagi og
seldust fljótt upp. Nú hafa sjö
fyrstu árgangarnir verið endur-
prentaðir og stefnt er að því að
endurprenta næstu þrjá árganga
á næstu árum, en frumútgáfan
áf þeim er nú uppseld.
Um þessar mundir gefst fólki
kostur á að kaupa þá 20 árganga
sem til eru á sérstöku tilboðs-
verði, sem er 1.360 kr. fyrir alla
árgangana, en þetta tilboð gildir
mjög stuttan tíma, enda eru
sumir árgangar ritsins alveg að
þrotum komnir.
Þeim sem vilja nota sér þetta
tilboð er bent á að hafa samband
við Gísla J. Grímsson Efri
Mýrum, 541 Blönduós.
Ritstjóri Húnavöku er Stefán
Á. Jónsson á Kagaðarhóli, en
ritið er prentað hjá Prentverki
Odds Björnssonar hf. á Akureyri.
Hækkun
Frá 1. júnf kostar mánaðar-
áskrlft á Feyki kr. 46,00 og í
lausasölu kr. 25,00.
Grundvaliarverð auglýsinga
hækkar frá og með sama tima
I kr. 85,00 pr. dálksentimetra.
Auglýslngar á föstu verði
hækka um 15%.
Fjölbreytt tónlistarhátíð og sýrúng á heimalist í Varmahlíð um nœstu helgi
Er kerlingín á næsta bæ kannski listamaður?
Um næstu helgi verður mikið
um að vera í Varmahlíð. Haldin
verður Heimalistar-sýning og
Vordagar í Varmahlíð verða á
vegum Tónlistarfélags Skaga-
fjarðarsýslu.
Helga Þorsteinsdóttir hefur
haft veg og vanda að Heimalist-
ar-sýningunni, en þetta er annað
árið sem slík sýning er sett upp.
Að sögn Helgu eru margir í
sveitum, sérstaklega konur, sem
vinna ýmsa fallega muni sem
fáir hafa fengið að njóta fram að
þessu. Mjög mikið námskeiða-
hald hefur verið í fram-Skaga-
firði undanfarna vetur, „og mér
fannst alveg tilvalið að safna
Hajhargarður á Hvammstanga
hálfónýtur efár eim vetur
Hafnargarðurinn sem reistur
var s.l. sumar á Hvammstanga
er mjög illafarinneftirveturinn,'
og verði ekkert að gert á
næstunni er óhætt að fullyrða að
hann sé ónýtur.
Efni í hafnargarðinn vartekið
á tveimur stöðum, úr ásnum
ofan við þorpið og einnig hjá
Uppsölum í A-Hún. Allt grjótið
sem tekið var ofan við þorpið er
orðið að fíngerðum salla, það
þoldi ekki veðrið sem var í vetur.
Hins vegar virðist veðrunarþol
efnisins frá Uppsölum vera all
miklu meira, a.m.k. sér ekki á
því. Það kemur mönnum nokk-
uð undarlega fyrir sjónir að
efnið skuli sallast svona niður
vegna þess að annar hafnargarð-
ur sem staðið hefur nokkur ár er
úr grjóti sem tekið er nákvæm-
lega á sama stað og ekki sér á
þeim garði. Eina skýringin sem
fundist hefur er að það grjót var
utar í námunni. Þetta tjón er
vitanlega mikið í peningum
mælt og verður að skrifa það á
reikning Vita- og hafnamála-
stofnunar. Veðrunarþol efnisins
var ekkert athugað áður en það
var sett í höfnina.
Nú er verið að athuga hvort
ekki fáist peningar íendurbætur
á hafnargarðinum, fáist þeir
ekki er ljóst að hann eyðileggst
algjörlega. H.K.
Færeysk sýning á
Hvammstanga
Norræna félagið í V-Hún stend-
ur nú fyrir sýningu á verkum
færeyska listamannsins Amaríel
Norðoy. Sýndareru bæði pastel-
myndir og litógraflur. Sýningin
er í Héraðsbókasafninu, Höfða-
braut 6, Hvammstanga. Hún er
opin á sama tíma og bókasafnið,
á mánudögum og miðvikudög-
um frá kl. 17-19 og á laugar-
dögum frá kl. 13-15. Sýningin
stendur til 4. júní. H.K.
Aldraðir hittast á Blönduósi
Félag aldraðra á Sauðárkróki
þáði heimboð aldraðra á Blöndu
ósi nýlega og endurgalt þannig
heimsókn aldraðra Blönduós-
inga til Sauðárkróks s.l. haust.
Á góðri samkomu í félags-
heimilinu á Blönduósi fluttu
ræður þeir Sigurður Þorbjarnar-
son á Geitaskarði og klerkarnir
séra Árni Sigurðsson á Blöndu-
ósi og séra Hjálmar Jónsson á
Sauðárkróki. Félagar úr Lions-
klúbbi Blönduós sáu um veit-
ingar og sungu. Þá spilaði
Harmonikuklúbbur Blönduós
fyrir dansi.
Það er Ingunn Gísladóttir frá
Hofi í Vatnsdal sem sér um starf
aldraðra á Blönduósi.
Heilbrigðisfvilltrúi Sauðárkróks
skorar á bæjarbúa að hreinsa
til í kring um sig strax!
Þó kalt hafi verið að undanförnu
þá er þó ljóst að vorið er komið,
snjórinn er alla vega farinn af
láglendinu og þá kemur í ljós
alls kyns rusl sem hefur safnast
saman í vetur. Plastpokar, bréfa
rusl og annar óþverri fýkur um
og festist á girðingum og runn-
um.
Viktoría Gestsdóttir heilbrigð
isfulltrúi á Sauðárkróki bað
blaðið að koma þeirri áskorun á
framfæri við Sauðárkróksbúa að
taka nú ærlega til hendinni og
þrífa bæinn, þannig að við
þurfum ekki að skammast okk-
ar fyrir hann í allt sumar. Ef allir
taka til fyrir sínum dyrum þá er
málið leyst að mestu. Viktoría
skorar ennfremur á klúbba
bæjarins að láta nú til sína taka
og hún bendir t.d. á gott
verkefni sem er að hreinsa
fjöruna helst alveg austur að
Vatnabrú. Þá bendir hún hesta-
mönnum á að laga til í kring um
hesthús, golfurum að þrífa golf-
völl og nágrenni og fjáreigendur
mættu gjarnan tína upp rusl á
túnum sínum uppi á Nöfum og
ef eitthvert rusl er við fjárhús
þeirra að fjarlægja það strax.
Fleira mætti nefna, en best er að
hver og einn líti í eigin barm og
geri viðeigandi ráðstafanir.
Mjög mikil aðsókn í sumardvöl
aldraðra á
Á undanförnum árum hefur
Þjóðkirkjan staðið fyrir sumar-
dvöl aldraðra á Löngumýri í
Skagafirði. Þessu starfi hefur
Margrét K. Jónsdóttir stjórnað.
Þessi starfsemi hefur vaxið
með árunum og orðið mjög
vinsæl. Ekki hefur verið hægt að
anna eftirspurn. Fáir í Skaga-
firði og Húnaþingi hafa notað
Löngumýri
sér þessa aðstöðu, en nú hafa
Skagfirðingar og Húnvetningar
forgang í dvalarhóp dagana 13.-
24. júní. Ákveðið hefur verið
að Skagaljarðardeild Rauða
krossins styrki þá Skagfirðinga
sem dveljast á Löngumýri, en í
fyrra kom sambærilegur styrkur
frá Menningarsjóði Sparisjóðs
Sauðárkróks.
mununum á einn stað eftir
vetrarvertíðina og hafa þá til
sýnis,” sagði Helga, en hún
hefur sjálf staðið fyrir sumum
þessara námskeiða, eins og t.d. í
flosi. Einnig hafa verið haldin
vefnaðarnámskeið, útskurðar-
námskeið, málaranámskeið og
fleiri. Og til að kóróna listastarf-
semina í Skagafirði hefur verið
komið á fót galleríi í Varmahlíð,
þar sem listafólkið getur bæði
haft vinnuaðstöðu og einnigselt
gripi sína.
„Okkur langar til að auka við
Heimalistarsýninguna ogégskora
á þá sem eiga fallega muni, sem
þeir hafa sjálfir búið til, að koma
þeim til okkar. Þá verðum við
með „aukanúmer” þarna sem
eru prjónaðir kjólar.”
I fyrra var mikið spurt hvort
hægt væri að kaupa gripi, sem
ekki var, en núna verða einnig
gripir til sölu.
„Jú, það var spáð illa fyrir
þessu í fyrra. Konurnar komu
með hálfum huga með handa-
vinnuna sína, en þó tókst þetta
vel og ég á von á að enn betur
takist núna, þegar við erum
komin í samflot við Tónlistar-
félagið sem verður þarna með
sína svokölluðu Vordaga.
„Allir þekkja fræga lista-
menn, en vita e.t.v. ekki að
kerlingin á næsta bæ er einnig
listamaður,” sagði Helga gal-
vösk.
Heiðmar Jónsson sem er í
forsvari fyrirTónlistarfélagSkaga-
fjarðarsýslu sagði í samtali við
Feyki að dagskrá daganna yrði
mjög fjölbreytt og vönduð. Á
laugardaginn verður Barnakór
Tónskóla Rangæinga með söng-
dagskrá, en einnig leikþætti og
ýmislegt létt gaman. Um kvöld-
ið koma tékknesku hjónin á
Sleitustöðum, Jirí Hlavacék og
Stanislava Hlavácova, og halda
tékknéskt kvöld með tónlist,
upplestri og myndasýningum. Á
sunnudaginn verður flutt nor-
ræn tónlist af Tove Linge
söngkonu. Hún verður einnig
með tónleika á Hofsósi á
föstudaginn kemur.
Skýrsla byggingafulltrúans á Norðurlandi
vestra fyrir árið 1982
Lagfæringar á gömlum íbúðar-
húsum færast í vöxt
Ingvar Gýgjar Jónsson, bygg-
ingafulltrúi Norðurlandsumdæm-
is vestra hefur skilað skýrslu um
byggingar í smíðum á svæði
hans. Skýrslan tekur til allra
staða í Strandasýslu, Húna-
vatnssýslum og Skagafjarðar-
sýslu, nema löggiltra verslunar-
staða og gildir fyrir árið 1982.
I töflunni hér að neðan eru
teknar helstu tölur úr skýrslu
Ingvars og kemur þar margt
fróðlegt í ljós. T.d. má sjá að
rúmmál nýrra íbúðarhúsa er
álíka mikið og áburðarhúsa, eða
haughúsa. Hafa sumir talað um
haughallir í þessu sambandi, en í
stuttu spjalli við Ingvar Gýgjar
sagði hann að litlu munaði í
kostnaði þó haughúsin væru
höfð aðeins hærri en tíðkast
hefði, en það breytir því, að þá
væru húsin vélfær.
Það vekur athygli að enginn
þurrheyshlaða er í byggingu í
Strandasýslu, enda verka Stranda-
menn allt sitt hey í vothey og eru
brautryðjendur í slíkri verkun.
Ingvar upplýsti ennfremur að
nú færi mjög í vöxt að gert væri
við gömul hús, sérstaklega með
Stranda- Vcstur- Austur Skagafj.-
sýsla Hún. Hún. sýsla
Fjöldi bvfifiinea 38 89 73 187 387
búðarhús, endurbyggð . 1 3 5 24 33
búðarhús, ný 11 9 20 44 84
búðarh.nýb. m.2 1326 1282 2177 5577 10362
búðarhús ný, m3 5617 5430 8598 20870 40515
Geymsluh. m2 2637 1161 988 3148 7934
Þurrheyshlöður m3 6468 2873 6809 16150
Votheyshlöður m3 6679 14319 1570 6682 29250
Fjós, mjólkurh.m2 63 727 786 1731 3307
Fjárhús m2 795 6183 1979 3708 12665
Hesthús m2 98 132 586 816
Áburðarhús m3 1553 20734 5408 11994 39689
Loðdýrahús m2 729 536 2946 4211
Fiskeldisstöð m2 1022 1022
Skólahús m3 2030 2030
Graskögglaverksm. m3 . 13008 13008
Hænsnahús m2 182 143 325
Gróðurhús m2 267 267
Aðst.hús v.sundl. m3 ... 105 105
Sundlaug m2 133 133
Sumarhús m2 115 44 90 249
Þjónustuhús m2 889 889
Tækjahús Landssíma m2 6 18 6 30
Félagsheimili m3 1123 1123
Svínahús m2 423 423
Veiðihús m2 36 36
Byggðasafn m2 172 172
Ingvar Gýgjar Jónsson.
tilliti til einangrunar, en áður
fyrr hefði það þótt sjálfsagður
hlutur að hús í sveit þyrftu ekki
að vera eins vönduð og hús í
bæjum. Húsnæðisstofnun veitir
sérstök lán til endurbóta af
þessu tagi, aftur á móti lánar
stofnlánadeild landbúnaðarins
til rekstrarbygginga.
Eins og sjá má er aðeins eitt
félagsheimili í smíðum á svæð-
inu og er það á Skaga.
Að sögn Ingvars eru bygg-
ingarframkvæmdir á svæði hans
álíka miklar og undanfarin ár.