Jökull - 01.12.1987, Side 106
að vegamótunum til Kerlingarfjalla. Heim var komið á
föstudegi 11. júlí með skíðafólki úr Kerlingarfjöllum.
Jökulheimaferðin
Hin árlega 13. september ferð var farin að þessu sinni
föstudaginn 12. sept. og stóð til og með 14. Farið var um
kl. 20 frá ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar. Kom-
ið var inn í Jökulheima milli klukkan eitt og tvö eftir
miðnætti. Á laugardeginum, sem var heiðskír með
þriggja stiga frosti og strekkingsvindi af norðri, var ekið
norður að Sylgjufelli og gengið á Surt, sem er gígur
vestan Sylgjufells. Stuttu eftir að komið var aftur í Jökul-
heima fóru nokkrir félagar inn að Tungnárjökli og
mældu hann. Kom þá í ljós að jökullinn hafði hopað um
59 m síðan í fyrra. Um kvöldið var að vanda glatt á
hjalla, sungið og sögur sagðar með meiru. Sunnudagur-
inn 14. var bjartur, lygn og 6 gráðu hiti. Um hádegisbilið
var farið frá Jökulheimum heim á leið og ekið um Veiði-
vatnasvæðið og upp á Vatnsfell í björtu og stilltu veðri og
víðu útsýni.
Rétt er að geta þess að lúpínufræið, sem sett var niður
í fyrra haust við Jökulheima var víðast hvar komið upp
og einnig var sett niður sams konar fræ núna.
í ferðinni tóku alls þátt 32. Þar af voru 8 sem voru í
samfloti á jeppum. Þrír þeirra höfðu farið úr Reykjavík
daginn áður og ekið á Grímsfjall um föstudagsmorgun-
inn og til baka um kvöldið.
Nautölduferð
Mælingaferð að Nauthaga- og Múlajökli var farin að
morgni föstudags 26. september kl. 8:15 frá Nesti, Ár-
túnshöfða. I ferðina mættu 37 manns, 2 hundar og 10
jeppar. Undanfarin ár hafa safnast í þessa ferð jeppaeig-
endur á farartækjum sínum, enda er leiðin inn í Naut-
öldu skemmtileg til jeppaaksturs. Nú var tekið það ráð
að auglýsa þessa ferð, vegna þeirra sem ekki hafa tök á
jeppaferð, en vilja gjarnan komast þarna inn eftir. Von-
ast var til að þátttaka yrði það góð að hægt yrði að taka
rútu. En sú varð ekki raunin á. Aðeins mættu þrír vegna
auglýsingarinnar og var þeim deilt niður á jeppana.
Ekið var um Flúðir í Hrunamannahreppi og upp hjá
Tungufelli inn á línuveginn, sem liggur ofan við Háafoss
og inn á norðurleiðina sunnan Sandafells. Ekið var
norður með Þjórsá að vestan sem leið liggur inn að
Nautöldu. Þangað var komið um kl. 18. Lítill kofi er þar
með svefnrými fyrir 8 manns, svo að flestir gistu í tjöld-
um. Að morgni laugardags var var farið inn að jökli.
Skiptist hópurinn við „Öldur-laugina“. Nokkrir fóru til
mælinga, en aðrir gengu ýmist á Olafsfell eða Hjartar-
fell. Þeir sem ætluðu að mæla gengu fyrst að mælinga-
staðnum við Nauthagajökul, sem er skammt austan við
laugina. Við mælingu kom í ljós að engar breytingar
höfðu átt sér stað síðan í fyrra. Vestari mælingastaður-
inn við Múlajökul var næstur. Þar hafði jökullinn gengið
fram um 34 m. Var jaðarinn þar mjög brattur og sprung-
inn ofan til en sléttari neðan til. Eftir því sem austar dró
varð jökullinn sprungnari og brattari. Við mælingastað-
inn, sem er nálægt miðjum jöklinum hafði hann hlaupið
fram um 318 m. Eftir rúmlega fjögurra og hálfs tíma
göngu í rigningu og strekkingsvindi af SA var komið að
lauginni. Notalegt var að leggjast í hana 38 stigaheita. Á
sunnudaginn var haldið í bæinn um Illahraun, Kerlingar-
fjöll, Hvítárnes og skógræktina í Haukadal. Komið til
Reykjavíkur um kl. 21:00.
RANNSÓKNIR í VOR OG SUMAR
í vor verður óvenjumikill leiðangur farinn á Gríms-
fjall. Þangað verður dreginn nýr skáli og frá honum
gengið við hlið hins gamla. Þar sem mikill mannfjöldi
mun fylgja skálanum gefst einnig tækifæri til margvís-
legra rannsókna.
Auk venjulegra mælinga á vatnshæð og vetrarákomu í
Grímsvötnum verður reynt að gera nákvæmt kort af
yfirborði og botni Grímsvatna með íssjár- og endur-
kastmælingum. Mældir verða jarðskjálftar við Gríms-
vötn og gerð tilraun til að bora gegnum íshelluna á
Vötnunum með bræðslubor. Einnig er í ráði að staðsetja
föst merki á jökulskerjum og fjallstoppum (Kerlingar,
Hamarinn, Pálsfjall, Þórðarhyrna, Svíahnjúkur). Hvort
allt þetta næst fer eftir veðri, efnum og ástæðum.
Tilraun með bræðslubor er að nokkru leyti undirbún-
ingur undir fyrirhugaða vinnu á Mýrdalsjökli í sumar.
Sótt hefur verið um styrki til mjög nákvæmra skjálfta-
mælinga, sem er ætlað að kortleggja berggrunn undir
Mýrdalsjökli og óreglur í honum. Við þessar mælingar
verður að bora allmargar holur niður í ísinn og framkalla
skjálfta með sprengingum í holunum. Leiðangrinum til
skjálftamælinga mun stjórna Ólafur Guðmundsson,
jarðeðlisfræðingur og fær hann væntanlega tæki til mæl-
inga að láni frá Bandaríkjunum. Samtímis þessu er
stefnt að því að gera endurbættar íssjármælingar á jökl-
inum ef styrkur fæst.
Eins og sjá má er ætlunin að sauma vel að Kötlu, en
vonandi verður henni ekki meir um atganginn en svo, að
hún fái vatni haldið.
JÖKLABREYTINGAR
Þótt aðeins nokkur hluti af jöklamælingum haustsins sé
kominn á skrá er ljóst að jöklar halda áfram að hopa.
Enn hopar Tungnárjökull hjá Jökulheimum, nú í ár
um 59 m. Jöklar á Vestfjörðum og Norðurlandi hafa
látið á sjá, Kaldalónsjökull hefur hopað um 100 m og
Reykjafjarðarjökull um 28 m.
104