Feykir - 18.11.1987, Page 5
38/1987 FEYKIR 5
Bjöm Egilsson Sveinsstöðum:
Á tali við
blaðamenn
Fyrir nokkrum dögum
kom ég inn á skrifstofu
Feykis og ræddi við blaða-
menn um heima og geima,
þá Hauk í Vík og Ara. Ég
ræddi um að víndrykkja væri
sumum mönnum ómótstæði-
leg, en aðrir og það væri
mikill meirihluti fólks, hefði
fullt vald á því að drekka
ekki sér til skaða.
Ég hafði mína skýringu á
þessu fyrirbæri, þá að hinir
síðarnefndu hefðu fengið
reynslu af víndrykkju í fyrri
jarðvistum, sem þeir geymdu
hið innra með sér.
Það þurfti ekki meira.
Haukur sagðist hafa heyrt þá
sögu, fyrir mörgum árum um
Aðalbjörgu Sigurðardóttur
að hún teldi sig muna að hún
hafi verið sauðkind í fyrra
tilverustigi. Þessa setningu
hef ég oft og mörgum sinnum
heyrt hafða eftir Aðalbjörgu
Sigurðardóttur á liðnum
áratugum og er hún sögð til
að gera gys að hugmyndum
manna um endurholdgun.
Sauðir hafa sál, en það er
öldungis óhugsandi, að Haukur
í Vík og Ari hafi jarmað í
gegnum sauðarbarka, síðast
þegar þeir voru í efnisheim-
inum. En sjötíu og sjö
jarðvistum fjær er það ekki
útilokað.
Aðalbjörg Sigurðardóttir
var ættuð úr Eyjafirði, vel
gefin, hámenntuð og stór-
virkur rithöfundur. Auk
annars skrifaði hún margar
bækur um guðsríki. Hún var
fædd 10. janúar 1887 og væri
vel þess vert að hennar væri
minnst á þessu ári. Það er
óhætt að slá því föstu að
Aðalbjörg Sigurðardóttir hefur
aldrei sagt, að hún hafi verið
sauðkind i jarðvist sinni,
næst á undan þessari.
Hvers vegna man fólk ekki
I fyrri jarðvistir, er spurt?
Heili manns ber ekkert á
milli, því hann deyr með
líkamanum, en þóereitthvað
fyrir utan og ofan heilann,
sem kallað er fortíðarminni.
Orfáir menn telja sig muna
eitt og annað frá fyrri
jarðvistum, þó oft sé það
óljóst.
Islendingar þekkja vel það
sem kallað er Karma, það er
lögmál orsaka og afleiðinga,
að hver ersinnargæfu smiður
og góðum manni vegnar vel,
en þeir sem brjóta af sér
verða að líða fyrir það, ekki
vegna reiði eða hefnigirni
drottins, heldur eru þeir
seldir undir lögmál sem
nefna mætti réttlætislögmál.
En fáir íslendingar aðhyllast
endurholdgunarkenninguna, þó
mikill meirihluti mannkyns
geri það. íslendingar eru
kaldir, líklega vegna þess að
þeir búa við ysta haf.
Um daginn hlustaði ég á
prédikun hjá prófastinum á
Króknum. Hann fór með
þessa setningu „Guðirnir
elska þá sem deyja ungir” og
mótmælti því. Um það varég
honum sammála, en það
vantaði pól í hæðina hjá
prófastinum. Hann nefndi
dæmi um ungan mann, sem
var kallaður burt frá konu og
börnum, mikið harmsefni.
Þessir menn eru háðir sínu
lögmáli. Þeir eru að greiða
skuldir frá fyrri jarðvistum
og allt venjulegt fólk á erfitt
með að skilja samhengi þess.
A fyrstu öldum kristninnar
var endurholdgunarkenningin í
Ritningunni, en hinir vísu
feður kirkjunnar felldu hana
niður á fjórðu öld eftir Krist.
Mín heimsmynd er þessi:
Sálir manna eru eins og
sindur frá alheimsafli og
verða að vera í efnisheimi
óteljandi æfiskeið til þess að
öðlast reynslu og læra að
forðast hið illa og gera það
sem gott er. Líkamsgeri eru
mismunandi í lífsstiganum.
Fyrst gæti verið lítilfjörlegt
dýr í sandfjöru við sjó, og því
næst sauður undir gæru, en
síðast mannssálin.
Guðinn er einn, ekki
margir. Faðir sannur og
heilagur andi, er eitt og hið
sama. Það er formsatriði,
þegar guðdómnum er skipt í
þrennt, en þegar það er gert,
verður talan þrír heilög tala.
En á svo breiðu sviði, sem
allt lífið er enn þurfa að vera
hálfguðir. Múhameð var
hálfguð, því hann stóð fyrir
fólkorustum.
Stundum greinir prestana
á um túlkun orðsins, enda
hafa þeir breiðan grundvöll
fyrir prédikanir sínar. Þeir
lofa að prédika orðið klárt og
kvitt, hreint og ómengað.
Ég heyrði gamlan prest
segja, að hann hefði aldrei
messað á Uppstigningardag,
því hann tryði ekki á
atburðinn, sem þeim degi
væri tileinkaður, en bróðir
hans sem líka var prestur,
sagðist alltaf geta prédikað
um heilagan anda, því hann
væri alstaðar og í öllu.
Þegar sálir manna eru
búnar að vera svo oft í
efnisheiminum og búnar að
læra svo mikið, að þær eru
komnar á efstu tröppu í
lífsstiganum, eru fullkomnar
eins og faðirinn, losna þær
frá lögmáli endurholdgunar
og hverfa til síns upphafs í
alheimsaflinu, hringferð er
lokið. Hringurinn þar sem
hvorki er upphaf né endir er
tákn eilífðarinnar.
I matvörudeild:
Tilboðsverð á bökunarvörum
stendur til 5. desember
Sama verð í öllum verslunum
Kaupfélagsins
Flórusmjörlíki............................ kr. 45.70
Bökunarsmjörlíki ......................... kr. 39.40
Strásykur 2 kg............................. kr. 41.90
Púðursykur 1/2 kg.......................... kr. 23.00
Strásykur 10 kg.............................kr. 209.00
Flórsykur 1/2 kg........................... kr. 17.50
Juvel hveiti 2 kg.......................... kr. 44.90
Opal súkkulaðiblokk Ijós 325 gr.............kr. 142.00
Mónu hjúpsúkkulaði dökkt 500 gr.............kr. 110.00
Mónu súkkulaðispænir Ijósir 150 gr..........kr. 43.00
Mónu súkkulaðidropar ...................... kr. 96.50
Síróp 450 gr. Mar ......................... kr. 63.45
Kókósmjöl 400 gr. Ftekord ................. kr. 49.20
Kakó 500 gr. Rekord ....................... kr. 76.60
Mikið úrval af brauðum og kökum frá öllum
brauðgerðum kjördæmisins
Brauðgerðin „Krútt”, Sauðárkróksbakarí, Gunnarsbakarí
keppa um hylli neytenda
Verð og gæði við flestra hæfi
Ýmsar nýjungar í bakstri kynntar í versluninni
Þið sem ekki hafið tök á að baka sjálf
getið fengið kökur og tertur til jólanna hjá okkur
Athugiö það
sérstakt tUboðU
Áaætis franska
Ágætis franskar kartöflur
700 gr. á kr. 51.-
I vefnaðarvörudeild:
Ungbarnafatnaður nýkominn
Kjólar - gallar - buxur - peysur
og margt fleira
Fyrir herra:
Stakir jakkar - buxur - peysur
skyrtur - bindi - frakkar
Fyrir dömur:
Kjólar - pils - blússur
peysur - buxur-jakkar
I skódeild:
Kuldaskór og spariskór á alla fjölskylduna
í leikfangadeild:
Ódýr leikföng - Vönduð leikföng
Leikföng við allra hæfi - Mikið úrval
í raftækjadeild:
Nýkomið úrval af lömpum og Ijósatækjum
Nýjar sendingar í hverri viku
íluifjtiföiiiipluii)
Þú þarft ekki annað!