Feykir - 15.08.1984, Qupperneq 1
— fyrir Norðurland vestra —
16/1984
Rækjuvinnslan á Sauðárkróki getur ekki selt framleiðsluna
Stöðvun blasir við
Nýr bátur
Tveir ungir menn á Hvamms-
tanga, Ómar Karlsson og Birgir
Jóhannesson, kcyptu nýlega 20
lesta bát frá Húsavík. Ætla þeir
að gera út á rækju.
r
I drengjalandsliðinu
Tveir ungir piltar á Sauðár-
króki eru nú í drengjaiandslið-
inu í körfubolta. Þeir heita
Haraldur Leifsson og Eyjólfur
Sverrisson. Drengjalandsliðið
er skipað piltum á aldrinum 14-
16 ára og eiga þeir tvímenning-
ar áreiðanlega eftir að styrkja
þann hóp.
r
I kvennalandsliðinu
Vanda Sigurgeirsdóttir leikur
nú mcð kvennalandsliðinu í
knattspyrnu við góðan orðstír. í
leik fyrir stuttu við bandaríska
landsliðið skoraði Vanda úr-
slitamarkið. Þeir gera það því
ekki cndaslcppt íþróttamenn-
irnir frá Sauðárkróki.
Þjófabjallan gerði at..
Aðvörunarkerfi áfengisútsölunn-
ar á Sauðárkróki fór í gang án
nokkurrar sýnilegrar ástæðu
sncmma nætur í síðustu viku. En
þó þjófurinn væri enginn i þetta
skiptið var þetta hin ágætasta
aðvörun til þeirra sem kunna að
hafa rennt hýru auga til búðar-
innar utan verslunartíma, þar
scm nú er Ijóst að hálfur bærinn
mun hrökkva upp með andfæl-
um gerist einhver of aðgangs-
harður við vígi ATVR að
næturlagi.
Líklcgasta skýringin á gang-
sctningu aðvörunarkerfisins,
fyrir utan bilun, er að feit fluga
hafi sest á Ijósselluna og þar
með brotið geislann og sett allt í
gang. Flugan gengur enn laus.
Verðkönnun
Verðlagsstofnun gerði fyrr í
sumar verðkönnun í söluskál-
um. Á Norðurlandi vestra komu
best út útibú Kaupfélags Skag-
firðinga í Varmahlíð, Söluskál-
inn á Hvammstanga og Ábær á
Sauðárkróki. Voru meðal tíu
lægstu á öllu Norðurlandi.
Bláfcll á Sauðárkróki lendir i
miðju. Meðal átta dýrustu
staðanna eru Esso-skálinn á
Blönduósi, Esso-skálinn á Hofs-
ósi, Staðarskáli í Hrútafirði,
Brú í Hrútafirði og útibú KS í
Ketilási. Tveir þeir siðasttölu
eru jafnfram þeir dýrustu á öllu
Norðurlandi og ntunar t.d.
97,50 kr. á samanlögðu verði tiu
vörutcgunda eftir því hvort þær
eru keyptar í Varmahlíð eða
Ketilási. Það borgar sig sýni-
lega að birgja sig vel upp í
Varmahlíð áður en haldið er útí
Fljót.
Eins og flestum mun kunnugt af
fréttum Qölmiðla undanfarinna vikna
hafa vinnslustöðvar á rækju átt við
margvíslega erfiðleika að etja. Sölu-
tregða, verðfall, birgðasöfnun og
erfiðleikar við veiðar vegna hafíss
hafa öll átt sinn þátt i því að rekstur
Útgerð hins nýja skips Hvamms-
tangabúa, Sigurðar Pálmasonar
hefur gengið mjög illa fram undir
þetta vegna bilana og óhappa,en nú
er vonast til þess að báturinn sé að
komast í gott lag og að eftir miklar
viðgerðir séu menn komnir með
betra skip í hendur en áður.
Sigurður Pálmason er 280 lestir
að stærð og var báturinn keyptur
frá Neskaupstað. Hann kom til
Hvammstanga í lok apríl og var
strax í upphafi settur i rækilega
yfirferð, en síðan var haldið til
veiða í júní. Vélarbilanir voru þá
sífellt að angra skipverja og loks
kom að því að báturinn lenti í ís
vegna vélarbilunar út af Vest-
ýmissa vinnslustöðva stendur nú
mjög völtum fótum, og í sumum
tilvikum virðist einungis tíma-
spursmál hvenær stöðvarnar loka ef
ekki rætist eitthvað úr.
Blaðið hafði samband við Harald
Hákonarson framkvæmdastjóra
fjörðum og skemmdist verulega.
Var hann þá dreginn til ísafjarðar
og var þar í mánaðarviðgerð, en er
nú kominn á sjó á ný. I haust þarf
báturinn síðan að fara í slipp í
mánuð til þess að unnt sé að gera
að fullu við skemmdirnar eftir
isinn.
Að sögn Magnúsar Sigurðssonar
hafa þessar miklu bilanir og tafir
frá veiðum kostað útgerðina mjög
mikið. „Það er Ijóst að kramið í
bátnum var mun lélegra en við
áttum von á þegar við keyptum
hann. En við erum að hugga
okkur við það að eftir þessar
miklu endurbætur séum við komn-
ir með mun betra skip en áður,”
rækjuvinnslunnar Dögunar hf á
Sauðárkróki og spurðist fyrir um
ástandið hjá þeim.
„Það er mjög erfitt. Frá því við
tókum til starfa í byrjun maí höfum
við ekki selt neitt af rækju og eigum
nú birgðir uppá ein 15 tonn. Að vísu
Söluhorfur
á heyi eru
tvísýnar
Heyfengur á þessu sumri hefur verið
með besta móti hjá öllum þeim
bændum sem blaðið hefur haft
spurnir af. Eru sjálfsagt margir með
það mikil hey að þeir munu hafa
hug á að selja eitthvert magn efhægt
verður í haust. En þarsern framboð-
ið er mikið og eftirspurnin frekar
lítil virðist verð á heyi munu verða
heldur lágt í haust. Gunnar Hólm-
steinsson hjá Búnaðarfélagi íslands
sagði að þrátt fyrir slæma tíð á
Suðurlandi væru bændur þar með
nokkuð mikil hey og ef þeim tækist
að koma þeim undir þak væri
ólíklegt að þeir þyrftu að kaupa
mikil hey. Framleiðslukostnaður
við hvert tonn af þurru heyi er
áætlaður um 4 krónur og 20 aurar í
sumar en verðið mun vera enn lægra
eða innan við 4 krónur. Gunnar
sagði að enn sem komið væri hefði
hann ekki orðið var við neina
eftirspurn eftir heyi og bjóst Itann
við að þeir bændur sem þyrftu hey
snéru sér beint til annara bænda og
kæmi því ekki til kasta Búnaðar-
félagsins í þeim kaupum.
„Það er helst að ef horfir til
virkilegra vandræða um heyfeng ?ð
Búnaðarfélagið kemur til skjalanna
varðandi útvegun á heyi. Sem betur
fer virðist sem svo verði hvergi í
sumar.”
sagði Magnús.
Magnús tjáði Feyki ennfremur
að ákveðið væri að allir bátar
Hvammstangabúa yrðu á rækju
fram í september. Sigurður Pálma-
son sem er langstærstur bátanna
verður áfram á rækju, enda er
ráðgert að gera hann út til þeirra
veiða árið um kring. Hinir bát-
arnir fara á skel með haustinu.
Mjög erfiðlega hefur gengið að
selja rækjuna í sumar. Að sögn
Magnúsar virðist salan þó aðeins
vera að aukast og unnt að losna
við eitthvað af vörunni, þó verðið
sé allt of lágt.
höfum við von um að söluaðili
okkar fyrir sunnan, Sambandið,
muni losa okkur við þessar birgðir á
næstunni en hvort þeir geta svo
aftur selt rækjuna er annað mál.
Vandamáið er einnig það að meðan
við ekki seljum neitt fáum við enga
fyrirgreiðslu svo það er sjálfliætt ef
svona heldur áfram. Við áttum
reyndar von á því þegar við
sömdum við Sambandið að svo stór
aðili myndi reynast traustur bak-
hjarl, en annað hefur komið í Ijós og
mér virðist helst sem ntinni aðilarnir
standi sig betur í sölumálunum.
Verðið á rækjunni er einnig orðið
svo lágt nú að varla er hægt að vinna
rækjuna lengur við þessi skilyrði. Það
var 160 krónur fyrir kílóið í vor og
fyrri partinn í sumar sem varengan
veginn nógu gott, og nú hefur það
fallið enn meira og er komið niður í
u.þ.b. 140 kr. fyrir kílóið.
Hvað varðar tímabundna stöðv-
un á vinnslunni þá eru vissir
erfiðleikar því samfara, við erum á
vissan hátt skuldbundnir bátunum
tveimur sem leggja upp hjá okkur
og ef við létum þá fara gæti reynst
erfitt að útvega aðra báta með
stuttum fyrirvara. Sélitiðá hina hlið
málsins þá er sagan litlu betri,
bátarnir hafa ekki aflað nógu vel
undanfarið, og þá sérstaklega stærri
báturinn, bestu veiðisvæðin hafa
verið undir ís í sumar og hann hefur
orðið að sækja allt norður undir
Kolbeinsey til veiða. En meðan
ekkert selst getur þetta ekki gengið
lengi á hvorn veginn sem er.”
Þetta sagði Haraldur Hákonar-
son hjá Dögun hf á Sauðárkróki og
munu víst fleiri rækjuvinnslur hafa
svipaða sögu að segja.
Nýr skólastjóri
á Blönduósi
næsta haust
Skólanefnd mælir
einróma með Eiríki
Jónssyni til starfans
Skólanefnd Grunnskólans á
Blönduósi hefur einróma mælt
með því að Eiríkur Jónsson verði
settur skólastjóri á Blönduósi, en
sem kunnugt er hefur Björn
Sigurbjörnsson látið þar af störf-
um og flutt til Sauðárkróks.
Eiríkur hefur verið kennari á
Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði.
Hann er af þekktum skólamönn-
um kominn, sonarsonur Þóris
fyrrum skólastjóra í Reykholti.
Eiríkur hefur starfað mikið að
félagsmálum, m.a. verið formaður
UlýlSB.
Feykir bíður Eirik velkominn til
starfa í héraði.