Feykir - 12.06.1991, Qupperneq 3
22/1991 FEYKIR 3
Opið hús í tilefni 30 ára afmæli sjúkrahússins
Stjómendur Sjúkrahúss Skag-
flrðinga stóðu fyriropnu húsi í
sjúkrahúsinu, laugardaginn 8.
júní s.l. Tilefni þess var 85 ára
samfellt starf Sjúkrahúss
Skagfirðinga. Þaðstarfaði við
Aðalgötu í 55 ár og á
Sauðárhæðum í s.l. 30 ár.
Sýnd var saga sjúkrahússins í
myndum og einnig tækja-
búnaður til lækninga fyrr á
árum, sem er all frumstæður
og ókunnuglegur nútímafólki.
Einnig voru sýnd tæki til
lækninga nú til dags, svo og
önnur aðstaða á öllum
deildum sjúkrahússins.
Sjúkrahúsið starfar nú í
sex deildum. Það eru sjúkra-
deild, hjúkrunardeild, stoð-
deildir (þar undir skurðstofa,
rannsóknarstofa, röntgenþjón-
usta, sjúkraþjálfun o.fl. þættir),
ellideild, hjúkrunarheimili,
dvalardeiid, auk stjórnunar,
launaskrifstofu og annara
þjónustuþátta.
Til að annast alla þessa
þjónustu hefur sjúkrahúsið
aflað sér góðs tækjakost, þó
alltaf megi betur gera.
Heimilaðar stöður við sjúkra-
húsið eru 121.
Við þetta tækifæri var
útilistaverk eftir Sverri Ólafs-
son myndhöggvara, sett upp.
Ber það nafnið ,,Á fáki
fráum”. Einnig innanhúss
málverk eftir Sigurð Örlygs-
son og myndverk, sem er
viðurkenning vegna samnor-
ræns samstarfs um að hætta
að reykja.
Margt manna kom þennan
opna dag í Sjúkrahús
Skagfirðinga.
Búrhvelið veltist um í sjónum skammt frá Reykjarhólsfjöru.
SAMVINNUBÓKIN
Nú höiirn við hækkað vexti á Samvinnubókinni.
Þeir eru nú 14% Ársávöxtun er því 14.49%
HAGSTÆÐ ÁVÖXTUN í HEIMABYGGÐ
INNLÁNSDEILD KAUPFÉLAGS SKAGFIRÐINGA
Stóran hval rak á fjöru við
bæinn Reykjarhól í Fljótum í
síðustu viku. Bóndinn á
Reykjarhóli Jóhannes Runólfs-
son varð hvalsins var þegar
hann var að reka að landi um
miðnætti á þriðjudagskvöld,
þá virtist hann strandaður um
20 metra frá landi. Síðan
hefur skrokkurinn færst nokkuð
nær landi þannig að nú eru
aðeins um 5-6 metrar út að
þeim enda sem snýr að landi.
Starfsmenn Hafrannsóknar-
stofnunar komu norður sl.
föstudag til að rannsaka
hvalinn, m.a. tóku þeir úr
honum eina tönn en með
henni er hægt að komast að
hver aldur dýrsins er. Hjá
Gísla Víkingssyni (starfsm.
Hafrannst.) fengust þær
upplýsingar að þarna væri
um Búrhvalstarf að ræða,
lengd dýrsins væri um 16
metrar og áætlaður þungi um
45 tonn. Skrokkurinn er
nokkuð heillegur að sjá og
taldi Gísli að dýrið hefði ekki
verið búið að velkjast lengi í
sjónum áður en það rak á
land og er þarna líklega
komið það sem trillukarlar í
Fljótum töldu sig hafa orðið
vara við í sjónum út af
svokölluðum Almenningum
fyrir nokkrum dögum.
Ekkert hefur enn verið
rætt um hvort ^ hvalhræið
verður látið grotna niður á
staðnum eða fjarlægt, en á
því eru skiljanlega nokkrir
erfiðleikar vegna stærðar
skepnunnar. I einhverjum
tilvikum munu þó varðskip
hafa verið fengin til að draga
slíka gesti á haf út þar sem
þeim hefur síðan verið sökkt.
ÖÞ.
Kristján Runólfsson, Valgarður Einarsson og Jón Stefánsson
virða fyrir sér gömul læknisáhöld úr sögu sjúkrahússins.
Skagaströnd:
Séðframá
mikínn
kennaraskort
í haust
Ekki er beinlínis útlit fyrir að
Skagastrendingum takist að
manna grunnskólann réttinda-
kennurum í haust. Astandið er
heldur verra en vanalega í
kennaramálum á Skagaströnd.
Aðeins einn réttindakennari er
nú á staðnum og vantar í
a.m.k. sex stöður, þar á meðal
í stöðu skólastjóra.
Páll Leó Jónsson lét af
starfi skólastjóra í vor og
hefur flutt sig um set inn á
Blönduós. Guðmundur Ingi
Leifsson fræðslustjóri vonar
að ráðning nýs skólastjóra á
Skagaströnd, en staða hans
hefur verið auglýst, geti
auðveldað lausn á kennara-
eklunni þar. Annars sagði
Guðmundur að kennaramálin í
kjördæminu væru enn nokkuð
óljós.
Þess má geta að hrepps-
nefndin á Skagaströnd hefur
tekið á þessum vanda á þann
hátt að veita kennurum 22%
launahækkun. Að mati hrepps-
nefndarinnar er þessi auka-
greiðsla sanngjarnari en
húsaleigubætur sem ekki
hafa tíðkast á Skagaströnd.
Heimamenn verði ekki útundan
með þessu móti, eins og hefur
gerst með húsaleigubætumar.
Búrhveli rekur á
fjöru í Fljótum