Feykir - 12.06.1991, Side 5
22/1991 FEYKIR 5
Vísitasíu biskups
lauk í kaffisamsæti
hjá Skagamönnum
Skagaíjarðarprófastsdæmi leysti gestina út með gjöf, klukku á blágrýtisgrunni með mynd af
Drangey á klukkuskífunni. Biskupshjónin Ebba Sigurðardóttir og Ólafur veita gjöfinni viðtöku
úr hendi prófastshjónanna Hjálmars og Signýar.
Vísitasíu biskups íslands
herra Ólafs Skúlasonar lauk
með messum í kirkjunum í
Hvammi og í Ketu á Skaga sl.
föstudag. Heimsókn biskups-
hjónanna á Skagann endaði
með kaffisamstæti í Skagaseli
síðdegis þar sem borð svignuðu
undan kræsilegum veitingum.
Svo skemmtilega vildi einnig
til að sóknarnefndarfor-
maðurinn Jón Stefánsson á
Gauksstöðum varð sextugur
þennan dag.
Fjöldi ávarpa voru flutt í
Skagaseli. Lárus Björnsson
oddviti í Neðra-Nesi flutti
tölu og vék þar skemmtilega
að reynslu Skagamanna af
sóknarprestinum og prófast-
inum sr. Hjálmari Jónssyni,
sem hafi reynst hin mesta
óveðurskráka til að byrja
með, mátti varla messa þá
brast hann á með stórhríð, en
séra Hjálmar mun hafa sótt
betur að veðravættum Skaga-
manna eftir að hann varð
prófastur.
Prófasturinn vék aftur að
móti að framgöngu biskups í
vísitasíunni, sem var ekki
einungis vaskleg í kirkjunum,
heldur lét herra Ólafur sig
ekki muna um að heimsækja
vinnustaði. Mátti á máli
Hjálmars skilja að ekki hafi
miklu munað að undir iljar
biskups sæist þegar aðstoða
þurfti kind við lambsburð á
Goðdalatúni.
Biskupsjónin þökkuðu frá-
bærar og glæsilegar móttökur
hvar sem þau komu og taldi
biskup maga sinn ekki þola
frekari veisluhöld að sinni,
en þær munu hafa losað 600
terturnar sem hann bragðaði.
Þakklæti biskupshjónanna
beindist ekki síst til prófasts-
hjónanna Hjálmars og Signýjar,
sem þau sögðu að hefðu
aldeilis stjanað við sig. Signý
þakkaði á móti og færði
Skagamönnum öllum þakkir
sínar og manns síns.
I vísitasíunni sem stóð frá
26. maí til 7. júní heimsótti
biskup söfnuði prófasts-
dæmisins, 21 að tölu, prédikaði
í 28 guðsþjónustum og helgi-
stundum. Það var einungis
Abæjarkirkja sem varð út-
undan að þessu sinni, en
vegurinn þangað var illfær.
Að lokinni messu í Ketu. Lárus í Neðra-Nesi er flutti tölu í Skagaseli í kirkjudyrum.
Frá Norræna
félaginu á
Sauðárkróki
Nú stendur yfir farandsýn-
ing í bókasafninu á Sauðár-
króki um Samaland, sem
kemur frá Mála- og upplýs-
ingamiðstöðinni í Helsinki
(Sprák- och informations-
centret). Menning Sama og
lífshættir eru aðalviðfangs-
efnið á sýningunni. Megintil-
gangur sýningarinnar er að
auka fræðslu um Samaþjóðina
og gefa skýrari mynd af
þessum nágrönnum okkar.
Sýningin á þannig brýnt
erindi til okkar allra. Sýningin
stendur yfir dagana 19. til 29.
júní safnið er opið mánudaga,
þriðjudaga og miðvikudaga
frá kl. 15.00-19.00, fimmtu-
daga frá kl. 20.00-22.00 og
föstudaga frá kl. 14.00-18.00.
Frá Ferðafélagi
Skagfirðinga
Sunnudaginn 23. júní verður
farið til Ólafsfjarðar og í
Svarfaðardal. Upplýsingar
gefnar í síma 35260 og 985-
32112 (Lóli) á kvöldin.
17. JÚNÍ
►FATNAÐUR
► MATUR
►LEIKFÖNG
GLEÐILEGÁI
ÞJÓÐHÁ TÍÐ
SKAGFIRÐINGABÚÐ