Feykir - 27.01.1988, Qupperneq 8
JFEYKIEF
27. janúar 1988
3. tölublað, 8. árgangur
Feykir kemur út á miðvikudögum
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
Fyrir skömmu var haldið á Sauðárkróki vinnuvélanámskeið á
vegum Vinnueftirlits ríkisins. AIIs tóku 16 manns þátt í
námskeiðinu. A myndinni eru þátttakendur á námskeiðinu
ásamt gestum og leiðbeinendum.
Hofsós:
Lítíð um stórframkvæmdir
Lítið verður um stórfram-
kvæmdir á vegum Hofsóshrepps
á þessu ári. Að sögn Ófeigs
Gestssonar sveitarstjóra er
meiningin að hægja nokkuð á
eftir mjög miklar og kostnaðar-
samar framkvæmdir undan-
farin ár. A síðasta ári var
langstærsta framkvæmd á
vegum Hofsóshrepps, bygging
brúar yfir Hofsána og
lagning vegar að henni, þetta
verkefni kostaði um 14
milljónir króna. A fjárlögum
fyrir þetta ár hefur Hofsós-
hreppur fengið fjárveitingar
vegna hafnarinnar 500 þús.
krónur og vegna áframhald-
andi viðgerða á gamla
pakkhúsinu (svarta húsinu)
sem sagt var frá í Feyki á
síðasta hausti. Þá standa
vonir til að fjármagn fáist til
að koma upp götuljósum og
leggja bundið slitlag á nýja
veginum sem lagður var í
haust og getið var um hér að
framan, en hann telst til
þjóðvega í þéttbýli. Að
endingu má svo geta þess að
fjárveiting að upphæð 800
þúsund krónur er til Grunn-
skólans á Hofsósi og er hún
vegna fyrirhugaðrar viðbygg-
ingar við núverandi skólahús.
Sauðárkrókur:
Bíóið byrjar á ný
Fyrir skömmu hófust
aftur sýningar hjá Sauðár-
króksbíói, eftir að þær
höfðu legið niðri frá því í
Oddvitinn:
Áfram
Húna-Þing-eyingar
júnimánuði síðasta árs. Eflaust
voru margir orðnir lang-
eygðir eftir því að komast í
bíó aftur.
Húsverðir Bifrastar, þau
Ingimar Pálsson og Halldóra
Helgadóttir hafa tekið við
rekstri bíósins og að sögn
Ingimars verða sýningar til
að byrja með á fimmtudags-
og sunnudagskvöldum.
„Aðsókn hefur bara verið
þokkaleg það sem af er.
Maður býst nú ekki við mjög
miklu þegar allt þetta
framboð af myndböndum
og sjónvarpsrásum er til
staðar, þannig að miðað við
það hefur þetta byrjað
ágætlega” sagði Ingimar
sýningastjóri bíósins.
TAXI
Sauðárkróki
Sími FARSÍMI
5821 985 20076
Víðidalur:
Slæmur vegur
Þeir sem ferðast um
Víðidalinn veg nr. 1 komast
ekki hjá að verða þess varir
hve vegurinn frá Víðidalsár-
brú að Víðidalstunguafleggjara
er holóttur. Má raunar segja
að vegurinn sé stórhættulegur
því þegar hálkan bætist
ofaná holurnar má lítið útaf
bera svo ökumenn missi ekki
stjórn á bílunum. Umræddur
vegur er síðasti malarspottinn í
V-Hún. á vegi nr. 1.
Síðan 20. desember s.l.
hafa að minnsta kosti 5 bílar
farið útaf á þessum spotta
t.d. fór Range Rover á
hliðina og Lada Sport útaf
með dags millibili í s.l. viku.
Blönduós:
Hvað heldurðu?
Fyrsta keppnin í öðrum hluta
keppninnar Hvað heldurðu?
verður haldin á Blönduósi en
þá leiða saman hesta sína
Húnvetningar og Þingeyingar.
Eins og flestir muna sennilega
eftir unnu Húnvetningar
Skagfirðinga með miklum
glæsibrag í undanrásum
keppninnar. Nú mæta síðan
Húnvetningar Þingeyingum
og verður gaman að fylgjast
með þeirri keppni þar sem
keppt er um norðurlands-
meistara keppninnar. Lið
Húnvetninga er óbreytt að
öllu leyti nema að nú skipar
Einar Logi Vignisson sæti
Sveinbjarnar heitins Magnús-
sonar frá Syðra-Hóli.
Keppnin fer fram í Félags-
heimilinu á Blönduósi n.k.
fimmtudag og hefst kl. 21.00.
Jón Helgason landbúnaðarráðherra flutti ávarp.
Hólar í Hjaltadal:
Viðbyggingin í notkun
Á föstudaginn var tekin
formlega í notkun viðbygging
við hús Bændaskólans á
Hólum í Hjaltadal. Þessi
nýja bygging sem er á milli
íþróttahússins og skólahússins
er um 260 fm2 að stærð á
einni hæð. I henni verður
anddyri og móttaka fyrir
Bændaskólann ásamt stofu.
Að sögn Jóns Bjarnasonar
skólastjóra batnar verulega
öll aðstaða nemenda kennara
og starfsmanna á Hólum
með tilkomu þessarar nýju
byggingar auk þess sem hún
eykur möguleika skólans á
að taka að sér ýmsa fundi og
smærri ráðstefnur. Þá má
segja að þessi framkvæmd sé
nokkurs konar viðurkenning
hins opinbera á þeirri miklu
sókn sem Hólastaður hefur
verið í síðustu ár og viss
stefnumörkun hvað varðar
framtíðaruppbyggingu á húsa-
kynnum Bændaskólans.
Þú ferð
varia
annað
Verslunin Tindastóll
Feykir spyr
á Sauðárkrókí
Hvað þorramatur finnst þér
bestur?
Vignir Kjartansson:
„Svið”.
Ingibjörg Ingadóttir:
„Hangikjöt og kartöflustappa”
Vilhjálmur E. Harðarson:
„Svið. Mér finnst hákarl
vondur”.
Hulda Skúladóttir:
„Hangikjöt”.