Jökull - 01.12.1987, Page 85
HVAÐAN KOM ASKAN OG HVERNIG?
Carswell (196 bls. 65) telur þetta vera öskuset (ash fall
deposit) og tvímælalaust komið frá eldstöð tengdri meg-
ineldstöð Eyjafjallajökuls (doubtless connected with
the neighvouring Eyjafjöll volcanic centre). Hvorugt
fær þó staðist. í fyrsta lagi hafa engin spor af þessari
myndun fundist frá því vestan við Hofsá, eins og áður
segir, vestur að Kaldaklifsgili, né heldur vestan við það.
Það er aftur á móti á umtalsverðu svæði báðum megin
við Sólheima í Mýrdal (Einar H. Einarsson 1982). Svo
virðist ennfremur sem bergbrot og frauðhnullungar liggi
á ákveðna stefnu, straumstefnu (orientation). Þó skal
tekið fram að hvað þetta varðar vantar mjög nákvæmari
rannsóknir og mælingar. Þær athuganir, sem nú liggja
fyrir, sýnast mér benda til þess að þetta sé komið norð-
austan frá, eða sem næst í stefnu af Kötlu. I annan máta
er ljóst að ekki hefur verið um öskufall að ræða heldur
flóð, ösku- og vikurflóð (pyroclastic flow). Otviræðar
sannanir fyrir þessu eru þær að á nokkrum stöðum hafa
fundist steinar, þar á meðal tveir allstórir, nokkur
hundruð kfló að þyngd, og annar þeirra með greinileg-
um jökulrákum inni í gjóskuberginu. Báðir liggja í sömu
stefnu. Næsta ljóst er að þeir eru komnir úr jökulbergs-
lagi, sem flóðið hefur farið fyrir og hrifið þá með sér, en
það er sýnilegt skammt frá. Skammt frá þessum stað eru
steinar inni í gjóskuberginu og á einum þeirra má sjá vott
af mýrarauða. Þetta allt má sjá á syðsta öskustabbanum
vestan við Hofsárgljúfur. Á öðrum stað, í gili, sem skor-
ist hefur gegnum þessa myndun og er rétt ofan við Þurra-
gil má sjá einkar fróðlegt snið gegnum neðsta hluta
öskuflóðsins og sem gefa sláandi mynd af þeirri straum-
hreyfingu, sem þar hefur átt sér stað. Með því að grafa
nokkuð og hreinsa til í þessu má skoða neðsta lag ösku-
flóðsins, sem þar liggur á móbergi. í Skógaheiði er ekki
annað berg ofan á gjóskunni, en aðeins lítilsháttar urð
frá síðasta jökulskeiði á stöku stað.
ALDUR OG ÚTBREIÐSLA
Ljóst er að jökull síðasta jökulskeiðs hefur gengið yfir
þessa myndun, en út frá því, sem sést af henni í Skóga-
heiði verður ekki nær um aldurinn komist. Þess má þó
geta að þegar þetta átti sér stað hefur Hofsárglúfur ekki
verið til. Einar H. Einarsson hefur hins vegar getað bent
á líkur fyrir því að tvö jökulskeið hafi gengið yrir gjósku-
bergið hjá Sólheimum (JEinar H. Einarsson 1982 bls. 21).
Eg er honum sammála hvað þetta varðar, og það á þeim
grundvelli, sem nú skal greina. Vestan við Húsá skammt
frá Sóheimahjáleigu er dálítið klapparholt úr þessu sama
bergi. Gegnum það austanvert gengur sprunga, sem fyllt
er jökulbergi, sem því er frá fyrra jökulskeiði. Yfir þetta
hefur svo jökull skriðið á síðasta jökulskeiði. Sýnist mér
þetta staðfesta niðurstöðu Einars svo að vart verði um
deilt. Ekki verður nú með neinni vissu vitað yfir hvað
stórt svæði öskuflóð þetta hefur náð, en í því sambandi
þykir rétt að geta nokkurra atriða. Ekki er vitað um
gjóskubergið í samfelldu, föstu bergi nema á þeim stöð-
um, sem þegar eru taldir. Maður, nákunnugur um Sól-
heimaheiði, sagði mér að ekki kæmi það fyrir í föstu
bergi nema í heiðinni neðanverðri. Sjálfur gat ég sann-
fært mig um að brot úr því er að finna svo langt upp eftir
heiðinni að upptakanna hlýtur að vera að leita hátt uppi
og því líklega undir jökli. Vitað er að steinn með ein-
Mynd 2. Gjóskubergið efst í Gljúfri
Hofsár, að austan.
Fig 2. The pyroclastic flow.
83