Jökull - 01.12.1987, Side 83
Ágrip
JARÐFRÆÐI OG JÖKLUNARSAGA MELA- OG ÁSBAKKA í BORGARFIRÐI
Greinin lýsir niðurstöðum jarðfræðirannsókna á bygg-
ingu, jarðlagaskipan, setfræði og jarðsögu Mela- og As-
bakka í Melasveit, Borgarfirði. Bakkarnir eru rúmlega 5
km langir og allt að 30 m háir. Rannsóknirnar, sem fóru
fram sumrin 1980,1983 og 1984, leiddu í ljós að í bökkun-
um er að finna næsta óslitinn jarðlagastafla, sem hlaðist
hefur upp á tímabilinu u.þ.b. 12.500 - 10.000 BP (fyrir
okkar tíma). 2. mynd sýnir strandsnið bakkanna, og 3.
mynd sýnir nokkur valin jarðlagasnið. Setmyndunarum-
hverfi bakkanna hefur verið grunnur fjörður eða flói. Á
upphleðslutímanum hafa jöklar tvisvar sinnum gengið
fram í fjörðinn. Jarðlagaskipan, bygging og setfræði
bakkanna hefur ákvarðast af sjávardýpi og nálægð við
jökul á hverju skeiði upphleðslunnar. 5. mynd sýnir
einfalt líkan til útskýringar setmyndunar framan við jök-
ulsporð.
Heildarþykkt jarðlagastaflans er um 145 m. Mest
áberandi eru þrjár syrpur jökulsjávarsets (glaciomarine
sediments), samanlagt um 85 m á þykkt. Þær eru að-
skildar af jökulárseti og jökulruðningi sem hlaðist hafa
upp framan við og undir jökli sem gengið hefur fram yfir
sjávarsetið. í tengslum við jökulframrásirnar hefur stafl-
inn orðið fyrir margvíslegri höggun og hniki af völdum
jökulsins (glaciotectonics). Þykkt jökulruðnings og
jökulársets í bökkunum er um 45 m. Efst í staflanum eru
um 15 m fjörusets, sem hlaðist hefur upp í tengslum við
afflæði sjávar í lok jökultima er jökulfarginu létti og
landið reis úr sjó.
Jarðsögu Mela- og Ásbakka skifti ég í 9 skeið (19.
mynd): Þegar jöklar hörfuðu inn fyrir núverandi strönd í
Borgarfirði fyrir 12.500 - 13.000 árum, fylgdi sjórinn í
kjölfarið og á láglendi hófst upphleðsla jökulsjávarsets
(skeið A). í bökkunum hvílir þessi neðsta setsyrpa á
jökulrákuðu bergi. Setgerð og skeldýrafána setsins ber
vitnisburð grunnsjávarumhverfi með hraðri setupp-
hleðslu og áhrifum hafíss. Fyrir um 12.000 árum síðan
gekk jökull fram Borgarfjörð (skeið B). Sjávarstaða var
há, e.t.v. nálægt 80-90 m, sem eru hæstu ummerki um
forna sjávarstöðu í neðsta hluta Borgarfjarðar. Framan
við jökulinn hlóðust upp jaðarmyndanir úr jökulárseti,
er borið var fram af straumvatni undan jöklinum. Er
jökullinn gekk lengra út á láglendi Mela- og Leirársveit-
ar (skeið C) haggaði hann og umlagaði bæði sjávarseti
og jaðarmyndunum í bökkunum (12.-18. mynd). Jökull-
inn gekk fram yfir alla bakkanna (skeið D) áður en hann
hörfaði inn til mynnis Borgarfjarðar á nýjan leik. Við
hörfunina, fyrir um 11.700 árum, setti hann af sér áskeil-
ur í Mela- og Ásbökkum (skeið E). Sjávarstaða var enn
há, og í jökulsæti fyrri framrásar í bökkunum hlóðst upp
ný syrpa lagskipts sjávarsets með skeldýrum.
Einhvern tíma eftir 11.400 BP gekk jökull á nýjan leik
fram Borgarfjörð (skeið F) og út yfir Mela- og Ásbakka.
Ummerki þessarar framrásar eru botnruðningur (10.
mynd) og jökulárset, auk höggunar. Það eru merki um
að jökullinn hafi gengið fram um miðja bakkana til
suðurs, en hann getur hafa gengið lengra mót Leirárvog-
um. Ummerki um hörfun jökulsins er jaðargarður úr
möl og sandi er hlaðist hefur upp í sjó framan við jökul-
inn (skeið G). Þegar jökullinn hörfaði inn til Borgar-
fjarðar fylgdi sjórinn í kjölfarið, og þriðja syrpa jökul-
sjávarsets hlóðst upp í bökkunum (skeið H). í þetta sinn
hörfaði jökullinn inn til Borgarfjarðardala og síðar inn
til hálendisins. Fornar strandlínur í 60-70 m hæð í neðri
hluta Borgarfjarðar eru frá þessum tíma, u.þ.b. 10.300-
10.000 BP. Er jökulfarginu létti reis landið hratt. Við
afflæði sjávar byggðist fjöruset út yfir efsta hluta bakk-
anna (skeið I).
Sú mynd sem hér er dreginn af jöklunarsögu Borgar-
fjarðar í lok síðasta jökulskeiðs er um margt frábrugðin
fyrri túlkunum á jarðlagaskipan svæðisins (sjá saman-
tekt í Jökli nr. 34,1984, bls. 117-130). Nýstárlegt er, að
(1) sýnt hefur verið fram á með rannsóknum á jarðlaga-
skipan, setfræði og byggingu að tvær jökulframrásir hafi
átt sér stað fram Borgarfjörð eftir að meginjöklar síðasta
jökulskeiðs hörfuðu inn fyrir núverandi strönd fyrir
u.þ.b. 12.500-13.000 árum, (2) jökulframrásirnar hafa
verið staðsettar í tíma með aðstoð geislakolsgreininga á
fornskeljum, og niðurstöðurnar eru þær að í lok síð-
jökultíma hefur jöklun í Borgarfirði verið mun um-
fangsmeiri en hingað til hefur verið talið, og (3) að
útbreiddar fornar strandlínur í 60-70 m hæð yfir sjó eru
frá tímanum eftir seinni jökulframrásina, þ. e. myndaðar
fyrir u.þ.b. 10.300-10.000 árum.
Að öðru leyti er í greininni fjallað um kenningar um
setmyndun í sjó framan við jökul, og nýleg líkön um það
efni rædd í ljósi vitnisburðar frá Mela- og Ásbökkum.
Líka er stuttlega fjallað um áhrif jökulhöggunar og hniks
á byggingarlag setlaga.
81