Jökull - 01.12.1987, Síða 91
var skammt undan landi í júlí, og oft lá þokubakki yfir
ísbreiðunni. Hinn 26. júlí urðu nokkrir hafísjakar land-
fastir í Reykjarfirði. Þeir bráðnuðu og eyddust á nokkr-
um dögum. Úrkoma var lítil, lækir og mýrar þornuðu
upp. Hinn 4. ágúst var frostnótt, og héla á jörð.
Nokkur umferð hefur verið um jökulinn. A hvíta-
sunnu (18. maí 1986) fór fólk á snjóbíl í fyrsta skipti
norður yfir jökul, frá Bæjum á Snæfjallaströnd í Reykj-
arfjörð. Hinn 17. júní voru menn á ferð úr Hjálparsveit
skáta á ísafirði. Hinn 1. ágúst létu Landmælingar íslands
kortleggja sigdældirnar, sem eru í jöklinum 1-1,5 km í
norðaustur frá Hljóðabungu.
Þegar við fórum frá Reykjafirði nú 19. ágúst, taldist
mér til að 3/í af skriðjöklinum væri orðinn glær og gráleit-
ur klaki.“
HOFSJÖKULL
Lambahraunsjökull. Bragi Skúlason tekur fram: Sem
fyrr liggur fönn í jökuljaðrinum og nær hún lengra út en
s.l. haust. Ég get ekki fundið jökulís við jaðar fannarinn-
ar, né séð nein merki um framskrið jökulsins.
Sátujökull. Jökullinn er greinilegur hopjökull, sléttur
og hallalítill. Hann hefur hopað um 15 metra.
Nauthagajökull. Leifur Jónsson tekur fram: Ástand
jökuls, jaðars og garða virtist mjög líkt og fyrir ári. Þó
liggur nú, nálega 200 m langur skafl undir jaðrinum
vestanverðum og er þar auðsjáanlega snjór frá síðasta
vetri.
Múlajökull. W. Gangurvaríjöklinumþegarmælt var
haustið 1985 og hefur hann haldið áfram að hlaupa,
einkum austan til. Að vestan heldur Hjartafell rækilega
að jöklinum. Framkantur jökuls er þar eins og brim-
skafl, sem brotnar við sand. Jökullinn er síðan furðu
sléttur upp að öxl Hjartafells, en þar hefur hann slitnað
sundur, og risasprungur gína við. Sjálfur jaðarinn er lítið
sprunginn, fyrr en nálægt 1 km fyrir austan fellið, síðan
er jökullinn úfnari því lengra sem austar dregur.
Múlajölcull. S. Gangur var í jöklinum þegar mælt var
haustið 1985 (sjá „Athugasemdir og viðauka" í Jökli 36.
árg). Jökullinn hefur haldið áfram að hlaupa. Hlaupinu
er ekki lokið enn, jakastykki féllu úr jaðrinum meðan á
mælingu stóð. Jaðarinn er mikilúðlegur og gnæfir hátt,
Arnarfell sást nú ekki lengur frá mælistað.
EYJAFJALLA- OG MÝRDALSJÖKULL
Gígjökull. Theodór Theodórsson tekur fram: Við
austanvert lónið mældist 12 m hop á jökulsporðinum, en
11 m framskrið við lónið vestanvert. Jaðarinn dæmist því
vera á svipuðum slóðum og við síðustu mælingu.
Sólheimajökull W. Vesturtunga. Valur Jóhannesson
tekur fram: Jökullinn gengur stöðugt fram, ár eftir ár.
Nú hefur hann gengið yfir bílastæðin. Og hann hefur
gengið yfir 20 metra háu ölduna, sem jöklamælinga-
merkin voru á, svo að nú stendur aðeins ein af gömlu
vörðunum. Aðalútfall undan Sólheimajökli er við vest-
urrönd jökulsins, en smákvíslar koma meðfram Jökul-
haus.
Jökulhaus. Isbunki uppi á Jökulhausi nær lengra fram
en fyrir ári síðan, en hefur ekkert hækkað.
Austurtunga E, þ.e. Stuðlabergshnallur, sem jökul-
tungan gekk meðfram og upp á er kominn í kaf. Vatn
kemur á þremur stöðum undan tungunni, við austur- og
vesturrönd og undan henni miðri.
VATNAJÖKULL
Tungnaárjökull hjá Jökulheimum. Gunnar Guð-
mundsson tekur fram: Jökullinn hopar enn. Fellið í
jökuljaðrinum sunnan mælilínu er nú farið að skaga
töluvert út úr jöklinum. Helst lítur út fyrir að fellið verði
eitt sér og frístandandi á sandinum, það skal þó ekki
fullyrt enn sem komið er, því að nokkuð vantar á að það
sé laust frá jöklinum.
Leiðin inn á jökulinn er úr Jökulkróki, á sama stað og
á undanförnum árum og því ekki langt frá Kerlingum.
Síðujökull. Björn Indriðason tekur fram: Jaðarinn er
sléttur og sleiktur. Jökullinn er greinilegur hopjökull,
hann er allur að lækka. Engar markverðar breytingar frá
síðasta ári.
Skeiðarárjökull W. Eyjólfur Hannesson tekur fram:
Fyrri hluta tímabilsins á milli mælinga 1985 og 1986 var
gangur í öllum jöklinum vestan Gígju, einna mest gekk
jökullinn fram nálægt Súlu. Nú hefur jökullinn hægt á sér
eða nær stöðvast.
Skeiðarárjökull E. Bragi Þórarinsson tekur fram að
framskriðsbylgju þeirri sem staðið hefur full tvö ár gæti
nú ekki lengur og kyrrð og jafnvægi komið á við jökul-
jaðar.
Svínafellsjökull.
Guðlaugur Gunnarsson í Svínafelli tekur fram: Fátt
markvert er að frétta af jöklum hér um slóðir. Þeir
hækkuðu Iítið eitt og gengu fram síðastliðinn vetur.
89