Feykir - 09.01.1985, Blaðsíða 1
— fyrir Norðurland vestra —
FlugvöIIur í bígerð við Hofsós
Líkur eru á að flugvöllur verði
gerður við Hofsós. Undanfarið
hafa verið í gangi athuganir á
gerð sjúkraflugvallar í landi
Grafargerðis, austan þjóðvegar-
ins ofan við Hofsós. Gunnar
Jón Ásbcrgsson Þorbjörn Arnason
Jón Ásbergsson
ráðínn forstjórí
Hagkaupa
r
Þorbjöm Amason
ráðinn forstjóri
hjá Loðslánni hf
Jón Ásbergsson, forstjóri Loð-
skinns h.f. á Sauðárkróki, hefur
verið ráðinn forstjóri Hagkaupa.
Jón sagði í samtali við Feyki
að hann myndi hætta störfum
hjá Loðskinni 1. júní n.k. og
flytja til Reykjavíkur fljótlega
eftir það og taka við nýja
starfinu.
Nýr forstjóri Loðskinns hf.
hefur verið ráðinn Þorbjörn
Árnason, fulltrúi sýslumanns
Skagafjarðarsýslu, og tekur hann
til starfa hjá fyrirtækinu 1. mars
n.k.
Eftirsjá verður að Jóni Ás-
bergssyni úr bænum, en hann
hefur tekið virkan þátt í bæjar-
málum og setið í bæjarstjórn
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann
á einnig sæti í stjórn Feykis hf.
Feykir óskar bæði Þorbirni og
Jóni velfamaðar í nýjum á-
byrgðarmiklum stöðum. —GM
Hvammstangi og
Skagaströnd verða
aðilar að rekstri
Fjölbrautaskólans
Nú er verið að ganga frá
formlegri aðild tveggja sveitar-
félaga á Norðurlandi vestra að
Fjölbrautaskólanum á Sauðár-
króki. Eru það Hvammstanga-
hreppur og Höfðahreppur á
Skagaströnd. Alls verða þá
rekstraraðilar F.á.S. orðnir 9;
allir þéttbýlisstaðirnir í kjör-
dæminu og Hólahreppur, Ríp-
urhreppur og Skarðshreppur.
Baldvinsson, bifreiðastjóri, hefur
haft veg og vanda af því að þessar
athuganir hafa verið gerðar og
fékk hann Olaf Pálsson, verk-
fræðing, til að gera útttekt á
kostnaði við flugvallargerð á
þcssum slóðum.
Ekki náðist í Gunnar til að
hann gæti greint frá hugmynd-
um um flugvöllinn, en Ofeigur
Gestsson, sveitarstjóri á Hofsósi
sagði í samtali við Feyki að
forsagan væri sú að á árunum
1975-80 hefðu verið gerðar kann-
anir á vegum flugmálastjórnar á
möguleikum flugvallargerðar
norðan við Hofsós. Síðan hefði
það legið í láginni til 1982, að
Ofeigur spurðist fyrir um þetta
og benti á nauðsyn sjúkraflug-
vallar með tilliti til stærðar
byggðarlagsins og þess að vegur-
inn milli Hofsóss og Sauðár-
króks er einungis mokaður
tvisvar í viku að vetrarlagi.
—I þessu bréfi benti ég á að
hér fyrir ofan Hofsós er alla
jafna mjög snjólétt og m.a. í
landi Gunnars Baldvinssonar í
Grafargerði. Síðan var lítið gert í
þessu þar til Gunnar fékk
mikinn áhuga fyrir flugvellinum
og þá kom sú hugmynd til
viðbótar inn í myndina að hér
gæti orðið varaflugvöllur fyrir
Siglufjarðarflugið.
Reykingar bannaðar
Eins og flestum er sjálfsagt orðið
ljóst þá gengu í gildi ný lög um
áramótin varðandi tóbaksreyk-
ingar og meðferð og sölu tóbaks.
Lögin fela í sér að reykingar
eru ekki lengur leyfðar í opin-
berum byggingum og á þeim
stöðum sem almenningur á
aðgang að, s.s. á afgreiðslum
stofnana og fyrirtækja svo og í
verslunum og öðrum slíkum
stöðum. Reykingar í skólum og
á barnaheimilum eru einnig
bannaðar og/eða stórlega tak-
markaðar og sala á tóbaki til
barna og unglinga yngri en 16
ára er bönnuð. Á stórum
vinnustöðum er vandalaust að
banna reykingar eða takmarka
þær og þurfa starfsmenn ekki
annað en samþykkja slíkt sín á
meðal, þá eru lögin í fullu gildi á
þeirra vinnustað.
Feyki þótti viðbúið að ýmsum
brygði við og spurðist fyrir
meðal stórreykingamanna hvort
bannið kæmi illa við þá. Sumir
sögðust alveg hættir að reykja
frá og með áramótum aðrir
segjast ekki munu reykja á
vinnustað, enn aðrir eru farnir
að reykja í laumi og svo eru
einstaka sem hafa heypt sér
„reyklausa” öskubakka og vona
að enginn taki eftir neinu.
Lögreglan hefur vopnast vatns-
byssum og skýtur á hvern þann
sem sést með óþverrann opin-
berlega. Við klykkjum út með
þessari vísu frá Hilmi Jóhannes-
syni sem segist ekki reykja á
vinnustað af samviskuástæðum.
Mitt bjartsýna lífsþrek er brotið,
í bindindishrjáðu landi.
Árið er reyklaust og rotið,
og raunirnar óteljandi.
í greinargerð Ólafs Pálssonar
segir að kostnaður við gerð 800 x
30 m flugvallar myndi nema 1,6
millj. kr.
Ófeigur Gestsson kvað hrepps-
nefnd Hofsóss ekki hafa átt
neinn þátt í að þessi áætlun var
gerð og ekki hefur verið tekin
nein ákvörðun um aðild Hofs-
óshrepps að gerð flugbrautar.
—Eg held þó að engum
blandist hugur um nauðsyn þess
að hér verði komið upp sjúkra-
flugvelli í náinni framtíð og 1,6
millj.kr. er ekki stór upphæð
þegar um mannslíf er að ræða.
Þetta er þó ekki á fjárhagsáætl-
un Hofsóshrepps, önnur verk-
efni eru brýnni á næstunni.
Fjármagn til framkvæmda úti á
landsbyggðinni liggur heldur
ekki á lausu, þó nóg sé til af
peningum annars staðar, sagði
Ófeigur.
Reynir og Stefán
með langlægsta
tilboðið í Leiru-
veg við Akureyri
Verktakafyrirtækið Reynir og
Stefán sf. á Sauðárkróki átti
langlægsta tilboðið í framkvæmd-
ir við Leiruveg innan Akureyrar
er tilboð voru opnuð skömmu
fyrir jól. Tilboðið reyndist ein-
ungis nema um 45% af kostnað-
aráætlun Vegagerðarinnar og
var því umsvifalaust tekið.
Reynir Kárason annar eig-
enda fyrirtækisins sagði í sam-
tali við Feyki að þessi prósentu-
tala segði ekki alla söguna, því
áætlun Vegagerðarinnar væri í
fyrsta lagi í hærri kantinum og
einnig væru þeir með þannig
tæki að ef afköstin yrðu sæmileg
væri engin hætta á að þeir kæmu
útúr þessu með halla.
— Við erum ekki að þessu til
að tapa á því, sagði Reynir og
bætti því við að í sumar hefðu
tilboð þeirra farið allt niður í
32% af kostnaðaráætlunum við
þau verk er þeir tóku þá að sér.
Var þar m.a. um að ræða viðbót
við Siglufjarðarflugvöll.
— Þetta verk við Leiruveginn
er undirbygging 2.7 km langs
kafla fyrir varanlegt slitlag í
svokölluðum Vaðlareit vestan
Vaðlaheiðar. Stærsti liðurinn í
þessu er klapparvinna, þ.e. að
skera niður úr klöppum utan í
hlíðinni. Tilboð okkar var gert í
samvinnu við Ytuna s.f. á Akur-
eyri og við reiknum með því að
byrja á þessu verki í lok febrúar
ef veður leyfir, sagði Reynir að
lokum.