Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2014, Side 58

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2014, Side 58
58 Menning Sjónvarp Helgarblað 17.–20. október 2014 Króknaður kóngur í KSÍ-ríki Þ egar ljóst varð að ég myndi ekki ná miða á stórleik Ís- lands og Hollands á dögun- um kom smá vonarglæta í tilveruna. Samstarfsmaður minn minnti mig nefnilega á að ég væri blaðamaður og ætti því möguleika á að fá pressupassa á leikinn. Jackpot! Sæti á besta stað í stúkunni, kaffi, kleinur og kruðerí eins og ég gæti í mig látið og eina sem ég þyrfti að gera væri að skrifa nokkur orð um leikinn fyrir DV.is. Ég var til í að fórna mér í slíka sjálf- boðavinnu á mánudagskvöldi fyrir slík fríðindi. Á leikdag fékk ég staðfestingu á því að mín biði miði á leik- inn í afgreiðslunni á skrifstofu KSÍ þang- að sem ég sótti hann. Ég hafði aldrei verið blaðamaður á lands- leik. Ég vissi ekki einu sinni hvar blaða- mannastúkan er – aldrei pælt í því. Mér var sagt að þrátt fyrir að blaða- menn þurfi að hafa með sér far- tölvur og aðrar rándýrar græjur, sitji þeir úti undir berum himni eins og aðrir miðaeigendur. Ókei, lifum það af. Mér var ráðlagt að klæða mig vel. Ég pakkaði mér inn til pólfarar. Fór í ullarföðurlandið, þykka peysu, ullarsokka, setti á mig húfu, trefil og vettlinga. Í töskunni var ég með far- tölvuna mína, skrifblokk og penna. Farsímann í brjóstvasanum. Fær í flestan sjó. Ég hafði miklar áhyggjur af því fyrirfram að fokdýra raðgreiðslu- tölvan mín myndi fara illa í bruna- gaddinum á Laugardalsvelli og þær áhyggjur dvínuðu ekkert meðan ég hjólaði á völlinn. Það var kalt. Ég arkaði inn í blaðamannaherbergið, ég hafði fundið það. Þar var röð af stólum, borð og á veggnum hékk lykilorðið að þráðlausa netinu sem við gætum notað. Í næsta herbergi pikkuðu fulltrúar erlendra fjölmiðla á lyklaborð sín. Mér til mikillar hamingju kom ég auga á veitinga- borðið. Drekkhlað- ið samlokum, snúð- um, kökum, tertum og kleinum. Og kaffi, ó, hið ljúfa kaffi. Ég gúffaði í mig kleinu og skolaði henni niður með einum rjúkandi heitum bolla og hugsaði: „Olræt. Blaðamaðurinn, er kóngur í KSÍ- ríki. Ég gæti vel vanist þessu.“ Það fór vel um mig þegar flaut- að var til leiks. Þetta frost var ekkert að bíta á mig, vakúmpakkaðan í öll mín fínustu útivistarföt. Ég ákvað að hripa niður helstu atvikin og rífa svo upp tölvuna þegar til tíðinda drægi. Í prufukeyrslunni fyrir leik komst ég fljótt að því að þráðlausa netið sem virkaði í blaðamanna- bönkernum dreif ekki út fyrir dyrn- ar í stúkuna. Einn kollegi gaukaði því að mér að ég þyrfti líklega að logga mig á annað þráðlaust net þarna úti. Það reyndist rétt. En vissu útlendingarnir það? Með laskað netsamband reif ég upp tölvuna strax á 9. mínútu. Ís- land hafði skorað og það varð að segja frá því. Ótrúleg tíðindi. Ég á Macbook Air-tölvu og fyrir þá sem ekki vita þá er hún að mestu úr áli. Málmi sem kólnar hratt í skilyrð- um eins og í Laugardal á mánu- dagskvöld. Eins og staur sem þú gætir hafa freistast til að sleikja sem krakki og til að athuga hvort þú festist við. Ég reif mig úr hönsk- unum og hóf að pikka. Eftir 10 mínútna baráttu við tæknina kom ég fréttinni út. Þá var ég hættur að geta beygt puttana. Ég var freðinn inn að beini. Ég var eins og níræð- ur kall með gigt og það var tap- aður leikur að ætla sér að nota fingrasetninguna í frostinu. Ég var kominn í tveggja putta pikkið. Pólfararhjúpurinn hafði verið rofinn. Kuldinn hafði læst í mig klónum og læðst inn að kjarna. Það var ekki aftur snúið. Ég fékk mér meira kaffi. Skammgóður vermir. Tölvan var eins og hraðfrysti- hólf svo ég ákvað að pakka henni aftur inn og sitja með hana í kjöltunni til að halda á henni hita. Þegar líða tók á hálf- leikinn kom skjálftinn. Ég saug sultardropana upp í nös og fylgdist hugfanginn og stoltur með framgöngu strák- anna okkar gegn hollensku stórstjörnunum. Það glamraði í tönnunum á mér. Annað mark! Hvílíkt og annað eins! Hugsaði ég og blótaði for- réttindaógæfu minni eilítið því ég yrði að endurtaka kuldaferlið með tölvuna. Kaffi og kleinur stóðu í kokinu á kollegum mínum allt í kring. Þetta var ótrúleg staða. Ég brosti út að eyrum. Ég hafði raun- ar byrjað að brosa á 9. mínútu eft- ir fyrra markið. Ég gat bara ekki hætt. Brosið var frosið á andlitinu á mér. Ég gæti þó notað hálfleikinn til að hlýja mér í blaðamannabönk- ernum. Fengið mér meira kaffi. Ég rifjaði upp öll helstu trikk Bear Grylls til varnar ofkælingu. Notaði þau. Takk Discovery Channel. Ég leit í kringum mig og furðaði mig á því af hverju enginn annar væri að krókna. Þarna sátu menn sem sáu um beinar textalýsingar frá leiknum á sínum miðlum. Ekki voru þeir að pikka í hönskum. Eða hvað? Er ég svona mikill aumingi? Ég fékk mér enn meira kaffi. Klukk- an var að ganga níu og ég er ekki vanur að drekka kaffi á kvöldin. Ég var hættur að greina hvort kjálkinn á mér væri að nötra sökum kulda eða koffíns. Að hugsa sér, ég hefði getað setið heima í hlýju með bjór og horft á leikinn á RÚV og ekki þurft að hafa áhyggjur af því að verða fyrsti blaðamaðurinn til að verða úti í stúkunni á Laugar- dalsvelli. Engum virtist vera kalt nema mér. Hvað er að mér? Síðari hálfleikur var tíðinda- laus og tölvan fékk frið til leiksloka. Hugleiðingar og helstu atvik hrip- aði ég hjá mér með penna, íklædd- ur hönskum. Blekið var við það að frjósa í hylkinu. Ég hafði pakk- að tölvutöskunni inn í teppi sem blaðamenn fá skaffað og vafði því aðeins um mig líka. Ég leit í kringum mig, var ég virkilega eini auminginn sem var að nýta mér teppin? Ég þiðnaði fljótt þegar leik var lokið. Klakabunkinn brotnaði utan Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport Sunnudagur 19. október Stöð 2 Sport 2 Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 07.00 Morgunstundin okkar 07.01 Smælki (1:26) 07.04 Kalli og Lóla (19:26) 07.15 Tillý og vinir (29:52) 07.26 Kioka (46:52) 07.33 Pósturinn Páll (5:13) 07.48 Ólivía (31:52) 07.59 Sebbi (31:31) 08.10 Kúlugúbbarnir (7:26) 08.34 Tré-Fú Tom (24:26) 08.56 Um hvað snýst þetta allt? (37:52) 09.00 Disneystundin (41:52) 09.01 Finnbogi og Felix (11:13) 09.24 Sígildar teiknimyndir 09.30 Nýi skólinn keisarans 09.53 Millý spyr (62:78) 10.00 Chaplin (10:50) 10.06 Undraveröld Gúnda 10.20 Fisk í dag e (1:8) 10.30 Óskalög þjóðarinnar e (1:8) (1944-1953) 11.25 Hraðfréttir e 11.45 Nautnir norðursins 888 e (7:8) (Noregur - fyrri hluti) 12.15 Djöflaeyjan (3:27) 888 e 12.45 Villta Arabía e (2:3) (Wild Arabia) 13.35 Litir ljóssins 888 e 14.20 Gasland e 16.05 Sitthvað skrítið í náttúr- unni e (Nature's Weirdest Events) 17.00 Vísindahorn Ævars e 17.10 Táknmálsfréttir (49) 17.20 Stella og Steinn (18:42) 17.32 Sebbi (3:40) 17.44 Ævintýri Berta og Árna 17.49 Hrúturinn Hreinn (2:10) 17.56 Skrípin (24:52) 18.00 Stundin okkar (3:28) 18.25 Basl er búskapur (1:10) (Bonderøven) 19.00 Fréttir 19.20 Veðurfréttir 19.25 Íþróttir 19.40 Landinn (6) 888 20.10 Vesturfarar (9:10) 20.50 Hraunið (4:4) Æsispennandi íslensk sjónvarpssería og sjálfstætt framhald þáttaraðarinnar Hamarsins. Umdeildur útrásarvíkingur finnst látinn og í fyrstu lítur út fyrir að um sjálfsvíg sé að ræða. Aðalhlutverk: Björn Hlynur Haraldsson, Atli Rafn Sigurðarson, Heiða Rún Sigurðardóttir, Jóhann G. Jóhannsson, Jón Páll Eyj- ólfsson, María Ellingsen o.fl. Leikstjóri: Reynir Lyngdal. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna. 21.45 Downton Abbey 8,8 (1:8) Breskur myndaflokkur sem gerist upp úr fyrri heimsstyrjöld og segir frá Crawley-fjölskyldunni og þjónustufólki hennar. 22.55 Vafasöm fjármögnun 5,7 (Elles) Franskur spennu- tryllir frá 2011. Juliette Binoche leikur blaðakonu sem fær það verkefni að fjalla um skipulagt vændi háskólanema. Rannsóknin hefur djúp áhrif á hana og mörkin milli eigin einkalífs og viðfangsefnisins verða óskýr. Leikstjóri: Malgorzata Szumowska. Atriði í myndinni eru ekki við hæfi barna. 00.30 Afturgöngurnar (3:8) (Les revenants) Atriði í þáttun- um eru ekki við hæfi barna. 01.20 Útvarpsfréttir 10:10 Þýski handboltinn 11:35 Spænski boltinn 14/15 13:15 Spænski boltinn 14/15 14:55 Undankeppni EM 2016 16:35 Euro 2016 - Markaþáttur 17:25 Moto GP 18:25 Undankeppni EM 2016 (Ísland - Holland) 20:05 Pepsí deildin (FH - Stjarnan) 22:05 Þýsku mörkin 22:35 Meistaradeild Evrópu - fréttaþáttur 23:05 UFC Unleashed 2014 23:50 NBA 09:00 Premier League 10:40 Premier League 12:20 Premier League 14:50 Premier League (Stoke - Swansea) 17:00 Premier League (Arsenal - Hull) 18:40 Premier League (QPR - Liverpool) 20:20 Premier League (Burnley - West Ham) 22:00 Premier League (Stoke - Swansea) 23:40 Premier League (Everton - Aston Villa) 07:30 My Cousin Vinny 09:30 You've Got Mail 11:30 The Jewel of the Nile 13:15 Fun With Dick and Jane 14:45 My Cousin Vinny 16:45 You've Got Mail 18:45 The Jewel of the Nile 20:30 Fun With Dick and Jane 22:00 Pacific Rim 00:10 Dredd 01:45 Game of Death 03:25 Pacific Rim 15:40 The Carrie Diaries 16:25 World Strictest Parents (3:6) 17:25 Friends With Benefits (9:13) 17:45 Silicon Valley (8:8) 18:10 Guys With Kids (15:17) 18:35 Last Man Standing (11:18) 19:00 Man vs. Wild (2:13) 19:45 Bob's Burgers (14:23) 20:10 American Dad (3:20) 20:35 The Cleveland Show (16:22) 21:00 Eastbound & Down 4 (7:8) 21:30 The League (8:13) 21:55 Almost Human (8:13) 22:40 Graceland (7:13) 23:20 The Vampire Diaries (14:23) 00:00 Man vs. Wild (2:13) 00:45 Bob's Burgers (14:23) 01:10 American Dad (3:20) 01:35 The Cleveland Show (16:22) 02:00 Eastbound & Down 4 (7:8) 02:25 The League (8:13) 02:50 Almost Human (8:13) 17:20 Strákarnir 17:45 Friends (10:24) 18:05 Little Britain (7:8) 18:35 Modern Family (8:24) 19:00 Two and a Half Men (4:22) 19:25 Viltu vinna milljón? (4:19) 20:15 Suits (6:12) 21:00 The Mentalist (18:24) 21:40 The Tunnel (1:10) 22:30 Sisters (21:22) 23:20 Hunted 00:20 Viltu vinna milljón? (4:19) 01:05 Suits (6:12) 01:50 The Mentalist (18:24) 02:30 The Tunnel (1:10) 07:00 Barnatími Stöðvar 2 07:01 Strumparnir 07:25 Ævintýraferðin 07:35 Könnuðurinn Dóra 08:00 Algjör Sveppi 08:05 Doddi litli og Eyrnastór 08:15 Latibær 08:25 Elías 08:35 Tommi og Jenni 08:55 Grallararnir 09:15 Ben 10 09:40 Kalli kanína og félagar 09:50 Villingarnir 10:15 Ozzy & Drix 10:35 Lukku láki 11:00 Scooby-Doo! 11:20 iCarly (20:25) 11:45 Töfrahetjurnar (4:10) 12:00 Nágrannar 12:20 Nágrannar 12:40 Nágrannar 13:00 Nágrannar 13:20 Nágrannar 13:40 Stelpurnar (4:10) 14:05 Heilsugengið (2:8) 14:25 Meistaramánuður (3:4) 14:45 Veep (8:10) 15:15 Mike & Molly (16:23) 15:40 Louis Theroux: Extreme Love - Dementia 16:45 60 mínútur (3:52) 17:30 Eyjan (8:16) 18:23 Veður 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:55 Sportpakkinn (60:100) 19:10 Ástríður (10:12) 19:35 Sjálfstætt fólk (4:20) 20:10 Neyðarlínan (5:7) Önnur þáttaröðin með dagskrár- gerðarkonunni Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur sem fylgir eftir sögum fólks sem hringt hefur í Neyðarlínuna á ögur- stundu. Raunveruleg símtöl viðmælenda þar sem kallað er eftir hjálp eru spiluð og rætt við sjúkraflutninga- menn, lækna, björgunar- sveitarmenn, neyðarverði og aðstandendur. 20:35 Rizzoli & Isles (13:16) 21:20 Homeland 8,5 (3:12) Fjórða þáttaröð þessarra mögnuðu spennuþátta þar sem við höldum áfram að fylgjast Með Carrie Mathieson, starfsmanni bandarísku leyniþjón- ustunnar. Líf hennar er alltaf jafn stormasamt og flókið, föðurlandssvikarar halda áfram að ógna öryggi bandarískra þegna og hún og Sal takast á við erfiðasta verkefni þeirra til þessa. 22:10 The Knick 8,6 (10:10) Glæný þáttaröð með Clive Owen í aðalhlutverki. Hún fjallar um lækna og hjúkr- unarkonur á Knickerbocker sjúkrahúsinu í New York í upphafi tuttugustu aldar. 23:10 60 mínútur (4:52) 00:00 Eyjan (8:16) 00:50 Daily Show: Global Edition 01:15 Outlander (1:16) Magn- aðir þættir sem fjalla um hjúkrunarkonuna Claire Beauchamp en hún vinnur við að hjúkra særða her- menn í seinni heimsstyrj- öldinni. Á dularfullan er hún allt í einu komin til ársins 1743 og er stödd í miðju borgarastríði í Skotlandi. 02:20 Legends (5:10) 03:05 Boardwalk Empire (6:8) 04:00 What's Your Number 05:45 Fréttir 06:00 Pepsi MAX tónlist 10:45 The Talk 11:25 The Talk 12:05 The Talk 12:45 Dr.Phil 13:25 Dr.Phil 14:05 Survivor (2:15) 14:50 Kitchen Nightmares (4:10) 15:35 Growing Up Fisher (5:13) 16:00 The Royal Family (5:10) 16:25 Welcome to Sweden (5:10) 16:50 Parenthood (4:22) 17:35 Remedy (4:10) 18:20 Reckless (7:13) 19:05 Minute To Win It Ísland (5:10) 20:05 Gordon Ramsay Ultima- te Cookery Course (16:20) Frábærir þættir þar sem Gordon Ramsey snýr aftur í heimaeldhúsið og kennir áhorfendum einfaldar aðferðir við heiðarlega heimaeldamennsku. 20:30 Red Band Society (2:13) Allir ungu sjúklingarnir í Red Band Society hafa sögu að segja og persónuleg vanda- mál að yfirstíga. Vandaðir og hugljúfir þættir fyrir alla fjölskylduna. 21:15 Law & Order: SVU (10:24) 22:00 Fargo 9,1 (4:10) Fargo eru bandarískir sjónvarps- þættir sem eru skrifaðir af Noah Hawlay og eru undir áhrifum samnefndrar kvikmyndar Coen bræðra frá árinu 1996 en þeir eru jafnframt framleiðendur þáttanna. 22:50 Hannibal 8,6 (4:13) Önnur þáttaröðin um lífs- nautnasegginn Hannibal Lecter. Rithöfundurinn Thomas Harris gerði hann ódauðlegan í bókum sínum og kvikmyndir sem gerðar hafa verið, hafa almennt fengið frábærar viðtökur. Þótt erfitt sé að feta í fótspor Anthony Hopkins eru áhorfendur og gagnrýnendu á einu máli um að stórleikarinn Mads Mikkelsen farist það einstaklega vel úr hendi. Heimili fjöldamorðingins, mannætunnar og geðlæknirisins Hannibals Lecter er á SkjáEinum. Lög- reglan er kölluð út þegar lík finnst á engi. Beverly heldur áfram að ráðfæra sig við Will á laun um morðmál. 23:35 Ray Donovan 8,2 (7:12) Vandaðir þættir um harðhausinn Ray Donovan sem reynir að beygja lög og reglur sem stundum vilja brotna. Spennan magnast þegar öll Donovan fjölskyldan kemur saman í tilefni af afmæli Conors. Eltihrellir Ashley snýr aftur. 00:25 Scandal (17:18) 01:10 The Tonight Show 01:55 Fargo (4:10) 02:45 Hannibal (4:13) 03:30 Pepsi MAX tónlist Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Helgarpistill af puttunum á mér og ég gat á end- anum skrifað frétt um úrslitin, en þó nánast á hlaupum því ég elti kollega mína áttavilltur, að svæðinu þar sem viðtölin eru tekin og blaðamanna- fundurinn fer fram. Ég er ekki íþrótta- blaðamaður svo ég er ekki vanur því að komast svo nálægt mönnum eins og Robin Van Persie og Arjen Robben, sem ég hef dáðst að gegnum sjón- varpsskjáinn í tæpan áratug, að ég geti fundið lyktina af rakspíranum þeirra. Ég stóðst freistinguna að bola yfir mig. Fylgdist bara með, smellti af nokkrum myndum og skráði niður komment. Stúkan fyrir utan var orðin tóm. Nokkrir starfs- menn og harðir stuðn- ingsmenn af yngstu kynslóðinni stóðu fyr- ir utan leikvanginn í leit að áritunum og sel- fies með íslensku átrún- aðargoðunum, sem lyft höfðu grettistaki og lagt Golíat undir flóðljósunum á Laugardalsvelli. Þegar ég var kominn heim og hélt áfram að vinna úr því efni sem ég hafði sankað að mér eftir leikinn sá ég ekki eftir neinu þó að klukkan væri orðin margt og vinnudagurinn orðinn langur. Ég hafði verið á staðn- um, á besta stað, með kaffi og kleinur að krókna úr kulda, þegar Ísland vann sögulegan 2–0 sigur á bronsliðinu frá HM í Brasilíu í sumar. Ekki það að ég hafi ekki borið virðingu fyrir íþrótta- blaðamanninum fyrir, en ég fékk innsýn og fann til auk- innar virðingar fyrir þeirra störfum. Þetta leggja þeir margoft á sig, í öllum veðr- um. Margir þarna voru eins og ég – knattspyrnu- áhugamenn að skrifa um leikinn sem þeir elska. Ör- ugglega utan vinnutíma og í sjálfboðavinnu – eða því sem næst, eins og ég. Þegar öllu var á botninn hvolft var þetta mergjað kvöld og mögnuð upp- lifun. Ég lá auðvitað andvaka eftir alla kaffidrykkjuna en kýs að líta á hjart- sláttartruflanirnar sem lítil gleðihopp í hjartanu. Stundum er kalt en þá er bara að finna ylinn í klakabeltinu. Hann er þarna einhvers staðar. n „Ég var hættur að greina hvort kjálk- inn á mér væri að nötra sökum kulda eða koffíns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.