Jökull - 01.12.1987, Qupperneq 104
Jöklarannsóknafélag íslands
Skýrsla formanns á aðalfundi 4. mars 1987.
FORMÁLI
Þessi skýrsla er að mestu byggð á efni sem félagsmenn
hafa látið formanni í té. Margt af því hefur birst í Frétta-
bréfi JÖRFI en rétt þótti að halda því til haga í annál
starfsársins.
STJÓRNARSTÖRF
I aðalstjórn sátu Sveinbjörn Björnsson, formaður,
Helgi Björnsson varaformaður, Jón Isdal gjaldkeri, Ein-
ar Gunnlaugsson ritari og Stefán Bjarnason meðstjórn-
andi. Varamenn í stjórn voru Ástvaldur Guðmundsson,
Björn Indriðason, Jón Sveinsson og Pétur Þorleifsson.
Formaður bflanefndar var Gunnar Guðmundsson, for-
maður skálanefndar Stefán Bjarnason, formaður rann-
sóknanefndar Helgi Björnsson og ritstjóri Jökuls Ólafur
Flóvenz.
Stjórnin hélt alls 17 fundi á starfsárinu og sátu varamenn
flesta þeirra ásamt aðalmönnum. Helstu mál þar voru
undirbúningur að nýjum skála á Grímsfjalli, undirbún-
ingur rannsókna í leiðangri vorið 1987, uppgjör við
Varnarliðið vegna afnota af snjóbfl þeirra, útgáfa og
birgðir Jökuls, almenn félagsmál og undirbúningur fé-
lagsfunda.
FÉLAGSFUNDIR
Á aðalfundi 25.2.86 sýndi Ari Trausti Guðmundsson
myndband af göngu á Þumal og skýrði þá klifurtækni
sem fjallamenn beita.
Á vorfundi 15.4.86 sýndi Oddur Sigurðsson myndir
teknar úr lofti af hálendi, m.a. þrívíddarmyndir. Síðan
skiptist fundurinn í hópa sem ræddu fundastarfsemi,
skálamál, ferðir, rannsóknir og útgáfumál með hugar-
flugi. Formenn hópanna drógu saman niðurstöður og
skiluðu fjölda hugmynda sem stjórnin ætlar sér að nýta
við skipulagningu félagsstarfsins.
Haustfundur var haldinn 4.11.86. Þar sýndi Helgi
Björnsson ýmsar niðurstöður íssjármælinga, Jón Sveins-
son myndir úr vorferð ’86 og Stefán Bjarnason myndir
frá byggingu gamla skálans á Grímsfjalli 1957.
Árshátíð var haldin 8.11.86. Fyrir henni stóð skemmti-
nefnd, Jón Sveinsson, Soffía Vernharðsdóttir og Ást-
valdur Guðmundsson, af miklum myndarskap. Veislu-
stjóri var Sveinn Sigurbjarnarson og ræðumaður Arn-
grímur Hermannson.
Á þessum aðalfundi 4.3.87 mun svo verða sýnd kvik-
mynd um fyrstu vélsleðaferð á Vatnajökul 1946. Sigríður
Ólafsdóttir, ekkja Árna Stefánssonar hefur lánað okkur
filmu til sýningar en einn leiðangursmanna, Einar B.
Pálsson mun tala með myndinni og skýra það sem fyrir
augu ber.
Allir félagsfundir voru ágætlega sóttir og almenn
ánægja með fræðsluefni. Færum við öllum fyrirlesurum
bestu þakkir fyrir fróðleik og skemmtan.
NÝR SKÁLI Á GRÍMSFJALLI
Eins og fram kom í skýrslu formanns á síðasta aðalfundi
hefur stjórn félagsins falið skálanefnd að reisa nýjan
skála á Grímsfjalli og verður hann smíðaður í vetur.
Áformað er að flytja skálann fullbúinn á Grímsfjall
næsta sumar, en þá eru liðin 30 ár frá því gamli skálinn
var reistur.
í Grímsvatnaferðinni í júní síðastliðnum var skálan-
um valinn staður og sléttaður grunnur undir hann. Nýi
skálinn verður 17 metrum fyrir austan þann gamla og
eins að útliti, nema gluggar verða á suðurhlið. Nýtanleg-
ur gólfflötur verður 43,5 ferm. og er hann því helmingi
stærri en sá gamli. Innréttingu verður hagað svo, að fyrst
er gengið inn í fremri forstofu sem er um 2,5 ferm. að
stærð. Ur henni er gengið hægra megin inn á salerni, en
vinstra megin í innri forstofu sem er um 8,5 ferm. að
stærð. Úr henni er svo gengið í sal, en stærð hans er tæpir
30 ferm. í salnum verður rúmgóð eldunaraðstaða, svefn-
pláss í kojum fyrir 24 og þar fyrir utan um 15 ferm.
gólfflötur. Skálinn verður byggður úr 2,5x6 tommu furu
og klæddur utan með 15 mm vatnsheldum krossviði, en
að innan með 6 mm grenikrossviði. Undir honum verður
stálgrind úr þremur IPE 180 stálbitum, en á hana verða
fest fjögur sérsmíðuð skíði sem skálinn verður dreginn á
upp jökulinn. Á Grímsfjalli verður borað niður í bergið
fyrir galvaniseruðum rörum, sem stálgrindin verður síð-
JÖKULL
No. 37,1987