Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2014, Blaðsíða 2
Helgarblað 17.–20. október 20142 Fréttir
Byggir stærsta kúabú landsins
Umhverfis- og skipulagsnefnd jákvæð gagnvart stækkun
S
elbakki, dótturfélag eins stærsta
útgerðarfélags landsins, Skinn-
eyjar-Þinganess, áformar að
stækka kúabú sitt að Flatey á
Mýrum um rúmlega helming, sam-
kvæmt heimildum DV. Nú eru um
110 mjólkandi kýr á búinu og er áætl-
að að til að byrja með verði þeim
fjölgað í 250. Ekki hefur enn verið
gefið út byggingarleyfi en þau mál
munu vera í ferli. Umhverfis- og
skipulagsnefnd Hornafjarðar fjallaði
um stækkun kúabúsins á fundi sín-
um 12. febrúar síðastliðinn og kem-
ur fram í fundargerð að nefndin hafi
verið jákvæð gagnvart erindinu.
Stærsta kúabúið á Íslandi í dag er
í Þverholtum á Mýrum í Borgarbyggð,
en þar eru á milli 160 og 170 mjólkandi
kýr. Því er ljóst að eftir stækkunina
verður kúabúið á Flatey á Mýrum það
stærsta á Íslandi. Skinney-Þinganes er
í eigu ættingja Halldórs Ásgrímssonar,
fyrrverandi formanns Framsóknar-
flokksins og utanríkis- og forsætisráð-
herra, og á hann hlut í fyrirtækinu. Í
fyrrnefndri fundargerð Umhverfis-
og skipulagsnefndar Hornafjarðar
kemur fram að Ásgrímur Ingólfsson,
formaður nefndarinnar, hafi vikið af
fundi á meðan stækkun búsins var
rædd en hann er tengist eigendum
Skinneyjar-Þinganess.
Í gegnum tíðina hefur staða
Framsóknar verið sterk í pólitíkinni á
Höfn Hornafirði og hefur flokkurinn
haft meirihluta undanfarin tólf ár
og var með hreinan meirihluta síð-
asta kjörtímabil. Eftir sveitarstjórn-
arkosningar í vor mynduðu D-listi
Sjálfstæðisflokks og E-listi Þriðja
framboðsins meirihluta. Framsókn
er nú með tvo bæjar fulltrúa af sjö í
bæjarfélaginu.
Kúabúið að Flatey var í eigu Lífsvals
en Landsbankinn yfirtók meirihluta
rekstursins 2008. Í fyrrahaust keypti
Selbakki, dótturfélag Skinneyjar-
Þinganess, reksturinn af bankanum.
Jörðin er um 2.500 hektarar. Kaupverð
var ekki gefið upp en þegar jörðin var
auglýst var ásett verð 480 milljónir. n
dagny@dv.is
Einn eigenda Halldór Ásgrímsson er einn
eigenda útgerðarfyrirtækisins Skinneyjar-
Þinganess. Mynd bragi josEfsson
Göngin lokuð
um helgina
Boðuð malbikun í
Hvalfjarðar göngum kemur til
framkvæmda um næstu helgi
og þá verða göngin lokuð frá
því kl. 20 föstudagskvöldið
17. október til kl. 6 að morgni
mánudags 20. október.
„Þetta er fyrsta malbikunin í
göngunum frá því voru opnuð
1998 og reyndar hefur slitlagið
enst margfalt betur og lengur
en nokkur maður þorði að
vona þá. Útilokað er að fræsa
og malbika nema loka fyrir
umferð á meðan og vinna
síðan í beit dag og nótt þar til
verki lýkur,“ segir á vef Spalar.
Stefnt er að því að ljúka öll-
um áformuðum verkefnum
áður en klukkan slær sex
að morgni mánudags 20.
október, en ef það tekst ekki
verður að loka göngunum
aðfaranótt þriðjudags 21.
október og jafnvel aðfaranótt
miðvikudags 22. október.
Reykjanesbær tapaði 21
milljón á víkingasafninu
n Safninu lánað fé í fyrra n Bergrisi reistur fyrir þrjár milljónir
R
eykjanesbær tapaði rúm-
lega 21 milljón króna á fé-
laginu Íslendingi ehf. sem
heldur utan um rekstur
og eignarhald á víkinga-
safninu Víkingaheimum í bænum.
Þetta kemur fram í ársreikningi fé-
lagsins sem samþykktur var í sum-
ar. Félagið er þekktast fyrir að halda
utan um eignarhald á víkingaskip-
inu Íslendingi sem Gunnar Marel
Eggertsson smíðaði og siglt var til
Bandaríkjanna árið 2000 til þess
minnast ferða Leifs Eiríkssonar
vestur um haf. Skipið er nú til sýn-
is á safninu.
Reykjanesbær tók félagið yfir árið
2011 með því að breyta rúmlega 100
milljóna króna kröfu á hendur því í
hlutafé. Fyrir hafði Reykjanesbær átt
23 prósent í félaginu á móti einkaað-
ilum eins og Gunnar Marel Eggerts-
syni, GLB Holding, Lykilráðgjöf ehf.,
Samherja og Olís. Allt í einu stóð
bæjarfélagið uppi sem eini eigandi
félagsins og hafði breytt 100 milljóna
kröfu sinni í hlutafé. Auk Reykjanes-
bæjar að verkefninu þá fékk Ís-
lendingur einnig 120 milljóna króna
styrk til sex ára árið 2005 og rötuðu
þeir fjármunir inn í reksturinn.
15 milljarða gat
Líkt og DV greindi frá á þriðjudaginn
var haldinn neyðarfundur í bæjar-
stjórn Reykjanesbæjar á mánudaginn
þar sem rætt var um frumdrög að
skýrslu sem endurskoðendafyrirtækið
KPMG er að vinna um fjárhagsvanda
sveitarfélagsins. Í DV sagði að eitt af
atriðunum sem koma munu fram í
skýrslunni sé að bæjarfélagið vanti 15
milljarða króna til að geta staðið við
þær lögboðnu skuldbindingar sínar
að koma skuldum niður fyrir 150 pró-
sent af árlegum tekjum.
skuldir við bæinn aukast
Víkingasafnið er vitanlega ekki stærsta
ástæðan fyrir bágri stöðu Reykjanes-
bæjar en saga þess er ágætt lítið dæmi
um óráðsíu í rekstri sveitarfélagsins
síðastliðin ár. Sveitarfélög vilja auð-
vitað reisa og reka menningarstofn-
anir en í tilfelli víkingasafnsins þá
stóð ekki til að fjárfesting bæjarins í
því yrði svo mikil. Ójafnað tap félags-
ins er nú rúmlega 88 milljónir króna
og Reykjanesbær hefur þegar þurft að
afskrifa 100 milljóna króna kröfu á fé-
lagið og skuldir Íslendings við bæjar-
félagið jukust um tæplega 23 milljónir
króna á síðasta ári.
Ekki tekin ákvörðun um framtíðina
Í samtali við DV segir Kjartan
Már Kjartansson, nýr bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, að ekki hafi verið
tekin ákvörðun um neitt annað en
að bærinn eigi og reki Víkingaheima
áfram. „Það hefur svo sem ekki verið
rætt í minni tíð að gera neitt annað.
Söfn og menningarstofanir, eins og
Víkingaheimar, eru í eðli sínu þannig
að þær eru reknar með tapi. Þetta er
þá frekar spurning um það hvort við
ætlum að vera með svona víkinga-
safn eða ekki. Það er búið að fjár-
festa í húsinu fyrir hundruð milljóna
eflaust og kaupa skipið á sínum tíma.
Þannig að það er fullt af eignum. En
við höfum ekkert farið í smáatriðum
í gegnum þessa umræðu, ekki ennþá
að minnsta kosti.“
„allt á uppleið“
Valgerður Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Víkingaheima, seg-
ir að rekstur safnsins sé á uppleið.
„Þetta er allt á uppleið. Það eru fleiri
gestir og meiri tekjur með hverjum
mánuðinum sem líður. Það eru
bjartir tímar framundan.“
Aðspurð um stóran bergrisa sem
búið er að meitla í stein fyrir utan
safnið segir Valgerður að til standi að
hann verði 8 til 10 metrar. „Þetta er
verkefni sem Jón Adolf listamaður er
að vinna fyrir okkur. Við vinnum þetta
hægt og hljótt. Hausinn liggur tilbúinn
fyrir framan Víkingaheima og það er
verið að raða honum í fulla stærð, 8 til
10 metra,“ segir Valgerður og bætir því
við aðspurð að kostnaðurinn við ris-
ann sé 2 til 3 milljónir króna. n
„Það eru
bjartir tímar
framundan
ingi freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Lán frá bænum Árni Sigfússon var bæjar-
stjóri í Reykjanesbæ þar til fyrr á árinu.
Tap á safninu Tap var á rekstri Víkingaheima
í fyrra en Reykjanesbær tók rekstrarfélag þess
Íslending yfir árið 2011. Þá skuldaði Íslendingur
Reykjanesbær 100 milljónir sem bærinn breytti í
hlutafé. Hér sjást safnið og stærðarinnar bergrisi
sem búið er að meitla í stein. Mynd sigTryggur ari
Æfa neyðarað-
stæður og gefa
kjötsúpu
Rauði krossinn á Íslandi stendur
fyrir landsæfingu sunnudaginn 19.
október, klukkan 11–15, og býður
þjóðinni jafnframt í mat. Alls verða
48 fjöldahjálparstöðvar opnaðar
um allt land þar sem sjálfboðalið-
ar Rauða krossins standa vaktina,
rétt eins og um alvöru neyðar-
ástand væri að ræða.
Það er klúbbur matreiðslu-
meistara sem leggur Rauða
krossinum lið á landsæfingunni
með því að reiða fram íslenska
kjötsúpu.
„Á síðustu vikum höfum við
sem búum á þessari eyju í Norður-
Atlantshafi verið rækilega minnt á
kraft óútreiknanlegra náttúruafla.
Hættan er ætíð til staðar fyrir alla
sem hér eru staddir, þar sem neyð
gæti orðið raunin á örskammri
stundu. Skapist alvöru neyð er
mikilvægt fyrir alla landsmenn, og
gesti okkar einnig, að vita hvert á
að sækja hjálp og hvar er hægt að
komast í öruggt skjól.
Rauði krossinn á Íslandi vonast
til að sjá sem flesta á landsæfing-
unni. Það er hagur okkar allra,“
segir í tilkynningu frá Rauða
Krossinum. Á vef samtakanna má
sjá allar þær fjöldahjálparstöðvar
sem verða opnar á sunnudag.