Feykir - 26.06.1991, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 24/1991
Byggðasafnið á Reykjum:
Eitt athyglisverðasta byggðasafn landsins
en margir hafa ekki hugmynd um að það sé til
Þegar ekið er meðfram
Hrútafirði að austan-
verðu blasa við skóla-
byggingamar á Reykjum
Trúlega er mikilúð-
leiki þeirra ein ástæðan
fyrir því að lítið ber á
láreistu húsi er stendur
hálfvegis bakatil á
Reykjatanganum. Þetta
hús hýsir Byggðasafnið
á Reykjum, en tilvist
þess virðist ekki vera á
vitorði margra, eins
og aðsóknartölur sýna.
Er það mjög miður,
því ekki verður annað
sagt en safnið sé
skemmtilegt og fjöl-
breytt, enda fer það
orð af Reykjasafninu
að það sé eitt athygli-
verðasta byggðasafn
landsins.
Einn mesti styrkleiki þess
er án efa stærð húsnæðis,
rúmt er um munina og njóta
þeirsín því vel. A sínum tíma
var stofnað til safnsins af
þremur sýslum, Vestur- og
Austur- Húnavatnssýslu og
Strandasýslu. Standa þau
straum af rekstri safnsins,
sem eins og önnur byggða-
söfn ber merki atvinnulífs-
hátta fyrri tíma og fram á
þennan dag.
Guðmundur Karlsson á
Mýrum formaður byggða-
safnsstjómar vísaði um salar-
kynni þegar tíðindamaður
Feykis heimsótti safnið nýlega.
Aðspurður taldi Guðmundur
tvo hluta safnsins vekja
sérstaka forvitni gesta. Það
eru hákaiiaskipið Ofeigur frá
Ófeigsfirði á Ströndum, og
baðstofan frá Syðsta-Hvammi
sem Sigurður Davíðsson lét
smíða og byggð var 1873 af
Stefáni Jónssyni snikkara frá
Syðsta-Hvammi.
Hákarlaskipiö
Hákarlaskipið Ófeigur er
engin smá fleyta, tíræðinn
áttæringur. Hann bar full-
hlaðinn 55 tunnur lifrar eða
sjö lestir. Það var Jón
Jónsson skipasmiður í Kross-
nesi í Árneshreppi sem
smíðaði skipið fyrir Guðmund
Pétursson í Ófeigsfirði. Hann
var lengi formaður á Ófeigi,
sem gerður var út í 38
vertíðir.
Það kemur sjálfsagt upp í
hugann hjá mörgum sem sjá
Ófeig hve hörð lífsbarátta
þjóðarinnar var fyrrum. Þá
voru hákarlaveiðar helsti
útvegur íslenskra sjósóknara.
Oft hefur mönnum sjálfsagt
orðið lítið svefnsamt í
útilegum, og ekki hefur það
veríð neitt sældarlíf að
skreiðast undan seglinu á
morgnana illa sofinn með
saltbarið andlitið. Þá hefði
einhver kallað það „svart”
púl að róa þessari biksvörtu
fleytu í kolniðaþoku með 55
lifrartunnur innanborðs.
Skilti safnsins fékk
ekki aö standa
Það yrði löng upptalning að
Hér má sjá hluta landbúnaðarverkfæra byggðasafnsins.
\ 1 lJ ™ r j\,A
M>\ i -\ la ■ 1 j
Guðmundur Karlsson á Mýrum við hákarlaskipið Ófeig, styður hönd á lýsiskerald mikið.
geta helstu rnuna í safninu á
Reykjum. Geta má þess þó
að þarna er kominn vísir að
búvélasafni. Skráðir munir
safnsins erum um 2000, en
mikið er óskráð. Um 1000
gestir skoða safnið þá þrjá
mánuði sem það er opið yfir
sumarið. Yfir veturinn eru
starfræktar skólabúðir á
Reykjum og er á námsskrá
nemenda þar skoðunarferð í
safnið. Að þessum ungu
gestum meðtöldum, lætur
nærri að um 1770 manns
heimsæki byggðasafniðárlega.
Það er alltof lítið miðað við
hvað safnið hefur upp á að
bjóða.
Ekki bætti það úr skák
gagnvart þeim fjöldamörgu
sem ekki vita af safninu, að
vegagerðin lét fjarlæga skilti
þess við þjóðveginn fyrir
tveimur árum. En eftir að
hafa skoðað Byggðasafnið að
Reykjum er hiklaus ástæða
til að hvetja fólk til að líta þar
við. Örugglega finna allir þar
eitthvað forvitnilegt við sitt
hæfi.
„Aö sjálfsögðu..."
sigraöi Ágústa Jóna Heiödal í söngvarakeppninni
„Hún Sigga sagði mér bara að koma upp
°g syngja. Jú, ég var svolítið stressuð
fyrst, en svo gekk þetta mjög vel”. Ágústa
Jóna Heiðdal níu ára stelpa á Króknum
gerði sér lítið fyrir og sigraði í
söngvarakeppninni sem hljómsveitin
Stjórnin stóð fyrir þegar hún var á ferð
nýlega.
„Eg mátti alveg ráða hvað ég söng”.
— Og varstu ekki í neinum
vandræðum með hvað þú ættir að
syngja?
„Nei, ég ákvað að syngja lag sem
Sigga hafði gert frægt og heitir Ég lifi í
voninni”.
Og var ekkert erfitt að syngja?
„Nei, þetta gekk alveg léttilega hjá
mér”, sagði Ágústa. Það hefur eflaust
hjálpað henni í söngnum að sjálfstraustið
er í góðu lagi. „Að sjálfsögðu!”, sagði
hún þegar einhver leyfði sér að vera
hissa á því að hún hefði unnið í
keppninni, sem alls tíu efnilegir
söngvarar þreyttu. Ágústa er ekki alveg
viss um hvort hún ætlar að verða
söngkona þegar hún verður stór. Hún
væri voðalítið farin að velta framtíðinni
fyrir sér. En eitt var hún með alveg á
hreinu. Sigga Beinteins væri sín
uppáhalds söngkona.