Feykir - 18.11.1987, Side 1
18. nóvember 1987, 38. tölublað, 7. árgangur
ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ FYRIR NORÐURLAND VESTRA
Austur-Húnavatnssýsla:
Fjarbuum fækkar
Hjá Sölufélagi Austur-
Húnvetninga á Blönduósi
stóð haustslátrun yfir frá 15.
september til 23. október.
Alls voru 44.347 dilkar lagðir
inn hjá félaginu og tæplega
tvö þúsund fullorðnar kindur.
Meðalþungi dilka, blautvigt
var 14.54 kg. Fyrir utan
þessar tölur er það kjöt, sem
bændur tóku heim í slátur-
tíðinni, en það var gert með
meira móti. Aberandi var að
bændur tækju heim þá dilka,
sem áttu að lenda í D 200, en
það kjöt er verðfellt nálægt
25% vegna fitu. Hafa ýmsir á
orði að þeir vilji bera gott
kjöt á borð fyrir sína gesti,
enda telja margir að ekki sé
unnt að fá betra lambakjöt,
en fitan er þá skorin burt.
Auk þess, sem hér hefur
verið talið, var fé af 15 bæjum
slátrað vegna riðuveiki og
það kjöt grafið. Þá gerðu
nokkrir bændur fækkunar-
samning við Framleiðnisjóð
og voru þær ær seldar í
loðdýrafóður. Þar á meðal
voru 5 bændur, sem slátruðu
öllu sínu fé þannig að
fjárbúum í Austur-Húna-
vatnssýslu fækkaði í haust
um 20.
Siglufjörður:
Nýtt fólk hjá bænum
Á fundi Bæjarstjórnar
Siglufjarðar sl. fimmtudag
var ákveðið hverjir hljóti þær
stöður á Bæjarskrifstofunni
sem auglýstar hafa verið
undanfarið. I stöðu félags-
málafulltrúa var ráðinn Hjörtur
Hjartarson úr Reykjavík en
stöðu skrifstofumanns hlaut
Hanna Stella Sigurðardóttir.
Þau voru bæði kosin með
atkvæðum allra bæjarstjómar-
manna. I stöðu bókara var
ráðinn Hannes Baldvinsson. I
atkvæðagreiðslu um stöðuna
hlaut Hannes 5 atkvæði en
Þórólfur Tómasson hlaut 4
atkvæði.
Þau Hannes og Hanna
Stella munu hefja störf mjög
fljótlega en Hjörtur mun
væntanlega byija um áramót.
Sauðárkrókur:
í brekkunni fyrir ofan Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki voru sjónvarpsmenn að taka
upp þáttinn Annir og appelsínur siðastliðinn mánudag og var þá þessi mynd tekin.
Þátturinn er kynning nemenda á skólanum, en þessir þættir eru teknir upp í öllum
framhaldsskólum á landinu, 25 talsins. Þátturinn frá F.á.S. verður sýndur í sjónvarpinu
4. desember.
Bærinn fær 5 milljóna kr. lán
Siglujjörður:
Gjöf til sjúkrahússins
Fyrir skömmu barst sjúkra-
húsi Siglufjarðar peningagjöf
að upphæð 250 þúsund
krónur sem gefin var til
Fjármálaráðherra Jón Baldvin Hannibalsson var ásamt
fríðu föruneyti á ferð á Sauðárkróki á dögunum. Skoðaði
hann fyrirtæki í bænum og var þessi mynd tekin er hann
skoðaði Steinullarverksmiðjuna. í næstu blaði verðurbirt
viðtal sem blaðamaður Feykis átti við hann.
kaupa á rúmum o.fl. búnaði
fyrir sjúkrahúsið.
Gefandi var Jón Andersen
á Siglufirði en gjöfin var til
minningar um eiginkonu
hans Stefaníu Jóhannsdóttur.
Að sögn Jóns Sigurbjörns-
sonar framkvæmdastjóra sjúkra-
hússins hafa þegar verið
keypt fjögur ný rúm ásamt
náttborðum fyrir andvirði
þessarar gjafar.
Vildi Jón koma á framfæri
sérstöku þakklæti til gefenda
fyrir hönd sjúkrahússtjórnar
fyrir þessa höfðinglegu gjöf
og þann hug sem að baki
lægi.
Lét framkvæmdastjórinn
þess getið að slík gjöfjafngilti
í raun 500 þúsundum fyrir
sjúkrahúsið þar sem ríkis-
sjóður gæfi eftir aðfiutnings-
j gjöld og söluskatt þegar tæki
| og útbúnaður væri keypt
fyrir gjafafé.
Nú nýverið lánaði Lífeyris-
sjóður stéttarfélaga í Skaga-
firði Bæjarsjóði Sauðárkróks
5 milljónir króna. Fénuhefur
bærinn varið til að standa við
hlutafjáraukningu í Stein-
ullarverksmiðjunni. Búnaðar-
baninn tók ábyrgð á greiðslu
afborgana og eru vextir og
önnur kjör mjög viðunandi
fyrir sjóðinn. Það er sameigin-
legt álit forráðamanna bæjar
ins og stjórnar lífeyrissjóðs-
ins að þessi ráðstöfun sé
hagkvæm fyrir báða aðila og
með því að verja fjármunum
sjóðsins til hagkvæmra verk-
efna í heimahéraði, í stað
þess að þurfa etv. að senda þá
til ávöxtunar á fjarlægu
landshorni, sé mikilvægum
markmiðum náð.
Skagaströnd:
Ibúðir fyrir
aldraða
Nú er að hefjast lokaáfangi
við byggingu íbúða fyrir
aldraða á Skagaströnd. Grunn-
ur að húsinu var tekinn
haustið 1985, en í fyrra var
byggingin frágengin að utan.
Áætlað er að taka bygging-
una í notkun um mitt næsta
ár.
1 húsinu verða 11 ibúðir , 4
hjónaíbúðir og 7 einstaklings-
íbúðir. Auk þess verður þar
ýmiskonar félagsleg aðstaða,
t.d. fyrir sjúkraþjálfun og þar
geta íbúarnir fengið mat ef
þeir vilja losna við að sjá um
þann þátt sjálfir. Það er
Sýslusjóður Austur-Húnavatns-
sýslu, sem byggir þessar
íbúðir, en hluti af kostnaði er
greiddur af Framkvæmda-
sjóði aldraðra. Á Skaga-
strönd eru fyrir fjórar
hjónaíbúðir fyrir aldraða.