Feykir


Feykir - 27.01.1988, Blaðsíða 1

Feykir - 27.01.1988, Blaðsíða 1
ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ FYRIR NORÐURLAND VESTRA Siglufjörður: Salína liættir starfsemi Feykir fer víða Mynd þessi er tekin í Kairó í Egyptalandi þar sem Margrét Hermannsson er að Iesa Feyki. Laxeldi: 1.2 milljónir hrogna tUOiile Um miðjan þennan mánuð hætti öll starfsemi hjá saumastofunni Salínu á Siglufirði, en þá lauk vinnu við þau verkefni sem Salína hafði tekið að sér fyrir „gamla Álafoss” og ný verkefni höfðu ekki fengist. I samtali við Hrefnu Hermannsdóttur sem situr í stjórn Salínu kom fram að ekki lítur út fyrir að saumastofan fái verkefni í bráð þar sem hið nýja fyrirtæki í ullariðnaðinum hafi einungis falið fjórum saumastofum að vinna ákveðin verkefni fyrir sig enn sem komið er. Að sögn Hrefnu ríkir alger óvissa um framtíð saumastof- Sigurður Þorvaldsson frá Sleitustöðum varð 104 ára s.l. laugardag þann 23. jan. Sigurður mun vera elsti núlifandi íslendingur. Sigurður er fæddur í Mið- húsum í Álftaneshreppi í Mýrasýslu, en fluttist til Skagafjarðar 1914 en þá giftist hann Guðrúnu Siguiðar- dóttur frá Víðivöllum í Blönduhlíð og hófu þau búskap á Sleitustöðum í Hólahreppi stuttu síðar. Sigurður lauk kennara- prófi frá Flensborgarskóla 1905 og í Askov í Noregi var hann skólaárið 1907 - 1908. Þaðan fór Sigurður í kennara- háskólann í Kaupmannahöfn unnar. Ekki er útilokað að einhver verkefni skapðist t.d. í kjölfar samninga um sölu á ullarvörum sem nú standa yfir við Sovétmenn. En konunum sem unnið hafa hjá Salínu, flestar í mörg ár, fínnst það sárt ef leggja þarf saumastofuna niður því hún er eitt af fáum fyrirtækjum í þessum iðnaði á landinu sem gengið hefur bærilega fjárhags- Útlit er fyrir að síðasta ár komi þokkalega út, hjá og var þar við nám til ársins 1909. Sigurður var fyrst kennari við Hvítárbakkaskólann í Boigarfirði og stundaði kennslu í tugi ára þó hann væri jafnframt stórbóndi á Sleitu- stöðum. Kennarastarf Siguiðar væri nægilegt ævistarf og vel það. En hann var líka meira en meðalmaður sem bóndi þar ber svipmót Sleitustaða honum best vitni. Sigurður var hreppsstjóri Hólahrepps í 50 ár og í hreppsnefnd um langan tíma. Sigurður hefur nú í nokkur ár dvalið á Sjúkrahúsi Skagfirðinga. lega og því væri ekki fjárhagsörðugleikum um að kenna ef þessi atvinnugrein leggst niður á Siglufirði. (Eins og lesendur blaðsins rekur eflaust minni til heimsótti Feykir saumastofuna Salínu í nóvember s.l. og var þá sagt allítarlega frá starfsemi hennar undanfarin ár.) Skagstrendingi hf. á Skaga- strönd, eins og Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins orðaði það í samtali við blaðamann. Ekki átti hann þó von á að útkoman yrði eins góð og árið 1986, en heildarniðurstöður liggja ekki fyrir fyrr en í lok febrúar. Skagstrendingur gerir nú út frystitogarann Örvar og togarann Arnar og hefur útgerð beggja skipanna gengið mjög vel frá upphafi. Þá keypti fyrirtækið 250 lesta skip á síðastliðnu vori og er það fyrst og fremst hugsað til rækjuveiða og hefur stundað þær veiðar síðan það kom til Skagastrandar. Rekstur þess skips hefur gengið sæmilega þrátt fyrir 6 vikna stopp sem varð vegna bilunar. Á Skagaströnd er rætt um að kaup þessa skips geti verið byrjunin á að fá síðan nýtt skip til þess að stunda djúprækjuveiðarnar, sem eru mjög mikilvægar til þess að tryggja rekstur rækjuvinnslunn- ar á staðnum. Skagstrendingur hf. var fyrsta fyrirtækið hérlendis sem hóf útgerð frystitogara og eins og margoft hefur komið fram hefur útgerð Örvars gengið mjög vel. Um framtíðina sagði Sveinn hins vegar að nú væri orðið mikið framboð af sjófrystum fiski og verðið færi því lækkandi. í síðustu viku fór úr landi síðari sending af augnhrogn- um sem laxeldisstöðvarnar Hólalax hf. og Miklilax hf. seldu til Chile. Alls voru seld um 1.2 millj. hrogna. Þau voru flutt með bifreiðum til Keflavíkur en þaðan með flugvél til Santiago í Chile sem var ákvörðunarstaður. Hrognin eru flutt þurr í þar til gerðum plastkössum en er haldið hæfilega köldum og með ís. Margir kynnu að halda að flutningur á hrognum milli heimsálfa með tilheyrandi hnjaski sem óhjákvæmilega fylgir væri ekki auðveldur. Flutningur á fyrri sending- unni tókst þó með miklum ágætum og hrognadauði varð enginn eftir því sem forráðamenn seljenda hafa fregnað frá kaupendum ytra. Milligöngu um þessa sölu hafði skoska fyrirtækið Fish Farm Development ltd. en það stundar fiskeldi og ráðgjafaþjónustu víðsvegar um heim og hefur meðal annars veitt verulega fag- þekkingu við uppbyggingu Miklalax hf. Að sögn seljenda fékkst hærra verð fyrir hrognin en tíðkast hér innanlands. Sigurður Þorvaldsson frá Sleitustöðum. Sauðárkrókur: Sigurður 104 ára Skagstrendingur hf.: Ennþá góð afkoma

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.